Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 21

Morgunblaðið - 02.02.2021, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2021 til umráða. Eins og tíðarandinn var þá sendu flokkarnir allir karlmenn. Einn mætti ekki í jakkafötum með bindi. Það var Svavar. Hann kom í lopapeysu í anda ’68-kynslóðarinnar. Þessi eina kennslustund er bæði mér og mörgum fyrrverandi nemend- um mínum enn minnisstæð. Svavar talaði af eldmóði hins sannfærða unga manns og var mikið niðri fyrir. Það var mjög athyglisvert að sjá og heyra, hversu vel hann náði til nem- enda; hann beinlínis hreif þá með sér, róttækur, glaðbeittur og sannfærður. Kennslustundin nægði ekki til þeirra skoðana- skipta sem svo áttu sér stað. Um áhrifaríkan ræðuflutning Svav- ars alla ævi þarf ekki að fjölyrða. Um sumarið 2000 vorum við hjónin í fylgdarliði forseta Ís- lands í vikulöngu opinberu ferða- lagi um þvert og endilangt Kan- ada vegna landafundahátíða. Þá var Svavar orðinn fyrsti útsendi aðalræðismaður Íslands í Winni- peg og framkvæmdastjóri landa- fundanefndar í Vesturheimi. All- ir sem þar komu sáu hvílík þrekvirki Svavar og landafunda- nefnd höfðu unnið; íslenskir við- burðir víðsvegar um þetta næst- víðáttumesta ríki heims. Snemma 2001 var mér falið að opna fyrsta sendiráð Íslands í Ottawa, höfuðborg Kanada, og 12 árum síðar varð ég einn af eftirmönnum Svavars sem aðal- ræðismaður í Winnipeg. Við nán- ari kynni af mönnum og mál- efnum í Kanada sá ég enn betur hvílíkum grettistökum hafði ver- ið lyft. Og ljóslega hafði ríkið fengið tvo fyrir einn, eins og við segjum í utanríkisþjónustunni, því Guðrún var nánasti sam- starfsmaður Svavars. Um það allt og margt fleira ræddum við í Bólstaðarhlíðinni. Við Svavar sátum saman í stjórn Þjóðræknisfélags Íslend- inga (ÞFÍ) 2011-12 undir stjórn Halldórs Árnasonar. ÞFÍ hefur að markmiði að efla tengslin milli Vestur-Íslendinga og gamla landsins. Ekki er hægt að hugsa sér áhugasamari aðila en Svavar í þessu sameiginlega hugsjóna- máli okkar. Hann mætti á ótal ÞFÍ-þing í Vesturheimi og hér heima, var forystumaður í nýjum verkefnum svo sem til fjáröfl- unar, tók t.d. að sér formennsku í heiðursráði ÞFÍ er það var stofnað, var alltaf boðinn og bú- inn að vera ráðstefnu- og fund- arstjóri hjá ÞFÍ og svo enda- laust margt annað. Mér hlotnaðist sá heiður að afhenda Svavari þakklætis- og heiðurs- skjal ÞFÍ í ágúst 2018 er hann lét af formennsku í heiðurs- ráðinu. ÞFÍ átti hann svo sann- arlega að áfram. Undanfarin ár höfum við Svavar, eftir að fara á eftirlaun, tekið þátt í mánaðarlegum há- degisverðarfundum fyrrverandi sendiherra Íslands. Á hvern fund bjóðum við einum heiðurs- gesti og fjallað er óformlega um margvísleg málefni sem tengjast utanríkismálum og erlendum samskiptum almennt. Svavar var meðal þeirra félaga í þessum hópi sem mættu reglulega og lagði oft mjög skemmtilega og fróðlega vinkla til samræðnanna. Guðrúnu og fjölskyldu send- um við Anna einlægar samúðar- kveðjur. Minningarnar lifa. Hjálmar W. Hannesson. Hann ólst upp á Fellsströnd í Dölum. Sr. Þórir Stephensen fermdi pilt 1958, sama ár og hann skírði mig. Þegar ég var að alast upp í bændasamfélagi Saurbæjar við Gilsfjörð voru þar nokkrir harðsnúnir allaballar, m.a móðurbræður mínir Guð- mundur (Mundi) og Guðjón frá Ólafsdal. Málgagnið var Þjóðvilj- inn, þar