Morgunblaðið - 30.01.2021, Page 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Þegar allt að þrettán lands-
liðskonur, og jafnvel fleiri, hverfa
á braut eins og fjallað er um í
greininni hér til hliðar, verður
það að sjálfsögðu sjónarsviptir
fyrir keppnina í úrvalsdeild
kvenna í fótbolta á komandi
tímabili.
Þessar þrettán, sem eru í
raun fjórtán með Gunnhildi Yrsu
Jónsdóttur sem var í láni hjá Val
en snýr aftur til Bandaríkjanna,
eiga samtals 444 landsleiki að
baki og skoruðu ellefu af fimm-
tán mörkum íslenska landsliðs-
ins á síðasta ári.
Áfall fyrir deildina, kynni ein-
hver að segja, þegar allir þessir
gæðaleikmenn eru horfnir úr
landi. En er það svo víst? Kona
kemur í konu stað, svo gamalt
máltæki sé lagað að nútímanum,
og það verða eftir sem áður ell-
efu í hverju byrjunarliði.
Stór kynslóð efnilegra fót-
boltastúlkna er á leið inn í meist-
araflokksliðin um þessar mundir
og stúlknalandslið Íslands hafa
náð mjög góðum árangri und-
anfarin misseri. Þær ættu að fá
aukin tækifæri og stærri hlut-
verk í ár.
Þá hafa íslensku félögin verið
ansi lagin við að ná í góða er-
lenda leikmenn og sennilega
hafa ekki allir áttað sig á því hve
margar erlendar landsliðskonur
af ýmsu þjóðerni hafa spilað í ís-
lensku úrvalsdeildinni, jafnvel
deild neðar, á undanförnum ára-
tug. Þær styrkja liðin og auka
samkeppnina.
Efnilegu leikmennirnir þurfa
nefnilega líka góða leikmenn sér
við hlið til að taka meiri fram-
förum og læra meira.
Síðan þurfa félögin og KSÍ að
beita sér fyrir því, eins og áður
hefur verið nefnt á þessum stað,
að lengja tímabilið og fjölga leikj-
um. Það hlýtur að vera ofarlega á
forgangslistanum.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
REYKJAVÍKURLEIKAR
Í dag er keppt í listhlaupi á skautum,
pílukasti, júdó, skylmingum, borðtennis,
Enduro-hjólakeppni og hermiakstri.
Á morgun er keppt í ólympískum lyft-
ingum, karate, pílukasti, listhlaupi á skaut-
um og kraftlyftingum. Nánar á rig.is.
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Kaplakriki: FH – ÍBV ............................ L15
KA-heimilið: KA/Þór – Fram ................ L15
Kórinn: HK – Valur................................ L18
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Ásvellir: Haukar – Þór Ak ..................... L17
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Hertz-höllin: Grótta – Selfoss ............... L14
Varmá: Afturelding – HK U .................. S15
Origo-höllin: Valur U – ÍR ................ S19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Kórinn: HK – Valur U....................... L15.30
Dalhús: Fjölnir – Kría ............................ S16
Ásvellir: Haukar U – Fram U................ S16
Hleðsluhöll: Selfoss U – Hörður....... S16.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Höllin Ak.: Þór Ak. – Valur ............... S15.30
Ásvellir: Haukar – KR....................... S18.15
MVA-höllin: Höttur – Njarðvík ........ S19.15
IG-höllin: Þór Þ. – Tindastóll ............ S20.15
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Vestri......... S16
1. deild kvenna:
IG-höllin: Hamar/Þór – Fjölnir b.......... L16
Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Vestri...... L16
MG-höllin: Stjarnan – Tindastóll .......... L16
Hertz-hellir: ÍR – Ármann ..................... S16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Egilshöll: Fjölnir – SA ...................... L17.45
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildi:
Akureyri: SA – SR............................. L17.45
Akureyri: SA – SR .................................. S09
UM HELGINA!
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hvorki fleiri né færri en þrettán
landsliðskonur í knattspyrnu sem
léku með íslenskum félagsliðum á
árinu 2020 hafa gengið til liðs við er-
lend atvinnulið í haust og vetur.
Dagný Brynjarsdóttir varð sú
þrettánda í röðinni þegar West Ham
tilkynnti í fyrrakvöld að hún hefði
samið við félagið. West Ham er á sínu
þriðja ári í ensku úrvalsdeildinni og
freistar þess að festa sig betur í sessi,
m.a. með því að fá reyndan leikmann
eins og Dagnýju í sínar raðir, en
Lundúnaliðið er í botnbaráttu þegar
keppnin er hálfnuð.
