Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 samband, svo ólík en bæði svo yndisleg. Amma hafði áhuga á útliti sínu og annarra. Hún sagði okkur systrum hispurslaust hvað henni fannst um hárið á okkur, klæða- burð og annað. „Mikið svakalega er ljótt á þér hárið, ætlarðu ekki að láta klippa þig; í hvaða lufsu ert þú, mikið agalega er þetta ljótt.“ Að sama skapi ef henni líkaði eitt- hvað: „Mikið er þetta falleg mussa, farðu úr henni, ég ætla að máta hana. Af hverju keyptirðu ekki svona handa mér? Er þetta ekki til í minni stærð?“ Ég er þakklát fyrir tímann sem við áttum saman á sjúkrahúsinu. Ég sagði þér hversu dáð og elskuð þú ert, ég gat þakkað fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur, við fórum með bæn og ég fann að þú heyrðir í okkur þó þú ekki gætir svarað. Það huggar mig að hugsa að nú séuð þið systur saman og Gutti að stríða ykkur. Ég er sannfærð um að það er gaman hjá ykkur. Ég mun sakna þess að horfa inn í fal- legu brúnu augun þín, að heyra röddina þína og fá ráð hjá þér um hitt og annað. Ég kveð þig nú eins og þú alltaf kvaddir mig: „Vertu sæl og Guð veri með þér.“ Þín Jóhanna. Elsku langamma. Þín verður sárt saknað. Þú varst alltaf jafn skemmtileg, málglöð, og stundum virtist mér þú alltaf vera svöng. Alltaf að biðja „Baldur“ að ná i eitthvað gómsætt handa þér. Að vinna á Kirkjuhvoli er eitt af því besta sem ég hef gert. Að fá að vera til staðar og nálægt þér var alltaf gaman og aldrei var leiðin- legt á vinnustaðnum þegar Sigga Páls var vakandi. Þú varst alltaf að reyna að gifta mig einhverjum af starfsfólkinu og vildir alls ekki að ég færi út til Svíþjóðar aftur, því ég átti að „fá mér fallega ís- lenska konu“ hér á landi, helst einhverja sem vann á Kirkjuhvoli. Eitt atvik er mér sérstaklega minnistætt og kært. Sumarkvöld eitt í vinnunni hringdir þú marg- oft því þig sárvantaði svefntöfluna þína. Hjúkrunarfræðingurinn var upptekin og ég vissi ekki hvar svefntöflurnar þínar voru svo ég sagði þér að bíða í smástund. „Já já væni minn, vektu mig bara þeg- ar þú kemur með töfluna,“ svar- aðir þú. Þegar ég loksins kom með hana varst þú sofandi, en minnugur þess sem þú sagðir vakti ég þig. „Ég er kominn með töfluna,“ sagði ég. „Jæja væni, settu hana á borðið, ég tek hana ef ég þarf þess,“ svaraði þú og lagð- ist aftur og sofnaðir. Búin að bíða allt kvöldið eftir svefntöflu og seg- ist svo ekki þurfa hana loksins þegar hún kemur! Ekkert verður það sama án þín þegar ég mæti í vinnu í sumar. C- gangurinn verður tómlegur því mikilvægur og skemmtilegur kar- akter verður ekki til staðar. Ég elska þig langamma, og mun alltaf gera það. Þinn Ólafur Pálmi. Elsku langamma. Orð geta ekki lýst hversu mikið ég mun sakna þín og þinnar einstöku, skemmtilegu persónu sem heillaði alla. Ég hugsa um fallegu röddina þína og þinn glaða og orkumikla persónuleika, þú þreyttist ekki á að stöðugt spyrja mig hvar ég vildi búa, á Íslandi eða í Svíþjóð? Þú vildir alltaf vera að gefa okkur barnabörnunum ís, nammi og til og með saltkjöt og aðra matrétti þó svo að við værum pakksödd. Ég mun sakna þess að fá ekki lengur það verkefni að fara út og klippa njóla fyrir utan garðinn þinn. Það var mikilvægt fyrir þig, að hafa fínt i garðinum og í kring- um húsið, og þú hugsaðir um þetta þótt þú værir stóran hluta af vikunni á Kirkjuhvoli. Ég mun sakna nærveru þinnar og raddar- innar sem okkur þykir svo vænt um. Ég sakna sumarsins