Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 ✝ Svavar Gests-son, fv. þing- maður, ráðherra og sendiherra, fæddist á Guðna- bakka í Stafholts- tungum 26. júní 1944. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala 18. janúar 2021. Foreldrar hans voru hjónin Guð- rún Valdimarsdóttir, f. 28.3. 1924 á Kjalvararstöðum í Reykholtsdal, d. 16.12. 2016, og Gestur Zophonías Sveins- son, f. 3.10. 1920 í Stóra- Galtardal á Fellsströnd, d. 29.12. 1980. Þau bjuggu fyrstu búskaparár sín í Stóra- Galtardal en Svavar var með móður sinni í tæp tvö ár á Guðnabakka í Stafholts- tungum. Þau Guðrún og Gest- ur fluttu svo til Reykjavíkur 1947 og bjuggu þar til 1954 er þau fluttu vestur aftur. Þá stofnuðu þau nýbýlið Grund á Fellsströnd í landi Litla-Galtardals. Þar bjuggu þau til 1966 er þau fóru suður á ný, fyrst að Straumi við Hafnarfjörð og síðan í Hafn- arfjörð. Systkini Svavars eru: Sveinn Kjartan, f. 1948, Helga Mar- grét, f. 1949, Málfríður, f. 1953, Valdimar, f. 1956, Guðný Dóra, f. 1961, Kristín Guðrún, f. 1963, og Svala, f. 1967, d. 1971. Fyrri eiginkona Svavars var Jónína Benediktsdóttir, f. 1943, d. 2005, en þau gengu í hjónaband 1964 og eignuðust þrjú börn, þau Svandísi, f. 1964, Benedikt, f. 1968, og Gest, f. 1972. Svavar og Jónína skildu. Svandís á þau Odd, f. 1984, og Auði, f. 1986, með fyrri manni sínum Ástráði Haraldssyni, og þau Tuma, f. 1996, og Unu, f. 2000, með eig- inmanni sínum Torfa Hjartar- syni. Oddur á þau Úlf, f. 2009, og Ósk, f. 2013, með eiginkonu sinni Sigurlaugu Elínu Þór- hallsdóttur. Auður á þær Röskvu, f. 2010, Urði, f. 2012, og Nótt, f. 2019, með eigin- entablaðsins 1966. Svavar varð blaðamaður á Þjóðviljanum 1964, ritstjórnarfulltrúi 1969 og ritstjóri frá 1971 til 1978. Hann starfaði hjá Æskulýðs- fylkingunni 1962, Alþýðu- bandalaginu 1966-1967 og hjá Samtökum hernámsandstæð- inga 1966. Formaður útgáfu- félags Þjóðviljans um árabil. Hann var fyrst kosinn á Al- þingi fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavíkurkjördæmi árið 1978 og sat síðan sem þing- maður Alþýðubandalagsins til 1995, þá Alþýðubandalagsins og óháðra 1995-1999; var þó þingmaður Samfylkingarinnar allra síðustu daga þingsetu sinnar er þingflokkar Alþýðu- bandalagsins, Alþýðuflokksins og Kvennalistans sameinuðust. Árið 1999 var Svavar skip- aður sendiherra og varð fyrst aðalræðismaður Íslands í Winnipeg í Kanada. Þar var hann jafnframt framkvæmda- stjóri hátíðahalda Íslendinga vegna landafunda og land- námsafmæla í Kanada og norð- urríkjum Bandaríkjanna. Hann varð síðan sendiherra í Stokk- hólmi 2001-2005 og sendiherra í Danmörku 2005-2009. Svavar var viðskiptaráð- herra í annarri ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1978 til 1979, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra og félags- málaráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980 til 1983 og menntamálaráðherra í annarri og þriðju ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1988 til 1991. Svavar Gestsson var for- maður Alþýðubandalagsins 1980-1987, formaður þing- flokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1995-1999, sat í mið- stjórn og framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins 1968- 1999, var í ritstjórn tímaritsins Réttar um langt árabil. Hann hefur skrifað fjölda blaða- og tímaritsgreina. Árið 1995 kom út eftir hann bókin Sjónar- rönd, um jafnaðarstefnu. 