Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 27

Morgunblaðið - 06.02.2021, Page 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Skákþing Reykjavíkur 2021tók óvænta stefnu sl.sunnudag er VignirVatnar Stefánsson lagði stórmeistarann Hjörvar Stein Grét- arsson að velli í frábærri baráttu- skák þeirra og komst þar með í efsta sætið ásamt Guðmundi Kjart- anssyni. Hjörvar hafði áður tekið ½ vinnings yfirsetu og var því skyndi- lega kominn í 3. sæti. Allir unnu þeir sl. miðvikudagskvöld og er staða efstu manna fyrir lokaum- ferðina þessi: 1.-2. Vignir Vatnar Stefánsson og Guðmundur Kjart- ansson 7 v. (af 8) 3. Hjörvar Steinn Grétarsson 6½ v. 4.-9. Arnar Milutin, Davíð Kjart- ansson, Stephan Briem, Gauti Páll Jónsson, Pétur Pálmi Harðarson og Mikael Jóhann Karlsson 5½ v. Í gærkvöldi fór lokaumferðin fram og þá mættust Guðmundur og Vignir Vatnar í hreinni úrslitaskák. Hér fylgir viðureign Vignis Vatnars við Hjörvar Stein sem áður hefur reynst Vigni erfiður: Skákþing Reykjavíkur 2021; 7. umferð: Vignir Vatnar Stefánsson – Hjörvar Steinn Grétarsson Tísku-byrjun 1. d4 d6 2. e4 g6 3. Rc3 Bg7 4. f4 a6 5. Rf3 b5 6. Bd3 Rd7 Afbrigði kennt við Svíann Tiger Hillarp. 7. a4 b4 8. Re2 c5 9. c3 Hb8 10. O-O bxc3 11. bxc3 Rgf6 12. e5 Rd5 13. Be4 e6 14. exd6 Bb7 15. Re5 cxd4 16. Dxd4! Hvítur hefur teflt byrjunina vel og á mun betri stöðu. En baráttan er samt rétt að hefjast. 16. … O-O 17. c4 Rg4 18. Hb1 Rc6 19. bxc6 Bxc6 20. Be3 Hxb1 21. Hxb1 Da8! Vel leikið. Svartur skapar sér færi eftir hornalínunni. 22. Hb2?! Bxg2 23. c5 Bc6 24. Dc3 Rf6? Hann gat hirt peðið á a4 með góðri stöðu. Eftir uppskipti á e5 hefur svartur náð að skorða peð hvíts. 25. Bd4 Bxa4 26. Da5 Bc6 27. Hb6 Bf3 28. Rc3 Rd7 29. Hxa6 Bxe5 30. fxe5 Db8 31. Kf2 f6? Fyrstu alvarlegu mistök svarts. Eftir 31. … Bb7 er staðan í jafn- vægi. 32. exf6 Bb7 33. Ha7 e5 34. Be3 Rxf6?! 35. Ke1! Kóngurinn er tiltölulega öruggur þarna. 35. … Dc8 36. Dc7 Dh3 37. Dxb7? Hann gat unnið strax með 37. Hxb7! Dxe3+ 38. Re2 Dh6 39. d7 o.s.frv. 37. … Dxe3+ 38. Re2 Dh6 39. Ha8 Dh4+ 40. Kd1 Hxa8 41. Dxa8+ Kf7 42. Da7+? Nákvæmara var 42. Da2+! – til að halda kónginum frá. 42. … Ke6 43. De7+ Kd5 44. Rc3+ Kc4 45. Dxe5 Rg4 46. De2+ Kxc3 47. Dd2+ Kb3 48. d7 För frípeðsins má stöðva en til þess er aðeins ein leið. 48. … Dh3? Eina vörnin að mati „vélanna“ er fremur fjarstæðukennd, 48. … Rf2+ 49. Ke2 Rh3! og staðan er jafntefli, t.d. 50. d8(D) Dg4+ 51. Ke3 Df4+ 52. Kd3 Dc4+ o.s.frv. 49. Dc2+ Ka3 50. Dc2+ Ka3 51. Dc1+ Kb3 52. Dc2+ Kb4 52. Db2+ Kc4 54. De2+ Kc3 55. d8(D) - og svartur gafst upp. Tvöfaldur hollenskur sigur í Wijk aan Zee Fulltrúar Hollendinga, Jorden van Foreest og Anish Giri, brutu blað í sögu stórmótsins í Wijk aan Zee sem lauk um síðustu helgi. Þeir deildu efsta sætinu eftir magnaðar lokaumferðir. Aldrei fyrr hefur það gerst í meira en 80 ára sögu þess- arar miklu skákhátíðar. Þeir hlutu báðir 8½ vinning af 13 mögulegum og eins og gert hefur verið undan- farin ár tefldu þeir nokkrar hrað- skákir um sigurvegaratitilinn. Eftir tvær skákir var staðan jöfn en í þeirri þriðju féll Giri á tíma með gjörunnið tafl þannig að hinn 21 árs gamli landi stóð uppi sem sigurveg- ari mótsins. Í 3.-5. sæti urðu Esi- penko, Caruana og Firouzsja með 8 vinninga og Magnús Carlsen varð í 6. sæti með 7½ vinning. Hrein úrslitaskák á Skákþingi Reykjavíkur Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ríkharður Sveinsson Óvænt úrslit Vignir Vatnar sigraði Hjörvar Stein í 7. umferð. Lífskjarasamning- arnir nýju eru sagðir tímamótasamningar eða sáttmáli ríkisins, sveitarfélaga og stétt- arfélaga. Samningur um aukin lífsgæði fyrir alla. Samkomulagið heimilar styttri vinnu- dag/vinnuviku og í samræmi við eðli og sérstöðu starfs um allt að 4 klst. á viku. Þann- ig að vinnuvikan verði 36 klst. á viku eða nálægt 7 klst. á dag. Samning- urinn er háður því að starfsstöðvar hliðri til í störfum sínum án þess að skerða gæði þeirrar