Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 2

Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverðkr. 8.373.000,- Klettar 80 –Grunnverðkr. 10.807.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. „Hér á Seyðisfirði skynjar maður ógnarkraft skriðanna og þá mildi að enginn fórst þegar fjallið fór af stað,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Guðni og Eliza Reid kona hans voru á Austurlandi í gær og kynntu sér aðstæður. Þau áttu samtöl við þá sem stóðu vakt í fjöldahjálparstöð á Egilsstöðum, þangað sem Seyðfirðingar komu þegar þeim var gert að yfirgefa heimabæ sinn, rétt fyrir jól. Í fram- haldinu fóru Guðni og Elisa á Seyð- isfjörð. Ræddu þar við heimafólk og höfðu meðal annars tal af björg- unarsveitarfólki. „Seyðfirðingar sýndu æðruleysi í þeim hörmungum sem skriðuföllin rétt fyrir jól voru. Þeir kunna líka vel að meta stuðning sem lands- menn sýndu. Seyðisfjörður var fal- legur bær með hlýlegum brag og verður áfram,“ segir forseti Ís- lands. sbs@mbl.is Forsetahjónin kynntu sér aðstæður á vettvangi skriðufalla á Seyðisfirði Mildi og samtaka- máttur Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson Heimsókn Á Seyðisfirði nutu Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid leiðsagnar Ólafs Sigurðssonar, fyrrverandi bæjarstjóra, sem er kunnugur staðháttum. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessar tölur sýna afleiðingar kór- ónuveirunnar á íslenskt samfélag,“ segir Heiða Björg Pálmadóttir, for- stjóri Barnaverndarstofu. Barnaverndar- stofa hefur tekið saman og greint tölur frá barna- verndarnefndum vegna tilkynn- inga í nóvember og desember á síðasta ári. Barnaverndar- stofa hefur tekið slíkar upplýsing- ar saman í hverj- um mánuði frá upphafi kórónu- veirufaraldursins. Í nóvember bárust 1.144 tilkynn- ingar vegna 922 barna og er sá fjöldi yfir hæsta gildi samanburðartíma- bilsins. Í desember var fjöldi til- kynninga hins vegar innan sveiflu sem vænta má á milli mánaða, eða 1.077 vegna 889 barna. Heiða Björg segir í samtali við Morgunblaðið að tölurnar fyrir allt árið 2020 sýni gríðarlega fjölgun til- kynninga til barnaverndarnefnda á milli ára. „Þetta staðfestir þann grun okkar að Covid-ástandið hefur haft töluverð áhrif á aðstæður barna. Það verða alltaf sveiflur á milli mánaða en í fyrra vorum við alltaf með tölur um ofbeldi og van- rækslu yfir meðaltali. Það þýðir að börnum sem búa við slæmar aðstæð- ur á Íslandi hefur fjölgað. Við erum ekki að fara í neitt skammtímaátaks- verkefni til að bæta úr því. Það verð- ur langtímaverkefni fyrir barna- verndarkerfið að vinda ofan af því ofbeldi og vanrækslu sem börn hafa orðið fyrir.“ Heiða segir að tryggja þurfi greið- an aðgang að stuðningsþjónustu fyr- ir börn og fjölskyldur þeirra. „Það ætlar sér enginn að vanrækja barnið sitt, það gerist eitthvað hjá fólki og það missir tökin. Hlutverk barna- verndarkerfisins er að geta brugðist við, stutt við fjölskyldur og hjálpað þeim á réttu brautina. Sama er með ofbeldismálin; foreldrar missa tökin og beita röngum uppeldisaðferðum. Þar þurfum við bæði að styðja við fólk og kenna því og eins að hjálpa barninu að vinna úr áfallinu sem of- beldið hefur valdið.“ Heiða segir það einmitt sérstakt áhyggjuefni hversu tilkynningum vegna ofbeldis hefur fjölgað. Í fyrra bárust 25,3% fleiri slíkar tilkynning- ar en árið 2019. Í nóvember einum voru tilkynningar um ofbeldi gegn börnum 138 talsins og hafa aldrei verið fleiri í einum mánuði. „Þetta er rosaleg fjölgun, alger sprenging,“ segir Heiða og getur þess í fram- haldi að jákvætt sé að augljóst sé að passað sé vel upp á börn í íslensku samfélagi. „Það er verið að fylgjast vel með aðstæðum barna og fólk er duglegt að tilkynna þegar eitthvað kemur upp á. Víða erlendis fækkaði tilkynningum mikið í kórónuveiru- faraldrinum en þetta norræna módel sem við notum greip börnin vel í vor þegar skólum var lokað. Fólk er meðvitað um að það hafa allir hlut- verki að gegna og tekur það alvar- lega.“ Tilkynningum um vanrækslu fjölgaði um tæp 19% á milli ára. Sér- staka athygli vekur að 27,5% fleiri tilkynningar vegna foreldra í áfeng- is- og/eða fíkniefnaneyslu bárust í fyrra en árið 2019. „Líf margra hef- ur farið úr skorðum og við það breytist neyslumynstur. Vandinn hefur aukist hjá fjölskyldum sem voru í einhverjum vanda fyrir Covid. Fólk setti börn í pössun og fór út að djamma áður, en svo færðust partíin í heimahús og þá eru kannski börnin sofandi í næsta herbergi. Neyslan breytist og hefur meiri áhrif á börn.“ Aukið ofbeldi og vanræksla  Mikil fjölgun tilkynninga til barnaverndarnefnda í fyrra  Neysla foreldra eykst  Þurfa stuðning Heiða Björg Pálmadóttir 1.500 1.200 900 600 mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Fjöldi tilkynninga til barnaverndarnefnda Heildarfjöldi tilkynninga í mars-desember 2020 1.011 1.245 898 1.077 1.459 M yn d: F re ep ik H ei m ild : B ar na ve rn da rs to fa Þó nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna morðsins á Freyju Egilsdótt- ur Mogensen sem myrt var á heim- ili sínu í Malling í Danmörku, að sögn Michaels Kjeldgaards, yfirlög- regluþjóns á Austur-Jótlandi. Hann segir að nú séu allir mögu- leikar skoðaðir og reynir lögreglan hvað hún getur til að afla frekari sönnunargagna. Fyrrverandi eiginmaður Freyju hefur játað að hafa myrt hana og er hann nú í gæsluvarðhaldi. Kjeldgaard kveðst ekki geta sagt hvar börn Freyju og mannsins voru stödd þegar hún var myrt. Núna eru þau hjá nánum ættingjum og hafa þau fengið aðstoð frá sérfræð- ingum. „Rannsóknin gengur vel en vegna rannsóknarhagsmuna get ég ekki farið nákvæmlega út í hvað hún hefur leitt í ljós,“ segir Kjeldgaard. Krufningu á líki Freyju er lokið en Kjeldgaard gat ekki gefið frekari upplýsingar um krufninguna þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann í gærkvöldi. Miðlæg rannsóknardeild íslensku lögreglunnar hefur boðist til að hjálpa lögreglunni á Austur-Jót- landi við rannsóknina en ekki hefur enn komið til þess. Kjeldgaard kveðst þó ekki útiloka að samband verði haft við íslensku lögregluna ef bakgrunnsupplýsingar vantar. Minningarathöfn um Freyju fór fram í Malling í gær. freyr@mbl.is Þó nokkrir hafa verið yfir- heyrðir vegna morðsins  Rannsókn gengur vel  Reyna að afla frekari gagna Ljósmynd/Øxenholtfoto/Ritzau Hús Lögreglubílar við húsið í Mal- ling í Danmörku þar sem Freyja bjó.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.