Morgunblaðið - 06.02.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
ÞARFT ÞÚ
AÐ SELJA?
Hvort sem þú þarft að kaupa, selja,
leigja eða fá verðmat þá er ég
reiðubúin að liðsinna þér.
Hafðu samband í síma 821 4400
eða á hrafnhildur@hbfasteignir.is
HB FASTEIGNIR
Hrafnhildur Bridde
Löggiltur fasteignasali
Kringlan 7, 103 Reykjavík – Sími 821 4400 – hbfasteignir.is
YFIR 25 ÁRA REYNSLA
VIÐ SÖLU FASTEIGNA
ÞEKKING - ÞJÓNUSTA - ÞINN HAGUR
aukinnar umferðar sem núverandi
Sæbraut þolir ekki og það ásamt
borgarlínu kallar á stokkalausn,“
segir Dagur.
Fleiri verkefni séu í farvatninu.
Fram undan sé frekari uppbygging á
stofnstíganeti fyrir hjólandi og gang-
andi og endurbætur á stýringu um-
ferðarljósa í samvinnu við alþjóðlegt
greiningarfyrirtæki.
Uppbygging á Ártúnshöfða
Þá muni framkvæmdir á Ártúns-
höfða geta hafist á næsta ári. Síðar í
þessum mánuði verði haldinn
streymisfundur um fyrirhugað deili-
skipulag þar. Það er bæði skipulag
fyrir Ártúnshöfðann og stækkun
Bryggjuhverfis en sú uppbygging er
þegar hafin. Stendur m.a. til að reisa
stóra biðstöð fyrir borgarlínu á Ár-
túnshöfða, á svonefndu Krossmýrar-
torgi, sem verður hverfiskjarni.
Gatnamótin í frumhönnun
Spurður um fyrirhuguð mislæg
gatnamót á mótum Reykjanesbraut-
ar og Bústaðavegar segir Dagur
verkefnið í frumhönnun. Verið sé að
greina valkosti. Hvort verkefnið geti
hafist í ár velti meðal annars á því
hvort breyta þurfi skipulaginu.
Hvað varðar Arnarnesveg segir
Dagur unnið að deiliskipulagi á því
verkefni. Útfærsla framkvæmdar-
innar hafi verið kynnt.
Árið 2019 undirrituðu ríkið og sex
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu –
Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavog-
ur, Mosfellsbær, Reykjavík og Sel-
tjarnarnes – svonefndan samgöngu-
sáttmála til fimmtán ára. Fól hann í
sér uppbyggingu á umferðarmann-
virkjum og innviðum borgarlínu.
Samkvæmt kynningu á sáttmálan-
um (sjá graf) átti að ljúka mislægum
gatnamótum við Bústaðaveg/
Reykjanesbraut og lagningu Arnar-
nesvegar – frá Rjúpnavegi til Breið-
holtsbrautar – á þessu ári.
Dagur segir ekki óviðbúið að tíma-
áætlunin hafi tekið breytingum.
„Það leið hálft ár frá því sam-
göngusáttmálinn var undirritaður
þar til samgönguáætlun var sam-
þykkt á Alþingi. Ég er ekki að segja
að munurinn liggi í því en ég veit
ekki betur en að það hafi verið unnið
ötullega að undirbúningi allra verk-
efna sem í sáttmálunum eru. Hann
er á mikilli siglingu í góðri sátt allra
sem að honum koma,“ segir Dagur.
Þrýstu á ákveðin verkefni
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
segir að framkvæmdaáætlun sam-
göngusáttmálans hafi verið yfirfarin
að minnsta kosti tvisvar. Við kynn-
inguna á sáttmálanum hafi komið
fram að tímalínur gætu breyst.
„Við þrýstum á að ákveðnum
verkefnum yrði flýtt, meðal annars
með hliðsjón af atvinnuástandi. Síð-
an taka verkin þann tíma sem þau
þurfa að taka. Ég tala nú ekki um
þegar jafnvel þarf að fara í umhverf-
ismat við lagfæringar á vegum eins
og nýleg túlkun og skilningur Skipu-
lagsstofnunar vitnar um,“ segir Sig-
urður Ingi um þessa þróun.
Dæmi séu tafir á vegafram-
kvæmdum á Kjalarnesi vegna um-
hverfismats. Var um að ræða við-
bætur við þjóðveginn á Kjalarnesi.
Að sögn Sigurðar Inga hefur
Vegagerðin breytt verklagi í kjölfar
málsins svo menn fái slíkar tafir ekki
í bakið, enda kosti þær tíma og fé.
