Morgunblaðið - 30.01.2021, Síða 40
segir Emil mikilvægt að hlusta eftir
því hvaða félög hafa virkilegan
áhuga á að nýta krafta leikmannsins.
„Félagið sýndi mér mikinn áhuga og
þjálfarinn hafði mikinn áhuga á að fá
mig. Það ýtir manni alltaf í áttina
þangað sem maður vill fara. Þú vilt
fara eitthvað þar sem menn vita
hver þú ert og hafa fylgst með þér.
Hjá Sarpsborg hafa menn víst fylgst
með mér í einhvern tíma og þetta er
fullkomin tímasetning núna. Spiltími
er það mikilvægasta sem maður fær
í fótbolta og maður á meiri mögu-
leika hafi þjálfarinn fylgst með
manni og sé með hlutverk fyrir
mann. Nú er svo undir mér komið að
standa mig.“
Orðinn líkari Davíð Viðars
Hlutverk Emils á vellinum hefur
breyst nokkuð frá því íslenskir
knattspyrnuunnendur fylgdust með
honum á Íslandsmótinu en Emil var
valinn besti leikmaður efstu deildar
árið 2015 þegar hann lék fyrri hluta
tímabilsins með Fjölni og þann síð-
ari með FH.
Emil hefur yfirleitt verið mið-
tengiliður og var gjarnan á ferðinni
á milli vítateiga. Nú hefur hann
færst aðeins aftar og hjá Sarpsborg
eru mestar líkur á að hann verði
varnartengiliður.
„Þeir fá mig í þeim tilgangi að
nota mig aftarlega á miðjunni eins
og gert var hjá Sandefjord. Ég hef
færst yfir í það hlutverk og er í því
að vinna boltann. Um leið á ég að
stjórna leiknum eins og hægt er
bæði varðandi spil og leiðtogahæfni.
Ég er orðinn meiri Davíðs Þórs Við-
ars týpa en þegar ég var heima á Ís-
landi. Það má kannski segja að ég
eigi að vera þessi háværi, pirrandi
miðjumaður sem stoppar sóknir en
er um leið góður í fótbolta,“ sagði
Emil og hló.
Náði sér að fullu
Emil fór í tvær aðgerðir fyrir um
tveimur árum. Annars vegna slitnaði
hásin og hins vegar þurfti að bregð-
ast við þegar hælbeinið stækkaði
óhóflega en þessi tvö mál tengdust
reyndar.
„Á síðasta keppnistímabili missti
ég bara af einum leik og það var
bara út af höggi sem ég fékk í leik.
Ég hef verið góður og vonandi held-
ur það bara áfram. Endurhæfingin
gekk í raun framar vonum eftir að-
gerðirnar og ég náði síðustu sjö
leikjunum árið 2019, sem ekki hafði
verið búist við. Í framhaldinu fékk
ég nýjan samning hjá Sandefjord,“
sagði Emil Pálsson.
Allir tala vel um félagið
Emil Pálssyni líst mjög vel á sig hjá Sarpsborg Leikur aftar á vellinum
en áður Lið sem var í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrir þremur árum
Ljósmynd/Sarpsborg
Í Noregi Emil Pálsson í búningi norska liðsins Sarpsborg á dögunum.
NOREGUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Emil Pálsson, knattspyrnumaður
frá Ísafirði, gekk á dögunum í raðir
Sarpsborg frá Sandefjord eins og
frá var greint hér í blaðinu.
„Ég er mjög sáttur. Þetta er klár-
lega skref upp á við þar sem Sarps-
borg er stærra félag en Sandefjord.
Möguleikarnir á því að gera góða
hluti í deildinni eru meiri að mér
finnst,“ sagði Emil þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann.
Samningur hans við Sandefjord var
útrunninn og Emil segist hafa fengið
nokkrar fyrirspurnir áður en hann
tók ákvörðun.
„Ég fékk tvö eða þrjú önnur tilboð
en ég ætla ekki að fara út í hvaðan
þau komu. Einnig virtist vera áhugi
hér og þar. Þegar ég skoðaði það
sem ég hafði fengið í hendurnar
fannst mér Sarpsborg líta best út.
