Morgunblaðið - 06.02.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.02.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 ÞARFT ÞÚ AÐ SELJA? Hvort sem þú þarft að kaupa, selja, leigja eða fá verðmat þá er ég reiðubúin að liðsinna þér. Hafðu samband í síma 821 4400 eða á hrafnhildur@hbfasteignir.is HB FASTEIGNIR Hrafnhildur Bridde Löggiltur fasteignasali Kringlan 7, 103 Reykjavík – Sími 821 4400 – hbfasteignir.is YFIR 25 ÁRA REYNSLA VIÐ SÖLU FASTEIGNA ÞEKKING - ÞJÓNUSTA - ÞINN HAGUR aukinnar umferðar sem núverandi Sæbraut þolir ekki og það ásamt borgarlínu kallar á stokkalausn,“ segir Dagur. Fleiri verkefni séu í farvatninu. Fram undan sé frekari uppbygging á stofnstíganeti fyrir hjólandi og gang- andi og endurbætur á stýringu um- ferðarljósa í samvinnu við alþjóðlegt greiningarfyrirtæki. Uppbygging á Ártúnshöfða Þá muni framkvæmdir á Ártúns- höfða geta hafist á næsta ári. Síðar í þessum mánuði verði haldinn streymisfundur um fyrirhugað deili- skipulag þar. Það er bæði skipulag fyrir Ártúnshöfðann og stækkun Bryggjuhverfis en sú uppbygging er þegar hafin. Stendur m.a. til að reisa stóra biðstöð fyrir borgarlínu á Ár- túnshöfða, á svonefndu Krossmýrar- torgi, sem verður hverfiskjarni. Gatnamótin í frumhönnun Spurður um fyrirhuguð mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbraut- ar og Bústaðavegar segir Dagur verkefnið í frumhönnun. Verið sé að greina valkosti. Hvort verkefnið geti hafist í ár velti meðal annars á því hvort breyta þurfi skipulaginu. Hvað varðar Arnarnesveg segir Dagur unnið að deiliskipulagi á því verkefni. Útfærsla framkvæmdar- innar hafi verið kynnt. Árið 2019 undirrituðu ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu – Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavog- ur, Mosfellsbær, Reykjavík og Sel- tjarnarnes – svonefndan samgöngu- sáttmála til fimmtán ára. Fól hann í sér uppbyggingu á umferðarmann- virkjum og innviðum borgarlínu. Samkvæmt kynningu á sáttmálan- um (sjá graf) átti að ljúka mislægum gatnamótum við Bústaðaveg/ Reykjanesbraut og lagningu Arnar- nesvegar – frá Rjúpnavegi til Breið- holtsbrautar – á þessu ári. Dagur segir ekki óviðbúið að tíma- áætlunin hafi tekið breytingum. „Það leið hálft ár frá því sam- göngusáttmálinn var undirritaður þar til samgönguáætlun var sam- þykkt á Alþingi. Ég er ekki að segja að munurinn liggi í því en ég veit ekki betur en að það hafi verið unnið ötullega að undirbúningi allra verk- efna sem í sáttmálunum eru. Hann er á mikilli siglingu í góðri sátt allra sem að honum koma,“ segir Dagur. Þrýstu á ákveðin verkefni Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, segir að framkvæmdaáætlun sam- göngusáttmálans hafi verið yfirfarin að minnsta kosti tvisvar. Við kynn- inguna á sáttmálanum hafi komið fram að tímalínur gætu breyst. „Við þrýstum á að ákveðnum verkefnum yrði flýtt, meðal annars með hliðsjón af atvinnuástandi. Síð- an taka verkin þann tíma sem þau þurfa að taka. Ég tala nú ekki um þegar jafnvel þarf að fara í umhverf- ismat við lagfæringar á vegum eins og nýleg túlkun og skilningur Skipu- lagsstofnunar vitnar um,“ segir Sig- urður Ingi um þessa þróun. Dæmi séu tafir á vegafram- kvæmdum á Kjalarnesi vegna um- hverfismats. Var um að ræða við- bætur við þjóðveginn á Kjalarnesi. Að sögn Sigurðar Inga hefur Vegagerðin breytt verklagi í kjölfar málsins svo menn