Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 06.02.2021, Síða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 50 ára Sólveig er Reyk- víkingur, ólst upp í Sundunum en býr á Bú- staðavegi. Hún er bú- fræðingur frá Hólum, hjúkrunarfræðingur frá HA og með diplóma í geðhjúkrun frá HÍ. Hún er einnig dáleiðslutæknir og EMDR- meðferðarfræðingur. Sólveig vinnur í geð- heilsuteymi austur á vegum Heilsugæsl- unnar. Maki: Hjörtur Líndal, f. 1965, vélsmiður. Börn: Kári Liljendal Hólmgeirsson, f. 1995, og Karl Liljendal Hólmgeirsson, f. 1997. Foreldrar: Sigrún Magnúsdóttir, f. 1944, fv. umhverfisráðherra, bús. í Reykjavík, og Kári Einarsson, f. 1938, d. 2016, raf- magnsverkfræðingur. Sólveig Klara Káradóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú gleymir því stundum hversu frumleg/ur þú ert. Gerðu hvað þú getur til að vekja athygli yfirmanna þinna á verkum þínum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur gert of miklar kröfur til þín og annarra. Það að hugsa jákvætt og þakka fyr- ir það sem maður hefur getur gert gæfu- muninn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Fjármálin eru þér ofarlega í huga og þú kemur auga á nýja möguleika til að vinna þér inn meiri pening. Ekki óttast að tala um hlutina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það getur oft verið erfiðara að ákveða hlutina en framkvæma þá. Ekki leggja út í eitthvað þras, það er einfaldlega ekki þess virði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Sýndu þolinmæði gagnvart börnum í dag. Fáðu einhvern góðan vin til að slást í för með þér út í sveit. Góður svefn er stundum allt sem maður þarf. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú bíður í ofvæni eftir því að þér verði hrósað fyrir góða frammistöðu. Þú kaupir eitthvað í dag sem gleður þig lengi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er rétti tíminn til þess að byrja að leita leiða til þess að koma einhvers konar andlegri slökun að í þinni daglegu rútínu. Ekki fresta því lengur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Lánið leikur við þig um þessar mundir. Hugleiddu hvað þú hefur fram að færa til að aðstoða aðra. Frestunaráráttan stingur upp kollinum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Fólk í kringum þig er áhyggju- fullt, jafnvel gagnrýnið. Ekki velta þér upp úr áliti annarra, það er gaman þegar fólk syndir á móti straumnum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Gerðu ekki meira úr hlutunum en nauðsynlegt er og veltu þér ekki upp úr smá- atriðunum. Þér fer fram í eldhúsinu, haltu áfram að gera tilraunir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú sérð leið til þess að þú komist af með minna. Gamall vinur þarfnast hjálpar og þú hikar ekki við bjóða fram aðstoð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ágætt að setja traust sitt á aðra, en umfram allt átt þú að treysta á sjálfa/n þig. Mundu að þú ert það sem þú borðar. og var varaformaður síðara árið, en árið 2002 var hann gerður að heiðursfélaga. Hann var meðdóm- ari í héraðsdómsmálum og vara- dómari í Hæstarétti. Hann var í stjórn Stangaveiðifélags Hafnar- fjarðar um árabil og formaður þess Hauki Valdimarssyni. Ég hætti lögmennsku árið 2003, þá 77 ára gamall.“ Jón sat m.a. í Kjaradómi og kjaranefnd og var formaður Kjara- dóms 1988-1993. Hann sat í stjórn Lögmannafélags Íslands 1975-1977 J ón Finnsson fæddist 7. febrúar 1926 í húsinu Hóli á Ísafirði og verður því 95 ára á morgun. Hann ólst upp á Ísafirði til 15 ára aldurs þegar hann fluttist til Akureyrar til að taka gagn- fræðipróf en það þurfti til að kom- ast inn í menntaskólann á Akur- eyri. Hann var tvö sumur í sveit hjá Jóni Fjalldal á Melgarðseyri við Ísafjarðardjúp, tvö ár var hann kallari á síldarplaninu á Siglufirði og 15 ára fór hann á sjó hjá Ólafi Júlíussyni skipstjóra á Sæbirni sem var fyrsti vélbátur Samvinnu- félags Ísfirðinga. Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1946 og cand.juris. frá Háskóla Íslands 1951. Hann hlaut þýskan náms- styrk 1957 og dvaldi í ár við nám í sjórétti og flugrétti við háskólann í Hamborg og við háskólann í Frankfurt. Jón hóf störf hjá bæjarfóg- etanum í Hafnarfirði og sýslu- manninum í Gullbringu- og Kjós- arsýslu 1951 og gegndi fyrst stöðu lögreglustjóra á Keflavíkurvelli frá ágúst 1951 til loka janúar 1954 í umboði sýslumanns, eða þar til Keflavíkurflugvöllur var gerður að sérstöku lögsagnarumdæmi. Þá flutti hann til Hafnarfjarðar og var fulltrúi þar til hann hóf lög- mennsku 1.3. 1966, fyrir utan námsleyfi í Þýskalandi í eitt ár. „Ég hafði nú frekar hugsað mér starfsferil sem embættismaður en lögmaður eins og 14 ára starfstími minn hjá embættinu í Hafnarfirði ber með sér. Ég varð hins vegar mjög ósáttur við skipun í embætti bæjarfógetans í Hafnarfirði og sýslumanns Gullbringu- og Kjós- arsýslu í nóvember 1965 þegar gengið var fram hjá Birni Svein- björnssyni sem hafði verið settur sýslumaður í níu ár. Ég gagnrýndi þennan gerning opinberlega með gildum rökum að mér fannst og sagði upp starfi. Af þessu varð mikið pólitískt uppistand, deilur á Alþingi og í blöðunum. Í kjölfarið stofnaði ég lögmannsstofu ásamt Birni, Skúla J. Pálmasyni og Sveini 1970-1974, og formaður Lands- sambands stangaveiðifélaga 1970- 1973. „Við hjónin og Friðrik Guð- mundsson, yfirtollvörður á Kefla- víkurflugvelli, byggðum tvíbýlishús á Sunnuveginum í Hafnarfirði ásamt eiginkonu hans, Elínu Krist- bergsdóttur, og fluttum þar inn ár- ið 1956. Þar áttu fjölskyldur okkar góð ár saman. Við Friðrik höfðum báðir áhuga á veiði með stöng og vorum miklir veiðifélagar. Einkum eru minnisstæðar veiðiferðir í Haukadalsá og Hlíðarvatn sem Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar leigði um árabil og sérstaklega vegna þess að þá voru báðar fjöl- skyldurnar með og oft glatt á hjalla. Ég hef verið við góða heilsu og synt reglulega og verið duglegur að ganga en nú er aldurinn farinn að segja til sín og með því breytist margt. Ég hef alltaf lesið mikið og fylgst vel með fréttum. Við Krist- björg ferðuðumst mikið með dóttur okkar um landið og til útlanda og eftir að barnabörnin komu til sög- unnar fóru þau og tengdasonur okkar með í ferðirnar. Ég fór á Vestfirðina fyrir fimm árum með tengdasyni mínum og þræddum við alla firðina meira og minna. Mér fannst mikið til vegamannvirkjanna koma, því þegar ég fluttist til Akureyrar 15 ára gamall voru eng- ir vegir þar á milli. Það þurfti að fara sjóleiðina ef fólk þurfti að komast á milli landshluta. Nú keyrum við um á rafmagnsbílum eins og ekkert sé. Þegar ég var að alast upp þá var ekki rafmagn í Neðstakaupstað á Ísafirði þar sem ég ólst upp og ekki var ísskápur eða þvottavél. Pabbi var alltaf á þingi fyrir sunnan og ráðskonur sáu um heim- ilið, en mamma dó þegar ég var níu ára. Það hlýtur að hafa verið mikil vinna hjá þeim að sjá um stórt heimili en við systkinin vor- um sex. Mér er svo minnisstætt að jólatréð hjá okkur var með lifandi kertum og óskiljanlegt að ekki hafi kviknað í út frá því.“ Jón mun verja afmælisdeginum á morgun Jón Finnsson hæstaréttarlögmaður – 95 ára Fjölskyldan Jón ásamt dóttur sinni, tengdasyni, barnabörnum og barna- barnabörnum á afmæli Ylfu Hrannar 31. janúar síðastliðinn. Hætti lögmennskunni 77 ára Skírn Jón heldur á Jóni Flóka. Hjónin Á ferðalagi í París 1957. Í dag, 6. febrúar 2021, fagna 50 ára brúðkaupsafmæli Vilborg Ingólfs- dóttir hjúkrunarfræðingur og lýð- heilsufræðingur og Leifur Bárðarson læknir. Árnað heilla Gullbrúðkaup 40 ára Hugi ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur og á Sauðárkróki en býr í Hafnarfirði. Hann er stúdent frá Fjöl- brautaskóla Norður- lands vestra og er sjálfstætt starfandi framleiðandi. Maki: Ástrós Signýjardóttir, f. 1986, MA í alþjóðasamskiptum og framkvæmda- stjóri hjá Norræna félaginu. Börn: Auðunn Sölvi, f. 2011, Hanna Sól- ey, f. 2015, Halldór Smári, f. 2015, og Unnur Signý, f. 2020. Foreldrar: Halldór Halldórsson, f. 1961, dómstjóri Norðurlands vestra, búsettur á Sauðárkróki, og Ólöf Margrét Þorsteins- dóttir, f. 1960, skáld, búsett í Reykjavík. Hugi Halldórsson Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.