sem Fellsstrendingur- inn Svavar Gestsson var öflugur penni og síðar ritstjóri 1971. Dúdda, kona Munda frænda, var móðursystir Svavars. Þannig var ég snemma meðvitaður um Svavar Gestsson og átti síðar eftir að hrífast af ræðumennsku og málafylgju hans sem þing- maður, ráðherra og formaður Al- þýðubandalagsins. Leiðir okkar Svavars lágu þó lítt saman fyrr en Ólafsdals- félagið var stofnað 2007. Þar var Svavar stofnfélagi og stjórnar- maður í 10 ár. Var hann félaginu ómetanlegur með sitt mikla tengslanet innan stjórnkerfisins. Þá sat ég með honum um tíma í stjórn Þjóðræknisfélags Íslend- inga og frá 2017 í Eiríksstaða- nefnd í Dalabyggð. Hlutverk hennar var að koma á fót Vín- landssetri í Búðardal að hug- mynd Kjartans Ragnarssonar. Það tókst með opnun Vínlands- seturs 5. júlí 2020. Að öðrum ólöstuðum munaði þar mest um ósérhlífna vinnu Svavars. Hann kom einnig á framfæri nafninu „Gullni söguhringurinn í Döl- um“, vann að textagerð og upp- setningu söguskilta á leiðinni sem vígð voru 12. maí 2019. Sama dag var Sturlufélagið stofnað að frumkvæði Svavars til að halda á lofti nafni Sturlu Þórðarsonar sagnaritara sem bjó lengst á Staðarhóli í Saurbæ. Þann vordag sló Svavar því tvær flugur í einu höggi fyrir sína heimabyggð. Um það leyti sem sendiherra- tíð Svavars lauk byggðu þau Guðrún sér annað heimili í Hóla- seli í Reykhólasveit með frábæru útsýni yfir Breiðafjörð. Þar stunduðu þau dúntekju, hesta- mennsku, ritstörf, fjölskyldu- og vinarækt. Samheldni og gagn- kvæm virðing einkenndi sam- band þeirra hjóna. Svavar var vinsæll leiðsögu- maður um Dali og kom með marga hópa og vini í Ólafsdal til að kynna staðinn, nýfundinn landnámsskála og endurreisn staðarins. Í nokkur skipti skaust ég úr Hafnarfirði vestur í Ólafs- dal með skömmum fyrirvara til að taka á móti hópi sem Svavar var með. Það var mér ómögulegt að neita manni sem var svo ósér- hlífinn. Í síðustu heimsókninni í ágúst kom Svavar með Svandísi dóttur sinni, Torfa manni hennar og frænda mínum (báðir afkom- endur Torfa og Guðlaugar í Ólafsdal) og Unu dóttur þeirra. Fráfall atorkumannsins skilur eftir sig tómarúm víða, en sár- astur er missir Guðrúnar og fjöl- skyldunnar. Votta ég þeim mína innilegustu samúð. Sjálfur sakna ég funda, spjalls og tölvupósta liðin 14 ár. Síðasti póstur frá Svavari barst mér 8. september síðastliðinn og hljóðaði svo: „Efni: 26. september. Er hægt að komast inn í hús í Ólafsdal þennan dag síðdegis með 15 manns? Kkv. Svavar.“ Nú er sól Svavars Gestssonar til viðar hnigin. Vinskapur hans og glettið blik í auga skilur eftir sig ljúfar minningar, líkt og roðagyllt sólsetur Breiðafjarðar æsku minnar. Kæri vin. Farðu vel og hafðu þökk fyrir allt og allt. Rögnvaldur Guðmundsson frá Salthólmavík. Fjölmargir Íslendingar hafa fyrr og síðar lagt sig fram um að styrkja tengslin milli Íslands og hinna Norðurlandaþjóðanna. Fá- ir voru jafn hollir þeim málstað og Svavar Gestsson. Hann kom miklu til leiðar í embætti ráð- herra menningarmála og sem sendiherra bæði í Svíþjóð og Danmörku. Svavar var menntamálaráð- herra þegar ég tók við sem for- stjóri Norræna hússins 1989. Samband okkar var frá upphafi með ágætum. Hann leit á Nor- ræna húsið sem mikinn aflgjafa. Stuðningurinn og hlýhugurinn sem ég fann frá Svavari var mér mjög mikils virði. Við áttum samstarf um fjöl- mörg