Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Efnt var til mótmæla gegn valdaráni herforingjastjórnarinnar í Búrma, sem einnig er þekkt sem Mjanmar, í gær eftir að herinn handtók Win Htein, einn helsta ráðgjafa Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarflokksins NLD. Suu Kyi er sögð við góða heilsu í stofufangelsi sínu, en ekki hefur sést til hennar síðan herinn lét til skarar skríða. Um 200 kennarar og stúdentar við Dagon-háskólann í Jangon, stærstu borg Búrma, efndu til mótmælafund- ar og héldu þátttakendur á lofti þremur fingrum, en það er mótmæla- tákn sem lýðræðissinnar í Taílandi hafa tekið upp á sína arma. Stúdent- arnir hrópuðu slagorð til stuðnings Suu Kyi, eða „móður Suu“, og báru rauða fána, en rauður er flokkslitur NLD-flokksins. Rauð flögg og rauðir borðar Win Win Maw, lektor við háskól- ann, sagði í samtali AFP-fréttastof- una að ef allir opinberir starfsmenn legðu niður störf yrði herforingjun- um gert nær ómögulegt að stjórna landinu áfram, en læknar og hjúkr- unarfræðingar víða um Búrma ákváðu fyrr í vikunni að sinna ein- ungis neyðartilfellum í mótmæla- skyni. Settu margir þeirra upp rauða borða til að sýna andstöðu sína við valdaránið. Þetta voru fyrstu stóru mótmæla- aðgerðirnar í landinu eftir valdaránið á mánudaginn og dreifðust þær til annarra borga. Í höfuðborginni Nay- pyidaw tók fjöldi ráðuneytisstarfs- manna þátt í látlausum aðgerðum og sátu þeir fyrir á hópmyndum með þrjá fingur á lofti og rauða borða. Undanfarin kvöld hafa svo íbúar í helstu borgum tekið til við að berja í potta og pönnur og skapa annan há- vaða til þess að láta óánægju sína í ljós. Lögreglan í Mandalay, næst- stærstu borg landsins, brást við með því að handtaka rúmlega 20 manns fyrir að trufla friðinn og voru þeir dæmdir í gær í sjö daga fangelsi. Skoða sértækar refsiaðgerðir Joe Biden Bandaríkjaforseti vék í fyrstu ræðu sinni um utanríkismál í fyrrinótt að valdaráninu og fordæmdi það. Sagði hann að her Búrma ætti að gefa eftir öll völd, sleppa öllum úr haldi sem handteknir hefðu verið og létta á fjarskiptatruflunum sínum, en herforingjastjórnin lét loka fyrir Facebook í fyrradag. Bandaríkin skoða nú að beita leið- toga valdaránsins sértækum við- skiptaþvingunum og myndu refsiað- gerðir þeirra einnig miða að því að trufla starfsemi fyrirtækja, sem tengjast hernum nánum böndum. AFP Undir rauðum fána Íbúar borgarinnar Jangon hafa tekið til við að hengja rauða fána út við glugga til merkis um stuðning sinn við Aung San Suu Kyi. Valdaráninu mótmælt  Efnt til fyrstu stóru mótmælaaðgerða gegn herforingjastjórninni í Búrma í gær  Dæmdir í viku fangelsi fyrir búsáhaldamótmæli  Biden skoðar refsiaðgerðir Stríðandi fylkingar í Jemen fögnuðu í gær ákalli Joe Bidens Bandaríkja- forseta um að leitað yrði friðar í borgarastyrjöldinni sem geisað hef- ur þar undanfarin sex ár. Vöruðu sérfræðingar í málefnum landsins hins vegar við því að hægara yrði sagt en gert að binda enda á átökin. Biden sagði í fyrstu forsetaræðu sinni um utanríkismál að stríðinu yrði að ljúka, og að Bandaríkin myndu hætta öllum stuðningi við „sóknaraðgerðir“ í stríðinu. Sagði Biden að í því fælist að vopnasölu frá Bandaríkjunum til Jemens yrði hætt. Biden útnefndi jafnframt Tim- othy Lenderking sem sérstakan er- indreka sinn í Jemen, og er honum falið að liðka fyrir friðarsamningum. Hin alþjóðlega viðurkennda ríkis- stjórn Jemens, sem studd er af Sádi- Aröbum, fagnaði yfirlýsingu Bidens og sagði brýnt að styðja við dipló- matískar leiðir til að koma á friði. Uppreisnarmenn úr röðum Huthi- manna sögðust einnig styðja friðar- umleitanir Bidens, en þeir ráða nú yfir megninu af landinu, þar á meðal höfuðborginni Saana. Sagði talsmað- ur uppreisnarmanna hins vegar að binda þyrfti enda á allar árásir og af- létta viðskiptabanni sem sett hefur verið á landið. Fagnaði „sögulegri ræðu“ Adel al-Jubeir, utanríkisráðherra Sádi-Arabíu, sagði að ræða Bidens hefði verið „söguleg“ og að Sádi- Arabar hlökkuðu til að vinna með Bandaríkjamönnum að friði, líkt