Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 22
Snorri Másson snorrim@mbl.is Fundir í húsfélögum mega sam- kvæmt núgildandi lögum ekki vera haldnir rafrænt en það breytist ef frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir í félagsmálaráðuneytinu verða að lögum. Þau rýmka kröfur sem lög- in gera til löglega boðaðra hús- funda og opna þannig á alfarið raf- ræna eða blandaða húsfundi. Þessum tillögum fagnar forstjóri Eignaumsjónar hf., Daníel Árna- son. Honum er málið skylt, því fyrirtæki hans annast rekstur um 600 húsfélaga vítt og breitt um landið. Að baki þeim félögum eru um 15.000 eignir og Eignaumsjón er með um 70% hlutdeild á hús- félagsrekstrarmarkaðnum. Hlutverk Eignaumsjónar er í raun að annast rekstur húsfélags frá A til Ö. „Í rekstrinum felast fundarhöld, sem í sumum tilvikum eru bara eins og litlar ráðstefnur. Það þarf að boða til þeirra með lög- mætum og skilvísum hætti, sem gengur heilt yfir mjög vel,“ segir Daníel. Í nýjum lögum er gert ráð fyrir að fundirnir geti verið bland- aðir, sem hann telur farsælt. „Þá verður okkar hlutverk að skipu- leggja fundina, þannig að þeir sem kjósi að vera á vettvangi geti það, sem er til dæmis algengt hjá eldri kynslóðinni, og einnig þannig að þeir sem ekki geti verið viðstaddir af ýmsum ástæðum geti verið við- staddir fundina rafrænt.“ Daníel segir að þessar breyt- ingar hafi verið tímabærar og að þörfin á þeim hafi orðið enn skýr- ari í heimsfaraldrinum. Auk þess- ara breytinga stendur ýmislegt annað til bóta í nýju frumvarpi, eins og til dæmis sú heimild hús- félaga að skipta húsum upp í við- haldseiningar, þannig að verslun öðrum megin í húsi geti ráðist í framkvæmdir á sínum hluta húss- ins en til dæmis vöruskemman hin- um megin sé ekki skylduð til þátt- töku í þeim. Lögleiðing rafrænna húsfélagsfunda  Hafa verið bannaðir frá alda öðli  Eignaumsjón ehf. fagnar breytingunum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ísland Eignaumsjón sér um 70% af útvistaðri húsfélagsstarfsemi. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum BAKSVIÐ Snorri Másson snorrim@mbl.is Streymisveitan Viaplay er ekki ólík- leg til þess að ásælast sjónvarpsrétt- inn í úrvalsdeildum knattspyrnu hér á landi, þegar samningar við Stöð 2 Sport renna út í lok þessa árs. Þegar hefur veitan tryggt sér sýningarrétt á leikjum íslenska landsliðsins frá 2022-2028 í gegnum Knattspyrnu- samband Evrópu og þar með Íslands. Guðni Bergsson, formaður KSÍ, býst við því að hún muni einnig sýna út- boði fyrir íslenska boltann áhuga. Viaplay sýnir þegar leiki úr efstu deildum fjölda þjóða, Danmörku, Þýskalandi, Skotlandi, Hollandi, Sví- þjóð og svo mætti áfram telja. „Enn er í raun og veru ekki komið í ljós hvort þeir hafi áhuga á því hér en það gerir það síðar á þessu ári. Miðað við þróunina held ég að það sé líklegra en hitt, að svo fari. Verandi á þessum markaði hljóta þeir að skoða það,“ segir Guðni í samtali við Morgun- blaðið. Stöð 2 Sport hefur sent út íslenska boltann frá 1998, nú síðast með samn- ingi frá 2015, sem gildir út 2021. Ei- ríkur Stefán Ásgeirsson, fréttastjóri íþrótta hjá Stöð 2, Vísi og Bylgjunni, segir í samtali við Morgunblaðið að Stöð 2 muni leitast við að halda ís- lenska boltanum hjá sér. „Það er al- veg ljóst að við höfum áhuga á að halda þessu áfram. Við gerum út á það og okkur þykir vænt um íslenska sportið,“ segir Eiríkur. Hann hefur ekki upplýsingar um hvað Viaplay hefur í hyggju í þessum efnum. Fréttir af samningi Viaplay um leiki karlalandsliðsins féllu sums staðar í grýttan jarðveg í vikunni enda áhyggjur uppi um að aðgengi verði ekki það sama fyrir landsmenn og það væri ef RÚV hefði landað sama samningi. Guðni kveðst skilja þær áhyggjur en segir þó að fjöldi mikilvægra leikja verði í opinni dag- skrá, ásamt því sem aðrar ráðstafanir muni greiða fyrir aðgengi. Spurður hve miklu hagstæðari samningurinn er fyrir KSÍ sagði Guðni: „Tekjubótin er ekki gríðarleg en hún er umtals- verð og nauðsynleg.“ Það verður ekki á forræði KSÍ að semja um sýningarréttinn í íslensku deildunum heldur hagsmunasamtak- anna Íslensks toppfótbolta, sem eru samtök félaga í efstu deild. Aftur á móti eru samningar KSÍ vegna sýn- inga á leikjum kvennalandsliðsins í knattspyrnu lausir og þau mál í skoð- un. Ekki liggur fyrir hvort Viaplay muni bjóða í réttinn þar en að sögn Guðna verður farið í að skoða þau mál á þessu ári. Viaplay gæti haft áhuga á deildinni Morgunblaðið/Eggert Streymisveita Viaplay sendir þegar út leiki í efstu deildum fjölda þjóða.  