Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi,
rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það
ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
HÁTT
HITAÞOL
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Lokið er niðurrifi húsanna á Steindórsreit,
Sólvallagötu 79, og eru þau nú rústir einar.
Innan skamms hefjast framkvæmdir við ný-
byggingu á reitnum.
Lóðarhafi á Steindórsreit er U22 ehf., dótt-
urfélag Kaldalóns hf. Félagið hyggst byggja
fjögur tveggja til fimm hæða fjölbýlishús á
reitnum. +ARKITEKTAR eru hönnuðir
bygginganna. Í húsunum er gert ráð fyrir 83
íbúðum, atvinnurýmum á götuhlið við Hring-
braut og kjallara fyrir 82 bíla.
Fram kemur í umsókn til Reykjavíkur-
borgar um byggingarleyfi að húsin fjögur
verði alls 9.184 fermetrar. Þar af verður at-
vinnurými 584 fermetrar. Húsin verða stein-
steypt, einangruð að utan og með loftræstri
klæðningu. Bílakjallarinn verður 2.700 fer-
metrar að stærð..
Jónas Þór Þorvaldsson, framkvæmdstjóri
Kaldalóns, segir að enn sé ósamið um jarð-
vinnu og aðrar framkvæmdir á reitnum en
stefnt að því að klára þau mál á næstu vikum.
Framkvæmdir gætu vonandi hafist öðru hvoru
megin við páska.
Eins og rifjað var upp í fréttagrein í Morg-
unblaðinu 28. janúar síðastliðinn átti húsið Sól-
vallagata 79 verðugan sess í tónlistarsögu Ís-
lendinga. Þar voru nefnilega haldnir fyrstu
stórtónleikarnir á Íslandi, mánudaginn 18.
desember 1939. Hljómsveit, kór og einsöngv-
arar fluttu kórverkið Sköpunina eftir aust-
urríska tónskáldið Franz Joseph Haydn undir
stjórn Páls Ísólfssonar. Steindór Einarsson,
sem kallaður var bílakóngur, reisti húsið og
lánaði það endurgjaldslaust fyrir tónleikana.
Áhuginn fyrir tónleikunum var geysimikill og
sóttu þá rúmlega 2.000 manns. Þegar 50 ár
voru liðin frá tónleikunum var festur skjöldur
á húsið til minningar um þá.
Jónas Þór Þorvaldsson segir að Kaldalón
hyggist gera tónleikunum góð skil á reitnum
en í ljós komi síðar hvernig það verði gert. Því
miður viti hann hins vegar ekkert um minning-
arskjöldinn þrátt fyrir að hafa reynt mikið að
grennslast fyrir um hann innan sinna raða og
fyrrverandi eiganda. En vonandi finnist
skjöldurinn. Ættu þeir sem hafa vitneskju um
hvar skjöldurinn er niðurkominn að gefa sig
fram.
Kaldalón hf. er fasteignaþróunarfélag sem
sérhæfir sig í byggingu íbúðarhúsnæðis. Fé-
lagið hefur fjárfest í lóðum á höfuðborg-
arsvæðinu að því er fram kemur á heimasíðu
þess. Á lóðum félagsins er gert ráð fyrir að
byggðar verði yfir 850 íbúðir. Stefna félagsins
sé að byggja á hagkvæman hátt íbúðir sem
falli að þörfum almennings.
Fram kemur á heimasíðu Kaldalóns að fé-
lagið standi að byggingaverkefnum í Urr-
iðaholti í Garðabæ, Hafnarbraut og Bakka-
braut í Kópavogi og Vogabyggð í Reykjavík.
Fyrir utan framkvæmdirnar á Steindórsreit
hyggst félagið byggja 176 íbúðir, alls 27.600
fermetra, í Vesturbugt við hlið Slippsins við
Gömlu höfnina í Reykjavík.
Tölvumynd/Plúsarkitektar
Nýbyggingin Þannig mun Steindórsreiturinn líta út þegar uppbyggingunni
lýkur. Ofarlega til vinstri má sjá þekkt kennileiti, JL- húsið við Hringbraut.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Steindórsreitur Niðurrifi lokið og ekkert stendur eftir sem minnir á þá byggingu sem hér stóð áður, bílaskála
Steindórs Einarssonar, sem kallaður var bílakóngur Íslands. Nú tekur við uppbygging á lóðinni í takt við nýja tíma.
Framkvæmdir hefjast um páskana
Kaldalón byggir á Steindórsreit í Vesturbæ Reykjavíkur Sögulegum tónleikum verða gerð skil
Morgunblaðið/Ómar
Steindórsskáli Myndin var tekin á þeim árum þegar BYKO rak þar verslun með byggingavörur.
Yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja
sem nýttu sér úrræði stjórnvalda
vegna heimsfaraldurs kórónuveiru
í fyrra var með tíu launamenn eða
færri. Þannig voru þau um 82%
þeirra sem nýttu úrræðin eða alls
rúmlega 2.500 fyrirtæki. Þetta
kemur fram í samantekt fjármála-
og efnahagsráðuneytisins á gögn-
um Hagstofunnar um nýtingu á
helstu stuðningsúrræðum stjórn-
valda.
„Alls hefur nú hátt í 70 millj-
örðum króna verið varið til stuðn-
ings við fyrirtæki og hefur um
fjórðungur fyrirtækja í öllum
stærðarflokkum nýtt sér einhver
úrræðanna. Mikill fjöldi mjög
smárra rekstraraðila fékk ekki síst
stuðning í lokunarstyrkjum þegar
ýmis persónuleg þjónusta var
stöðvuð,“ segir í frétt á vef ráðu-
neytisins.
Jafnframt segir þar að gögn
Hagstofunnar sýni einnig að stuðn-
ingur stjórnvalda hafi stóraukist
frá og með janúar, eftir að hafa
minnkað nokkuð síðastliðið haust.
„Er sú aukning til komin vegna
fjölda tekjufallsstyrkja sem af-
greiddir hafa verið frá því um miðj-
an janúar en frá þeim tíma hafa vel
á níunda hundrað rekstraraðila
fengið greidda tekjufallsstyrki fyrir
um fimm milljarða króna.
Síðustu mánuði hafa á fjórða
þúsund rekstraraðilar og tugþús-
undir einstaklinga nýtt sér ýmis
úrræði stjórnvalda sem eru á ann-
an tug talsins – styrki, lán, gjald-
fresti og annan stuðning,“ segir í
umfjöllun um stuðninginn.
Fram kemur að rúmir fimm
milljarðar fóru í greiðslur tekju-
fallsstyrkja, hlutabætur og stuðn-
ings- eða viðbótarlán í janúar sl.
Morgunblaðið/Þorkell
Fjármálaráðuneytið Samantekt
sýnir nýtingu stuðningsúrræða.
Mörg smærri fyrir-
tæki nýttu úrræðin
70 milljörðum kr. varið til stuðnings