2012 kom út bókin Hreint út sagt, sjálfsævisaga. Svavar sat í stjórn Lands- virkjunar 1995-1997, í stjórn Ríkisspítalanna 1991-1994, for- maður stjórnar Norræna menningarsjóðsins 1996-1997. Hann var einn af þremur yfirskoðunarmönnum ríkis- reikninga 1991-1995. Hann sat fjögur allsherjarþing Samein- uðu þjóðanna. Var formaður ráðherranefndar EFTA 1979, var formaður vestnorræna ráðsins 1998 og í ráðinu um árabil, sat í þjóðhátíðarnefnd 1994 og var formaður embætt- ismannanefndar sem samdi um Icesave-reikningana í Bret- landi og Hollandi eftir banka- hrunið á Íslandi. Þeir samn- ingar voru samþykktir á Alþingi og forseti Íslands und- irritaði lögin þar um. Bretar og Hollendingar höfnuðu hins vegar niðurstöðu Alþingis. Í framhaldi af þeim voru því gerðir nýir samningar sem samþykktir voru á Alþingi. Þeim samningum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu 2010. Svavar var heiðursfélagi Ís- lendingafélagsins í Vatna- byggð Saskatschewan 2000 og sat í stjórn Þjóðræknisfélags Íslendinga á Íslandi 2010-2017 og var formaður heiðursráðs þess til 2018. Hann var heið- ursfélagi í Þjóðræknisfélaginu frá 2018. Hann var í stjórn Fé- lags fyrrverandi alþingis- manna 2011-2017, var formað- ur þess 2014-2017, var ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings 2015- 2019, fimm árganga, og var í stjórn Ólafsdalsfélagsins. Hann var ritari Sturlunefndar og varaformaður Eiríksstaða- nefndar. Svavar vann að und- irbúningi Vínlandsseturs fyrir Eiríksstaðanefnd. Hann var í stjórn Hins íslenska fornrita- félags frá 2018. Útför Svavars fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 2. febrúar 2021, klukkan 13. Vegna að- stæðna í þjóðfélaginu geta að- eins nánustu ættingjar og vinir Svavars verið við athöfnina. Streymt verður frá athöfn- inni á slóðinni http://beint.is/streymi/svavar Einnig má nálgast netgrein og tengil á http://mbl.is/andlat manni sínum Arn- aldi Grétarssyni. Tumi á unnustuna Salóme Katrínu Magnúsdóttur. Benedikt á þá Rafn, f. 1992, Svavar, f. 1998, og Baldur, f. 2002, með eiginkonu sinni Maríu Ingi- björgu Jónsdóttur. Rafn á unnustuna Kathleen Moyana og Baldur unnustuna Önnu Fülöp. Gestur á Svavar Tómas, f. 1995, með Ölmu Lísu Jóhannsdóttur og þau Bergþóru Sóleyju, f. 1999, Jónínu Katrínu, f. 2004, og Matthías Nóa, f. 2011, með eig- inkonu sinni Halldóru Berg- þórsdóttur. Svavar Tómas á unnustuna Karen Sunnívu Káradóttur. Eftirlifandi eiginkona Svav- ars er Guðrún Ágústsdóttir fv. forseti borgarstjórnar, f. 1947, en þau gengu í hjónaband 1993. Guðrún á þrjú börn með sínum fyrri eiginmanni, Krist- jáni Árnasyni, þau Ragnheiði, f. 1968, Árna, f. 1970, og Gunnhildi, f. 1977. Ragnheiður á þær Guðrúnu, f. 1991, og Hrefnu, f. 2001, með eigin- manni sínum Svavari Hrafni Svavarssyni. Guðrún á unnust- ann Friðrik Má Jensson. Árni á þær Maríu Kristínu, f. 1998, og Áshildi, f. 2005, með eiginkonu sinni Önnu Maríu Hauks- dóttur. María Kristín