Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Minnt var á það í bloggheimumað tveir einræðisherrar í Minsk og Moskvu byggju við það að telja sig neyðast til að gera atlögu að mótmælendum og handtaka marga á hverjum sunnudegi.    Það varekki orð- um aukið. En þó farið langt yfir skammt.    Sunnudaginn 24. janúar birtufjölmiðlar myndskreyttar fréttir af atlögu lögreglu með kylf- um og vatnsbyssuskriðdrekum og fjöldahandtöku mótmælenda svo dapurlegt var að sjá.    Fjölmiðlarnir sögðu þær frá Rot-terdam. Þeir sem horfðu á franskar og aðrar evrópskar sjón- varpsstöðvar frá sama sunnudegi og þeim á eftir var órótt yfir at- ganginum þar, sem var síst betri.    Sumir fréttaritara bentu á aðsvona hefði þetta verið í Frakk- landi misserum saman, þó í mis- miklum styrk, en virtist nú fara ört vaxandi.    Staksteinar eru gamaldags ogtaka nær sér að horfa upp á óefni nágranna sinna en hinna.    Þeir Mark Rutte og EmmanuelMacron eru engir einræðis- herrar.    Rutte sýndi það einmitt á dög-unum þegar hann neyddist til að biðjast lausnar fyrir sig og ríkis- stjórnina.    Og Macron horfir dapur tilnæstu kosninga. Vandræðum svipar saman STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Eitt virkt smit greindist við fyrstu skimun við landamærin um helgina og jafnframt eitt virkt í annarri skimun. Eitt kórónuveirusmit greindist innanlands á föstudag en ekkert um helgina. Sá sem greindist á föstudag var í sóttkví. Einn sem greindist með virkt smit á landamærunum á sunnudag í seinni skimun setti af stað atburða- rás sem varð til þess að línubáturinn Fjölnir GK var kyrrsettur í Grinda- vík á sunnudagskvöld. Viðkomandi var einn úr áhöfninni sem rauf sóttkví með því að mæta til vinnu um borð skömmu áður en hann fékk senda jákvæða niðurstöðu úr seinni sýnatöku eftir komuna til landsins. Málið er hjá lögreglu. Þeir úr áhöfn sem áttu í samskipt- um við skipverjann um borð voru settir í einangrun í klefum og beið áhöfnin eftir niðurstöðum frekari sýnatöku sem framkvæmd var í gær- morgun. „Menn bíða milli vonar og ótta um borð í skipinu,“ sagði Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Vísis hf., við mbl.is í gær. Rétt fyrir hádegi kom í ljós að ekki var um virkt smit að ræða og gat Fjölnir haldið til veiða í gær. Rauf sóttkví en smitaði ekki aðra  Fá smit greindust um helgina  Fjölnir GK kyrrsettur í Grindavík Ljósmynd/Eyjólfur Vilbergsson Sóttkví Fjölnir á útleið í gær eftir að áhöfnin varð að vera í sóttkví. „Við vitum það auðvitað að börn eru mismunandi. Sumir níu ára geta orð- ið hræddir við eitthvað en aðrir níu ára ekki. Ég hef ekki heyrt af nein- um kvörtunum yfir þessari mynd,“ segir Þorvaldur Árnason, fram- kvæmdastjóri Samfilm. Morgunblaðið hefur haft spurnir af óánægju foreldra með aldurs- takmark á myndina The Witches sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum. Myndin er bönnuð innan níu ára en af frásögnum nokkurra foreldra að dæma þótti níu ára börnum hún mjög ógnvænleg. Dæmi eru um að fjölskyldur hafi þurft að yfirgefa sal- inn vegna hræðslu barnanna. Þorvaldur segir að við ákvörðun á aldurstakmörkum á kvikmyndir sé stuðst við hollenskt kerfi. Hver mynd er metin út frá föstum þáttum og kerfið ákvarðar hvort hún skuli bönnuð innan sex ára, níu ára eða tólf ára, svo dæmi séu tekin. Hann segir að þetta kerfi hafi gefist mjög vel. The Witches, eða Nornirnar, er byggð á sögu Roalds Dahls. Misjafnt er eftir löndum hvaða aldurs- takmark er á myndina. Þannig er hún bönnuð innan 13 ára í Ástralíu, 11 ára í Svíþjóð og Danmörku en níu ára í Noregi. Á Spáni er hún bönnuð innan sjö ára. „Mér þykir leitt ef einhver hefur orðið hræddur yfir myndinni en ég held að The Witches þurfi ekki að vera bönnuð eldri en níu ára. Ég man þegar ég sá Mjallhvíti og dverg- ana sjö í fyrsta sinn í bíó. Ég var skíthræddur við nornina. Það er bara hluti af því að fara í bíó, hluti af upplifuninni. Maður verður smá hræddur en svo er þetta bara gleði og gaman,“ segir Þorvaldur. hdm@mbl.is Nornirnar hræða níu ára gömul börn  Óánægja með aldurstakmark  Enginn kvartað Ógnvænleg Nornirnar eru gerðar eftir frægri sögu Roalds Dahls.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.