Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 41

Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Ljóst er að margir sem tengj- ast íþróttahreyfingunni urðu fyr- ir vonbrigðum í gær þegar nýjar tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum voru kynntar. Iðkendur fá aðeins meira rými en áður en áhorf- endur mega ekki mæta á íþrótta- viðburði til 3. mars, hið minnsta. Staðan verður því áfram sú sama og frá 13. janúar þegar keppni var leyfð á nýjan leik. Ólafur Þór Jónsson skrifaði í gær í pistli á netmiðlinum Karf- an.is: „Það hljóta að vera ákveðin vonbrigði fyrir félögin að geta ekki fengið inn tekjur af miða- sölu í fyrirsjáanlegri framtíð. Nú- verandi tilslakanir gilda til 3. mars. Á sama tíma og áhorf- endabannið stendur er hins veg- ar aukið við fjölda í tilslökunum í leikhúsum, líkamsræktum, búð- um, söfnum og fleiri stöðum.“ Ómar Ingi Guðmundsson knattspyrnuþjálfari sagði á Twit- ter í gær: „Ef ég skutla barninu mínu á ÍR-völlinn að keppa má ég ekki standa þar utandyra að horfa. Betra að ég fari í bíó í næsta húsi á meðan leikurinn er og sitji innandyra og í lengri tíma meðal fjölda sem væri áhorf- endamet í 5. flokki.“ Miðað við litla útbreiðslu veir- unnar í samfélaginu, og aðrar til- slakanir, væri eflaust hægur vandi að hleypa 50 til 100 grímu- klæddum áhorfendum á leiki, þar sem aðstæður bjóða upp á slíkt. Allt misræmi, eins og það sem nefnt er hér að ofan veldur ávallt deilum og pirringi. En nú er ekki annað í boði en að halda niðri í sér í andanum í þrjár vikur enn og skoða stöðuna að þeim liðnum. Vetrargrein- arnar hagnast mest á því að fá áhorfendur í apríl og maí. Betra að fá ekki bakslag fyrir þann tíma. Eftir það verður ástandið vonandi farið að nálgast það að geta kallast eðlilegt á ný. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Danski knattspyrnumaðurinn Martin Rauschenberg verður áfram í röðum HK en í gær tilkynnti félag- ið að lánssamningur við Stjörnuna varðandi hann hefði verið fram- lengdur út komandi keppnis- tímabil. Rauschenberg er 29 ára gamall varnarmaður. Hann varð Ís- landsmeistari með Stjörnunni árið 2014, sem var annað ár hans með Garðabæjarliðinu. Samtals hefur Rauschenberg leikið 61 leik í úr- valsdeildinni hér á landi og skorað tvö mörk. Hann lék átta leiki með HK síðari hluta síðasta sumars. Daninn áfram í Kópavogi Ljósmynd/HK Danmörk Martin Rauschenberg verður áfram hjá HK-ingum. Garðbæingurinn Jörundur Áki Sveinsson er tekinn við þjálfun U17 ára landsliðs karla í knattspyrnu samkvæmt frétt á vef KSÍ. Segja má að keðjuverkun hafi farið í gang innan KSÍ þegar Arnar Þór Við- arsson tók við A-landsliði karla. Hætti hann þá sem þjálfari U21 árs liðs karla. Við starfi hans þar tók Davíð Snorri Jónsson sem hætti þá sem þjálfari U17 ára liðsins. Jör- undur Áki mun áfram þjálfa sömu aldursflokka hjá kvennalandslið- unum og með honum verður Þórð- ur Þórðarson. Jörundur Áki þjálfar drengina Morgunblaðið/Eggert Breytingar Jörundur Áki Sveinsson er tekinn við U17 ára liði karla. NFL Gunnar Valgeirsson Los Angeles Eftir keppnistímabil sem margir íþróttafréttamenn og leikmenn héldu að myndi aldrei ganga upp í Covid-faraldrinum, leika loks Tampa Bay Buccaneers og núver- andi meistarar Kansas City Chiefs í Ofurskálarleik NFL-ruðningsdeild- arinnar á morgun, sunnudag, í Tampaborg í Flórída. Rétt eins og í mörgum öðrum at- vinnuíþróttadeildum, sýndu for- ráðamenn og leikmennirnir í NFL að hægt er að halda veirunni í