Ljóst er að sá árangur landsliðsins
að tryggja sér sæti í lokakeppni Evr-
ópumótsins sem fram fer sumarið
2022 hefur verið hvati fyrir margar
þeirra til að fara í atvinnumennsku og
freista þess að eiga möguleika á að
standa sig sem allra best þegar að
lokakeppninni kemur.
Átta frá Breiðabliki og Val
Af þessum þrettán leikmönnum
léku átta með tveimur langbestu lið-
um landsins á síðasta tímabili, fimm
með Breiðabliki og þrjár með Val, og
því eru talsverð skörð höggvin í þeirra
raðir. Berglind Björg, Alexandra,
Sveindís, Karólína og Andrea voru all-
ar í Íslandsmeistaraliði Breiðabliks en
þó er fyrirhugað að Andrea snúi aftur
til Blika í vor þar sem um lánssamn-
ing er að ræða. Hallbera, Guðný og
Hlín voru í lykilhlutverkum hjá Val.
Þrjár eru farnar frá Selfossi, Anna
Björk, Dagný og Barbára, en hjá Bar-
báru er einnig um lánssamning að
ræða. Hún leikur því væntanlega á
Selfossi í sumar, rétt eins og Arna Sif
Ásgrímsdóttir með Þór/KA. Þær eru
báðar í láni hjá tveimur af bestu lið-
um Skotlands. Þá fór Berglind Rós
fyrirliði Fylkis til Svíþjóðar í vetur.
Nokkrar hafa fært sig um set er-
lendis síðasta hálfa árið, þar á meðal
landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunn-
arsdóttir sem fór frá næstbesta liði
heims í það besta. Þá er Guðbjörg
Gunnarsdóttir aftur komin í slaginn
um markvarðarstöðu landsliðsins og
komin í sterkara lið en áður með því
að flytja til Noregs og ganga til liðs
við Arna-Björnar.
Svava Rós Guðmundsdóttir tekur
áhugavert skref með því að fara frá
Kristianstad í Svíþjóð til Bordeaux,
þriðja besta liðs Frakklands.
Breytt landslag á Englandi
Með komu Dagnýjar til West Ham
á Ísland á ný fulltrúa í hinni ört vax-
andi ensku úrvalsdeild sem smám
saman er að verða að einni þeirri
sterkustu í heiminum. Eftir að stóru
og fjársterku félögin fóru að taka
kvennafótboltann alvarlega og deild-
in varð að alvöruatvinnudeild hefur
landslagið á Englandi gjörbreyst.
Það sést best á því að nú eru Chelsea,
Manchesterliðin tvö, Arsenal og
Everton í fimm efstu sætunum og
Tottenham, West Ham og Aston
Villa eru meðal tólf liða sem skipa
deildina. Leicester, Liverpool og
Sheffield United eru öll í baráttu um
að komast þangað fyrir næsta tíma-
bil.
Rakel Hönnudóttir lék síðust Ís-
lendinga í deildinni, með Reading, en
hún sneri heim í ársbyrjun 2020. Á
undan henni var Katrín Ómarsdóttir
fulltrúi Íslands á árunum 2013 til
2016 þegar hún varð tvisvar enskur
meistari með Liverpool og lék einnig
með Doncaster.