sem ég vann á Kirkjuhvoli, það var gam- an að hitta þig á hverjum degi og fá að hjálpa þér. Ég á minningar sem ég mun bera með mér allt líf- ið og aldrei gleyma. Það var alltaf jafn skemmtilegt að setjast niður og tala við þig um heima og geima, stundum baðstu mig að sækja smá auka lifrarpylsu því þú varst svöng, eða þá bara af því það var svo gott. Stundum baðstu mig að sækja símann þinn, þú ætlaðir að hringja í langafa og biðja hann að sækja þig því þig langaði heim. Það er óhætt að segja, elsku langamma, að þú hafir verið dá- samleg persóna. Persóna sem er svo einstök að við munum aldrei nokkurn tímann gleyma þér. Þú hafðir jákvæð og skemmtileg áhrif á alla fjölskylduna, það var virkilega enginn annar eins og þú amma Sigga. Ég sakna þín ótrú- lega mikið og ég vildi óska að ég gæti verið með fjölskyldunni á þessum erfiða tíma. Ég veit að þú munt fylgja mér hvert sem ég fer og hvað sem ég vel að gera í lífinu. Ég elska þig. Þinn Snorri. Elsku langamma, erfitt er að hugsa til þess að hitta þig ekki aft- ur, spjalla og hlæja með þér en minningarnar eru óteljandi. Ein af mínum fyrstu er þegar ég sat á eldhúsbekknum upp frá og þú varst að útbúa þessa dýrindisapp- elsínu fyrir mig sem var skorin í annan endann og stútfull af syk- urmolum. Þvílík snilld og gott undir tönn þótt mögulega ekki fyrir tönn en það skipti engu. Svo fannst mér svaka sport að draga ritningarvers úr viðarboxi sem þú flettir upp í biblíunni og last fyrir mig. Þú varst einstök, sérstök og án nokkurs filters, þú lést þig allt varða og stóðst aldrei á þínum skoðunum. Þú kenndir mér að vera samkvæm sjálfri mér, kannski líka að láta allt flakka þegar tilefni er til eða jafnvel ekki tilefni til. Ekkert fór fram hjá þér og þú vissir allar fréttir manna fyrst. Al- vitað var að þegar símasnúran var strekkt inn í lokað reykherbergi þá ætti ekki að trufla rétt á með- an. Símtölin áttu það til að standa yfir tímunum saman, enda af mörgu að taka í sveitinni og víðar. Nú er fjör hjá þér, Gutta, Ásdísi og Ólafíu get ég rétt svo ímyndað mér, spilandi og svindlandi hægri vinstri. Enginn er eins og þú varst. Ég kveð þig með broti úr lagi sem minnir mig alltaf á þig og líka eins og þú kvaddir alltaf. Vertu margblessuð og sæl, guð geymi þig og varðveiti, elsku langamma mín. Nú set ég tvistinn út og ég breyti í spaða. Þig ég kveð í kút ef þú segir pass. Og þar næst þristinn út, nú, nú, hvaða hvaða? Enga sorgarsút láttu ekki eins og skass. Þín Tinna Björt. Elsku Sigga langamma, mikið er það sárt að þurfa að kveðja þig. Þótt lengi væri leitað væri erfitt að finna jafn hressa og skemmti- lega manneskju eins og þig. Þú hafðir ofboðslega stórt hjarta og varst svo gífurlega stór karakter sem skipti fólkið í kringum þig miklu máli. Ég ylja mér við allar þær minn- ingar sem ég á af þér í sveitinni en þar er best að vera eins og við vit- um báðar tvær. Að koma inn til ykkar langafa, spila og spjalla voru dýrmætar stundir. Þú vildir alltaf gefa manni eitthvert gotterí og þegar matur var annars vegar þá var allt leyfilegt. Ég held að ég hafi verið um sex ára þegar við Tinna laumuðumst einu sinni í ís- skápinn hjá þér og fengum að sprauta upp í okkur gervirjóma til skiptis, þér þótti það nú ekki leið- inlegt enda fannst þér rjómi svo ofboðslega góður. Það jafnaðist þó ekkert á að koma inn til þín og fá bleikt salat ofan á brauð, eða jafnvel ekki á brauð heldur bara beint upp úr