Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 England B-deild: Watford – QPR......................................... 1:2 Staða efstu liða: Norwich 26 16 6 4 35:21 54 Swansea 26 14 8 4 33:15 50 Brentford 25 13 9 3 45:24 48 Reading 26 14 5 7 40:29 47 Watford 27 13 8 6 31:20 47 Bournemouth 26 11 9 6 39:24 42 Middlesbrough 27 11 7 9 30:24 40 Blackburn 26 11 6 9 41:28 39 Bristol City 26 12 3 11 27:28 39 Stoke 27 9 11 7 32:29 38 Spánn Real Betis – Osasuna ............................... 1:0 Staða efstu liða: Atlético Madrid 19 16 2 1 40:10 50 Barcelona 20 12 4 4 41:18 40 Real Madrid 20 12 4 4 35:18 40 Sevilla 20 12 3 5 28:16 39 Villarreal 21 8 11 2 29:20 35 Real Sociedad 21 8 8 5 32:19 32  KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar eru í toppsæti Dom- inos-deildar karla í körfuknattleik en tveir leikir fóru fram í gær. Grindvíkingar komu töluvert á óvart og unnu Garðbæinga í Grinda- vík 93:89. Grindavík renndi sér þar með upp að hlið Stjörnunnar og eru bæði lið nú með 10 stig og eru tveim- ur á eftir Keflavík. Úrslitin koma töluvert á óvart vegna þess að Grindavík var án Dags Kárs Jónssonar sem varð fyrir meiðslum í síðustu umferð. Stjarnan átti frábæran leik í síðustu umferð og burstaði þá Keflavík. Stjarnan náði um tíu stiga forskoti í síðari hálfleik en Grindvíkingar gáfust ekki upp og komust yfir þeg- ar um þrjár mínútur voru eftir. Kristinn Pálsson sýndi hvað í hon- um býr og skoraði 26 stig fyrir Grindavík en helming stiganna skor- aði hann strax í fyrsta leikhluta. Ólafur Ólafsson var drjúgur fyrir þá á lokamínútunum og skoraði alls 19 stig í leiknum. Gunnar Ólafsson var stigahæstur hjá Stjörnunni með 17 stig en vörn Stjörnunnar var ekki nærri því eins sterk og gegn Kefla- vík á dögunum. Milka er illviðráðanlegur Keflvíkingum tókst að hrista af sér slæmt tap gegn Stjörnunni á dögunum. Keflavík vann ÍR 86:79 á heimavelli í gær. Keflavík hefur þá unnið sex af fyrstu sjö leikjunum og er með 12 stig. ÍR er með átta stig og Keflvíkingar slitu sig því aðeins frá ÍR-ingum. Keflavík náði um tíma nítján stiga forskoti í fyrri hálfleik en lið ÍR byrjaði leikinn mjög rólega. Í síðari hálfleik náði ÍR að vinna sig inn í leikinn og fékk tækifæri til að kom- ast yfir en það hafðist ekki. Á loka- mínútunum lönduðu Keflvíkingar sigrinum nokkuð örugglega. „Í þetta skiptið var það Domin- ykas Milka sem að miklu leyti tók lið sitt á herðar sér með afar skynsöm- um leik,“ skrifaði Skúli B. Sigurðs- son í umfjöllun um leikinn á mbl.is en Milka átti enn einu sinni góðan leik fyrir Keflavík og skoraði 34 stig. Þjálfari ÍR, Borce Ilievski, tók undir það í viðtali á mbl.is í gærkvöldi. Keflvíkingar náðu sér aftur á strik  Grindavík skellti Stjörnunni Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson Í Keflavík Dominykas Milka býr til hindrun fyrir Hörð Axel Vilhjálmsson í leiknum í gær en Milka var áberandi í liði Keflavíkur enn eina ferðina. Belgíski knattspyrnumaðurinn Jo- nathan Hendrickx er á leið til Ís- lands í þriðja sinn en hann hefur samið við KA um að leika með lið- inu á komandi tímabili. Hendrickx, sem er 27 ára gamall hægri