á unn- ustuna Pálínu Axelsdóttur Njarðvík. Gunnhildur á þau Helgu, f. 2006, og Kristján, f. 2008, með eiginmanni sínum Sigurði Ólafssyni. Svavar og Guðrún áttu heimili í Mávahlíð í Reykjavík en einnig í Hólaseli við Króks- fjörð í Reykhólahreppi þar sem þau dvöldu stóran hluta ársins við skógrækt, æðar- rækt, hestamennsku og margs- konar félagsstörf. Svavar lauk stúdentsprófi frá MR árið 1964 og gegndi þar embætti forseta Framtíðarinnar, nemenda- félags MR, skólaárið 1962- 1963. Í ritnefnd Nýja stúd- Svavari á ég mikið upp að unna og þegar hann kveður finn ég fyrir þakklæti sem minnir helst á djúpan og tæran hyl eða ægibjarta víðáttuna í Hólaseli við Króksfjörð, þar sem augað þreytist aldrei á að finna nýja og töfrandi hluti. Ég hreifst af hon- um ungur eins og svo margir af minni kynslóð og varð einarður vinstrimaður á unglingsaldri en vissi ekki þá að leiðir okkar ættu eftir að liggja saman löngu síðar og það með jafn afgerandi hætti og raunin varð! Svavar var ekki bara afreksmaður og hetja í stjórnmálum í ævilangri baráttu sinni fyrir betra samfélagi, hann átti líka fjölskyldu sem ég var svo gæfusamur að fá að tengjast. Hann var fátækur sveitastrákur úr stórum systkinahópi, elstur í hópnum og ræktaði öll sín fjöl- skyldutengsl af kostgæfni allt til loka, kvæntist Nínu okkar ungur og Guðrúnu okkar síðar, átti börn og buru, tengdabörn og stjúpbörn, barnabörn og barna- barnabörn. Yngst í þeim stóra hópi er hún Nótt sem fæddist í svartasta skammdeginu fyrir rúmu ári og hlær nú við lífinu með tveimur stórum framtönn- um og ómótstæðilegu brosi. Samverustundir okkar Svandís- ar með Svavari, Guðrúnu, börn- unum öllum, vinum og ættingj- um í smærri og stærri hópum eru svo margar og góðar að engri tölu verður á komið, heima og heiman, innan lands og utan. Lengst var á milli árin þeirra tveggja hjá Íslendingum í Vest- urheimi og þegar Svavar fór um lönd og álfur, úr einu heimshorni í annað, að vinna landinu gagn eins og hans voru ær og kýr, alla tíð, að gera eitthvert gagn, um það fannst honum lífið eiga að snúast. Alls staðar þar sem hann kom að leiddi það til góðs, skrifa þeir núna, Vestur-Íslendingar, í blaðið sitt, og lýsa honum af list án allra fyrirvara eins og þeirri stórbrotnu kempu og þeim höfð- ingja sem hann var, alltaf með mörg járn í eldinum, alltaf að leita leiða og finna lausnir, safna liði, leiða saman fólk, lyfta flögg- um, marka stefnu, líta yfir farinn veg og horfa fram á veginn. Samt svo sterkur í núinu, ekki endilega í löngum lotum eða laus við óeirð, en alltaf skarpur og næmur og veitti fólki óskipta at- hygli sem varð svo mörgum svo dýrmæt, var áhugamaður um fólk, ekki bara suma, heldur fólk. Glæstur á velli eins og ég sá svo vel einn góðan veðurdag á sólar- strönd í Stokkhólmi, þar sem hann stóð út úr manngrúanum, arkandi um á stuttbuxum og bol í stórum skrefum með hárið flaksandi og símann á lofti. Svo var hann bara svo skemmtilegur og hláturinn í augunum aldrei langt undan. Mér fannst líka gott að sjá hvernig hann mild- aðist með árunum, ekki í póli- tískri sýn, heldur æðruleysi og sátt við sjálfan sig og lífshlaupið, það skipti hann máli hvernig hans yrði