Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 12
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Umtalsverður hluti vinnu-aflsins í löndum Evrópuhefur aflað sér meirimenntunar en krafist er í störfum þess og hefur því ekki sömu tök á og aðrir að nýta sér sérþekkingu sína og hæfni úr námi í sinni vinnu. Rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi á seinustu árum á svo- nefndri ofmenntun á vinnumark- aðinum, þar sem kannað er hvort samræmi sé á milli menntunar og starfa háskólamenntaðra, benda til þess að allt að einn af hverjum sex á vinnumarkaði á Íslandi hafi meiri menntun en starfið krefst. Sérþekk- ing og hæfni starfsmanna sé því í tals- verðum mæli vannýtt í atvinnulífinu eða hjá hinu opinbera. Eurostat, hagstofa Evrópusam- bandsins, birti í liðinni viku saman- burð á stöðu þessara mála í 31 Evr- ópulandi, þ. á m. á Íslandi. Bornar eru saman tölur frá hverju landi frá árinu 2019 um fjölda háskólamenntaðra starfsmanna á vinnumarkaði og hversu hátt hlutfall þeirra hefur aflað sér meiri menntunar en krafist er af þeim í starfi. Í ljós kemur að í löndum ESB eru að meðaltali 21% ríkisborgara of- menntaðir í þeim störfum sem þeir gegna en staða innflytjenda er mun verri. Mun hærra hlutfall þeirra er í störfum sem ekki samsvara menntun þeirra. Hæst er þetta hlutfall meðal innflytjenda sem koma frá löndum ut- an ESB sem eru í vinnu þar sem menntun þeirra nýtist ekki, eða 44% að meðtaltali. Hvað Ísland varðar kemur fram í þessum samanburði Eurostat að rúm- lega einn af hverjum tíu innlendum starfsmönnum á vinnumarkaði hér á landi telst vera ofmenntaður og er hlutfallið með því lægsta í Evrópu. Hlutfall þeirra innflytjenda á íslenska vinnumarkaðinum sem eru með meiri menntun en krafist er í starfi er hins vegar fjórfalt hærra (sjá meðfylgjandi súlurit). Tæplega helmingur erlendra ríkisborgara frá löndum utan ESB og EES eru með meiri menntun en gerð er krafa um í störfum þeirra á vinnu- markaðinum á Íslandi. Menntunin ekki nýtt Hagstofan hefur skilgreint of- menntun sem hlutfall háskólamennt- aðra einstaklinga af öllum starfandi, sem vinna við störf sem krefjast lít- illar eða meðalfærni. Í ítarlegri rann- sóknarskýrslu um konur af erlendum uppruna, sem kynnt var snemma á seinasta ári, kom m.a. fram að konur af erlendum uppruna vinna oft í störf- um þar sem menntun þeirra nýtist ekki. Menntun þeirra er síður metin en innlendra kvenna og þær eru oft og tíðum ofmenntaðar miðað við störfin sem þær sinna. Þar má einnig sjá að frá 2009 til 2017 var hlutfall of- menntunar meðal innflytjenda mun hærra meðal kvenna en karla „Inn- flytjendakonur eru þrefalt til fimmfalt líklegri en innlendar konur til að vera í störfum sem þær eru ofmenntaðar til,“ segir í skýrslunni. Eurostat-samanburðurinn bendir í sömu átt hvað varðar stöðu þessara mála í Evrópulöndum. Konur eru nær alls staðar líklegri en karlar til að vera í störfum sem krefjast minni mennt- unar en þær hafa aflað sér og er kynjamunurinn sérstaklega mikill meðal innflytjenda í þessum löndum. Í rannsókn sem Jason Már Berg- steinsson, Ingi Rúnar Eðvarðsson og Guðmundur Kristján Óskarsson gerðu fyrir fáeinum árum á of- menntun á íslenskum vinnumarkaði kom m.a. fram að rúm 20% þátttak- enda í könnun þeirra voru talin of- menntuð og að vanmenntaðir starfs- menn væru líklegri til að starfa hjá hinu opinbera á meðan ofmenntaðir væru líklegri til að starfa hjá einka- fyrirtækjum. Ofmenntunin tengist lægri aldri starfsmanna og einkarekin fyrirtæki virðast líka geta laðað til sín yngri starfsmenn með meiri menntun en hið opinbera. Með meiri menntun en starfið krefst Hlutfall ofmenntunar meðal 16-64 ára sem eru með háskólamenntun í 31 Evrópulandi Innlendir ríkisborgarar Frá ESB-löndum Frá löndum utan ESB Heimild: Eurostat 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% ES B m eð al ta l Sp án n G rik kl an d Ký pu r Ír la nd Au st ur rík i Li th áe n B úl ga ría Sl óv ak ía Fr ak kl an d Ei st la nd Le tt la nd B el gí a Pó lla nd Íta lía Fi nn la nd Þý sk al an d Rú m en ía Sl óv en ía H ol la nd U ng ve rja la nd Té kk la nd Kr óa tía Po rt úg al Sv íþ jó ð M al ta D an m ör k Lú xe m bo rg Sv is s N or eg ur Ís la nd B