Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Heilbrigðisráðherra leggur til að
stofnað verði þverfaglegt landsráð
um mönnun og menntun í heil-
brigðisþjónustu. Því er ætlað að
vera ráðgefandi og vinna að und-
irbúningi ákvarðana fyrir
heilbrigðisráðherra hvað varðar
mönnun og menntun í heilbrigð-
isþjónustu. Drög að tillögu til
þingsályktunar þess efnis eru nú
kynnt í samráðsgáttinni. Umsagn-
arfrestur um þau er til 9. febrúar
nk.
Þar kemur m.a. fram að með
þessu fyrirkomulagi sé ætlunin að
tryggja að nægur fjöldi hæfs
starfsfólks verði innan heilbrigð-
isþjónustunnar til framtíðar og að
menntun fullnægi þörfum hverju
sinni.
Að landsráðinu mun koma fólk úr
heilbrigðisþjónustunni, mennta-
samfélaginu og vísindasamfélaginu.
Ætlunin er að tryggja viðeigandi
færni, þekkingu og þróun innan
heilbrigðisþjónustunnar hverju
sinni. Þá er landsráðinu einnig ætl-
að að vera samráðsvettvangur um
mönnun og menntun í heilbrigðis-
þjónustu og að hafa virkt samráð
við sjúklinga, sjúklingasamtök, fag-
félög og aðra hagsmunaaðila.
Koma málum í betri farveg
Alþingi hefur samþykkt heil-
brigðisstefnu til ársins 2030 og
fjallar einn af köflum hennar um
mönnun í heilbrigðiskerfinu. Heil-
brigðisþing var haldið í þriðja sinn í
nóvember sl. og þar var rætt um
hvernig haldið yrði áfram á þessari
braut. Fjórir starfshópar skiluðu
skýrslum í fyrra um leiðir til að
fjölga útskrifuðum sjúkraliðum, til-
lögum um fjölgun útskrifaðra
hjúkrunarfræðinga, um sérfræði-
nám lækna og framtíðarmönnun og
um mönnun hjúkrunarfræðinga.
Samkvæmt upplýsingum úr heil-
brigðisráðuneytinu hefur ráðgjafa-
fyrirtæki einnig borið saman mönn-
un á heilbrigðistofnunum hér og á
sambærilegum stofnunum á Norð-
urlöndum. Öll þessi vinna hefur
leitt í ljós þörf á að koma þessum
málum í betri farveg hér á landi en
þau hafa verið. Bæði heilbrigðis-
stofnanir, sveitarfélög, mennta-
málaráðuneytið, háskólasamfélagið,
heilbrigðisráðuneytið og fleiri sem
eru háðir mönnun í heilbrigðiskerf-
inu þurfi að hafa sömu mynd af því
hver staðan er í þessum málum
hverju sinni.
Gerir tillögur til ráðherra
Hugmyndin er að landsráðið
verði samráðsvettvangur þessara
aðlila. Hlutverk þess verði meðal
annars að greina flöskuhálsa í kerf-
inu sem standa í vegi fyrir full-
nægjandi mönnun í heilbrigðiskerf-
inu og að leita leiða til að fjarlægja
þá.
Landsráðið á m.a. að afla gagna
um stöðuna varðandi hinar ýmsu
heilbrigðisstéttir, hvernig horfir
með nýliðun í þeim og þörfina fyrir
fólk með þá menntun. Það á við um
lækna, hjúkrunafræðinga, sjúkra-
liða og fleiri heilbrigðisstéttir. Síð-
an á landsráðið að beina tillögum
um úrbætur til heilbrigðisráðherra.
Mönnun heilbrigðis-
stétta fær farveg
Þverfaglegt
landsráð verði sam-
ráðsvettvangur
Morgunblaðið/Eggert
Landsráð Það mun fjalla um mönn-
un og menntun í heilbrigðiskerfinu.
Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar og
hópferðafyrirtækið Teitur Jónas-
son ehf. hafa gert með sér samning
um áætlunarakstur milli Bláfjalla
og Hafnarfjarðar þegar veður leyf-
ir og opið er á skíðasvæðinu. Til-
laga um Bláfjallarútu frá Hafnar-
firði er ein af tillögum Ungmenna-
ráðs Hafnarfjarðar sem lagðar
voru fram á fundi bæjarstjórnar sl.
ár og kemur til framkvæmda nú.
Miðað er við að Bláfjallarútan
fari eina ferð á dag og verður lagt
upp frá höfuðstöðvum Brettafélags
Hafnarfjarðar við Flatahraun. Ekið
verður eftir áætlun skíðasvæðanna
og er grunngjald kr. 3.000 per far-
þega.
„Það er ánægjulegt að sjá þessa
tillögu ungmennaráðs verða að
veruleika. Unga fólkið okkar veit
sjálft best hvaða þjónustu vantar
fyrir þau og það er okkar yfirvalda
að hlusta á hugmyndir þeirra og
framkvæma eftir því sem við höfum
tækifæri til,“ sagði Rósa Guðbjarts-
dóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
við undirritun samningsins í gær.
Önnur hugmynd ungmenna um
skólahreystivöll í Hafnarfirði kom
til framkvæmda í lok sumars í fyrra
með opnun slíkrar brautar á
Hörðuvöllum.
„Hópur Hafnfirðinga sem stunda
skíði og bretti fer ört vaxandi og
það er mikilvægt að geta ýtt undir
vöxtinn og greiða aðgengið að fjall-
inu með þessum hætti,“ segir Rósa.
Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær
Bláfjallarúta Haraldur Teitsson og Rósa Guðbjartsdóttir skrifuðu undir.
Daglegar ferðir í fjöllin
Áætlað er að um 5.000 til 7.000 ein-
staklingar búi nú í 1.500 til 2.000
óleyfisíbúðum, þ.e. í húsnæði sem
skipulagt er undir atvinnustarfsemi
en nýtt til íbúðar fyrir einstaklinga.
Þetta kemur fram í nýrri saman-
tekt vinnuhóps sem skipaður var til
að safna upplýsingum um fjölda
óskráðra íbúða og leiðir til þess að fá
eigendur óskráðra íbúða til að skrá
þær opinberlega. Skýrslan er hluti af
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í
tengslum við gerð lífskjarasamning-
anna í apríl 2019 um umbætur í hús-
næðismálum, segir í tilkynningu frá
ASÍ.
Ástæður þess að fólk býr í þessu
húsnæði eru sagðar margþættar.
Skortur á leiguhúsnæði og há leiga
er talin veigamesta skýringin. Þá eru
dæmi um að starfsmannaleigur og
atvinnurekendur komi starfsmönn-
um sínum fyrir í óleyfisbúsetu, sem
hafa jafnvel ekki raunverulegt val
um búsetu. Þá spilar jafnframt inn í
að hluti erlends verkafólks sem
dvelst tímabundið á landinu vegna
vinnu kýs að búa tímabundið í eins
ódýru húsnæði og mögulegt er þar
sem ekki eru gerðar sambærilegar
kröfur til húsnæðisins af hálfu við-
komandi og ef um framtíðarbúsetu
væri að ræða.
Drífa Snædal, forseti ASÍ, fagnar
skýrslunni. Hún staðfesti þann veru-
leika sem við hafi blasað of lengi. Nú
þurfi stjórnvöld að spýta í lófana og
tryggja öllum mannsæmandi hús-
næði á viðráðanlegum kjörum.
5-7 þúsund í óleyfisíbúðum
Stjórnvöld spýti í lófana, segir forseti ASÍ um nýja skýrslu