Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 30.01.2021, Qupperneq 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þriðji diskurinn í útgáfuröð bandarísku útgáfunnar Sono Lum- inus með flutningi Sinfóníu- hljómsveitar Íslands á íslenskri samtímatónlist, undir stjórn Daní- els Bjarnasonar, er kominn út. Occurrence nefnist diskurinn og á honum eru tónverkin „Lendh“ eft- ir Veroniuqe Vöku, „Í sjöunda himni“ eftir Hauk Tómasson, „Flutter“ eftir Þuríði Jónsdóttur með Mario Caroli flautuleikara í einleikshlutverki, „Adagio“ eftir Magnús Blöndal Jóhannsson og fyrsti fiðlukonsert Daníels, saminn fyrir og fluttur af finnsku fiðlu- stjörnunni Pekka Kuusisto. Fyrri diskar Sinfóníunnar í þessari útgáfuröð, Recurrence (2018) og Concurrence (2019), hafa fengið framúrskarandi viðtökur og voru Daníel og hljómsveitin til- nefnd á dögunum til hinna virtu Grammy-verðlauna vestanhafs fyrir þann síðarnefnda, í flokknum „Besti hljómsveitarflutningur“. Diskarnir eru allir teknir upp í hringómi svokölluðum – í eins konar þrívídd – og í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveitinni segir að í upptökunum hafi ný uppstilling á hljómsveitinni verið sérstaklega valin fyrir hvert einasta verk svo best hentaði hljóðheimi þess. Upp- tökustjóri var Grammy-verðlauna- hafinn Daniel Shores og hljóð- meistari Dan Merceruio. Kastljós á íslensk tónskáld Óhætt er að segja að Daníel Bjarnason sé í tveimur burðar- hlutverkum í þessu metnaðarfulla og vel lukkaða útgáfuverkefni; annars vegar sem tónskáld – auk fiðlukonsertsins á nýja diskinum hljómar hljómsveitarverk hans „Emergence“ á þeim fyrsta – og hins vegar sem stjórnandi en Daníel gegnir stöðu aðalgesta- stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Daníel segir að strax hafi verið lagt upp með þá hugmynd í sam- starfi sinfóníunnar og Sono Lum- inus að diskarnir yrðu þrír, og að reyna þannig að ná utan um meira af nýrri tónlist en kæmist á bara einn. „Og konseptið er einfalt,“ segir hann; „að gefa mynd af því sem er að gerast í þessari tónlist hér í dag. Í verkum tónskálda af minni kynslóð, og aðeins eldri og yngri. Ég hef á síðustu árum stjórnað flutningi margra nýrra verka, til dæmis á Myrkum músíkdögum, og vissi því vel hvað það væri mikið til af góðri tónlist sem ætti eftir að hljóðrita. Og okkur langaði til að ráðast í það verkefni og búa til um það ramma sem væri við hæfi og kæmi verkunum skemmtilega á framfæri, eins og þau eiga skilið.“ Daníel bætir við að í stjórnanda Sono Luminus, Colin Rae, hafi fundist hárrétti maðurinn til sam- starfs. „Hann hefur horft mikið til þess sem er að gerast í nýrri tón- ist hér á landi og hafði til dæmis gefið út tónlist Önnu Þorvalds- dóttur. Í kjölfarið á samstarfinu við okkur í Sinfóníunni hefur kast- ljós útgáfunar fallið á fleiri hér og Sono Luminus meðal annars gefið út plötur með verkum tónskáld- anna Páls Ragnars Pálssonar, Maríu Huldar Markan Sigfúsdótt- ur og Halldórs Smárasonar. Það hefur verið gaman að því að sjá þetta verkefni hlaða þannig utan á sig.“ Konsert fyrir Kuusisto – Það er alls ekki sjálfgefið að sinfóníuhljómsveit eins og sú ís- lenska eða ung tónskáld fái þetta öflugan útgáfuvettvang hjá al- þjóðlegu tónlistarforlagi. „Nei, alls ekki,“ segir Daníel. „Það getur verið mjög erfitt að fá útgefnar upptökur með sinfóníu- hljómsveit.