krukkunni. Ég man eftir því þegar þú skelltir oft góðri skeið í lófann og beint upp í munn og hlóst. Þú varst frábær í alla staði, fórst þínar eigin leiðir og hikaðir ekki við að segja fólki til ef þér fannst vera þörf á því. Eins varstu ofboðslega forvitin eins og maður sá þegar að þú varst farin að hringja á milli allra í fjölskyldunni til að komast að því hver væri eiginlega að tala við þann sem þú þurftir að ná í ef það var á tali. Mikið óska ég þess að þú hafir það gott á himnum, takk fyrir allt og takk fyrir að vera þú! Langamma þú varst einstök, langamma þú varst engum lík, langamma ég á eftir að sakna þín. Þín Erna Guðlaug (Erna Gulla). Í dag kveðjum við góða ná- grannakonu, Sigríði Pálsdóttur eða Siggu á Fit eins og hún var alltaf kölluð. Sigga ól nær allan aldur sinn á Fit að undanskildum fáeinum árum sem hún bjó úti í Bjóluhjáleigu þaðan sem Baldur maður hennar er ættaður. Þau fluttu austur á Fit og tóku þar við búi. Ekki síst kom hún heim til að annast móður sína sem var við rúmið í mörg ár sem hún annaðist af miklum dugnaði og ósérhlífni. Einnig voru faðir hennar og upp- eldisbróðir í heimili. Þau hjón voru samtaka í búskapnum og byggðu hann upp. Sigga hafði alltaf metnað fyrir sínu búi, ef henni fannst eitthvað fara úr- skeiðis utandyra skyldi laga það strax og það þýddi engan duðru- gang eins og hún komst stundum að orði. Það var mikið verk að vera með stórt bú og sjá líka um þrjá aldna einstaklinga þegar ell- in fór að segja til sín hjá þeim. En allt fórst henni þetta vel úr hendi. Oft voru miklar gestakomur á Fit og allir fengu kaffi og með því. Sigga gat oft verið dálítið frökk í tali og því var oft kátt yfir um- ræðunum í eldhúsinu. Elsti sonur þeirra og tengdadóttir komu inn í búið og áfram var byggt upp af myndarskap, og síðar tóku þau alfarið við búinu. Þótt Sigga væri hætt að búa fylgdist hún vel með öllu sem sneri að búskapnum. Hún ferðaðist ekki mikið en þótti gaman að fara um sveitina sem hún gerði oft og fylgdist vel með hvað væri að gerast á bæjunum og gladdist yfir allri uppbyggingu í sveitinni. Er aldurinn færðist yf- ir þurfti hún að fara á dvalar- heimilið Kirkjuhvol en Baldur var áfram heima. Baldur sótti hana hverja helgi svo hún gæti verið heima nokkra daga. Henni leið vel á Kirkjuhvoli en hugurinn var alltaf heima við og spáði hún allt- af hvað væri að gerast í búskapn- um. Nú er sonardóttir og nafna hennar og sambýlismaður tekin við búskapnum og hafa þau byggt nýtt fjós þannig að það verður áfram vel búið á Fit og yfir því gladdist hún. Alltaf hefur verið töluverður samgangur á milli bæjanna. Ég var ekki gamall þeg- ar ég fór að fara á milli og ávallt hefur verið gott að koma á Fit í gegnum árin. Fjölskyldan á Fitjarmýri þakk- ar Siggu fyrir samfylgdina og vin- áttuna í gegnum árin og vottum Baldri, bræðrunum og fjölskyldu þeirra innilega samúð okkar. Baldur Björnsson. Í dag kveðjum við Siggu á Fit, eina litríkustu og skemmtilegustu konu sem ég hef kynnst. Hún var ein af bestu vinkonum mömmu minnar, þ.a.l. fékk ég að kynnast henni á barnsárum mínum þegar ég fór í heimsóknir til hennar með mömmu. Ég man vel eftir mömmu hennar, henni Jóu sem var rúmliggjandi í mörg ár og sinnti Sigga henni af einstakri al- úð og kærleika. Þær mæðgur voru ótrúlega léttar og hressar í lund þrátt fyrir það sem lífið hafði rétt þeim. Sigga átti líka dúkku sem ég var heilluð af og fékk ég bæði að skoða hana og