verkefni en þeirra stærst var norræna bókamessan í Gautaborg 1990 þegar Ísland var þar í heiðurssæti. Menntamála- ráðuneytið, Bókasamband Ís- lands og Norræna húsið lögðust þar á eitt við kynningu íslenskra bókmennta og íslenskrar menn- ingar, líklega með öflugri hætti en áður hafði þekkst á erlendri grund. Þau varanlegu tengsl sem þarna mynduðust áttu sinn drjúga þátt í að skapa hinn mikla áhuga á íslenskum bókmenntum sem vaknaði í Svíþjóð í kjölfarið. Með líkum hætti naut Norræna húsið samstarfsins við mennta- málaráðuneytið við vígslu Tammerforshússins í Finnlandi. Í sendiherratíð Svavars í Sví- þjóð var mér falið starf ræðis- manns Íslands í Jönköping. Í þessu trúnaðarstarfi gáfust mér og konu minni Christinu tæki- færi til að endurgjalda alla gest- risnina sem við höfðum notið á Íslandi. Samtímis tókum við upp þráðinn að nýju í samskiptunum við Svavar og hans góðu konu Guðrúnu og lögðum þeim það lið sem við máttum við eflingu tengslanna milli Íslands og Sví- þjóðar. Við eigum margar ánægjulegar minningar frá heimsóknum þeirra hjóna til okkar í Huskvarna. Meðal atburða sem athygli vöktu og Svavar átti frumkvæði að meðan hann gegndi starfi sendiherra í Svíþjóð voru svo kallaðir Íslandsdagar í Stokk- hólmi 2003. En hann gegndi einnig lykilhlutverki í verkefni sem er sýnu varanlegra en það er íslensk-sænska orðabókin, sem átti eftir að umbreytast í Is- lex, norrænu netorðabókina með íslensku sem grunntungumál. Orðabókarverkefnið fékk vængi fyrir atbeina Svavars á meðan hann starfaði í Svíþjóð. Svavari var afar annt um nor- rænt samstarf, þetta samstarf, sem nú reynir mjög á í skugga heimsfaraldurs. Við þurfum eld- huga eins og Svavar til að efla vöxt þess og viðgang. Við Christina sendum Guð- rúnu hugheilar samúðarkveðjur á þessari sorgarstund. Lars-Åke Engblom, forstjóri Norræna hússins 1989-1993. Síðast þegar ég hitti Svavar var Mávahlíðin böðuð í sólskini og hann og Guðrún á hlaupum upp og niður tröppur með fangið fullt að hlaða bílinn. Þau voru á leiðinni í sumarbústaðinn. „Þú ert „magician“, Svavar, galdra- karl, eins og ég sagði nýjum for- manni Þjóðræknisfélags Íslend- inga í Bandaríkjunum á fjarfundi í gær.“ Svavar hallaði sér upp að bílnum og undir flatt, eins og hann gerði svo oft, hló við og hváði. Ég útskýrði fyrir honum hvað ég ætti við. Að mín upplifun væri sú að hann hefði með reynslu og hæfileikum en auðvit- að mestmegnis göldrum og töfr- um látið fjölmarga drauma, hug- myndir og verkefni og ekki síst verkefni sem tengjast samskipt- um við afkomendur Íslendinga í Vesturheimi verða að veruleika. Hann þakkaði hlæjandi fyrir og við kvöddumst. Svavar hitti ég fyrst árið 1989 í Winnipeg í Kanada þegar ég tók við hann viðtal fyrir Lög- berg-Heimskringlu. Hann var þá menntamálaráðherra og í fylgd- arliði Vigdísar Finnbogadóttur sem var þar í opinberri heim- sókn. Næst hitti ég hann með Guðrúnu, einnig í Winnipeg, þegar hann var þar aðalræðis- maður. Reyndar má segja að tengsl mín við Svavar og Guð- rúnu liggi í gegnum samfélög af- komenda Íslendinga í Vestur- heimi. Það var hann sem fékk mig, eins og svo marga aðra, til þess að sitja í stjórn Þjóðrækn- isfélags Íslendinga, en sjálfur var hann í stjórn félagsins um árabil og fyrsti formaður Heið- ursráðsins. Á þinginu í ágúst 2018 var hann gerður að heið- ursfélaga