Þrettán eru farnar úr landi
Íslenskar landsliðskonur í knattspyrnu streyma í atvinnumennsku Árangur
landsliðsins og EM 2022 hvatning Áhugaverð þróun í ensku úrvalsdeildinni
Íslenskar landsliðskonur í fótbolta erlendis
England
Dagný Brynjarsdóttir
West Ham (London)
Ítalía
Guðný Árnadóttir
Napoli
Noregur
Guðbjörg Gunnarsdóttir Arna-Björnar (Bergen)
Ingibjörg Sigurðardóttir Vålerenga (Ósló)
Þýskaland
Alexandra Jóhannsdóttir
Eintracht (Frankfurt)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Bayern (München)
Sandra María Jessen Leverkusen
Bandaríkin
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Kansas City
Svíþjóð
Berglind Rós Ágústsdóttir
Örebro
Hallbera Guðný
Gísladóttir AIK Stokkhólmur)
Hlín Eiríksdóttir Piteå
Sveindís Jane Jónsdóttir
Kristianstad
Glódís Perla Viggósdóttir
Rosengård (Malmö)
Guðrún Arnardóttir
Djurgården (Stokkhólmur)
Sif Atladóttir Kristianstad
Frakkland
Andrea Rán Hauksdóttir Le Havre*
Anna Björg Kristjánsdóttir Le Havre
Berglind Björg Þorvaldsdóttir Le Havre
Sara Björk Gunnarsdóttir Lyon
Svava Rós Guðmundsdóttir Bordeaux
Skotland
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Glasgow City*
Barbára Sól Gísladóttir
Celtic (Glasgow)*
Hafa farið í
atvinnumennsku í
haust og vetur
Hafa skipt um félag
erlendis frá 1. júlí
Leika áfram með
sama félagi erlendis
*Eru í láni og snúa
aftur til Íslands í vor
Tveir af fremstu íþróttamönnum
landsins í einstaklingsgreinum
verða á ferðinni á Reykjavíkurleik-
unum um helgina. Sveinbjörn Iura,
sem berst fyrir því að komast á Ól-
ympíuleikana, er á meðal keppenda
á júdómóti leikanna en úr-
slitakeppni er í Laugardalshöll frá
kl. 15 til 16.30 í dag. Júlían J.K. Jó-
hannsson keppir á sínu fyrsta móti í
langan tíma en kraftlyftingamótið
fer fram í Sporthúsinu í Kópavogi á
morgun kl. 15 til 19. Dagskrá leik-
anna er annars á rig.is og fjallað er
ítarlega um þá á mbl.is/sport.
Sveinbjörn og
Júlían keppa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lyftir Júlían J.K. Jóhannsson kraft-
lyftingamaður keppir á morgun.
Handknattleiksmaðurinn Stefán
Rafn Sigurmannsson er kominn til
Hauka á nýjan leik eftir níu ár í at-
vinnumennsku erlendis. Haukar
kynntu hann til leiks í gær en Stef-
án er að jafna sig af meiðslum sem
komu í veg fyrir að hann gæti leikið
með Pick Szeged í vetur og urðu að
lokum til þess að hann rifti samn-
ingi sínum við félagið fyrr í þessum
mánuði. Stefán hefur orðið þýskur,
danskur og ungverskur meistari
með Rhein-Neckar Löwen, Aalborg
og Szeged á farsælum ferli erlendis
og leikið 72 landsleiki.
Stefán kominn
aftur í Hauka
Ljósmynd/Haukar
Haukar Stefán Rafn Sigurmannsson
er kominn í Hafnarfjörð á ný.
HM 2021
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Norðurlandaþjóðirnar Danmörk og
Svíþjóð leiða saman hesta sína í úr-
slitaleik heimsmeistaramóts karla í
handbolta í Egyptalandi á morgun,
sunnudag, eftir sigra í undanúrslitum
í gær.
Svíar, sem hafa komið gríðarlega á
óvart á mótinu, gerðu sér lítið fyrir og
unnu 32:26-sigur á Frökkum.
Danir höfðu betur gegn Spánverj-
um, 35:33. Danir eiga titil að verja en
danska liðið varð heimsmeistari í
fyrsta og eina skipti á heimsmeist-
aramótinu fyrir tveimur árum eftir
sigur gegn Noregi í úrslitaleik. Ann-
að mótið í röð mæta Danir því Norð-
urlandaþjóð í úrslitaleik.
Svíþjóð hefur þrívegis orðið heims-
meistari, síðast einmitt í Egyptalandi
árið 1999. Svíþjóð komst í úrslitaleik
HM þrjú mót í röð frá 1997 til 2001 og
lék um verðlaun á hverju einasta
heimsmeistaramóti frá 1986 til 2001.
Síðan þá er besti árangur Svía fjórða
sæti á heimavelli árið 2011, en Sví-
þjóð hefur ekki leikið í úrslitum á HM
síðan í Frakklandi 2001.
Danir leika í úrslitum í fimmta
skipti en Danir töpuðu þremur úr-
slitaleikjum áður en fyrsti sigurinn
kom loksins fyrir tveimur árum. Lið-
in mættust síðast á HM 2019 og vann
Danmörk þá 30:26-sigur.
AFP
Stjarnan Mikkel Hansen er skærasta stjarna danska landsliðsins.
Norðurlanda-
slagur í úrslitum
Danir og Svíar fóru í úrslit á HM