minnst, að segja sögu sína, heimahaganna og samtím- ans með sínum hætti og það tókst honum líka með svo mörgu móti áður en yfir lauk. Og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnefana, barðist við dauðann eins og hetja í fornum sögum, það var fullt tungl þegar hann hneig niður á leið vestur í Dali og Reykhóla- sveit í byrjun október og úlfa- tungl á björtum vetrarmorgni þegar við lögðum hann í kistuna, næstum fjórum mánuðum síðar. Við söknum hans öll sárt og mik- ið en eigum líka mikið að þakka. Svavar var einstakur gæfumaður og það var gæfa fyrir okkur öll að fá að eiga með honum sam- leið. Torfi Hjartarson. Svavar kom inn í líf okkar þegar við tvö eldri vorum rétt að skríða yfir tvítugt og Gunnhildur nýorðin unglingur. Öll fengum við ný og flókin hlutverk og er skemmst frá því að segja að Svavar tókst á við það sem að honum sneri af miklum sóma. Hann sýndi okkur nærgætni, ræktarsemi og hlýju og þegar við fórum sjálf að eignast börn varð hann mikilvægur þáttur í þeirra lífi. Eitt af því sem var hvað mest áberandi í fari Svavars var hvernig þekkingarþorstanum varð aldrei svalað. Almenn fróð- leiksfýsn og áhugi á lífi og hög- um annarra gerði hann eftir- minnilegan öllum sem honum kynntust. Þar kom saman mann- gæska og hlýja. Hugurinn var sí- fellt að taka við nýjum upplýs- ingum og vinna úr þeim. Svavar spurði og hlustaði þannig að við- mælandinn varð merkasta manneskjan í herberginu hverju sinni. Þetta átti jafnt við um full- orðna og börn. Svavar var með eindæmum orkumikill, stöðugt að fá nýjar hugmyndir að verkefnum og leita að lausnum. Og hann var ekki mikið fyrir að velta sér upp úr smámunum. Stóru spurning- arnar voru í forgrunni – hann vildi stuðla að betra samfélagi, auknu réttlæti og jafnrétti. Allt hans starf í stjórnmálum, utan- ríkisþjónustunni og nú síðast við uppbyggingu söguminja, at- vinnulífs og náttúru í heimasveit- inni, Dölunum, ber því vitni. Í þau 30 ár sem Svavar var hluti af lífi okkar nutum við þess að spjalla við hann, hlæja, vinna að skógrækt, bardúsa í hestum og ferðast með honum innan lands og utan. Um leið fengum við dýrmæt tækifæri til að byggja upp vináttu við Svandísi, Benna, Gest og allt þeirra fólk. Kynnin við þau eru okkar gæfa. Nú þegar leiðir skilur yljum okkur við minningar frá Ártúns- bletti, Leifsgötu og Mávahlíð í Reykjavík, Inghóli á Eyrar- bakka, Wellington Crescent í Winnipeg, Strandvägen og Klöpp í Stokkhólmi og nágrenni, Krathusvej í Ordrup og Fugle- bakkevej í Frederiksberg. Kær- astar verða þó líklega stundirnar sem við áttum með þeim mömmu í sælureitnum í Hólaseli þar sem þau komu sér fyrir eftir að löngum stjórnmála- og utanríkis- þjónustuferli þeirra lauk. Þar hófst mikil skógrækt og er land- ið við Króksfjörðinn farið að bera þess merki. Við kveðjum Svavar með miklum söknuði en jafnframt þakklæti fyrir kynni okkar af stórmerkum manni sem var okk- ur kær vinur. Ragnheiður, Árni og Gunnhildur. Þegar ég var lítil var afi þing- maður. Áberandi og umdeildur. Ég man ekki til þess að hafa þótt það óþægilegt nokkurn tímann, þar sem ég treysti hans ferðalagi svo vel. Staðfastur, trúr sinni sannfæringu og ærlegur. Hann