Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
ÚR BÆJARLÍFINU
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Vertíð er hafin og hefur gengið
vel þótt auðvitað hafi erfitt tíðarfar
gert sjómönnum erfitt fyrir. Enn
snýst allt um bolfiskinn en stóra
spurningin var hvort loðnuveiðar
yrðu leyfðar í einhverju magni í
vetur eða hvort þriðja árið án loðnu
væri niðurstaðan. Fréttirnar á
fimmtudaginn, um 127.300 tonna
loðnukvóta, voru því léttir fyrir
bæjarsálina. Ekki síst í ljósi þess
að Vestmannaeyjar hafa yfir að
ráða um 30 prósentum loðnukvót-
ans. En hangið var í voninni og
voru uppsjávarskipin gerð klár og
er ekkert að vanbúnaði að halda til
veiða.
Sitt sýnist hverjum um þá
ákvörðun bæjarstjórnar Vest-
mannaeyja í síðustu viku að farga
vélbátnum Blátindi VE sem smíð-
aður var í Eyjum 1947 af Gunnari
Marel Jónssyni. Blátindur var
gerður út til ársins 1992 og er verð-
ugur minnisvarði um skipasmíði í
Eyjum á síðustu öld. Eftir lagfær-
ingar áhugamanna var hann gefinn
Vestmannaeyjabæ og honum komið
fyrir við Skanssvæðið. Hann slitn-
aði upp í óveðri í febrúar á síðasta
ári og sökk við bryggju. Hann náð-
ist upp og var tekinn í slipp þar
sem hann bíður örlaga sinna. Áætl-
aður kostnaður við að gera hann
siglingahæfan er hátt í 200 millj-
ónir króna. Beðið er afstöðu Minja-
stofnunar.
Á sama fundi samþykkti
bæjarstjórn að lagt yrði mat á
muni bæjarins um útgerðarsögu
Vestmannaeyja og varðveislu
þeirra. Kanna á hvort hægt er að
koma hafnarbátnum Létti fyrir í
húsnæði Vestmannaeyjahafnar á
Skanssvæðinu og varðveita hann
þar og aðrar sjóminjar. Leggja á
mat á kostnað og kanna möguleika
á að smíða líkan af Blátindi sem
yrði til sýnis í húsinu til að varð-
veita sögu skipsins.
Léttir á sér merka sögu og
upphafið er slys í innsiglingunni til
Vestmannaeyja árið 1934 þegar
maður fórst eftir árekstur tveggja
báta. Annar báturinn var Brimill
sem notaður var til að flytja fólk og
farm í og úr skipum sem komu frá
útlöndum. Hann var í eigu einka-
aðila því ekki fékkst stuðningur frá
hinu opinbera. Það sama gerðist
þegar Léttir var smíðaður, engan
pening að fá. Þá tóku þeir sig til
Filippus G. Árnason tollari og
Kristján Linnet bæjarfógeti og létu
smíða nýjan bát sem kom til Eyja
1935. Formaður var Ólafur Ólafs-
son. Hafnarsjóður Vestmannaeyja
eignaðist Létti að fullu árið 1959 og
þjónaði hann höfninni í áratugi eftir
það. Eins og Blátindur bíður hann
nú örlaga sinna.
Svo áfram sé haldið með
sögulegar tengingar. Á sunnudag-
inn síðasta, 31. janúar, voru 70 ár
frá því flugvélin Glitfaxi fórst með
20 manns, sautján farþegum og
þriggja manna áhöfn. Glitfaxi var
að koma frá Vestmannaeyjum og í
aðflugi að Reykjavíkurflugvelli þeg-
ar slysið varð. Af þessum 20 voru
tólf frá Eyjum og var Páll Sig-
urgeir Jónasson frá Þingholti í
Vestmannaeyjum einn skipstjóra á
Blátindi VE meðal þeirra. Alls
misstu 50 börn föður sinn í slysinu.
Áfram með sögulegar teng-
ingar. Merkri útgerðarsögu Þing-
holtsfjölskyldunnar sem hófst með
Páli í Þingholti er lokið. Hann og
afkomendur hans hafa víða komið
við í útgerð og sjómennsku í Vest-
mannaeyjum. Enn stunda sumir
þeirra sjóinn en útgerðarkaflanum
lýkur með sölu systkinanna, Hug-
ins, Gylfa, Páls og Bryndísar, á
Hugin ehf. til Vinnslustöðvarinnar.