ÞFÍ. Svavar stýrði með glæsibrag fjölmörgum viðburðum félagsins og hann og Guðrún fluttu stór- skemmtilegt erindi sem þau köll- uðu Diplómatíska landnámið í Winnipeg og landafundaafmælið árið 2000 á einum af fræðslu- fundum félagsins. Hann kynnti einnig rithöfundinn Böðvar Guð- mundsson til leiks þegar Böðvar flutti erindi sitt Híbýli vindanna & Lífsins tré – Tilurð tveggja sagna fyrir fullum sal gesta á öðrum fræðslufundi. Á ör- skömmum tíma tókst Svavari að vitna í bækur Böðvars, hampa honum og hrósa en jafnframt koma á framfæri Þjóðræknis- félaginu, heiðursráðinu, Snorra- verkefnunum, verkefninu Í fót- spor Árna Magnússonar, mikilvægi íslenskudeildarinnar við Manitóbaháskóla, Vínlands- setrinu og mörgu öðru. Hvílíkir hæfileikar og spunasnilld, og allt þetta án þess að skyggja á aðal- fyrirlesarann. Hjá Svavari var þetta ekki upptalning heldur stórkostleg flétta þar sem hann hélt mörgum boltum á lofti eins og töframönnum er tamt. Við munum sakna Svavars Gestssonar. Ég votta Guðrúnu og fjöl- skyldu Svavars dýpstu samúð mína. Hulda Karen Daníelsdóttir, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga. Síðustu misseri hafa tákn- málstúlkar birst reglulega á sjónvarpsskjánum og túlkað fundi þríeykisins. Svo sjálfsagt þykir nú að mikilvægum upplýs- ingum sé miðlað á íslensku og ís- lensku táknmáli. En þannig hef- ur það ekki alltaf verið og í þessum efnum á döff fólk mikið að þakka Svavari Gestssyni og mikilvægum stuðningi hans við íslenska táknmálið. Árið 1989 þegar Svavar var menntamálaráðherra átti hann fund með Félagi heyrnarlausra í Rúgbrauðsgerðinni til að ræða þau verkefni, sem þyrftu að fel- ast í þjónustu við döff fólk, eins og til dæmis túlkaþjónustu, rannsóknir á íslensku táknmáli og kennslu og ráðgjöf við for- eldra. Á þessum tíma hafði tákn- málssamfélagið búið við mikla forræðishyggju til margra ára og upplifun okkar var að sam- félagið skiptist í döff fólk annars vegar og hina heyrandi hins veg- ar og það sem þeir „gerðu fyrir okkur“. Svavar mætti döff fólki strax af virðingu. Leit á það eins og hverja aðra borgara í sam- félaginu en ekki hóp sem þyrfti að hjálpa. Við fundum strax að hér var kominn ráðherra sem hlustaði og myndi efna orð sín. Við fylltumst bjartsýni og gleði og Svavar ruddi brautina. Í kjöl- far fundarins lagði hann fram frumvarp til laga um Samskipta- miðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þegar hann tal- aði fyrir frumvarpinu á Alþingi 1990 kom fram að hann liti á stöðina sem málstöð. Með flutn- ingi frumvarpsins sagði hann að væri „í raun og veru stigið fyrsta skrefið í þá átt að við- urkenna táknmálið sem tjáning- armál hér á landi við hliðina á ís- lensku, móðurmálinu. Það er auðvitað mjög mikilvægt skref, jafnréttisskref í þágu heyrnar- lausra hér á landi“. Svavar skip- aði fyrsta stjórnarformann stofnunarinnar úr röðum döff fólks, Berglindi Stefánsdóttur táknmálsfræðing og kennara. Sú skipun var mikil viðurkenning og hafði áhrif á áframhaldandi þróun og ferlið í átt til viður- kenningar á íslensku táknmáli. Svavar hélt áfram að styðja baráttu döff fólks og var ávallt reiðubúinn að hitta það og full- trúa Félags heyrnarlausra til að ræða stærsta baráttumálið – viðurkenningu á íslensku tákn- máli. Á árunum 1996-1999 lagði hann þrisvar fram þingsályktun- artillögu um að Alþingi