Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 1
Ég hlakka til að vera frjáls
Átakið hefst heima
Málfrelsið áfélagsmiðlum
Eilífur
kúreki
Fyrir sex árum byrjaði Böðvar
Sturluson að veikjast oghrakaði ár frá ári. Eftir heiltár bundinn við vél hálfansólarhringinn kom loks kallið.
Böðvar fékk nýtt nýra og líður
nú eins og þungu fargi sé afhonum létt. Hann segist ætlaað fara vel með þessa stórugjöf og hlakkar til að fá að lifa
lífinu heilbrigður á ný. 14
7. FEBRÚAR 2021SUNNUDAGUR
Foreldrar bera ríka ábyrgð á menntun barna sinna og brýnt
að samtal þeirra og skólakerfisins sé mikið og gott. 12
Eru hinir nýju umræðustjórar
tæknirisanna lýðræðinu hollir? 22
Goðsögnin JamesDean skýtur uppkollinum í vin-sælu popplagiBríetar, 65 árumeftir andlát sitt. 28
L A U G A R D A G U R 6. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 31. tölublað 109. árgangur
SKOÐAR
SÖGU BISKUPS-
MATRÓNA
LEITA TUNGU-
MÁLA Í SKÓL-
UM LANDSINS
KORTLAGNING 12HILDUR HÁKONARDÓTTIR 42
Rafmögnuð tilvera
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · www.hekla.is/audisalur
Nýr Audi Q7 TFSI e.
Framsækin tækni, hönnun & þróun.
Börnum sem búa við slæmar að-
stæður hérlendis hefur fjölgað, að
sögn Heiðu Bjargar Pálmadóttur,
forstjóra Barnaverndarstofu.
Tilkynningar vegna ofbeldis gegn
börnum voru 25,3% fleiri í fyrra en
árið 2019. Heiða Björg segir að um
sé að ræða „rosalega fjölgun“.
Í nóvember einum voru tilkynn-
ingar um ofbeldi gegn börnum 138
talsins. Þær hafa aldrei verið fleiri í
einum mánuði. Þá hefur öðrum til-
kynningum til barnaverndarnefnda
einnig fjölgað gríðarlega að sögn
Heiðu Bjargar.
Í nóvembermánuði bárust Barna-
verndarstofu alls 1.144 tilkynningar
vegna 922 barna en í desember voru
tilkynningarnar 1.077 og vegna 889
barna. „Þetta staðfestir þann grun
okkar að Covid-ástandið hefur haft
töluverð áhrif á aðstæður barna. Það
verða alltaf sveiflur á milli mánaða
en í fyrra vorum við alltaf með tölur
um ofbeldi og vanrækslu yfir meðal-
tali,“ segir Heiða Björg. »2
Morgunblaðið/Eggert
Börn Tölur um ofbeldi og van-
rækslu voru yfir meðaltali í fyrra.
Fleiri börn
í slæmum
aðstæðum
Tilkynningum
fjölgaði verulega
Lenging fæðingarorlofs í átján
mánuði gæti minnkað þörf fyrir
starfsfólk á leikskólum, starfsfólk
sem þegar er ekki til samkvæmt
biðlistum, um alla vega 25%. Þetta
segir Ólafur Grétar Gunnarsson,
fjölskyldu- og hjónaráðgjafi, í sam-
tali við Sunnudagsblaðið um vanda
drengja í skólakerfinu. „Foreldrar
sem eru öruggari í hlutverki sínu
verja meiri tíma með börnum sínum
og sinna þörfum þeirra betur. Vel
nærð börn ganga minna á orku-
forða starfsmanna leikskólanna,
sem er takmörkuð auðlind,“ segir
Ólafur Grétar.
Fækka mætti leik-
skólakennurum
Frá og með mánudegi verður slakað á sóttvarna-
reglum í samfélaginu og munu nýjar reglur
gilda í þrjár vikur. Guðlaugur Þór Þórðarson ut-
anríkisráðherra og Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra virtust í skýjunum með boðaðar
tilslakanir þegar þau komu af ríkisstjórnarfundi
í gær. Nýjar reglur heimila að krár og skemmti-
staðir verði opnaðir að nýju og eru fjöldatak-
mörk rýmkuð í vissum aðstæðum. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kát í kjölfar tilkynningar um tilslakanir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
segir uppbyggingu samgöngumann-
virkja á höfuðborgarsvæðinu munu
taka lengri tíma en ráðgert var.
Skýringin sé meðal annars lengri
undirbúningur og umhverfismat á
verkum sem þurftu þess ekki áður.
Fyrir vikið verði meðal annars
ekki lokið við mislæg gatnamót á
mótum Reykjanesbrautar og Bú-
staðavegar fyrr en árið 2025.
Það er fjórum árum síðar en ráð-
gert var þegar samgöngusáttmálinn
var undirritaður haustið 2019. Með
honum átti að rjúfa framkvæmda-
stopp í samgöngum á höfuðborgar-
svæðinu og undirbúa uppbyggingu
innviða fyrir borgarlínu.
Tvívegis endurskoðuð
Að sögn Sigurðar Inga munu taf-
ir á verkþáttum sáttmálans einnig
ná til borgarlínunnar og uppbygg-
ingin almennt verða síðar á ferðinni
en upphaflega var áætlað. Verk-
áætlunin hafi tvisvar verið endur-
skoðuð.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir ekki óviðbúið að tíma-
áætlunin hafi tekið breytingum.
„Það leið hálft ár frá því sam-
göngusáttmálinn var undirritaður
þar til samgönguáætlun var sam-
þykkt á Alþingi,“ segir Dagur.
Kynning á fyrsta áfanga borgar-
línu marki tímamót í samgöngum á
höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er
mjög mikilvægur áfangi vegna þess
að þarna er búið að hugsa sig í
gegnum þessa lykilleið sem er fyrsti
áfanginn frá Hamraborg og upp í
Ártúnshöfða,“ segir Dagur.
Umhverfismatið til tafar
Samgönguráðherra segir vegaframkvæmdir á Íslandi taka sífellt lengri tíma
14 km í fyrsta áfanga
» Fyrsti áfangi fyrirhugaðrar
borgarlínu hefur verið kynntur.
» Þetta er 14 km leið frá Ár-
túnshöfða niður í miðbæ og
yfir Fossvog í Hamraborg.
» Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri segir stokkagerð fyrir
borgarlínu á Sæbraut fyrsta
áfangann í Sundabraut.
MSamgöngusáttmáli... »6