“ Sum verkanna á diskunum tengjast tónlistarhátíðinni Reykja- vik Festival sem haldin var í Los Angeles vorið 2017 fyrir tilstilli sinfóníuhljómsveitar borgarinnar þar og var Daníel listrænn stjórn- andi verkefnisins. Hann segir nokkur verkanna til að mynda hafa verið pöntuð til flutnings þar en hátíðin sé gott dæmi um það hvað mikill áhugi hafi verið er- lendis á síðustu árum á íslenskri samtímatónlist. Óhætt er að segja að Daníel sé fyrir miðju þeirrar hreyfingar með verk sín en á nýja diskinum hljómar fyrsti fiðlukonsert hans, saminn fyrir og fluttur af Pekka Kuusisto. „Verkið er klæðskerasaumað fyrir hann,“ segir Daníel. „Það verður spennandi að heyra hvern- ig aðrir fiðluleikarar fara með verkið í framhaldinu. Ég samdi konsertinn með hann í huga og honum er gefið mikið rými í kadensunum tveimur til að impróvisera. Það er ein af hans sérgreinum og hann tók þeim möguleika í konsertinum fagnandi, það myndu ekki allir fiðluleikarar gera. En svona var þetta í gamla daga, einleikarar impróviseruðu. Það getur vel verið að við skrifum eitthvað út fyrir aðra flytjendur sem það kjósa, byggt á spuna Kuusistos. Þá er sérstakt í þessum konsert að neðsti strengurinn á fiðlunni er stilltur niður um ferund, niður á D. Við það kemur annað hljóð í fiðluna – og sérstaklega þennan neðsta streng. Það er helst þetta tvennt sem gerir þennan konsert ólíkan öðrum.“ – Leikur Kuusistos í verkinu er afar líflegur og innblásinn, eins og áheyrendur geta nú upplifað. „Já, ég dáist að Kuusisto í þessu verki, eins og í öðru sem hann leikur. Hann er stórkostleg- ur flytjandi. Við höfum lengi verið vinir en ég hef líka dáðst að hon- um sem fiðlu- leikara í alls konar tónlist, mér finnst hann spila Tsjaí- kovskíj-- konsertinn frá- bærlega en það er líka gaman að hlusta á hann spila þjóðlagamúsík og syngja. Hann er svo göldróttur, allt sem hann snertir verður svo lifandi og músíkalskt.“ Grallaraskapur og léttleiki Fiðlukonsert Daníels átti upp- haflega að vera frumfluttur á Reykjavik Festival í Los Angeles í mars 2017 en hann segist ekki hafa náð að klára hann á réttum tíma því hann var líka að semja óperuna Brothers sem hefur hlotið mikið lof. „Konsertinn var því færður aft- ar og var frumfluttur í Hollywood Bowl í ágúst það ár. Óperan er stórt, þungt og dramatískt stykki og þegar ég fór beint í framhald- inu af henni að skrifa fiðlukonsert- inn þá varð hann eins konar and- stæða hennar, það er mikill leikur í honum, grallaraskapur og létt- leiki. Mér hefur alltaf fundist gaman að hafa einhvern sögumann eins og konsertformið býður upp á, það hentaði vel í þessu verki.“ Semur nú fyrir Grubinger Daníel segir að vissulega sé það góð hvatning og vindur í segl tón- skálda og flytjenda að fá viður- kenningu á borð við tilnefningu til Grammy-verðlauna fyrir plötuna. „Það ýtir líka undir það að sam- starf Sinfóníunnar við Sono Lum- inus mun halda áfram í einhverri mynd. Nú er þessi þriggja diska syrpa búin svo að það mætti í framhaldinu byrja á nýju verkefni, með nýrri eða nýlegri músík. Það hefur verið mjög gaman að vinna með þessu plötufyrirtæki, þetta eru svo miklir fagmenn og allt hljómar svo vel sem þeir hljóðrita. Þeir raða hljómsveitinni upp í hring, á nýstárlegan hátt, og ná einhverjum hljómi sem mér finnst alveg einstakur.“ Daníel bendir á að það séu örlög mjög margra nýrra tónverka á hverjum tíma að heyrast bara einu sinni á tónleikum og aldrei aftur. „Það er svo mikilvægt að geta gef- ið góð verk út. Það verður til þess að þau verði oftar flutt, ekki bara hér heldur út um heiminn, þegar þau eru til í svona vönduðum upp- tökum.