re tla nd Margir með meiri menntun en krafist er af þeim í starfi 12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Það hefur veriðmeð ólíkind-um að fylgj- ast með bóluefna- stríðinu undanfarna daga, sem náði há- marki á föstudaginn þegar framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins (ESB) setti útflutningsbann á bóluefni frá ríkjum sambandsins, að því er virðist í bræðiskasti yfir eigin vanhæfni og vanmætti við öflun bóluefnis við kórónuveirunni, sem leikið hefur álfuna svo grátt und- anfarið ár. Framkvæmdastjórnin, í sam- ráði við helstu aðildarríki ESB, tók af skarið og ákvað síðastliðið sumar að annast öflun og dreif- ingu bóluefnis í öllum aðildarríkj- unum, að Evrópusambandið væri sérstaklega vel til þess fallið að taka að sér miðstýringu þessa stærsta og mikilvægasta verk- efnis í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Að það hefði fullkomna yfirsýn yfir vandann, nyti stærðar sinnar til þess að gera góð innkaup og kæmi í veg fyrir innbyrðis samkeppni Evr- ópuríkjanna. Eftir á að hyggja hefði sjálfsagt ekki veitt af samkeppni, því Evr- ópusambandið hefur fullkomlega brugðist á hverju einasta stigi bóluefnisáætlunar sinnar. Fyrir vikið má heita ómögulegt að það náist að bólusetja Evrópubúa að því marki á þessu ári að einhver vörn sé í. Það er hörmulegt fyrir almenning í Evrópu, þar með talið á Íslandi, en íslensk stjórnvöld ákváðu af einhverjum enn ótil- greindum ástæðum að binda trúss sitt við þessa ólánlegu áætlun Evrópusambandsins. Af því súp- um við nú seyðið og ríkisstjórn Ís- lands þarf að gera hreint fyrir sín- um dyrum um það. Það er þó aðeins á allra síðustu dögum, sem þetta ljós hefur verið að renna upp fyrir almenningi og stjórnmálamönnum í Evrópu, en framkvæmdastjórnin hefur verið í afneitun um þetta vikum og mán- uðum saman. Afleiðingar þess- arar þrákelkni blasa við, að áfram mun fólk deyja að óþörfu í tugþús- undatali og evrópsk hagkerfi vera hálflömuð fram á næsta ár hið minnsta. Það var ekki nema vegna þrýst- ings frá höfuðborgum Evrópu sem framkvæmdastjórnin í Brussel tók loks við sér, en í stað þess að gangast við ítrekuðum mistökum sínum og afleikjum kaus hún að finna aðra sökudólga. Fyrst lyfjafyrirtækið Astra- Zeneca og svo Breta, að því er virðist aðeins vegna þess að þeim hefur gengið betur við bóluefnis- öflun og bólusetningar. Og það segir sína sögu að fyrstu viðbrögð voru hótanir og úrslitakostir, ekki hjálparbeiðni eða samnings- umleitanir. Allt hjalið um alþjóðalög og -rétt fór út um gluggann, eins og ekkert væri. Samningar og við- skiptaréttur skiptu allt í einu engu máli. Hin ófrávíkjanlega krafa um að engin landamæri mættu vera á Írlandi vegna frið- arsamninganna þar lifði af hálfu ESB í heila 29 daga, áður en Evrópusam- bandið sjálft virkjaði þrautavaraákvæði um hörð landamæri þar og það án þess svo mikið sem að bera það undir ríkis- stjórnir Írlands og Bretlands! Þar ræddi ekki aðeins um einhverjar girðingar, heldur landamæra- eftirlit gagngert til þess að hindra að lífsbjörg kæmist þar yfir, bein- línis til þess fallið að stofna mannslífum í hættu. Þessi ótrúlegu viðbrögð vöktu að vonum undrun um heim allan. ESB tókst hið ómögulega á Ír- landi, að sameina Sinn Fein, DUP, stjórnvöld í Lundúnum og Dyflinni gegn sér. Joe Biden Bandaríkjaforseti, sem sjálfur er írskrar ættar og hefur lagt mikla áherslu á að Brexit mætti ekki trufla friðarferlið á Írlandi, tók sér hiklaust stöðu gegn ESB. Og umfram allt spurðu ríkisstjórnir og fjölmiðlar um Evrópu alla hvort framkvæmdastjórnin væri gengin af göflunum. Það fór svo að framkvæmda- stjórnin sneri skjótt við blaðinu og reyndi að telja fólki trú um að þetta sverðaglamur hefði nú bara verið mistök og misskilningur. Eftir stendur að ESB hefur af- hjúpað sig enn frekar en fyrr, veikt trúverðugleika sinn til muna og umfram allt að það standi ekki við gerða samninga eða hirði um nokkuð nema ætlaða eiginhags- muni Brusselvaldsins. Þar eru a.m.k. ekki hagsmunir evrópsks almennings eða aðildarríkjanna í fyrirrúmi. Forysta og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er skipuð 3. flokks möppudýrum, sem ekki voru kosin af neinum og því er ekki heldur hægt að kjósa þau