fái slíkar tafir ekki í bakið, enda kosti þær tíma og fé. Arnarnesvegur boðinn út í ár „Svo eru dæmi um að verkefni hafi verið í ágreiningi milli sveitarfélaga, eins og til dæmis Arnarnesvegurinn, en ég veit ekki betur en að þar sé komin ástættanleg niðurstaða sem er blanda af mislægum gatnamótum og brú. Mér skilst að náðst hafi sam- komulag milli tveggja sveitarfélaga og ég er sáttur við þá niðurstöðu,“ segir Sigurður Ingi. Raunhæft sé að bjóða verkið út í ár og hefja fram- kvæmdir árið 2022. Lengra sé í að framkvæmdir við mislæg gatnamót við Bústaðaveg/ Reykjanesbraut geti hafist. „Það er verið að vinna frumdrög og er reiknað með að þurfa tvö ár í for- og verkhönnun og allt sem því tilheyrir en ég býst við að þar undir sé meðal annars umhverfismat. Það er hin þrönga túlkun Skipu- lagsstofnunar að jafnvel á vegum sem þarf að lagfæra, sem menn hafa ekki litið svo á að þyrftu að fara í um- hverfismat, þurfi að fara í slíkt mat. Samkvæmt okkar nýjustu áætlunum lýkur gerð þessara gatnamóta ekki fyrr en árið 2025,“ segir Sigurður Ingi um stöðu málsins. Sömu áhrif á borgarlínuna Það sama megi almennt segja um uppbyggingu borgarlínu. Undirbún- ingur sé tímafrekari en áætlað var þegar sáttmálinn var undirritaður. „Það er vaxandi vandamál sem ráðherra framkvæmda er ekkert endilega glaður með að það líður orð- ið sífellt lengri tími frá því menn taka ákvörðun um að fara í verkefni og þar til hinar raunverulegu fram- kvæmdir hefjast. Hin hliðin á þeim peningi er sú að því betur sem menn undirbúa verkin og gefa sér meiri tíma í undirbúninginn því betur gengur framkvæmdin og er þar af leiðandi líka innan fjárheimilda,“ segir Sigurður Ingi. Samgöngusáttmálinn átti að kosta 120 milljarða. Ríkið skyldi leggja fram 45 milljarða og sveitarfélög 15 ma. Gert var ráð fyrir að sérstök fjármögnun skilaði 60 milljörðum. Samgöngusáttmáli á hreyfingu  Borgarstjóri segir fyrstu áfanga borgarlínu fara í útboð á næsta ári  Nú sé verið að kynna drög  Ráðherra segir verk tímafrekari en vænst var  Mislæg gatnamót á Bústaðavegi frestast til 2025 Upphafl eg tímáætlun samgöngusátt málans Upphaf framkvæmda og verklok '19 '20 '21 '22 '23 '24 '25 '26 '27 '28 '29 '30 '31 '32 '33 Vesturlandsvegur: Skarhólabraut-Hafravatnsvegur Reykjanesbraut: Kaldárselsvegur-Krýsuvíkurvegur Suðurlandsvegur: Bæjarháls-Vesturlandsvegur Reykjanesbraut: Gatnamót við Bústaðaveg Arnarnesvegur: Rjúpnavegur-Breiðholtsbraut Sæbrautarstokkur: Vesturlandsvegur-Holtavegur Borgarlína: Ártún-Hlemmur Borgarlína: Hamraborg-Hlemmur Miklubrautarstokkur: Snorrabraut-Rauðarárstígur Borgarlína: Hamraborg-Lindir Borgarlína: Mjódd-BSÍ Miklubrautarstokkur: Rauðarárstígur-Kringlumýrarbraut Reykjanesbraut: Álftanesvegur-Lækjargata Suðurlandsvegur: Norðlingavað-Bæjarháls Borgarlína: Kringlan-Fjörður Hafnarfjarðarvegur: Stokkur í Garðabæ Borgarlína: Ártún-Spöng Borgarlína: Ártún-Mosfellsbær Dagur B. Eggertsson Sigurður Ingi Jóhannsson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir kynninguna á fyrsta áfanga borgarlínu marka tímamót í sam- göngum á höfuðborgarsvæðinu. En nánar er fjallað um kynn- inguna í grein hér neðar á síðunni. „Þetta er mjög mikilvægur áfangi vegna þess að þarna er búið að hugsa sig í gegnum þessa lykilleið sem er fyrsti áfanginn frá Hamraborg og upp í Ártúnshöfða. Það er auðvitað í mörg horn að líta í svo stórri fram- kvæmd