Morgunblaðið - 30.01.2021, Side 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
Ekkert baktjaldamakk
sperrti eyrun á síðasta ári. Upphafsstemman,
„Sakna“, er djúp-„ambient“, líkt og það hefði verið
gefið út af Warp-merkinu um miðjan tíunda ára-
tuginn. Það er eins og maður sé kominn
niður á hafsbotn, svo umlykjandi er
þessi tónsmíð. „Bróðir“ siglir áfram á
svipaðan hátt en hér má heyra trommu-
slátt Magnúsar innan um rafhljóð og
drunur. Dálítið kvikmyndalegt eigin-
lega (og í þann geira hefur Magnús Jó-
hann dýft tám). „Waiting“ opnar með
píanói. Við erum komin úr sjónum og
inn í stofu. Naumhyggjulegt,
„Satie“-legt jafnvel og um miðbikið kemur blástur
frá Tuma. Hér erum við á nútímadjassslóðum.
„Viðgerð“ er hins vegar stutt stef og meira í átt að
nútímatónlist („modern composition“). Restin af
plötunni sveiflast nokkurn veginn á milli þessara
þátta. Stundum fara píanó, saxófónn og trommur á
hlemmiskeiði, stundum er dregið úr og lög fljóta
áfram í höfugu – nánast tímalausu – flæði. Heildar-
svipur plötunnar er afar sterkur. Upptaka til fyrir-
myndar og það er merkilegt að þrátt fyrir að þetta
sé „ópoppað“ verk heyrir maður samt vel hvaðan
Magnús kemur og hvar hann hefur verið að starfa.
Það þarf að vinna fyrir hlustuninni en það er létt
verk ef þið skiljið hvert ég er að fara. Ekki ama-
legur árangur það, að geta hent í eitt svona stykki
samfara endalausum liðstyrk út um hvippinn og
hvappinn. Magnús er duglegur, svo ég noti gott og
gilt íslenskt orð!
»Platan liggur líka á mörkumhins aðgengilega og hins erfiða
sem er ástæðan fyrir því að maður
sperrti eyrun á síðasta ári.
Plata Magnúsar Jóhanns,
Without Listening, vakti nokkra
athygli á síðasta ári. Téður
Magnús er með mikilvirkustu
tónlistarmönnum landsins í dag
en stígur núna ákveðið fram
sem sólólistamaður.
Fjölsnærður Magnús Jóhann hefur
mátað marga hatta undanfarin ár.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Maður tekur nett andköf þegar maður renn-ir yfir opinbera heimasíðu Magnúsar.Þar listar hann hin ýmsu störf sem hann
hefur sinnt á íslenskum tónlistarvettvangi og af
nógu – og ólíku – er að taka. Það tæki líkast til
styttri tíma að telja upp það sem hann hefur ekki
gert. Hann hefur t.a.m. verið áberandi sem upp-
tökustjóri, lagahöfundur og útsetjari hjá lista-
mönnum eins og Auði, GDRN, Flóna, JóaPé og
Króla og Aroni Can. Hipphoppið og r og b-ið dálítið
í hans umsjá og gjörvileiki hans rennur um heil-
næman slatta af íslensku nútímapoppi. Og víðar.
Ingibjörg Turchi, Logi Pedro, Emmsjé Gauti,
Kristófer Rodriques, Hipsumhaps, Berndsen, Vin-
tage Caravan, Birnir, með öllu þessu fólki hefur
hann unnið að smáu sem stóru. Einnig hefur hann
verið afar virkur í hljómleikahaldi undanfarin fimm
ár og spilað með öllum og ömmu þeirra að því er
virðist.
Magnús hafnaði í þriðja sæti á Músíktilraun-
um árið 2016 og gaf út plötuna Pronto í kjölfarið
sem ber þess vissulega merki að vera afurð nítján
ára pilts. Spuninn og „ambient“-tónlistin þar undir-
stingur það samt að hér fer framtíðarmaður.
Without Listening er hins vegar, eðlilega, þrosk-
aðra verk. Plötuna vann hann náið með
Magnúsi Trygvasyni Elíassen og Tuma
Árnasyni en þeir félagar hafa verið
einkar áberandi í jaðardjasssenu lands-
ins að undanförnu. Þar tappar hann í
þær rætur sem hann hefur en í námi
sinnti hann djassinum af elju.
Upptökumaður plötunnar er svo Berg-
ur Þórisson. Í viðtali í Fréttablaðinu
kemur fram að tónlistin hafi verið að
raðast saman á u.þ.b. þremur árum og þeir Magnús
og Tumi urðu snemma ríkur hluti af sköpunarferl-
inu. Tónlistin stendur þá á mörkum hins vélræna
og lífræna, á mörkum hins spunna og hins samda.
Platan liggur líka á mörkum hins aðgengilega
og hins erfiða sem er ástæðan fyrir því að maður
Þjóðleikhúsið hvetur fólk á aldr-
inum 15-20 ára til að senda inn til-
lögur að umfjöllunarefni fyrir nýtt
og spennandi verkefni undir nafn-
inu Trúnó. Verkefnið er nýr liður í
stefnu Þjóðleikhússins að auka
framboð á efni sérstaklega ætluðu
ungu fólki á framhaldsskólaaldri,
að því er segir í tilkynningu. Mark-
mið Trúnó er að ungt fólk fái tæk-
færi til að móta verk sem snertir á
málefnum þess á þeirra eigin for-
sendum.
Dominique Sigrúnardóttir leik-
kona og leikstjóri og kynfræðing-
urinn Sigga Dögg eru höfundar
Trúnó og hafa umsjón með verk-
efninu í samstarfi við Þjóðleik-
húsið. Þær hafa báðar víðtæka
reynslu af því að vinna með ungu
fólki en Dominique hefur meðal
annars leikstýrt tveimur leiksýn-
ingum fyrir Listafélag Verslunar-
skóla Íslands og Sigga Dögg
ferðast um landið og kennt kyn-
fræðslu. Þær munu þróa valdar til-
lögur áfram og stefnt er á að sýna
afraksturinn, þar sem ungir áhuga-
leikarar fá að spreyta sig á glænýju
sviði Þjóðleikhússins, Loftinu, en á
því verður lögð áhersla á að rann-
saka og þróa nýtt efni og nýjar frá-
sagnarleiðir fyrir yngri áhorf-
endur.
Loftið verður staður fyrir sviðs-
listafólk til að stunda formtilraunir
og nýsköpun í hráu rými. Listrænn
stjórnandi þess er Gréta Kristín
Ómarsdóttir. Haldnar verða opnar
prufur fyrir leikhóp Trúnó þegar
fram líða stundir og eru ungir
áhugaleikarar hvattir til að nýta
þetta einstaka tækifæri til að hafa
áhrif á framvindu Trúnó með því að
senda inn hugmyndir á form.jot-
form.com/210033621607341. Tekið
er við umsóknum til miðnættis á
morgun, sunnudaginn 1. febrúar.
Vilja fara á trúnó
með ungu fólki
Samstarf Dominique og Sigga Dögg.