Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.02.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H Portrettmálverk eftir ítalska endur- reisnarmeistarann Sandro Botticelli var selt hæstbjóðanda á uppboði Sotheby í New York fyir langhæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir málarann, 92,1 milljón dala, um 11,8 milljarða króna. Er það næsthæsta verð sem greitt hef- ur verið fyrir verk eftir einn hinna gömlu meistara myndlistarinnar, það er verk málað fyrir miðja 19. öld. Metið er verðið sem krónprins Sádi- Arabíu greiddi fyrir Salvator Mundi eftir Leonardo da Vinci, 450 millj- ónir dala. Málverk Botticellis, „Ungur mað- ur með hringlaga mynd af manni“, var málað um 1470. Samkvæmt frétt The Art Newspaper er kaupandinn sem hreppti verkið rússneskur en ekki er vitað hver hann er. Verkið kemur hins vegar úr dánarbúi eins kunnasta myndlistarsafnara Banda- ríkjanna, fasteignajöfursins Shel- dons Solows sem er nýlátinn, en hann keypti verkið á uppboði hjá Christie árið 1982 fyrir aðeins um 1,1 milljóna dala, um 143 milljónir króna. Málverkið hafði verið metið á allt að 80 milljónir dala og fór því á yfirverði. Málverk eftir Sandro Botticelli koma sjaldan á uppboð enda eru þau flest í listasöfnum og hvergi fleiri en í Uffici-safninu í Flórens þar sem meðal annars er hið frægasta þeirra, hið stóra málverk „Fæðing Ven- usar“. Fyrra met fyrir málverk eftir Botticelli var frá árinu 2013, 10,4 milljónir dala sem greiddar voru fyr- ir málverk sem hefur verið kallað „Rockefeller-Madonnan“ eftir fjöl- skyldunni sem átti verkið. Ekki er tekist á um öll verk eftir Botticelli eins og sást í desember þegar Sotheby í London bauð upp málverk af Kristi á krossinum, sem er af sérfræðingum talið vera eftir meistarann, en hæsta boð í það, frá safnara í Asíu, nam „aðeins“ einni milljón punda með gjöldum, um 177 milljónum króna. efi@mbl.is Portrett Botticellis á 11,8 milljarða kr. AFP Verðmætt Starfsmaður Sotheby sýnir hið áhrifamikla og vel varðveitta málverk Sandros Botticellis af ungum manni með hringlaga mannsmynd.  Metverð fyrir verk eftir meistarann Kvikmyndahátíðin í Gautaborg, sem er sú umfangsmesta og þekktasta sem haldin er á Norðurlöndum ár hvert, er haldin nú í vikunni með gjörbreyttu sniði en vant er vegna kórónuveirufaraldursins. Samkomu- bann er í Svíþjóð og kvikmyndahús ekki opin – nema þá fyrir einn gest í einu. Og það nýta stjórnendur kvik- myndahátíðarinnar sér með athyglisverðum hætti. Þeir ákváðu að halda hátíðina og geta þeir sem áhuga hafa á horft á kvikmyndirnar sem boðið er upp á í streymi heima hjá sér. Kvikmyndirnar 70 sem eru á dagskánni eru líka sýndar í tveim- ur kvikmyndahúsum en vegna samkomubannsins getur einungis einn gestur sótt hverja sýningu og fer því aleinn í bíó. Miklu fleiri höfðu áhuga á að sjá myndirnar en komast að. Þá var hjúkrunarfræðingurinn Lisa Enroth valin úr hópi um 12.000 umsækjenda og fær að upplifa dag- skrá kvikmyndahátíðarinnar með æði óvenjulegum hætti. Henni var um helgina skutlað á slöngubáti út á litla eyju vestan við Gautaborg, Hamneskar, þar sem hún mun dveljast ein alla vikuna í gistiheimili sem stendur þar við gamlan vita. Enroth, sem kveðst vera mikill kvik- myndaunnandi, mun þar horfa á all- ar kvikmyndirnar sem boðið er upp á á hátíðinni. Hún mun ekki hafa neitt netsamband að öðru leyti en því að hún notar spjaldtölvu frá há- tíðinni til að halda vídeódagbók um lífið á eyjunni og kvikmyndaáhorfið, sem áhugasamir geta fylgst með. Enroth kvaðst vel undirbúin fyrir bíótörnina og þurfa á tilbreytingu að halda en hún starfar á gjörgæslu- deild þar sem mikið álag hefur verið vegna faraldursins. „Ég hef eytt ómældum tíma í að hlusta, taka sýni og hugga fólk og það hefur tæmt all- an minn orkuforða,“ segir hún. „Að fá þessa tilbreytingu í heila viku, annan veruleika við hafið, er mjög spennandi.“ efi@mbl.is AFP Ævintýri Bíóunnandinn og hjúkrunarfræðingurinn Lisa Enroth klæddi sig í hlífðargalla áður en henni var skutlað á slöngubát út í eyjuna vestan við Gautaborg þar sem hún dvelur ein þessa vikuna og horfir á 70 kvikmyndir. Horfir alein á allar myndir hátíðarinnar á eyju í viku  Kvikmyndahátíðin í Gautaborg með óvenjulegu sniði AFP Alein Sandra Fogel var alein í bíó eftir að hafa verið dregin úr hópi áhugasamra kvikmyndaunnenda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.