þjónustu sem veitt er og án þess að til komi auka- kostnaður. Samningarnir eru sann- arlega tímamótasamningar með verulegum launahækkunum, boði um styttri vinnudag og samkomu- lagi m.a. um 30 daga orlof fyrir alla. Styttri vinnudagur á samkvæmt orðanna hljóðan m.a. að bæta vinnu- staðamenningu, stuðla að bættum lífskjörum og samræmingu fjöl- skyldu- og atvinnulífs. Ég efast ekki eitt augnablik um að styttri vinnudagur mun að lokum verða samfélaginu öllu til góða. Ég hef lengi verið talsmaður þess og tal- að fyrir því lengi að 7 stunda vinnu- dagur væri mjög fjölskylduvæn að- gerð og hef enga trú á öðru en að það sé framkvæmanlegt. Já, ég er talsmaður þess að skapa meiri ró og fleiri gæðastundir í samfélaginu. Ég efast hinsvegar um gæði þess að henda samkomulagi um vinnutíma- styttingu ókláruðu inn á alla vinnu- staði landsins. Þar sem fólk á að sammælast um gæði, aðferðir og framkvæmd án þess að til komi aukakostnaður. Í leikskólum þar sem ég þekki hvað best til er þetta mjög erfitt enda snúast störfin okk- ar um nám ungra barna, uppeldi og umönnun. Störf sem ekki verða lögð til hliðar eða geymd. Það er verulega erfitt að stytta vinnu- dag starfsfólks í leik- skólum án þess að til komi aukakostnaður og er sennilega alls ekki hægt. Já, það hefði ver- ið samningsaðilum til meiri sóma að ná sam- komulagi um að stytta vinnudaginn í 7 klukku- stundir hjá öllum og að klára útfærsluna. Auð- vitað veit ég að vinnu- staðir eru margvíslegir og annað fyrirkomulag gæti verið til bóta á einstaka stað. Ef vinnutímastytting á að leiða til fjöl- skylduvænna samfélags, sem var jú eitt af markmiðum samninganna, þurfum við að hafa börnin okkar inni í þeirri mynd. Ég spyr mig: Hvað með „vinnu- tíma“ barna? Verða börn áfram 8,5-9 klst. á sínum „vinnustað“ meðan vinnutími fullorðinna er að styttast að meðaltali í 7 tíma á dag? Þá kom- um við líka að spurningunni: Hverj- um ber að standa vörð um hagsmuni barna? Já, einmitt, það erum við full- orðna fólkið í lífi barnanna; foreldrar og fjölskyldur, stjórnendur, kenn- arar og starfsfólk skóla, sveitar- stjórnir og að sjálfsögðu ráðamenn þjóðarinnar. Það er von mín að okk- ur takist að láta hagsmuni fullorð- inna og barna fara saman í styttingu vinnudagsins. Það er ekki síst verk- efni okkar nú að vinna vel, samhent og skipulega að því! Eftir Lovísu Hallgrímsdóttur » Í leikskólum snúast störfin um nám ungra barna, uppeldi og umönnun. Störf sem ekki verða lögð til hliðar eða geymd. Lovísa Hallgrímsdóttir Höfundur er stofnandi Regnbogans leikskóla og áhugamaður um velferð barna. lovisa@regnbogi.is Sáttmáli um aukin lífsgæði – líka fyrir börn Haraldur Marinó Helgason fæddist 8. febrúar 1921 á Hrappstöðum í Kræklingahlíð í Eyjafirði. Foreldrar hans voru hjónin Ólafa Kristjánsdóttir, f. 1876, d. 1924, og Helgi Kol- beinsson, f. 1876, d. 1951. Tólf ára gamall hóf Haraldur störf sem sendill í Kjötbúð KEA og síðar sem innanbúðarmaður þar. Í Kjötbúðinni vann hann í 26 ár, en var síðan kaupfélags- stjóri Kaupfélags verkamanna á Akureyri 1960-1981. Haraldur var sölumaður hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar 1981-1986 og sölumaður fyrir Kjarnafæði 1986-2011. Hann starfaði því við sölumennsku í 78 ár. Haraldur hlaut fálkaorðuna 2008 fyrir verslunarstörf. Haraldur var formaður Íþróttafélagsins Þórs 1960- 1980, lengur en nokkur annar, og kjörinn heiðursfélagi og heið- ursformaður félagsins. Hann var gerður að heiðursfélaga ÍSÍ og heiðursfélaga Samfylking- arinnar á Akureyri 2007, fyrst- ur manna. Haraldur var félagi í karlakórnum Geysi í fjölda ára. Eiginkona Haraldar var Ás- laug Jónína Einarsdóttir, f. 1.7. 1921, d. 16.7. 2006, félagsmála- frömuður. Þau eignuðust þrjár dætur. Haraldur lést 20.10. 2012. Merkir Íslendingar Haraldur Marinó Helgason 16 Ræktum og verndum geðheilsu okkar Nýir skammtar daglega á gvitamin.is Líttu á mistök þín sem mikilvæga reynslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.