en meginmálið er að þarna tekst að búa til heildarhugsun fyrir kerfið í heild sem tryggir þá að al- menningssamgöngur verði frábær valkostur á höfuðborgarsvæðinu til langrar framtíðar. Borgarlína verð- ur í sérrými 70% leiðarinnar. Það er lykillinn að því að ná árangri í að breyta ferðavenjum og létta á um- ferðinni fyrir alla að hafa framúr- skarandi almenningssamgöngur,“ segir Dagur. Um frumdrög sé að ræða. Markmiðið sé meðal annars að fá viðbrögð við tillögunum. Væntanlega útboð á næsta ári Spurður hvenær uppbygging fyrsta áfanga gæti hafist segir Dag- ur að verkefnið verði á hönnunar- og undirbúningsstigi með breytingum á skipulagi út allt þetta ár. „Fyrstu framkvæmdir, ef frá eru taldir smá stubbar sem þegar eru komnir af stað að segja má, færu þá væntan- lega til útboðs á næsta ári,“ segir Dagur um framhaldið. Því sé raunhæft að hefja umfangs- meiri framkvæmdir á næsta ári. Áformin fela meðal annars í sér gerð brúar yfir Elliðavog og lagn- ingu Sæbrautar í stokk á sömu leið. Að sögn Dags er stokkahluti verk- efnisins á frumstigi. Hann vonist til að geta kynnt drög í vor. „Framvæmdir við Sæbrautar- stokkinn gætu mögulega hafist í ekki svo fjarlægri framtíð. Við erum að vinna að frumdrögum og meta val- kostina en segja má að stokkurinn sé fyrsti áfangi Sundabrautar. Báðar útfærslur hennar myndu leiða til Fyrsta framkvæmdalota borgarlínu mun standa yfir frá 2021 til 2025 og vera samtals 14 km löng frá Ártúns- höfða í Reykjavík niður í miðbæ og yfir Fossvog í Hamraborg í Kópa- vogi. Áætlaður heildarkostnaður við framkvæmdina er 24,9 milljarðar, en samhliða uppbyggingu borgarlínu er gert ráð fyrir 18 km af nýjum hjóla- stígum og 9 km af göngustígum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu með frumdrögum um fyrstu fram- kvæmdalotu borgarlínuverkefnisins, sem kynnt var í gær. Er skýrslan að- gengileg á vefslóðinni borgarlin- an.is. Árni M. Mathiesen, stjórnar- formaður félagsins Betri samgangna ohf., sagði við mbl.is að með skýrsl- unni sé stiginn stór áfangi og að loksins sé komið fram eitthvað sem hönd á festi sem geti verið útgangs- punktur í umræðum um hönnun og framkvæmd verkefnisins. Árni sagði að lengi hafi verið rætt um borgarlínuverkefnið í opinberri og almennri umræðu án þess að hafa fulla vitneskju um viðfangsefnið. „Núna geta menn gert það með hlið- sjón af þessum gögnum.“ Árni segir að þrjár megináskor- anir séu í tengslum við borgarlínu- verkefnið. „Í fyrsta lagi að tímasetn- ingar standist. Í öðru lagi að kostnaðaráætlun standist og í þriðja lagi að markmið um samgöngu- hegðun náist. Og þetta síðasta er lykilatriði í verkefninu í heild.“ Gert er ráð fyrir að frumhönn- unarvinna í fyrstu lotunni verði fyrstu tvö árin og framkvæmdir geti hafist að einhverju leyti árið 2023 og fari svo af stað af fullum krafti árið 2024. Tekið er fram í skýrslunni að 40% óvissa sé í kostnaðaráætluninni. Árni segir að meðan aðeins sé um frumdrög að ræða sé þetta hefð- bundið óvissuhlutfall. Ekki sé hægt að gera endanlegar kröfur um ná- kvæmari áætlanir fyrr en hönnun er lokið. Ítarlegar fréttir og viðtöl um mál- ið er að finna á mbl.is. thorsteinn@mbl.is Fyrsti áfangi borgarlínu verður 14 km langur  Liggur frá Ártúnshöfða um miðborgina að Hamraborg Hverfisgata Teikning af hugsanlegri útfærslu borgarlínunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.