og í sjö áratugi á undan. Sérfræðingar sem AFP-frétta- stofan ræddi við sögðu hins vegar að þó að ræðan hefði lofað góðu, væri allt annað mál að koma á friði, meðal annars vegna stirðra samskipta Bandaríkjamanna og Sádi-Araba við Írani, en þeir hafa stutt við bakið á uppreisnarmönnum um langa hríð. Fagna friðar- framtaki Bidens  Varað við of mikilli bjartsýni í Jemen AFP Flóttamenn Borgarastríðið hefur skilið eftir djúp sár í Jemen. Meirihluti full- trúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í fyrrakvöld að svipta bæri Marjorie Taylor Greene rétti sín- um til að sitja í nefndum á veg- um deildarinnar, en hún hefur vakið athygli fyrir stuðning sinn við umdeildar samsæriskenningar, sem kenndar eru við QAnon. Þá hafði Greene áður en hún var kjörin þingmaður sett „like“ á Face- book-síðu sinni við yfirlýsingar um að skjóta ætti Nancy Pelosi, forseta deildarinnar. Ellefu repúblikanar snerust á sveif með meirihluta demókrata í málinu, en flestir þingmenn repú- blikana mótmæltu ákvörðuninni á þeim forsendum að Greene hefði sýnt iðrun, og að ekki væru for- dæmi fyrir því að meirihluti skipti sér af nefndaskipan minnihluta í deildinni. Sögðu demókratar hins vegar að orðum yrði að fylgja ábyrgð. BANDARÍKIN Greene meinað að sitja í þingnefndum Marjorie Taylor Greene Rússnesk stjórnvöld ákváðu í gær að vísa sendiráðsstarfsmönnum þriggja aðildarríkja Evrópusambandsins úr landi, en þeir voru sakaðir um að hafa tekið þátt í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní. Ekki kom fram hversu mörgum hefði verið vísað úr landi, en sendi- ráðsstarfsmennirnir voru frá Pól- landi, Þýskalandi og Svíþjóð. Var greint frá ákvörðuninni á meðan Jo- sep Borrell, utanríkismálastjóri Evr- ópusambandsins, fundaði með Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss- lands. Fordæmdi Borrell brottrekst- urinn þegar í stað, og hafnaði öllum ásökunum um að mennirnir hefðu brotið gegn skyldum sínum sem er- lendir erindrekar. Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði sömuleiðis að ekki væri hægt að réttlæta ákvörðun Rússa, og Svíar sögðust vera að íhuga að svara Rúss- um í sömu mynt. Megintilefni heimsóknar Borrells var að ræða meðferð Navalnís við Lavrov, en Evrópusambandið hefur mótmælt fangelsun hans harðlega. Sagði Borrell við Lavrov að samskipti Rússlands og ESB væru „undir miklu álagi“ og að mál Navalnís væri „lágpunktur“. Góðar fréttir fyrir mannkynið Þetta var fyrsta heimsókn hátt- setts embættismanns Evrópusam- bandsins til Rússlands frá árinu 2017, en auk Navalní-málsins ræddu Bor- rell og Lavrov einnig vonir um sam- starf varðandi framleiðslu og kaup Evrópusambandsríkjanna á rúss- neska Spútník 5-bóluefninu gegn kór- ónuveirunni. Viðurkenndu þeir þó að Navalní-málið varpaði skugga á þær vonir. Sagði Borrell að góð virkni bólu- efnisins væri „góð tíðindi fyrir mann- kynið“ og að hann vonaðist til að það fengi markaðsleyfi í Evrópu bráðum, þar sem skortur væri á bóluefni innan ESB. Sagði Lavrov að Rússar og Banda- ríkjamenn hefðu samþykkt að kanna hvort svigrúm væri til samstarfs um bóluefni, og bætti við að nokkur Evr- ópuríki hefðu einnig lýst yfir vilja til að hefja framleiðslu á Spútník-efninu. Samskiptin við Rússland við frostmark  Borrell fordæmdi brottrekstur og falaðist eftir Spútník 5-bóluefninu AFP Fundur Lavrov og Borrell á fundi sínum í Moskvuborg í gær. Greint var frá því í gær að kan- adíski Óskars- verðlaunahafinn Christopher Plummer hefði látist á heimili sínu í Connecti- cut-ríki. Hann var 91 árs gam- all. Plummer starfaði sem leik- ari í sjö áratugi og vann til fjölda leiklistarverðlauna á löngum ferli. Plummer er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Georg von Trapp höfuðsmaður í Tónaflóði, en hann hlaut Óskarinn árið 2010 sem besti leikari í aukahlutverki fyrir mynd- ina Beginners. Varð hann þar með elsti leikarinn til að hljóta Óskars- verðlaun. KANADA Christopher Plum- mer fallinn frá Christopher Plummer

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.