bak- vörður, lék 49 leiki í úrvalsdeildinni með FH á árunum 2014-2017 og síð- an 29 leiki með Breiðabliki á ár- unum 2018-19. Hann lék með Leixo- es í Portúgal 2017-18 og hefur frá sumrinu 2019 spilað með Lommel í belgísku B-deildinni. Hendrickx lék með Fortuna Sittard í Hollandi áð- ur en hann kom til FH-inga. Hendrickx kemur í þriðja skipti Ljósmynd/KA Akureyri Jonathan Hendrickx er búinn að semja við KA-menn. Norska knattspyrnufélagið Molde tilkynnti í gær að gengið hefði verið frá kaupum á Birni Bergmann Sig- urðarsyni frá Lilleström og samið við hann til tveggja ára. Þetta er í þriðja sinn sem Björn kemur til Molde. Hann var lánaður þangað frá Wolves árið 2014 og sneri svo aftur til félagsins árið 2016 þegar hann var laus frá enska félag- inu og lék þar í hálft annað ár. Hann lék síðan með Rostov í Rússlandi en gekk til liðs við Lilleström í ágúst á síðasta ári. Molde varð í öðru sæti á eftir Bodö/Glimt á síðasta tímabili. Björn til Molde í þriðja sinn Morgunblaðið/Eggert Noregur Björn Bergmann veit að hverju hann gengur hjá Molde.  Englandsmeistarar Liverpool í knattspyrnu kræktu í gær í tvo varn- armenn til að auka breiddina í leik- mannahópi sínum. Þeir keyptu Ben Davies, 25 ára miðvörð, af Preston fyr- ir um það bil eina milljón punda og fengu Ozan Kabak, tvítugan tyrk- neskan landsliðsmann, lánaðan frá Schalke í Þýskalandi til sex mánaða.  Þjóðverjarnir í Schalke kræktu sér í reyndan miðvörð í stað Kabaks. Þýski varnarmaðurinn Shkodran Mustafi fékk sig í gær lausan undan samningi við Arsenal og gekk í kjölfarið til liðs við Schalke.  Þá bendir allt til þess að Takumi Minamino, sóknarmaður Liverpool, leiki sem lánsmaður með Southamp- ton út þetta keppnistímabil. Viðræður um það stóðu yfir í allan gærdag og Japaninn fór í læknisskoðun hjá South- ampton í gærkvöld. Félagaskipti hans höfðu þó ekki verið staðfest þegar blaðið fór í prentun en félaga- skiptaglugganum í ensku úrvalsdeild- inni var lokað klukkan 23 í gærkvöld.  Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liv- erpool skýrði frá því í gærkvöld að mið- vörðurinn Joel Matip myndi ekki leika meira með liðinu á þessu keppn- istímabili vegna meiðsla. Matip meidd- ist í annað sinn á dögunum en hann var þá fyrir stuttu stiginn upp úr meiðslum sem héldu honum frá keppni í nokkrar vikur.  Tveir kornungir íslenskir knatt- spyrnumenn gengu til liðs við ítölsk fé- lög í gær. Atalanta keypti Óliver Stein Guðmundsson, 16 ára leikmann frá Haukum, og samdi við hann til þriggja ára. Venezia fékk Jakob Franz Pálsson 17 ára, drengjalandsliðsmann úr Þór á Akureyri, lánaðan út þetta tímabil með forkaupsrétti á honum.  West Bromwich Albion samdi í gær- kvöld um að fá Ains- ley Maitland-Niles lánaðan frá Arsen- al út þetta tíma- bil. Maitland- Niles er 23 ára gamall fjölhæfur leik- maður sem lék fimm fyrstu landsleiki sína fyrir England í haust en hefur verið í vandræðum með að festa sig í liði Arsenal, sem hann hefur spil- að með frá sex ára aldri. Eitt ogannað DANMÖRK Víðir Sigurðsson Bjarni Helgason Ólafur H. Kristjánsson hefur fengið Kjartan Henry Finnbogason til að aðstoða sig við að