Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
60 ára Hugrún er frá
Vatnsenda í Eyjafjarð-
arsveit, en býr á Akur-
eyri. Hún er leikskóla-
kennari að mennt frá
Gautaborgarháskóla
og sérkennari frá Há-
skóla Íslands. Hugrún
er sérkennari á leikskólanum Huldu-
heimum.
Maki: Hálfdán Örnólfsson, f. 1957, fram-
haldsskólakennari við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri.
Börn: Arnhildur, f. 1988, Örnólfur, f.
1992, og Kjartan, f. 1996.
Foreldrar: Elín Kjartansdóttir, f. 1934, fv.
bóndi, búsett á Akureyri, og Sigmundur
Benediktsson, f. 1936. vélvirkjameistari
og fv. bóndi, búsettur á Akranesi.
Hugrún
Sigmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það þarf ýmislegt að leggja á sig til
þess að halda sambandi við annað fólk gang-
andi. Taktu þér pásu seinnipartinn og ein-
beittu þér að fallegustu draumsýn sem þú
getur hugsað þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Það gerist ekkert meðan þú situr með
hendur í skauti. Viljastyrkurinn er lítill þessa
dagana, en það kemur dagur eftir þennan.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að hemja löngun þína til að
lesa öðrum pistilinn. Ástamálin eru eitthvað
að vefjast fyrir þér, hugsaðu um eitthvað ann-
að og þá skýtur lausninni upp í hugann.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þér tíma til að íhuga hvað það
er sem skiptir þig máli. Mundu að annað fólk
er jafn metnaðargjarnt og kappsfullt í starfi
og þú.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Einhver uppákoma verður til þess að þú
þarft að láta uppi hug þinn til máls, sem þú
hefðir helst viljað láta kyrrt liggja. Leyfðu öðr-
um að eiga í sínum átökum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ef þú gætir þess að hafa allt á hreinu
máttu vænta þess að þér verði umbunað fyrir
vel unnin verk. Sjáðu til þess að allir hafi nóg
af verkefnum heima fyrir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert viðkvæm/ur fyrir ójafnvægi ann-
arra, sem er ástæðan fyrir því að veikt fólk
þefar þig uppi. Hlustaðu samt vandlega á það
sem sagt er þannig að þú misskiljir ekki neitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Allt sem viðkemur fjármunum er
í óvissu í dag. Nöldurseggir eiga ekki upp á
pallborðið hjá þér. Þú ferð í matarboð í kvöld
þar sem ýmislegt kemur upp á yfirborðið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú færð óvæntar gleðifréttir svo
full ástæða er til að gera sér glaðan dag. Þú
munt hitta áhugaverða persónu í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Matur er mannsins megin en of
mikið má af öllu gera svo gættu hófs. Láttu
þér ekki bregða þótt einhver sé ekki á sömu
skoðun og þú.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hætt við að spenna sem
hefur verið að safnast upp í þér að undan-
förnu brjótist fram í dag. Núna er gott að
jafna gamlan ágreining.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú átt erfitt með að einbeita þér að
hlutunum í dag og ættir því að fara þér hægt.
Sköpunarkrafturinn kemst upp á yfirborðið.
sterka og fjölhæfa dansara eins og
hefur sést í þeim keppnum sem við
höfum tekið þátt í.“
DansKompaní hefur vaxið mikið
og skólinn náði til dæmis góðum
árangri á heimsmeistaramótinu í
var og er nemendur í DansKompaní.
Skólinn er djassballettskóli en nem-
endur geta valið hvort þeir vilja
bæta við sig öðrum dansstílum, eins
og t.d. ballett, nútímadansi og com-
mercial. Markmiðið er að þjálfa
H
elga Ásta Ólafsdóttir
fæddist 30. janúar
1991 í Reykjavík og
ólst upp í Hólunum í
Breiðholti fyrir utan
eitt ár þegar sem hún átti heima á
Blönduósi 1996-1997. „Móðurfjöl-
skylda mín átti heima á Blönduósi
og því var ég mikið þar sem barn og
unglingur. Við flytjum síðan í Árbæ-
inn þegar ég var þrettán ára en ég
hafði æft fótbolta með Fylki lengi
fyrir það og var alltaf mikill Árbæ-
ingur.“
Helga gekk í Hólabrekkuskóla í
1.-8. bekk og fór svo í Árbæjarskóla
í 9.-10. bekk. Hún stundaði nám við
Verslunarskóla Íslands og skipti svo
yfir í Menntaskólann við Hamrahlíð
þar sem hún varð stúdent um jólin
2010.