Ég þekki bæði Íslendinga og Norð-
menn sem spilað hafa með liðinu og
þeir tala allir vel um félagið. Ég hef
verið hérna í tíu daga og fyrstu
kynni af félaginu eru mjög jákvæð.
Aðstæðurnar eru góðar og margir
góðir leikmenn í hópnum. Auk þess
er metnaðurinn mikill. Liðið var í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyr-
ir þremur árum en hefur ekki átt
frábær tímabil síðustu tvö ár. Stefn-
an er sett á að rífa þetta aftur í gang
á næsta tímabili og vonandi get ég
spilað mikið og tekið þátt í því,“
sagði Emil.
Sýndu mikinn áhuga
Þegar leikmenn geta farið á
frjálsri sölu í atvinnumennskunni
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Frakkland
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Reims – Lyon............................................ 0:5
Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik-
inn með Lyon og skoraði eitt mark.
Ítalía
Torino – Fiorentina.................................. 1:1
B-deild:
Vicenza – Venezia ................................... 0:0
Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í leik-
mannahópi Venezia. Óttar Magnús Karls-
son er frá keppni vegna meiðsla.
Holland
B-deild:
Jong PSV – Jong Ajax............................. 1:2
Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á
sem varamaður hjá PSV á 84. mínútu
Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki í
leikmannahópi Ajax.
Belgía
B-deild:
Lommel – Deinze ..................................... 4:2
Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn
með Lommel og lagði upp mark.
England
B-deild:
Reading – Bournemouth ......................... 3:1
Staða efstu liða:
Norwich 25 16 5 4 35:21 53
Swansea 25 13 8 4 30:14 47
Watford 26 13 8 5 30:18 47
Reading 26 14 5 7 40:29 47
Brentford 24 12 9 3 38:22 45
Bournemouth 26 11 9 6 39:24 42
Middlesbrough 26 11 6 9 30:24 39
Bristol City 25 12 3 10 27:27 39
Stoke 26 9 10 7 31:28 37
Blackburn 25 10 6 9 40:28 36
Þýskaland
Stuttgart – Mainz ..................................... 2:0
Spánn
Real Valladolid – Huesca......................... 1:3
HM karla í Egyptalandi
Undanúrslit:
Frakkland – Svíþjóð............................. 26:32
Spánn – Danmörk................................. 33:35
Danmörk og Svíþjóð leika til úrslita kl.
16.30 á sunnudag en Spánn og Frakkland
leika um bronsið kl. 13.30.
Grill 66-deild karla
Víkingur – Vængir Júpíters ................ 25:14
Staðan:
Víkingur 7 6 0 1 184:166 12
Valur U 6 5 0 1 183:158 10
Fjölnir 6 4 1 1 172:156 9
Kría 6 4 0 2 167:161 8
HK 5 3 0 2 135:116 6
Selfoss U 6 2 1 3 161:166 5
Haukar U 5 2 0 3 130:128 4
Vængir Júpíters 7 1 0 6 141:189 2
Hörður 4 1 0 3 117:126 2
Fram U 6 0 0 6 152:176 0
Dominos-deild karla
ÍR – Haukar.......................................... 97:83
Stjarnan – Keflavík ............................ 115:75
Staðan:
Stjarnan 6 5 1 581:511 10
Keflavík 6 5 1 551:496 10
Þór Þ. 6 4 2 607:541 8
Njarðvík 6 4 2 528:518 8
Grindavík 6 4 2 541:541 8
ÍR 6 4 2 542:544 8
KR 6 3 3 543:570 6
Valur 6 3 3 494:498 6
Tindastóll 6 2 4 563:562 4
Haukar 6 1 5 504:544 2
Þór Ak. 6 1 5 543:591 2
Höttur 6 0 6 526:607 0
1. deild karla
Fjölnir – Vestri ..................................... 94:98
Hrunamenn – Álftanes ........................ 86:98
Hamar – Breiðablik.......................... 100:102
Sindri – Skallagrímur .......................... 92:64
Staðan:
Hamar 4 3 1 386:364 6
Álftanes 5 3 2 465:441 6
Breiðablik 4 3 1 391:371 6
Sindri 5 3 2 458:426 6
Hrunamenn 4 2 2 349:370 4
Vestri 5 2 3 452:483 4
Skallagrímur 5 2 3 435:428 4
Selfoss 4 1 3 319:336 2
Fjölnir 4 1 3 345:381 2
Evrópudeildin
Panathinaikos – Valencia................... 91:72
Martin Hermannsson skoraði 13 stig,
tók 2 fráköst og gaf 5 stoðsendingar hjá
Valencia.