spurði alla mikið og hafði svo einlægan áhuga á viðmælandan- um hverju sinni. Ást sýndi hann í verki og með húmor og gleði sem ferðafélaga. Mér fannst hann alltaf hafa yfirgripsmikla þekk- ingu á ótrúlegustu málefnum. Það held ég að hann hafi öðlast með því að vera alltaf tilbúinn að hlusta, fræðast, lesa og greina allt mögulegt sem á vegi hans varð. Afi var brennandi hug- sjónamaður, með ótæmandi ríka réttlætiskennd. Hann var flinkur í farsælu hjónabandi, sem var þeirrar gerðar að stækka og næra alla sem fengu að umgang- ast það í návígi. Hann átti þann- ig margt í sínu lífi í tugi ára sam- ofið tilverunni með Guðrúnu, þau voru svo flink saman. Hann var með stórar hendur og bros og fang og nærveru. Var flinkur í samskiptum við ólíkt fólk á öllum aldri með allan mögulegan bak- grunn. Þannig skeytti hann engu um stétt eða stöðu fólks, heldur vildi vita hvaða lífsins ferðalagi það var á og skilja hvers vegna. Þarna fór afburða sögumaður, sveitamaður sem var í sterkum tengslum við náttúruna, lands- lagið og alla vinnuna sem að baki hinu smáa lá. Hann skildi stritið og fátæktina. Hann var líka ná- kvæmur og skipulagður og vildi geta séð hluti fyrir sér og ráða. Hann bjó til alls konar samveru í núinu, hvort sem það var í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn, á Ítalíu, í Hólaseli eða bara í bíltúr og búðarferð. Spjall að kvöldi, hátíðir, áramótagleði, kosninga- nótt. Þar sem afi var var öryggi og góð nærvera og líka svo gam- an! Hann hringdi stundum og spurði stórra spurninga, hrósaði einlægt, kom í kaffi og nennti. Það sem hann nennti! Hann söng og hló, reið út og bakaði brauð, talaði mikið um verka- lýðsbaráttuna, stéttarfélögin, pólitík nútíðar og fortíðar, ætt- fræði, fjölskylduna og afkomend- ur sína, bækur og atburði, ferða- lög og samtöl. Hvort sem um ræddi lítil eða stór verkefni, samtök, skógrækt, fjölskyldu- rækt, félagsstarf, ferðalög eða hestamennsku hætti hann aldrei að hafa nóg fyrir stafni, gefa tíma og orku með elju og gríð- arlega skarpa greiningarhæfni. Nærvera þín var risastór, björt og hlý. Áhrifa þinna mun gæta lengur en flestra. Við mun- um og virðum, nærum, syrgjum, syngjum, elskum og lifum! Takk elsku afi. Auður Ástráðsdóttir. Síðustu heimsóknir og samtöl bentu ekki til þess að komið væri að því að við Svavar frændi minn ættum ekki eftir að hittast eða spjalla saman, en svona gerist óvænt, löng og ströng barátta er að baki. Mér verður hugsað til bernskuáranna fyrir vestan þar sem foreldrar okkar bjuggu í bændasamfélagi sem nú heitir Dalabyggð. Svavar og systkini hans á Grund og við systkinin á Sveins- stöðum vorum mjög samrýnd, nánast einn stór systkinahópur, enda feður okkar bræður. Marg- ar leita minningar á hugann frá þessum tíma. Við Svavar hófum skólagöngu 10 ára gamlir hjá frú Steinunni á Breiðabólstað á Fellsströnd. Til hennar komum við læsir, nokkuð vel færir í reikningi og skrift, en þá tóku við fleiri fög, ekki síst saga fyrri tíma byggð- arlagsins sem Steinunn kunni svo vel að útskýra fyrir okkur. Kannski var það þá sem Svav- ar lærði hetjusögurnar, nöfn og staðhætti, þar sem hann svo vann ötullega að framkvæmd „Gullna söguhringsins“ í Dala- byggð nú hin síðari ár, sem er meiriháttar og lofsvert framtak sem mun lifa um ókomna tíma. Sveitin átti hug okkar beggja á bernskuárunum og ætluðum við að verða bændur og búa vel. Af því varð þó ekki en önnur verkefni urðu fyrir valinu sem verða ekki rakin hér. Hestamennskan var Svavari í blóð borin enda kominn af hesta- mönnum í báðar ættir. Hann átti góða hesta, naut þess að fara í hestaferðir á sumrin með fjöl- skyldu og vinum, og um leið að virða fyrir sér fallega náttúru landsins. Þau Svavar og Guðrún hafa reist sér fallegt sumarhús á frið- sælum stað við Breiðafjörðinn þar sem fegurðin ræður ríkjum og söguslóðirnar eru flestar í næsta nágrenni. Við vottum Guðrúnu, Svan- dísi, Benedikt og Gesti okkar innilegustu samúð, svo og stór- fjölskyldunni allri. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Enn fremur samúðarkveðjur frá móður minni Önnu Maríu og systrunum frá Sveinsstöðum. Kristín og Sveinn Sigurjónsson. Svavar Gestsson var í grunn- inn alþýðupiltur úr sveit sem aldrei gleymdi uppruna sínum og taldi sig ekkert betri en ann- að fólk. En samt var hann iðu- lega fremstur meðal jafningja, tignarlegur og höfðinglegur. Hann var alvarlega þenkjandi en að sama skapi tók hann sig ekki of hátíðlega. Hann nálgaðist til- veruna af ástríðu fyrir sam- félagsmálum og áhuga á öðru fólki. Alla tíð brann hann fyrir samfélagsmálum og lá stundum svo mikið á hjarta að hann sendi stutt hálfóskiljanleg skilaboð sem jafnvel byrjuðu í miðjum klíðum um að eitthvert mál þyrfti að ræða. Stundum var maður ekki viss hvort viðtakand- inn hefði átt að vera einhver annar. Stundum eiga fyrrverandi stjórnmálamenn það til að vera bitrir yfir hlutskipti sínu en því var ekki að heilsa hjá Svavari. Hann hafði vissulega skoðanir á mönnum og málefnum, og það sterkar, en var ekki einn þeirra sem telja að þeir geri allt betur en allir aðrir. Svavar var þó ávallt til taks ef annað fólk þurfti að leita til hans og þau voru ófá skiptin sem Katrín gat notið reynslu hans. Það væri langt mál að rifja upp feril Svavars í stjórnmálum en þar vann hann mikilvægt starf, til að mynda í velferðar- og menntamálum. Má þar nefna brautryðjandastarf í að gera leikskóla að fyrsta skólastigi þar sem hann þurfti að kljást við ýmsa, jafnvel innan eigin ríkis- stjórnar. Hann barðist ekki fyrir því máli vegna þess að það væri auðvelt eða myndi skila honum vinsældum; hann barðist fyrir því og skilaði alla leið vegna þess að hann hafði djúpa sannfæringu fyrir því. Svavar hafði alltaf rétt- læti og jöfnuð að leiðarljósi og taldi skyldu okkar að hlúa að þeim sem höllum fæti standa. Þegar stjórnmálaferlinum lauk gerðist hann fulltrúi Íslands á erlendri grund og þar naut hann sín enda tvinnuðust saman tveir sterkir þræðir í honum: sá þjóðrækni og sá alþjóðasinnaði. Þjóðrækni hans var aldrei á kostnað annarra þjóða. Hann mat Ísland og íslenska menningu mikils en taldi hana vera hluta af þeirri mósaíkmynd sem heimur- inn er. Íslenska þjóðin hafði eitt- hvað fram að færa, eins og aðrar þjóðir. Svavar var mikill fjölskyldu- maður. Öllum mátti vera ljóst að Svavar Gestsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.