fæli menntamálaráðherra að undir- búa frumvarp til laga um að ís- lenska táknmálið yrði viður- kennt sem móðurmál heyrnarlausra á Íslandi. Árið 2011 var íslenskt táknmál svo viðurkennt í lögum, 20 árum eft- ir að Svavar tók fyrsta skrefið. Svavar sýndi táknmálssamfélag- inu virðingu og táknmálstalandi fólki jafnrétti í verki. Við þökk- um honum frá dýpstu hjartarót- um. Elsku Guðrún, Svandís, Bene- dikt, Gestur og fjölskyldur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur við fráfall Svav- ars. Berglind Stefánsdóttir, Hafdís Gísladóttir, Júlía G. Hreinsdóttir, Valgerður Stefánsdóttir. Ég kynntist Svavari fyrir aldarfjórðungi er hann tók mig tali og bauð mér að ræða stjórn- mál við sig því að hann vildi vita hvað unga fólkið væri að hugsa. Þannig að ég kom til hans í Von- arstræti 12 og sagði honum frá minni sýn á þjóðlífið og Svavar hlustaði. Hann kunni að hlusta og tel ég að sá hæfileiki hafi átt ríkan þátt í hversu vel honum gekk í stjórnmálum. Átta árum fyrr heyrði ég Svavar ávarpa menntaskóla- nema á kosningafundi. Alþýðu- bandalagið var í lægð og sal- urinn ekki hliðhollur honum en hann þótti þó hafa staðið sig best og verið fyndnastur. Í nokkur ár tók ég þátt í starfi Alþýðubandalagsins dreg- inn til þess af Svavari. Þetta var síðasta kjörtímabil Svavars á þingi og hann í því vanþakkláta hlutverki að bera klæði á vopnin. Að baki var glæsilegur ferill sem alþingismaður, flokksleiðtogi og ráðherra í tæp 20 ár en oflæti var ekki að finna í hans fari. Eitt sinn gekk hann fram hjá mér á götu að ræða við vinkonu sem var enginn aðdáandi hans. Heilsaði mér en gleymdi ekki henni og sagði djúpum rómi: Ég heiti Svavar. Það lá við að ég sæi hana bráðna í götuna. Svavar hvarf til sendiherra- starfa í útlöndum og ég sá hann í því hlutverki í Svíþjóð árið 2003. Við báðum hann að ávarpa mál- þing um fornaldarsögur. Sumir sendiherrar senda varaskeifur á slíka viðburði en Svavar kom sjálfur. Hann var glæsilegur fulltrúi Íslands. Síðar lærði ég að fornsagnaveiran bjó í honum og miðaldaarfinn taldi hann mik- ilvægan þátt í nútímamenningu. Við fyrstu kynni hugsaði maður ekki um hann sem sveitadreng en það var hann og trúr þeim uppruna. Síðar flutti Svavar í Barða- strandarsýslu og varð leiðandi í menningarlífi í Dölunum. Þá kom fyrir að við bræður köll- uðum hann „Dala-Frey“ og var Svavari skemmt yfir þessu glensi og skildi vel að í því fólst einnig lof enda líkingin við glæsimennið Sturlu Sighvatsson ekki úr lausu lofti gripin því að Svavar var enginn eftirbátur þess glæsilega og metnaðar- gjarna höfðingja, ekki síst þegar hann fór um sveitir á hestbaki. Af því marga sem við Svavar brölluðum saman finnst mér ekki minnst til um sjálfsævisögu hans Hreint út sagt sem ég las handrit að og veitti smávægilega aðstoð. Hún var mun betur skrifuð en ég átti von á enda ekki sjálfsagt að framámenn í þjóðlífinu kunni að skrifa bækur þannig að ég las hana fyrst mér til skemmtunar í einni beit. Per- sóna Svavars geislar þar af hverri síðu. Eini galli verksins var að hann var orðvar og var- kár og mig grunaði að hann vissi mun meira en hann lét uppi um menn og málefni. Þannig að ég fór eitt sinn heim til hans og kreisti upp úr honum dásamleg- ar sögur sem hefðu auðgað bók- ina en tregða Svavars til að særa fólk kom í veg fyrir að þær end- uðu á