burt, sama hversu illa þau kunna að standa sig. Flest eru þau raun- ar til Brussel komin einmitt vegna þess að kjósendur í heimalöndum þeirra höfnuðu þeim, mörg með spillingarmál á bakinu eða höfðu sýnt af sér þvílíka vanhæfni og vanrækslu, að ekki þótti á það hættandi að hafa þau nærri valda- taumunum heima fyrir. Ursula von der Leyen, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, er fyrir- taksdæmi um þetta, en hún hrökklaðist til Brussel úr embætti varnarmálaráðherra Þýskalands eftir að hneykslismálin höfðu hrannast upp og varnir landsins svo stórlaskaðar eftir, að gantast var með að mannkynssagan væri mun betri hefði hún aðeins verið varnarmálaráðherra um 80 árum fyrr. Kröfur um að von der Leyen segi af sér hafa orðið æ háværari um helgina og munu tæplega dofna nú í vikunni. Þær eru rétt- mætar, en vandinn er djúpstæð- ari, hann felst í Evrópusamband- inu sjálfu, lýðræðishalla þess, ábyrgðarleysi helstu stjórnenda og takmarkalausum valdaþorsta og vanhæfni Brusselbáknsins, sem birtist með augljósum og átakanlegum hætti í bóluefnis- málunum. Þar þurfa Íslendingar að leita annarra leiða. Allt hjalið um alþjóðalög og -rétt fór út um gluggann, eins og ekkert væri } Bóluefnastríð ESB STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ N ú eru jafnréttisdagar og þá standa Rannsóknasetur í fötlunar- fræðum, Kvennahreyfing Ör- yrkjabandalags Íslands og Landssamtökin Þroskahjálp fyr- ir málstofu um ofbeldi gegn fötluðum konum. Í fundarboði kemur fram að alþjóðlegar rann- sóknir sýni að fatlaðar konur eru mun líklegri en aðrar konur til að vera beittar ofbeldi. Þrátt fyrir það, og þrátt fyrir að um sé að ræða alvarleg mannréttindabrot, er ofbeldi gegn fötluðum konum enn falið og ósýnilegt og sjaldan brugðist við því af hálfu yfirvalda. Rannsóknir sýna að ofbeldi gegn konum og börnum hefur aukist í Covid-19 faraldrinum, einnig á Íslandi. Hér á landi hafa stjórnvöld brugðist við þessu með því að nýta nýja tækni við að þróa 112 vefgátt til vitundarvakningar og sem tæki til að takast á við og hindra ofbeldið. Þá kemur fram í greinargerð ríkislögreglustjóra um of- beldi gegn fötluðum á Íslandi að skelfilegt birtingarform ofbeldis grasserar gagnvart fötluðu fólki og þar segir m.a. orðrétt: „Íslenskar sem erlendar rannsóknir leiða í ljós að fatlað fólk er í sérstökum áhættuhópi sem þolendur ofbeldis. Kannanir sýna einnig að meiri líkur eru á að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi en þeir sem ófatlaðir teljast. Einkum eru ungar konur sem glíma við fötlun líklegri til að verða fyrir kynferðisbroti.“ Það er okkur til háborinnar skammar að aftur og aftur kemur upp umræða um gróft andlegt og líkamlegt ofbeldi gagnvart fötluðu fólki og börnum. Er ekki kominn tími til að taka þessi mál föstum tökum og sjá til þess í eitt skipti fyrir öll að ofbeldinu linni? Uppgjör á ofbeldi fortíðar gagnvart fötl- uðum hefur staðið yfir síðustu ár og nú verð- um við að sjá til þess að í framtíðinni þurfi ekki enn og aftur að gera upp ofbeldi á fötl- uðum einstaklingum. Höfundar erlendrar rannsóknar segja börn sem glíma við þroskahömlun 4,6 sinn- um líklegri en ófötluð börn til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ofbeldi gegn fötluðum getur þannig tekið á sig margar birtingar- myndir. Ein birtingarmyndin er sú að Alþingi hef- ur ekki lögfest samning Sameinuðu þjóð- anna um málefni fatlaðs fólks. Með samhentu átaki verðum við að koma í veg fyrir ofbeldið, með því að virkja allt það góða fólk sem nú vinnur fyrir og með fötluðum einstaklingum og börn- um. Í alþjóðlegri skýrslu segir að fötlun sé eðlilegur hluti mannlegs lífs, að næstum allir verði fyrir tímabundinni eða varanlegri fötlun á lífsleiðinni. Fatlað fólk á Íslandi á rétt á því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verði lögfestur og það strax. Hvar er lögfestingarfrumvarpið frá ríkisstjórninni sem átti að vera komið í umræðuna á Alþingi? Er það ekki enn ein birtingarmynd ofbeldis gagnvart fötluðu fólki að leggja það ekki fram? Stöðvum ofbeldið strax. Pistill Ofbeldi Höfundur er þingflokksformaður Flokks fólksins . gudmundurk@althingi.is Guðmundur Ingi Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.