skefj- um með góðum reglum og skimun leikmanna. Ákvörðunin um staðsetningu leiksins ár hvert er tekin mörg ár fram í tímann, rétt eins og Ólympíu- leikarnir, en þetta er í fyrsta sinn sem lið leikur úrslitaleikinn á heima- velli sínum. Sjóræningjunum vex ásmegin í hverjum leik Í Ameríkudeildinni var Kansas City talið sigurstranglegast fyrir keppnistímabilið og liðið stóð undir þeim væntingum allt leiktímabilið – vann t.d. úrslitaleik Ameríkudeildar gegn Buffalo Bills þrátt fyrir meiðsl lykilleikmanna. Í Landsdeildinni var Green Bay Packers talið sig- urstranglegast lengi vel, en Tampa Bay jók ásmegin eftir því sem á leik- tímabilið leið og Buccaneers unnu frækinn sigur í úrslitaleik Lands- deildarinnar í Green Bay eftir að þjálfari heimaliðsins gerði hrikaleg mistök á síðustu mínútum leiksins með því að neita að gefa leikstjórn- anda Packers, Aaron Rodgers, tæki- færi á að jafna leikinn. Rodgers mun eflaust verða kosinn leikmaður árs- ins í deildinni samt sem áður, sem hefur mikið að gera með þá gagn- rýni sem þjálfarinn fékk eftir leik- inn. Hann hefst klukkan 23.40 að ís- lenskum tíma annað kvöld. Leikstjórnendurnir í sviðsljósinu að venju Að venju ganga pælingar frétta- fólks fyrir leikinn mest út á leik- stjórnendur liðanna, en staða leik- stjórnanda í NFL-deildinni er óvenjuleg í liðsíþrótt, þar sem þeir leikmenn hafa meiri áhrif á úrslit leikjanna en nokkur önnur staða í öðrum liðsíþróttum. Leikstjórnend- urnir eru nokkurs konar framleng- ing á þjálfurum liðanna á vellinum og „lesa“ uppsetningu varnarliðsins í hvert skipti sem boltinn er settur í leik. Þar að auki er það þeirra hlut- verk að koma tuðrunni á rétta leik- menn, sem þýðir að þeir verða oft að kasta henni í gegnum lítinn „glugga“ á milli varnarleikmanna sem eru ákafir að koma hendi inn í send- inguna. Án toppleikmanna í þessari stöðu eiga lið venjulega lítið tækifæri til árangurs í íþróttinni. Mahomes og Brady Í ár er umfjöllunin í fjölmiðlum um leikstjórnendurna tvo enn meiri en venjulega, því þeir Patrick Maho- mes hjá Chiefs og Tom Brady hjá Buccaneers gætu ekki verið ólíkari. Brady er að reyna að vinna sinn sjö- unda meistaratitil á sínu fertugasta og fjórða aldursári, og Mahomes – Íslandsvinurinn sjálfur – er að reyna að byggja upp orðstír sinn með öðr- um meistaratitli sínum snemma á ferlinum. Leikstíll þeirra er ólíkur, en Mahomes er gríðalega lunkinn í að koma sér út úr erfiðum stöðum og samt koma boltanum á rétta leik- menn upp völlinn. Brady reiðir sig hins vegar alfarið á frábærar send- ingar sínar, en ef sóknarlínan bregst, getur hann lent í erfiðleikum í leikjum. Brady er talinn vera besti leik- stjórnandinn í sögu deildarinnar – sem enginn einu sinni reynir að and- mæla – og hann er að endurskrifa sögubækur deildarinnar með því að vera toppleikmaður í deildinni 43 ára gamall. Hann hefur fjórtán sinnum komið liði sínu í undanúrslitaleikinn og er nú í tíunda skipti leikstjórnandi liðs í Ofurskálarleiknum. Hlutur sem aldrei áður var talinn mögulegur fyrir leikstjórnanda liðs í deild þar sem launaþak liðanna og hreyfingar leikmanna með lausa samninga gera liðum erfitt fyrir að verja í barátt- unni um sæti í úrslitaleiknum ár hvert. Afrek hans þetta keppnistímabil gæti verið hans stærsta á ferlinum þar sem hann kaus að yfirgefa New England Patriots – og sigurmenn- inguna þar – og fara til Tampa Bay sem ekki hefur svo mikið sem þefað af úrslitakeppninni í fjórtán ár. Á þessu keppnistímabili braut