Helga byrjaði í samkvæmisdansi
þegar hún var fjögurra ára og fór
svo í Danslistaskóla JSB þegar hún
var sjö ára. Þaðan útskrifaðist hún
með diplómapróf af nútímalistdans-
braut árið 2010. Einnig hefur hún
sótt ýmis námskeið erlendis í dans-
kennslu og viðskiptum. Helga lauk
svo jógakennaranámi vorið 2020.
Hún vann margar danskeppnir á
yngri árum og var dansari og dans-
höfundur í Dansflokknum Rebel
sem náði langt í báðum sjónvarps-
seríum Dans Dans Dans sem sýndar
voru á RÚV árið 2011 og 2012.
Dansflokkurinn dansaði einnig á
ýmsum viðburðum og í auglýs-
ingum.
Helga var aðeins tvítug þegar hún
stofnaði Rebel Dance Studio árið
2011 ásamt vinkonu sinni, og tók svo
alfarið við dansskólanum eftir eitt ár
og rak hann þar til í desember 2014.
Í lok árs 2013 keypti Helga rekstur
DansKompanís í Reykjanesbæ en
skólinn hafði þá verið starfræktur í
þrjú ár undir stjórn Ástu Bærings.
„Ég rak því báða skólana árið 2014
en ákvað svo að einbeita mér 100%
að DansKompaní eftir það.“
400 nemendur eru í skólanum,
börn sem fullorðnir, og 15 starfs-
menn. „Í DansKompaní eru frábær-
ir kennarar og ég legg mikið upp úr
því að þjálfa kennara í skólanum
þannig að meirihluti kennaranna
dansi, Dance World Cup. Í úrslita-
keppni mótsins árið 2019 vann skól-
inn bronsverðlaun í flokki Senior
small group Commercial. Í forkeppni
fyrir heimsmeistaramótið 2020, hér
innanlands, sem haldin var í febrúar
sl. var 21 atriði og unnu þau öll til
verðlauna, þrenn brons-, tvenn silf-
ur- og 16 gullverðlaun. „Því miður
var úrslitakeppnin, sem halda átti í
Róm, ekki haldin sumarið 2020 vegna
Covid-ástandsins.“
Hópur úr skólanum komst einnig í
Helga Ásta Ólafsdóttir, skólastjóri og eigandi DansKompaní, Listdansskóla Suðurnesja – 30 ára
Stórfjölskyldan Helga ásamt, frá vinstri talið: dóttur sinni, bræðrum, stjúpsyni, eiginmanni og foreldrum.
Stýrir dansskóla í fremstu röð
Bronsliðið Helga ásamt bronsliðinu frá heimsmeistaramótinu 2019.
Mæðgur Útivist í Þórsmörk.
40 ára Axel er Sauð-
krækingur, fæddur og
uppalinn á Sauðár-
króki og býr þar. Hann
er vélstjóri að mennt
frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri og er
vélstjóri á frystitog-
aranum Arnari HU 1 hjá Fisk Seafood.
Axel er í ferðaklúbbnum 4X4.
Maki: Ósk Bjarnadóttir, f. 1984, lærður
kjötiðnaðarmaður en er gangavörður í
Árskóla.
Börn: Anton Þorri, f. 2007, Bríet, f. 2010,
og Eydís Inga, f. 2014.
Foreldrar: Eyjólfur Sveinsson, f. 1948, fv.
jarðverktaki, og Ingibjörg Axelsdóttir, f.
1956, fiskvinnslukona hjá Fisk Seafood.
Þau eru búsett á Sauðárkróki.
Axel Sigurjón
Eyjólfsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is