Arnarnesvegur boðinn út í ár
„Svo eru dæmi um að verkefni hafi
verið í ágreiningi milli sveitarfélaga,
eins og til dæmis Arnarnesvegurinn,
en ég veit ekki betur en að þar sé
komin ástættanleg niðurstaða sem
er blanda af mislægum gatnamótum
og brú. Mér skilst að náðst hafi sam-
komulag milli tveggja sveitarfélaga
og ég er sáttur við þá niðurstöðu,“
segir Sigurður Ingi. Raunhæft sé að
bjóða verkið út í ár og hefja fram-
kvæmdir árið 2022.
Lengra sé í að framkvæmdir við
mislæg gatnamót við Bústaðaveg/
Reykjanesbraut geti hafist.
„Það er verið að vinna frumdrög
og er reiknað með að þurfa tvö ár í
for- og verkhönnun og allt sem því
tilheyrir en ég býst við að þar undir
sé meðal annars umhverfismat.
Það er hin þrönga túlkun Skipu-
lagsstofnunar að jafnvel á vegum
sem þarf að lagfæra, sem menn hafa
ekki litið svo á að þyrftu að fara í um-
hverfismat, þurfi að fara í slíkt mat.
Samkvæmt okkar nýjustu áætlunum
lýkur gerð þessara gatnamóta ekki
fyrr en árið 2025,“ segir Sigurður
Ingi um stöðu málsins.
Sömu áhrif á borgarlínuna
Það sama megi almennt segja um
uppbyggingu borgarlínu. Undirbún-
ingur sé tímafrekari en áætlað var
þegar sáttmálinn var undirritaður.
„Það er vaxandi vandamál sem
ráðherra framkvæmda er ekkert
endilega glaður með að það líður orð-
ið sífellt lengri tími frá því menn taka
ákvörðun um að fara í verkefni og
þar til hinar raunverulegu fram-
kvæmdir hefjast. Hin hliðin á þeim
peningi er sú að því betur sem menn
undirbúa verkin og gefa sér meiri
tíma í undirbúninginn því betur
gengur framkvæmdin og er þar af
leiðandi líka innan fjárheimilda,“
segir Sigurður Ingi.
Samgöngusáttmálinn átti að kosta
120 milljarða. Ríkið skyldi leggja
fram 45 milljarða og sveitarfélög 15
ma. Gert var ráð fyrir að sérstök
fjármögnun skilaði 60 milljörðum.
Samgöngusáttmáli á hreyfingu
Borgarstjóri segir fyrstu áfanga borgarlínu fara í útboð á næsta ári Nú sé verið að kynna drög
Ráðherra segir verk tímafrekari en vænst var Mislæg gatnamót á Bústaðavegi frestast til 2025
Upphafl eg tímáætlun
samgöngusátt málans
Upphaf framkvæmda og verklok
'19 '20 '21 '22 '23 '24 '25 '26 '27 '28 '29 '30 '31 '32 '33
Vesturlandsvegur: Skarhólabraut-Hafravatnsvegur
Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur-Krýsuvíkurvegur
Suðurlandsvegur: Bæjarháls-Vesturlandsvegur
Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg
Arnarnesvegur: Rjúpnavegur-Breiðholtsbraut
Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur-Holtavegur
Borgarlína: Ártún-Hlemmur
Borgarlína: Hamraborg-Hlemmur
Miklubrautarstokkur: Snorrabraut-Rauðarárstígur
Borgarlína: Hamraborg-Lindir
Borgarlína: Mjódd-BSÍ
Miklubrautarstokkur: Rauðarárstígur-Kringlumýrarbraut
Reykjanesbraut: Álftanesvegur-Lækjargata
Suðurlandsvegur: Norðlingavað-Bæjarháls
Borgarlína: Kringlan-Fjörður
Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ
Borgarlína: Ártún-Spöng
Borgarlína: Ártún-Mosfellsbær
Dagur B.
Eggertsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir kynninguna á fyrsta áfanga
borgarlínu marka tímamót í sam-
göngum á höfuðborgarsvæðinu.
En nánar er fjallað um kynn-
inguna í grein hér neðar á síðunni.