koma liði Esbjerg upp í dönsku úrvalsdeildina í knatt- spyrnu. Þar leitar Ólafur heldur betur í reynslubankann því Kjartan hefur mikla og góða reynslu af slíkum verkefnum. Fari Esbjerg upp í vor verður það í þriðja skipti sem Kjart- an Henry leikur þann leik. Í tvö fyrri skiptin hefur KR- ingurinn staðið uppi sem marka- kóngur B-deildarinnar, með 17 mörk í bæði skiptin. Fyrst með Horsens vorið 2016 og síðan aftur með Vejle fyrir tæpu ári, eða um sumarið 2020. Staða Esbjerg er virkilega góð en þegar sextán umferðir hafa verið leiknar af 32 eru Esbjerg og Viborg jöfn og efst í dönsku B-deildinni, sjö stigum á undan þriðja liði, sem er Silkeborg. Tvö efstu liðin fara upp í úrvalsdeildina. Esbjerg, sem er einnig með bolvíska framherjann Andra Rúnar Bjarnason í sínum röð- um, vann átta síðustu leiki sína fyrir jól eftir rólega byrjun á tímabilinu. Liðið féll úr úrvalsdeildinni síðasta sumar og þá var Ólafur fenginn til félagsins frá FH en hann hefur áður þjálfað Randers og Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni. Allir hissa í Horsens Óhætt er að segja að Kjartan hafi ekki farið þegjandi og hljóðalaust til Esbjerg. Hann fékk á dögunum samningi sínum við Horsens rift og stefndi heim til Íslands en það kom flatt upp á hans fyrrverandi félaga í Horsens þegar hann samdi við Es- bjerg. Forráðamenn Horsens hafa lýst furðu sinni á því og stuðnings- menn sendu Kjartani tóninn. Kjartan skýrði málið í ítarlegu viðtali við mbl.is í gær og sagði að þegar hann fékk samningnum við Horsens rift hefði fjölskyldan verið búin að setja stefnuna til Íslands. „Ég sagði Horsens að ég væri ekki með neitt annað tilboð á borð- inu, hvorki heima né í Danmörku. Ég ætlaði að taka næstu mánuði í að pakka og huga að heimferð. Þegar það komu fréttir af því í fjölmiðlum fékk ég nokkur símtöl, meðal annars frá Óla Kristjáns. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann hringir í mig en hann reyndi meðal annars að fá mig til Randers. Óli er sannfærandi maður og átti stóran þátt í því að ég ákvað að fara til Esbjerg,“ sagði Kjartan við mbl.is en þar má sjá við- talið í heild sinni. Markahæstur í báðum deildum Kjartan Henry hefur átt afar far- sælan feril í Danmörku, með Hor- sens í fjögur og hálft ár og með Vejle í rúmlega hálft annað ár. Ásamt því að taka drjúgan þátt í að koma lið- unum upp í úrvalsdeildina er Kjart- an markahæsti Íslendingurinn frá upphafi í báðum deildunum, með 27 mörk í 91 leik í úrvalsdeildinni og 45 mörk í 83 leikjum í B-deildinni. Í Danmörku hefur Kjartan því skorað 72 af þeim 122 deildamörkum sem hann hefur gert á ferlinum. Hin eru 38 fyrir KR, 10 fyrir Sandefjord í Noregi, eitt fyrir Åtvidaberg í Sví- þjóð og eitt fyrir Falkirk í Skotlandi. Að auki lék hann með Ferencváros í Ungverjalandi í hálft ár og skoraði nokkur mörk í bikarkeppninni en ekki í deildakeppninni þar í landi. Ljósmynd/Esbjerg Esbjerg Danska félagið kynnti Kjartan Henry Finnbogason í gærmorgun. Tekst það líka í þriðja skipti?  Ólafur fær Kjartan til að aðstoða sig við að koma Esbjerg upp í úrvalsdeildina 26 ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.