Morgunblaðið - 06.02.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 06.02.2021, Qupperneq 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Ein af eftirlætissögum föðurmíns, Sigurðar Bald-urssonar (1923-2005), var afauglýsingu um Vísiskaffið í dagblaðinu Vísi þar sem faðir hans, Baldur Sveinsson (1883-1932), hafði verið blaðamaður og seinna aðstoðarrit- stjóri. Pabbi bar Hannes lækni Guð- mundsson fyrir sögunni: „Dagblaðið Vísir var lengi vel aðeins fjórar blaðsíður að stærð. Forsíðan var þakin auglýsingum en neðst yfir þvera forsíðu stóðu daglega þessi orð: Vísis kaffið gerir alla glaða. Nú gerðist það nokkru sinni öðru hvorum megin við árið 1930, að setj- ararnir vildu prófa árvekni prófarkales- aranna, og varð þá auglýsingin svona: Vísis kaffið gerir alla graða. Eigandi verslunarinnar Vísis að Laugavegi 1 var Sig- urbjörn Þorkelsson, framá- maður í KFUM, en meðal eigenda dagblaðsins Vísis var Guðmundur Hannesson pró- fessor. Skömmu eftir að þessi auglýsing birtist, hittust þeir Sigurbjörn í Vísi kaupmaður og Hannes læknir, sonur Guðmundar Hannessonar prófess- ors. Sigurbjörn kaupmaður var ákaflega sár út af þessari auglýsingu og sagðist ætla í mál við eigendur dagblaðsins Vísis. Hannes lét lítið yfir því. Nokkrum dögum síðar hittust þeir aftur Hannes læknir og Sigurbjörn kaupmaður. Hannes spyr hvort hann sé byrjaður á málsókninni. „Nei,“ sagði Sigurbjörn, „salan hefur aukist svo mikið.““ Þrátt fyrir áralanga eftirgrennslan með aðstoð starfsfólks Þjóð- skjalasafns og handritadeildar Landsbókasafns í Safnahúsinu gamla fannst umrætt blað aldrei í hirslum safnsins – og ættingjar og vinir voru farnir að halda að þarna hefði munnlega hefðin heldur betur logið upp góðri sögu. Þegar við bræður vorum að ganga frá dánarbúi föður okkar rákumst við loks á vöndul í gömlum maskínupappír innan um dót frá Baldri afa – með heilum árgangi af Vísi frá árinu 1925! Það stóð heima að í blaðinu birtist nokkrum sinnum í viku klisjuauglýs- ing um Vísiskaffið sem gerði alla glaða, en í laugardagsblaðinu 6. júní dró til tíðinda. Skyndilega hafði eitthvað komið fyrir eitt ellið í orðinu „glaða“, þannig að hrekklaus eða öllu heldur þannig þenkjandi lesandi gat látið sér detta í hug að þar ætti að standa eitthvað annað. Eftir þetta hvarf auglýsingin úr blaðinu í liðlega mánuð og birtist ekki aftur fyrr en miðvikudaginn 8. júlí. Á þessum tíma má því ímynda sér að kaffisalan hjá Sigurbirni hafi aukist mikið og hann horfið frá málsókn. Af þessu dæmi má álykta að enda þótt hin munnlega geymd hafi ekki skilað öllum staðreyndum málsins óbrjáluðum í gegnum einn millilið er ekki þar með sagt að við getum farið að tala um fantasíu höfundar sem not- færir sér sögulegan kjarna til að spinna upp skemmtilega lygasögu og vitna svo í heimildarmann til að gera frásögn sína trúverðuga í eyrum áheyrenda sinna – eins og stundum er sagt að hafi tíðkast þegar íslenskar fornsögur voru ritaðar. „Vísis-kaffið gerir alla glaða“ Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Auglýsingin föstudaginn 5. júní. Auglýsingin laugardaginn 6. júní. Í Morgunblaðinu 27. janúar 2021kennir Ólafur Sigurðsson, fyrr- verandi fréttamaður, nýfrjálshyggju um flest það, sem aflaga hefur farið í heiminum síðustu fimmtíu árin. Hann segir meðal annars, að hún hafi valdið lánsfjárkreppunni 2007- 2009, en hún náði hámarki sínu haustið 2008 og hafði sem kunnugt er óskaplegar afleiðingar hér á Ís- landi. Þetta er mikill misskilningur. Orsakir kreppunnar voru aðallega tvær. Í fyrsta lagi höfðu seðlabankar um heim allan stuðlað að láns- fjárþenslu með lágum vöxtum, og jafnframt hafði bandaríska ríkið hvatt og jafnvel neytt lánastofnanir til að veita húsnæðislán umfram greiðslugetu margra viðtakenda. Í öðru lagi hafði ný fjármálatækni, sem átti að auðvelda mat á áhættu, haft þveröfugar