„Þetta er mjög mikilvægur áfangi
vegna þess að þarna er búið að hugsa
sig í gegnum þessa lykilleið sem er
fyrsti áfanginn frá Hamraborg og
upp í Ártúnshöfða. Það er auðvitað í
mörg horn að líta í svo stórri fram-
kvæmd en meginmálið er að þarna
tekst að búa til heildarhugsun fyrir
kerfið í heild sem tryggir þá að al-
menningssamgöngur verði frábær
valkostur á höfuðborgarsvæðinu til
langrar framtíðar. Borgarlína verð-
ur í sérrými 70% leiðarinnar. Það er
lykillinn að því að ná árangri í að
breyta ferðavenjum og létta á um-
ferðinni fyrir alla að hafa framúr-
skarandi almenningssamgöngur,“
segir Dagur. Um frumdrög sé að
ræða. Markmiðið sé meðal annars að
fá viðbrögð við tillögunum.
Væntanlega útboð á næsta ári
Spurður hvenær uppbygging
fyrsta áfanga gæti hafist segir Dag-
ur að verkefnið verði á hönnunar- og
undirbúningsstigi með breytingum á
skipulagi út allt þetta ár. „Fyrstu
framkvæmdir, ef frá eru taldir smá
stubbar sem þegar eru komnir af
stað að segja má, færu þá væntan-
lega til útboðs á næsta ári,“ segir
Dagur um framhaldið.
Því sé raunhæft að hefja umfangs-
meiri framkvæmdir á næsta ári.
Áformin fela meðal annars í sér
gerð brúar yfir Elliðavog og lagn-
ingu Sæbrautar í stokk á sömu leið.
Að sögn Dags er stokkahluti verk-
efnisins á frumstigi. Hann vonist til
að geta kynnt drög í vor.
„Framvæmdir við Sæbrautar-
stokkinn gætu mögulega hafist í ekki
svo fjarlægri framtíð. Við erum að
vinna að frumdrögum og meta val-
kostina en segja má að stokkurinn sé
fyrsti áfangi Sundabrautar. Báðar
útfærslur hennar myndu leiða til
Fyrsta framkvæmdalota borgarlínu
mun standa yfir frá 2021 til 2025 og
vera samtals 14 km löng frá Ártúns-
höfða í Reykjavík niður í miðbæ og
yfir Fossvog í Hamraborg í Kópa-
vogi. Áætlaður heildarkostnaður við
framkvæmdina er 24,9 milljarðar, en
samhliða uppbyggingu borgarlínu er
gert ráð fyrir 18 km af nýjum hjóla-
stígum og 9 km af göngustígum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
með frumdrögum um fyrstu fram-
kvæmdalotu borgarlínuverkefnisins,
sem kynnt var í gær. Er skýrslan að-
gengileg á vefslóðinni borgarlin-
an.is.
Árni M. Mathiesen, stjórnar-
formaður félagsins Betri samgangna
ohf., sagði við mbl.is að með skýrsl-
unni sé stiginn stór áfangi og að
loksins sé komið fram eitthvað sem
hönd á festi sem geti verið útgangs-
punktur í umræðum um hönnun og
framkvæmd verkefnisins.
Árni sagði að lengi hafi verið rætt
um borgarlínuverkefnið í opinberri
og almennri umræðu án þess að hafa
fulla vitneskju um viðfangsefnið.
„Núna geta menn gert það með hlið-
sjón af þessum gögnum.“
Árni segir að þrjár megináskor-
anir séu í tengslum við borgarlínu-
verkefnið. „Í fyrsta lagi að tímasetn-
ingar standist. Í öðru lagi að
kostnaðaráætlun standist og í þriðja
lagi að markmið um samgöngu-
hegðun náist. Og þetta síðasta er
lykilatriði í verkefninu í heild.“
Gert er ráð fyrir að frumhönn-
unarvinna í fyrstu lotunni verði
fyrstu tvö árin og framkvæmdir geti
hafist að einhverju leyti árið 2023 og
fari svo af stað af fullum krafti árið
2024. Tekið er fram í skýrslunni að
40% óvissa sé í kostnaðaráætluninni.
Árni segir að meðan aðeins sé um
frumdrög að ræða sé þetta hefð-
bundið óvissuhlutfall. Ekki sé hægt
að gera endanlegar kröfur um ná-
kvæmari áætlanir fyrr en hönnun er
lokið.
Ítarlegar fréttir og viðtöl um mál-
ið er að finna á mbl.is.
thorsteinn@mbl.is
Fyrsti áfangi borgarlínu
verður 14 km langur
Liggur frá Ártúnshöfða um miðborgina að Hamraborg
Hverfisgata Teikning af hugsanlegri útfærslu borgarlínunnar.