NBA-deildin
Houston – Portland .......................... 104:101
Detroit – LA Lakers .......................... 107:92
Miami – LA Clippers........................ 105:109
Phoenix – Golden State...................... 114:93
Tómas Ingi Tómasson hefur verið
ráðinn aðstoðarþjálfari meist-
araflokks karla hjá Fylki í knatt-
spyrnu. Verður hann einnig yfir af-
reksþjálfun drengja og stúlkna hjá
félaginu. Tómas Ingi tekur við
starfinu af Ólafi Inga Skúlasyni
sem tók á dögunum við þjálfun
U-19 ára landsliðs karla og U-15
ára landsliðs kvenna. Verður Tóm-
as Ingi því aðalþjálfurum Fylkis,
þeim Atla Sveini Þórarinssyni og
Ólafi Inga Stígssyni, til aðstoðar.
Ólafur var lengi aðstoðarþjálfari
U21 árs landsliðs karla.
Tómas aðstoð-
ar í Árbænum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Árbær Tómas Ingi Tómasson er
kominn til Fylkis í Árbænum.
„Aðdragandinn var mjög stuttur,“
sagði Dagný Brynjarsdóttir, lands-
liðskona í fótbolta, í samtali við
Morgunblaðið. Dagný samdi í vik-
unni við enska úrvalsdeildarfélagið
West Ham til átján mánaða. Dagný
hefur alla tíð verið stuðningsmaður
félagsins og er hún spennt að halda
til Englands.
„Mér finnst enska deildin ótrú-
lega spennandi. Ég hefði getað far-
ið í toppliðin í öðrum deildum en ég
vildi fara í ensku deildina á meðan
ég gat það,“ sagði Dagný. Viðtalið
má sjá í heild sinni á mbl.is/sport/.
Deildin ótrúlega
spennandi
Ljósmynd/West Ham
Hamrarnir Dagný Brynjarsdóttir
gerði samning við West Ham.
KÖRFUBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Stjarnan sendi öðrum liðum í Dom-
inos-deild karla í körfubolta skýr
skilaboð með 115:75-risasigri á Kefla-
vík á heimavelli í gærkvöldi en Kefla-
vík var með með fullt hús stiga fyrir
leikinn. Eru liðin nú jöfn með 10 stig
hvort eftir sex leiki, tveimur stigum á
undan Njarðvík, Þór frá Þorlákshöfn,
Grindavík og ÍR.
„Þetta var alvöruliðsframmistaða
hjá Stjörnunni þar sem leikmenn
dreifðu stigunum vel á milli sín, hittu
afar vel yfir höfuð og þá sérstaklega
úr þriggja stiga skotum. Þá var varn-
arleikur Stjörnumanna framúrskar-
andi, þar sem gamla brýnið Hlynur
Bæringsson var í broddi fylkingar,“
skrifaði Gunnar Egill Daníelsson
m.a. um leikinn á mbl.is. Austrin
Brodeur var stigahæstur í Stjörn-
unni með 19 stig í sínum fyrsta leik.
Haukar í miklu basli
Í Breiðholti tryggðu ÍR-ingar sér
97:83-sigur á Haukum með góðum
seinni hálfleik. ÍR hefur unnið þrjá af
síðustu fjórum leikjum sínum en
Haukar eru í basli og eru aðeins með
einn sigur úr sex leikjum og fjögur
töp í röð. Evan Singletary skoraði 34
stig fyrir ÍR.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Illviðráðanlegur Það þurfti tvo til að stöðva Hlyn Bæringsson í gær.
Skýr skilaboð
Stjörnumanna
Jöfnuðu Keflavík með risasigri