Foreldrar þeirra, Guðmundur Ingi
Guðmundsson, skipstjóri og útgerð-
armaður, og kona hans, Kristín
Pálsdóttir frá Þingholti, byrjuðu í
útgerð 1959. Allan tímann hefur
dugnaður og mikill metnaður ein-
kennt útgerðina.
Páll kom frá Brekku á Eski-
firði og kona hans, Þórsteina Jó-
hannsdóttir, frá Brekku í Vest-
mannaeyjum þar sem þau kynntust
á vertíð. Þau bjuggu í Þingholti í
miðbæ Vestmannaeyja. Eignuðust
16 börn og komust 13 þeirra á legg
og hefur hluti þeirra verið gildandi
í atvinnulífi Eyjanna og er enn þótt
ekki tengist það útgerð. Þingholt
var eitt um 400 húsa og íbúða sem
hurfu undir hraun og ösku í Heima-
eyjargosinu 1973.
Snjólaug Elín Árnadóttir og
Unnur Líf Ingadóttir, kennarar við
Grunnskóla Vestmannaeyja, hlutu í
síðasta mánuði Menntaverðlaun
Suðurlands 2020 fyrir frumkvöðla-
starfsemi á menntasviði með gerð
kennsluefnis á vefsíðunni og Face-
book-hópnum Út fyrir bókina. Það
eru Samtök sunnlenskra sveitarfé-
laga sem veita verðlaunin sem af-
hent voru á árlegum hátíðarfundi
Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suður-
lands sem fram fór á netinu.
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir
var valin Eyjamaður ársins 2020 af
Eyjafréttum. Þóra Hrönn hefur lát-
ið til sín taka í umhverfismálum,
endurvinnslu og líknarstarfi. Hún
rekur verslunina Kubuneh sem
nefnd er eftir þorpi í Gambíu þar
sem hún hefur tekið við rekstri á
heilsugæslu. Hún selur eingöngu
notuð föt og fer allur ágóði í að
greiða laun starfsfólks og lyf fyrir
sjúklinga. Árlega leita 12.000 til
15.000 manns til heilsugæslunnar.
Þóra Hrönn er að mati Eyjafrétta
Eyjamaður ársins og hlýtur að því
tilefni Fréttapýramídann 2020.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vertíð í vændum Sveinn Óðinsson á Hugin VE 55 að gera klárt fyrir loðnuna eftir að tilkynnt var um loðnukvóta.
Bátar með merka sögu bíða örlaga sinna
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hafa margir kallað eftir þessari
útgáfu svo þetta eru sannarlega
ánægjuleg tímamót,“ segir Guð-
mundur Jóhannsson, samskipta-
fulltrúi hjá Símanum.
Um síðustu helgi fór í loftið ný út-
gáfa af appi Sjónvarps Símans fyrir
Apple TV. Margir hafa furðað sig á
því að hafa ekki getað horft á Sjón-
varp Símans Premium í gegnum
Apple TV eins og aðrar sjónvarps-
þjónustur. Ekki liggja fyrir tölur um
fjölda Apple TV-tækja hér á landi en
þau hlaupa líklega á þúsundum.
Guðmundur segir að fyrir jólin
hafi verið sett í loftið útgáfa af app-
inu fyrir tæki og sjónvörp sem keyri
á AndroidTV-stýrikerfinu. Það taki
einfaldlega tíma að þróa nýjar lausn-
ir enda allt forritað af starfsfólki
Símans.
Hann segir að brátt verði hægt að
losa sig við gamla myndlykilinn ef
fólk kýs. „Myndlykillinn verður
áfram stofninn um sinn og allar
áskriftir speglast af honum og yfir í
appið. Nú er næsta mál að slíta
þessa tengingu við myndlykilinn
okkar þannig að hann verði ekki
krafa heldur val. Það mun taka
nokkra mánuði.“
Sjónvarp Símans
loksins á Apple TV
Myndlyklarnir verða brátt óþarfir
The Bachelor Einn þeirra þátta sem hægt er að horfa á í Sjónvarpi Símans,
nú í gegnum Apple TV. Brátt verða gömlu myndlyklarnir alveg óþarfir.