prenti. Svavar mun engum gleymast sem hann þekktu. Hann og Guð- rún voru glæsilegt par sem sóp- aði að. Ég hitti hann síðast á námskeiði um Heimskringlu í haust. Þegar ég sá hann gladd- ist ég og hlakkaði til næstu funda en örlögin tóku í taum- ana. Mikill harmur er kveðinn að fjölmörgum ástvinum og vild- arvinum sem munu sakna hans sárt. Ármann Jakobsson. Árið 1951 tók Íslenskudeild Manitóbaháskóla til starfa á sléttunni miklu. Tæplega fimm- tíu árum síðar birtist á sjón- arsviðinu einn af helstu velunn- urum deildarinnar í sögu og samtíð. Í félagi við þáverandi yfirvöld Manitóbaháskóla og Háskóla Íslands, lykilfræði- menn beggja háskóla á sviði bókmennta og sögu íslenskra innflytjenda í Vesturheimi og meðlimi íslenska samfélagsins vestan hafs, treysti velunnarinn stoðir deildarinnar og lagði jafn- framt grunn að formlegu sam- starfi háskólanna tveggja. Vel- unnarinn þjónaði einnig sem lykilmaður í nýjasta kaflanum í sögu Íslenskudeildar Manitó- baháskóla og samstarfi hennar við Háskóla Íslands, með stuðn- ingi stjórnvalda á Íslandi. Sumir gætu sagt að velunnari Íslenskudeildar Manitóbahá- skóla hafi verið að sinna skyldu sinni og að það sé ekkert til- tökumál að fulltrúi utanríkis- þjónustu Íslands láti til sín taka í störfum sínum. Það breytir því ekki að umræddur velunnari virðist hafa verið tvítyngdur – talaði jafn vel tungumál stjórn- mála og menningar. Víst er að hann skynjaði ekki aðeins ómælisdjúpin í menningu og sögu íslenskra innflytjenda í Vesturheimi heldur einnig þátt hinna fögru hugvísinda í skrá- setningu þeirra. Votta Guðrúnu og fjölskyldu þeirra Svavars mína innilegustu samúð. Birna Bjarnadóttir. S. Þannig skrifaði hann undir öll tölvubréfin til mín. Og þau voru mýmörg. Hann hafði skoð- anir á öllu, sendi mér hugleið- ingar og hugmyndir, hvatningu og ábendingar. Hann vildi fyrst og fremst hreyfa góð mál áfram, hann sá alltaf lausnir, hann lagði gott til. Svavar Gestsson var að mörgu leyti pólitískur faðir minn. Mentor. Hann fékk mig til að verða formann Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík þegar ég var 26-7 ára og ég átti ófáa fundina með honum í Vonar- stræti 12. Aldrei hef ég kynnst slíkri starfsgleði, á klukkutíma fundi okkar nýtti hann tímann í tvö þrjú símtöl til að hreyfa við málum. Og ég dáðist að. Geri enn. Hef í raun dáð Svavar frá því ég man eftir mér, rökfest- una og mælskuna, hugmynda- auðgina. Ólst upp við það að Svavar væri okkar maður, hann og pabbi æskuvinir. Hann fylgdist alltaf vel með mér, ég fann að honum fannst hann eiga eitthvað í mér. Og það var rétt. Hann mun alltaf eiga töluvert í mér og ég mun alltaf líta til hans sem fyrirmyndar í mínum störfum. Hvernig hann brann fyrir réttlæti og betri heimi og hve hann var tilbúinn til að leggja sitt af mörkum í baráttunni. Skörpum greining- um hans – ég sé hann fyrir mér hvessa augun á mig og fara yfir hlutina, hlæja svo sínum sér- kennandi hlátri sem kom neðan úr þind – samtölunum. Með Svavari er genginn einn af stóru leikendunum í íslensk- um stjórnmálum. Eftir hann liggja ótalmörg og góð verk sem hafa gert samfélagið betra. Fyr- ir mér er fallin frá fyrirmynd og vinur. Mikið sem ég á eftir að sakna hans. Ég votta öllum aðstandend- um hans innilega samúð. Kolbeinn Óttarsson Proppé.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.