“ En hvað er annars á döfinni hjá Daníel? Er alltaf verið að panta verk af honum? „Já, það eru alltaf einhverjar pantanir. Ég er að klára verk fyr- ir Sinfóníuhljómsveitina í Gauta- borg, slagverkskonsert fyrir austurríska virtúósinn Martin Grubinger. Frumflutningurinn frestaðist vegna Covid en vonandi verður verkið frumflutt næsta haust. Þetta er stór konsert sem verður líka vonandi fluttur fljót- lega hér.“ Þegar spurt er hvort vinna tón- skáldsins og vinna hljómsveitar- stjórans takist ekkert á um tím- ann, þá hikar Daníel. Segir svo: „Það er mjög tímafrekt að semja músík og líka að vera hljómsveit- arstjóri! Stundum verða árekstrar og það er sífellt vegasalt að finna tíma. Svo hef ég líka verið að semja kvikmyndatónlist og langar að halda því áfram með, og sinna annars konar verkefnum – ekki semja bara tónlist fyrir tónleika- sali. Þetta er allt skemmtilegt í bland, maður þarf bara að passa að taka ekki of mikið að sér og mikilvægast er að hafa gaman af öllu því sem maður velur að gera.“ Morgunblaðið/Eggert Stjórnar og semur „Það er mjög tímafrekt að semja músík og líka að vera hljómsveitarstjóri!“ segir Daníel. Mikill áhugi á samtímatónlist  Nýr diskur Sinfóníuhljómsveitarinnar undir stjórn Daníels Bjarnasonar kom- inn út hjá Sono Luminus  Sá síðasti í röðinni tilnefndur til Grammy-verðlauna Recurrence Concurrence Occurrence Bandaríska leik- konan Cicely Ty- son, sem var hyllt fyrir ævi- starf í kvikmynd- um með heiðurs- óskar árið 2018, er látin 96 ára að aldri. Hún var ein dáðasta hör- undsdökka leik- konan í heimalandinu, þekkt fyrir leik í kvikmyndum, í sjónvarpi og á sviði og vann einnig til nokkurra Tony- og Emmy-verðlauna. Þá var hún þekkt fyrir baráttu sína fyrir réttindum svartra. Eldri kynslóð Íslendinga minnist Tyson sem móður Kunta Kinte í vinsælum sjónvarpsþáttum á átt- unda áratugnum en hún lék meira en eitt hundrað hlutverk á ferl- inum, þar á meðal í 26 kvikmynd- um. Hún lék til að mynda Corettu Scott King í þáttaröð um Martin Luther King Jr., fékk Emmy- verðlaun fyrir aðalhlutverkið í The Autobiography of Miss Jane Pitt- man (1974) og lék baráttukonuna Harriet Tubman í myndinni A Woman Called Moses (1978). Tyson var elst sviðsleikara til að hreppa Tony-verðlaun, hreppti þau 88 ára gömul, og lék síðast á Broad- way níræð. Obama Bandaríkja- forseti veitti henni æðstu heiðurs- orðu sem óbreyttir borgarar geta hlotið í Bandaríkjunum. Tyson var gift djassleikaranum Miles Davis um átta ára skeið. Leik- og baráttu- konan dáða, Cicely Tyson, er látin Cicely Tyson Leikkonan bandaríska Clor- is Leachman, er látin, 94 ára að aldri. Hún hlaut Óskarsverðlaun árið 1971 fyrir aukahlutverk í mynd Peters Bogdanovich, The Last Picture Show, en naut líka mikilla vinsæla fyrir leik í gam- anþáttum í sjónvarpi, á borð við Mary Tyler Moore og Malcolm in the Middle. Hún var tilnefnd til 22 Emmy-verðlauna og hreppti átta. Leachman þótt afar fjölhæf gamanleikkona og margir minnast henar í hlutverki hinnar skelfilegu Frau Blücher í kvikmynd Mels Brooks, Young Frankenstein (1974) og hún lék í tveimur myndum Brooks til, High Anxiety (1977) og History of the World, Part I (1981). Hún lék líka í tveimur öðrum mynd- um Bogdanovich, Daisy Miller (1974) og Texasville (1990). Leikkonan Cloris Leachman látin Cloris Leachman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.