Stöð 2 Sport vill auðvitað halda henni Guðni Bergsson Eiríkur Stefán Ásgeirsson BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Isavia hyggst verja hálfum milljarði króna í markaðsstuðning til að stuðla að flugi til Íslands. Kemur hann til viðbótar hvatakerfinu á flugvellinum en m.a. er veittur afsláttur af not- endagjaldskrá utan háannatíma. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir stuðninginn standa öll- um flugfélögum til boða. Þar með talið Icelandair vegna flugferða sem verða á háannatíma vallarins. Félögin muni þurfa að uppfylla ýmis skilyrði. Þar með talið varðandi tíðni ferða. Þau geti þá haft styrkina til hliðsjónar þegar þau markaðs- setja flug til Íslands og það verið hvati til að hefja flugið fyrr en ella. Styður við uppbygginguna Gengið var frá 15 milljarða króna hlutafjáraukningu á hluthafafundi Isavia 12. janúar. Er henni ætlað að mæta rekstrar- tapi vegna kórónuveirufaraldursins og gera Isavia kleift að hefja upp- byggingu á flugvellinum á ný (sjá drög hér fyrir ofan). Þá nýtist hluta- fjáraukningin til að tryggja mark- aðsstuðninginn. Sveinbjörn segir að með hliðsjón af sterkri stöðu stærstu flugfélag- anna sem fljúga til Keflavíkurflug- vallar – Icelandair, Wizz Air og Easy Jet – verði staða vallarins sterk þeg- ar alþjóðaflugið fer af stað á ný. Þá ekki síst vegna endurskipulagningar Icelandair en margt vinni með félag- inu. Til dæmis að stóru flugfélögin hafi verið að leggja breiðþotum en það styrki stöðu félagsins í flugi yfir hafið. Þá sé að losna um Boeing Max- þotur Icelandair, ásamt því sem fé- lög eins og Norwegian muni ekki veita félaginu jafn harða samkeppni. Varðandi bandaríska flugmarkað- inn kveðst Sveinbjörn eiga von á því að stóru amerísku flugfélögin þrjú sem flogið hafa til Íslands – Delta Air Lines, American Airlines og United Airlines – verði lengur að taka ákvörðun um að hefja flug hing- að en evrópsku lággjaldafélögin, sér- staklega í ljósi stöðunnar í Banda- ríkjunum. Hvað snertir áhrif aukinnar flugdrægni á samkeppnis- stöðu Keflavíkurflugvallar sem tengistöðvar kveðst Sveinbjörn von- góður um að þróunin á markaðnum verði vellinum hagfelld. Asíumark- aður muni vaxa þegar faraldrinum lýkur, m.a. með tengingu um evrópska flugvelli til Keflavíkur. Þá vinni það með Keflavíkurflug- velli að ferðalög muni vaxa hraðar en viðskiptaferðalög, enda sé hlutfall viðskiptaferða lágt í Keflavík. Varðandi endurreisn WOW air kveðst Sveinbjörn ekki hafa heyrt í fulltrúum félagsins síðan hann fundaði með Michele Ballarin, eig- anda nýja félagsins, þegar hún keypti vörumerkið úr þrotabúinu. Sömuleiðis hafi Isavia ekki fengið fyrirspurnir frá félögum sem hafa ekki flogið til Keflavíkur. Samkeppnin verður hörð „Þegar viðsnúningurinn hefst held ég að lykilatriðið sé ekki að sækja nýja aðila heldur að hvetja þá sem hafa verið að fljúga hingað áður, og þekkja markaðinn, til þess að koma til Íslands. Þegar ferðatakmörkun- um verður aflétt munu flugvellirnir gera hosur sínar grænar fyrir flug- félögunum. Þau eru flest lemstruð eftir faraldurinn og þurfa að velja vel hvert þau byrja að fljúga aftur. Flug- félögin munu fljúga leggi sem skila arðsemi eða a.m.k. jákvæðu sjóð- streymi. Það er því mikilvægt fyrir okkur að auðvelda þeim að taka ákvörðunina um að hefja á ný flug til Íslands,“ segir Sveinbjörn. Varðandi áætlaðan farþegafjölda í Keflavík í ár segir Sveinbjörn að fyrri forsendur félagsins um hálfa milljón erlendra farþega muni ólík- lega rætast úr þessu. Vegna óvissu séu ekki forsendur til að spá fyrir um fjöldann 2022. 500 milljónir í markaðsstuðning  Forstjóri Isavia segir styrkina eiga að auðvelda flugfélögum ákvörðunina að hefja hingað flug á ný  Staða Keflavíkurflugvallar sé sterk  Mikil samkeppni verði um farþega þegar flugið fer í gang Teikning/Isavia Drög Svona gæti flugstöðin litið út að loknum framkvæmdum 2021-25 með nýrri tengibyggingu, viðbyggingu við suðurbyggingu og bílastæðahúsi. 6. febrúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 130.14 Sterlingspund 177.98 Kanadadalur 101.59 Dönsk króna 20.991 Norsk króna 15.095 Sænsk króna 15.395 Svissn. franki 144.3 Japanskt jen 1.2361 SDR 186.67 Evra 156.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6662 Hrávöruverð Gull 1811.55 ($/únsa) Ál 1973.0 ($/tonn) LME Hráolía 58.59 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.