svo sagði Sigga mér ýmislegt um hana. Sigga var mikill töffari hér á árum áður þegar hún reykti filterslaus- ar Camel. En hún var ekki minna töff þegar hún hætti að reykja á fullorðinsárum, ég veit ekki hvort hún hafi notað eitthvað af nikótín- lyfjum sér til hjálpar. Seinna þeg- ar ég varð fullorðin og vinkonurn- ar enn eldri fórum við í skemmtiferðir þar sem allt var látið flakka eins og Sigga gerði svo skemmtilega, stundum hélt mamma að þetta væri of mikið fyrir litlu dótturina og sagði við Siggu „þetta er of mikið fyrir hana BB“ en ég skemmti mér hið besta og gullkornin hrundu. Alltaf þegar við Sigga hittumst eftir að mamma dó rifjuðum við upp minningar um hana, þá hlýnaði mér alltaf um hjartarætur, því hún talaði svo fallega um hana mömmu. Til að fleiri fengju að njóta skemmtilegra stunda með Siggu fékk ég stundum vinkonur mínar til að koma með mér til hennar í kaffi. Þá lék hún á als oddi, allir fengu kökur og kaffi. Hún hélt uppi hressandi og upp- lýsandi samræðum meira en nokkur hafði upplifað í venjulegu kaffiboði. Eftir að hún flutti á Kirkjuhvol var hún alltaf glöð þegar við hittumst en það var þó minna um heimsóknir á síðasta ári en ég hefði viljað. Ég kveð í dag einstaka komu sem gerði lífið hressilegra og litríkara. Óska henni góðrar ferðar í ný ævintýri. Ég býst við að þær mamma hittist og nái að ræða það sem á dagana hafi drifið síðan þær hittust síð- ast. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég eiginmanni hennar Baldri og sonum, Óskari, Jóa, Óla og fjölskyldum þeirra. Guðbjörg B. Guðmunds- dóttir frá Núpi. HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS HANNESDÓTTIR, Sóltúni 7, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 1. febrúar. Útför hennar fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða eingöngu nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir útförina. Blóm og kransar afþakkast vinsamlega, en þeim sem vildu minnast Ásdísar er bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Gunnar I. Waage Benedikt G. Waage Ólöf Björnsdóttir Davíð G. Waage Carolina Castillo Alexander, Ísabella og Emma Björk Heittelskuð eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HAFDÍS ENGILBERTSDÓTTIR, Hólmvaði 62, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Baldvin H. Steindórsson Tinna Björk Baldvinsdóttir Þórður Birgir Bogason Ívar Baldvinsson Lísa Lind Björnsdóttir Fannar Baldvinsson Snædís Sif Benediktsdóttir og barnabörn Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI SIGURÐUR ÁSGRÍMSSON, Ásvegi 5, Dalvík, lést á heimili sínu mánudaginn 25. janúar. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 13. febrúar klukkan 13.30. Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins viðstaddir ættingjar og nánustu vinir. Streymi verður aðgengilegt á Facebook, Jarðarfarir í Dalvíkurkirkju. Íris Dagbjört Helgadóttir Jens Viborg Óskarsson Aðalbjörg Gréta Helgadóttir Snæbjörn V. Ólason Árni Geir Helgason Guðrún Ásgeirsdóttir afabörn og langafabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐJÓN GUÐMUNDSSON frá Arkarlæk, lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi þriðjudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu munu einungis nánustu aðstandendur verða viðstaddir. Útförinni verður streymt frá vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Börn, tengdabörn barnabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.