hann bæði liðsmet leikstjórnenda hjá Bucs í köstum í endamark og fjölda metra í sendingum sínum, og með því umturnaði hann sóknarlið- inu sem hafði klúðrað ótöldum leikj- um undanfarin ár með mistökum. Brady lét samherja sína vita á fyrstu æfingu sinni með liðinu að slíkir hlutir yrðu ekki látnir viðgangast á meðan hann væri með stjórnartaum- ana í sókninni. Andstæðingur hans hjá Chiefs, Patrick Mahomes (25 ára), er hins- vegar enginn aukvisi. Hann átti skil- ið að vera kosinn leikmaður ársins í deildinni á síðasta keppnistímabili, en lét sér nægja meistaratitilinn. Mahomes er alger galdramaður í leikstjórnandastöðunni og lék lyk- ilhlutverk í úrslitaleik Am- eríkudeildarinnar fyrir tveimur vik- um gegn Buffalo, þrátt fyrir að vera á annarri löppinni (fótameiðsl) og að jafna sig eftir rothögg vikuna þar áð- ur. Flestir sjá fyrir jafnan leik Það er gífurlega erfitt fyrir meist- araliðin í NFL-deildinni að verja tit- ilinn og engu liði hefur tekist það síðan New England Patriots vann 2003-04. Flestir sérfræðingar spá jöfnum leik með hárri stigaskorun (um sex- tíu stig samtals), en frá minni hendi séð hafa meistarar Chiefs yfirhönd- ina í sókninni. Aðalþjálfari Chiefs, Andy Reid, og sóknarþjálfarinn Eric Bieniemy, eru kænskir í að setja upp sóknarleikinn fyrir Mahomes og það mun sennilega gera gæfumuninn. Þetta er leikur þar sem við gætum annaðhvort séð Mahomes taka yfir sem toppleikmaður deildarinnar af Brady eða sá síðarnefndi bætir enn einum titlinum við og setti þar með met sem erfitt gæti verið að slá fyrir komandi kynslóðir NFL-leikstjórn- enda. Chiefs 34, Buccaneers 31 er spáin. gval@mbl.is Gamli riffillinn Brady er enn þá toppleikmaður  Mahomes samt talinn líklegur til að verja meistaratitilinn annað kvöld AFP Sigurstranglegri Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs, þykir líklegri til sigurs gegn Tom Brady og hans mönnum í Tampa Bay Buccaneers annað kvöld, enda þótt Brady verði á heimavelli í Flórída. Grill 66 deild karla Kría – Víkingur..................................... 18:27 Valur U – Selfoss U.............................. 35:30 Fram U – Vængir Júpíters.................. 21:24 Staðan: Víkingur 8 7 0 1 211:184 14 Valur U 8 6 0 2 239:226 12 Fjölnir 7 4 2 1 199:183 10 HK 7 5 0 2 200:153 10 Kría 8 4 1 3 212:215 9 Haukar U 7 3 0 4 172:177 6 Selfoss U 8 2 1 5 223:237 5 Vængir Júpíters 8 2 0 6 165:210 4 Hörður 5 2 0 3 153:158 4 Fram U 8 0 0 8 195:226 0 Þýskaland B-deild: Gummersbach – Aue........................... 28:25  Elliði Snær Viðarsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach. Guðjón Valur Sigurðs- son þjálfar liðið.  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1 mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 10 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue.  Efstu lið: Hamburg 28, Gummersbach 25, N-Lübbecke 20, Dormagen 17, Lübeck- Schwartau 16, Elbflorenz 16, Dessau 15. Svíþjóð Lugi – Kristianstad ............................. 33:29  Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð- mundsson 3.  Efstu lið: Ystad IF 35, Malmö 33, Alings- ås 29, Sävehof 28, Lugi 27, Skövde 25, Kristianstad 22, Hallby 20. Sviss Kadetten – Zürich ............................... 32:29  Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. Frakkland B-deild: Nice – Saran......................................... 34:29  Grétar Ari Guðjónsson varði 9 skot í marki Nice.  

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.