Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Teikningarnar sem skreyta skýrsluum 1. áfanga borgarlínunnar
segja sitt um það raunsæi – eða skort
á raunsæi – sem háð hefur þessu verk-
efni allt frá fyrstu stigum þess. Teikn-
ingarnar bera það með sér að verið er
að hanna samgöngukerfi fyrir borg
sem er á allt annarri breiddargráðu
en höfuðborg Íslands. Á myndunum
eru flestir mjög léttklæddir, á stutt-
ermabolum, stuttbuxum eða í mesta
lagi léttum jökkum. Enginn er dúð-
aður í þykka úlpu, húfu og vettlinga
og veðrið er alltaf óaðfinnanlegt.
Þá vekur athygli að enginn þeirrasem í draumsýn skýrsluhöfunda
ætlar að ferðast með borgarlínunni
þarf að hafa meðferðis annað en í
mesta lagi handtösku. Það er enginn
klyfjaður innkaupapokum í slagviðri
eða snjókomu, líkt og þeir sem búa ut-
an þessarar hliðarveraldar þekkja allt
of vel.
Myndir af þversniðum gatnannasegja líka mikla sögu um
raunsæi hugmyndarinnar. Nú ferðast
4% með strætó og hefur sú tala ekki
hækkað þrátt fyrir milljarðaaustur
síðastliðinn áratug eða svo. Borgar-
línuverkefnið gerir ráð fyrir að þessi
hópur þrefaldist vegna nýju vagn-
anna og verði 12% af heildinni.
Af breidd götunnar á borgarlínanhins vegar að fá nær þrefalt
meira vægi, eða um 35%. Fjölskyldu-
bílar, sem standa undir um 3⁄4 ferð-
anna, fá hins vegar innan við fjórðung
götubreiddarinnar.
Og einungis í fyrsta áfangann afþessum ósköpum á að eyða tug-
um milljarða króna.
35,3 m
Reykjavík í
suðurhöfum
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
BREYTT OPNUN: Virka daga 12-18, laugardaga kl.11-15
ÚTSÖLULOK
30-70%
AFSLÁTTUR
AF BRJÓSTAHÖLDURUM
Ingimar Erlendur Sig-
urðsson rithöfundur er
látinn, 87 ára að aldri.
Ingimar Erlendur
fæddist á Akureyri 11.
desember 1933, sonur
hjónanna Sigurðar
Ingimars Helgasonar
myndlistarmanns og
Friðbjargar Jóns-
dóttur húsmóður.
Hann flutti með fjöl-
skyldunni til Reykja-
víkur er hann var
fimm ára. Hann var í
Miðbæjarskólanum,
Austurbæjarskólanum,
lauk landsprófi frá Ingimarsskóla
og prófum frá Kennaraskóla Ís-
lands 1957.
Ingimar Erlendur var blaðamað-
ur við Morgunblaðið 1959-62, var
ritstjóri og ábyrgðarmaður Frjálsr-
ar þjóðar 1962-63 en helgaði sig
síðan ritstörfum.
Fyrsta bók Ingimars Erlendar
var ljóðabókin Sunnanhólmar, sem
kom út 1959. Tveimur árum síðar
kom út smásagnasafnið Hveiti-
brauðsdagar og árið 1965 kom út
skáldsaga hans Borgarlíf sem vakti
talsverða athygli. Á næstu áratug-
um sendi Ingimar Erlendur frá sér
fjölda bóka, einkum ljóðabækur, sú
síðasta var Ljóðdómur
– einskonar ævisaga,
sem kom út 2013, 900
blaðsíðna bók í tveim-
ur bindum, mynd-
skreytt með 84 ljóð-
myndum eftir
höfundinn. Ingimar
Erlendur fékk við-
urkenningu úr Rithöf-
undasjóði Ríkis-
útvarpsins 1973.
Ingimar Erlendur
sagði í viðtali við
Morgunblaðið árið
2008, að hann hefði
byrjað að yrkja sex
ára gamall.
„Ég er ekki í landsliði ljóðsins.
Ég er einliði ljóðsins. Ég yrki ekki
ljóðin, þau yrkja mig. Gallinn við
nútímaljóð finnst mér oft vera sá
að skáldin yrkja ljóð í staðinn fyrir
að láta ljóðin yrkja sig,“ sagði
hann.
Fyrri kona Ingimars var Ragn-
heiður Jónsdóttir, fyrrv. kennari í
Reykjavík. Þau skildu. Börn þeirra
eru Huld, Friðbjörg Helga og Þóra.
Seinni kona Ingimars var Mar-
grét S. Blöndal geðhjúkrunarfræð-
ingur. Hún lést 2006. Börn þeirra
eru Sigríður Freyja og Sigurður
Vífill.
Andlát
Ingimar Erlendur
Sigurðsson
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að skipa
nefnd um undirbúning að stofnun
og byggingu Norðurslóðaseturs í
Reykjavík sem yrði kennt við Ólaf
Ragnar Grímsson, fyrrverandi for-
seta Íslands.
Fram kemur í frétt á vef Stjórn-
arráðsins að áformin séu í samræmi
við tillögur Grænlandsnefndar utan-
ríkisráðherra en þar er lagt til að
Norðurslóðasetur verði framtíðar-
heimili Hringborðs norðurslóða –
Arctic Circle. En þær gera jafn-
framt ráð fyrir að náið samstarf
verði á milli
Norðurslóðaset-
ursins, stjórn-
valda, Háskóla
Íslands, Háskól-
ans á Akureyri
og Háskólans í
Reykjavík og
Stofnunar Vil-
hjálms Stefáns-
sonar á Akureyri.
Ólafur Ragnar Grímsson var
hvatamaður að stofnun Hringborðs
norðurslóða og hefur verið forystu-
maður þess frá stofnun árið 2013.
„Hringborð norðurslóða hefur
þróast í að verða helsta aflstöð hug-
mynda um málefni norðurslóða en
árleg þing þess eru orðin stærsta
stefnumót heimsins um málefni
svæðisins,“ segir í fréttinni á vef
Stjórnarráðsins.
Safn um norðurslóðir
Í Norðurslóðasetri yrði aðstaða
fyrir erlenda vísindamenn en jafn-
framt er gert ráð fyrir að setrið
hýsi safn um norðurslóðir. Gert er
ráð fyrir að setrið nýti sér liðsinni
erlendra stofnana, sjóða og sam-
taka sem tengjast Hringborði norð-
urslóða til að styrkja fjárhagslegan
grundvöll framkvæmda og rekst-
urs.
Í nefndinni munu eiga sæti
fulltrúar frá fimm ráðuneytum,
Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands,
Háskólanum á Akureyri, Háskólan-
um í Reykjavík og Hringborði norð-
urslóða. Nefndin á að skila ríkis-
stjórninni tillögum fyrir 1. apríl nk.
sisi@mbl.is
Norðurslóðasetur í nafni Ólafs
Ólafur Ragnar
Grímsson