afleiðingar. Erf- iðara varð að meta áhættu af fjár- festingum og útlánum. Þegar þetta varð ljóst haustið 2007 varð uppnám á fjármálamörkuðum og lausa- fjárþurrð. Lánsfjárkreppan 2007-2009 var dæmigerð hagsveifla eins og Frie- drich von Hayek hafði lýst í ritum sínum. Óeðlileg peningaþensla árin á undan (lágir vextir og óhófleg hús- næðislán) olli óeðlilegri bjartsýni og offjárfestingum, sem síðan varð að leiðrétta í niðursveiflunni. Það er hins vegar fróðlegt, að stjórnvöld gripu ekki til þeirra úrræða, sem John Maynard Keynes hafði lagt á ráðin um í heimskreppunni, víð- tækra opinberra framkvæmda. Þess í stað bættu seðlabankar úr lausa- fjárþurrð lánastofnana með beinni og óbeinni peningaprentun, ekki síst verðbréfakaupum. Milton Friedman hafði í tímamótaverkum sínum ein- mitt leitt rök að því, að niðursveiflan í atvinnulífinu eftir 1929 hefði breyst í alvarlega heimskreppu, vegna þess að seðlabankar hefðu þá brugðist því hlutverki sínu að sjá lánastofnunum fyrir nægu lausafé. Lánsfjárkreppan alþjóðlega 2007- 2009 átti sér því orsakir, sem Hayek hafði greint, og viðbrögðin við henni voru þau, sem Friedman hafði lagt til. Annað mál er það, að ein ástæðan til þess, að lánastofnanir fara geyst, er, að þær þurfa oft ekki að taka af- leiðingum óvarfærni sinnar. Þegar vel gengur hirða þær gróðann. Þeg- ar illa gengur bjarga seðlabankar þeim. Þetta er ekki skynsamleg regla, og við Íslendingar sýndum það raunar 2008, að heimurinn ferst ekki, þótt lánastofnunum sé ekki alltaf bjargað. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Nýfrjálshyggjan og lánsfjárkreppan 2008 VIÐSKIPTA Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ Við stjórnarskiptin í Bandaríkjunum láta sérfræð-ingar á öllum sviðum ljós sitt skína og veita nýj-um valdhöfum góð ráð. Í þeim hópi er HeatherA. Conley sem fer meðal annars með norður- slóðamál í áhrifamiklu hugveitunni Center for Strategic and International Studies. Hún hvatti til þess á vefsíðunni ArcticToday 1. febrúar að Antony Blinken, nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna, stað- festi við íslensk stjórnvöld, sem nú fara með formennsku í Norðurskautsráðinu, að hann ætlaði að sækja ráðherrafund ráðsins hér á landi í maí og hefði einnig John Kerry, fyrrver- andi utanríkisráðherra, núverandi sérlegan loftslagsfulltrúa Bidens, með sér. Þá ætti bandaríska utanríkisráðuneytið að hvetja til þess að Íslendingar byðu utanríkisráðherrum norðurskautslandanna átta til óformlegs fundar utan ramma Norðurskautsráðsins til að ræða geópólitísk viðfangsefni og þróun öryggismála á norðurslóðum. Minnti Conley á að á óformlegum fundi fyrir utanríkisráðherrafund ráðsins fyrir tveimur árum í Rov- aniemi í Finnlandi hefði Mike Pom- peo, þáv. utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, valdið nokkru uppnámi með harðorðum ummælum um hernaðarumsvif Rússa og kröfur Kínverja um að fá að gera sig gild- andi á norðurslóðum sem ná- grannaþjóð þeirra. Vill Conley að Blinken og Kerry vindi ofan af orðum Pompeos og tali við norðurskautsríkin af meiri vinsemd og samstarfsvilja eink- um í loftslagsmálum. Hvort farið verði að þessari tillögu vegna norðurskauts- fundarins í Reykjavík í maí eða hvort almennt verður unnt að halda hann vegna COVID-19 kemur í ljós. Hitt er þó ljóst eftir sérstaka umræðu um „samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir valdaskiptin 20. janúar sl.“ á alþingi fimmtudaginn 4. febrúar að kæmi fram bandarísk ósk í þá veru sem að ofan er lýst yrði henni vel tekið af ríkisstjórn Íslands og jákvæð viðbrögð við henni nytu stuðnings þing- manna allra flokka. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, nýorðin þingmaður Sam- fylkingarinnar, bað um þessa sérstöku umræðu. Að nokkru virðist ósk hennar sprottin af innri þörf fyrir að fara niðr- andi orðum um Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkja- forseta. Rósa Björk taldi augljósan áhuga Trumps á norð- urslóðum hafa verið „drifinn áfram af karllægum yfirgangi og gamaldags valdabrölti frekar en einlægum áhuga á því að tryggja góð og friðsamleg samskipti“. Nú væri nýr tími kominn og lag til „að skerpa á sam- bandi okkar Íslendinga við ný bandarísk stjórnvöld sem eru með allt aðra sýn en þau fyrri; leggja það niður fyrir okkur hvað það er sem við sem fullvalda sjálfstætt ríki vilj- um leggja áherslu á við ríkisstjórn Bidens forseta og í sam- skiptum okkar við Bandaríkin með nýjum forseta með allt aðrar áherslur en sá fyrri,“ sagði Rósa Björk. Í stuttu máli birtist þessi jákvæða afstaða til Bandaríkj- anna í ræðum þingmanna sem tóku þátt í umræðunum. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sagði: „Hvað mig varðar þá staldra ég ekki síst við þá stað- reynd að undanfarnar vikur hafa sýnt hversu sterk lýð- ræðishefðin er í Bandaríkjunum þegar til kastanna kemur. Það sem við okkur blasir er að lýðræðisstofnanir og stjórn- skipulag stóðust þau álagspróf sem segja má að fram- ganga fyrrverandi forseta hafi leyst úr læðingi. Þessu fagna auðvitað allir sannir vinir Bandaríkjanna, ekki síst þessi eiginleiki bandarísks samfélags gerir það að verkum að við Íslendingar höfum litið á Bandaríkin sem vinaþjóð okkar og bandamenn á vettvangi alþjóða- og öryggismála.“ Utanríkisráðherra sagði okkur líta til Bandaríkjanna sem „öfl- ugasta lýðræðisríkis heims“ og það væri mikilvægt að Bandaríkin yrðu áfram í forystu á vettvangi alþjóða- mála. Fyrir okkur og önnur lýðræð- isríki skipti verulegu máli að Bandaríkin væru virkir þátttakendur í fjölþjóðasamstarfi, ekki síst núna þegar grafið væri undan ýmsum réttindum og gildum sem við teldum svo mikilvæg. Sama dag og þingmenn staðfestu vináttu Íslands og Bandaríkjanna hélt Joe Biden forseti fyrstu stefnuræðu sína um utanríkismál og sagði: „Boðskapur minn til heims- ins í dag er: Bandaríkin eru komin aftur.“ Hann sagðist hafa rætt við leiðtoga Bretlands, Þýskalands, Frakklands og NATO um að styrkja að nýju stoðir lýðræðislegra bandalaga sem hefðu veikst undanfarin ár vegna hirðu- leysis og þess sem hann kallaði „misþyrmingu“. Slagorðið sem Biden notaði America is back boðar annað en slagorð Donalds Trumps America first sem margir töldu endurspegla kulda í garð bandamanna og samstarfsríkja Bandaríkjamanna. Joe Biden er afdráttarlausari í gagnrýni sinni á Vladimir Pútin og stjórn hans en Trump var. Heitstrengingar íslenskra þingmanna úr öllum flokkum um að treysta sambandið við Bandaríkin hafa sjaldan verið jafn samhljóma og í umræðunum á þingi fimmtudaginn 4. febrúar 2021. Í stjórnartíð Donalds Trumps skipuðu íslensk stjórn- völd sér í sveit með ríkisstjórnum annars staðar á Norð- urlöndunum þegar þær styrktu þá allar tengsl sín við Bandaríkin í öryggis- og varnarmálum. Norrænar ríkis- stjórnir fylgja jafnframt allar hernaðarlegri lágspennu- stefnu á norðurslóðum. Stórveldakapphlaupið í norðri er staðreynd og einnig hitt að Norðurskautsráðið fjallar ekki um varnarmál. Til þess vísar Heather A. Conley sem vitnað var til í upphafi þegar hún hvetur til fundar utan ráðsins um öryggismálin á fundi í Reykjavík í maí áður en Íslendingar afhenda Rússum formennsku í Norðurskautsráðinu. Tillögunni er beint til nýs utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hún á ekki síður erindi til íslenskra og norrænna stjórnvalda. Samhljómur á þingi um Bandaríkin Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Heitstrengingar íslenskra þingmanna úr öllum flokk- um um að treysta sambandið við Bandaríkin hafa sjaldan verið jafn samhljóma. Af innlendum vettvangi fellur niður Föst grein Styrmis Gunnarssonar, Af innlendum vettvangi, fellur niður í dag vegna veikinda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.