Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 SÉRBLAÐ SMARTLANDS BLAÐIÐ Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fjallað verður um tískuna 2021 í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, heilsu, dekur o.fl. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég var að velta fyrir mér af hverju væri svona hljótt um bisk- upsfrúrnar í Skálholti. Við körp- uðum um þetta, ég og Karl Sigur- björnsson. Ég sagði að engin kvennamenning hefði verið fyrir sunnan og við vissum ekki einu sinni nöfnin þeirra. Karl sam- þykkti þetta ekki og færði mér svo lista yfir þær með ártölum. Það ýtti mér af stað,“ segir Hildur Hákonardóttir, en nýlega kom út seinna bindi hennar af bókunum Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? Þar rekur hún sögu biskupsmatróna Skálholts- staðar í lúterskum sið og nýtir samtalsformið til að gæða sögu þessara löngu gengnu fyrirkvenna lífi. „Ég vildi kynnast þeim og byrj- aði að vinna út frá listasögunni og útsaumsmenningunni sem blómstraði fyrir norðan á tímum kaþólskunnar. Ég hafði áður borið saman nöfnurnar Ragnheiði Brynjólfsdóttur í Skálholti og Ragnheiði Jónsdóttur á Hólum, sem við þekkjum af 5.000 króna seðlinum en hún varð tvisvar bisk- upsfrú á Hólum. Þær voru nokk- urn veginn jafnöldrur og báðar af sömu höfðingjastéttunum en örlög þeirra gjörólík.“ Veldið hélst í gegnum konur Hildur segir að upphaflega hafi bókin átt að heita Neðanmáls- greinarnar. „Þegar ég fletti upp á biskup- unum, stóð kannski neðanmáls hverri þeir voru kvæntir, en stundum ekki. Ég ætlaði því upp- haflega að koma þessum konum á netið, gera um þær Wikipediu- texta, en til þess þarf að vísa í heimildir, sem ekki voru fyrir hendi svo ég fór að grúska. Þá komst ég að því að þetta voru spennandi konur, sem áttu sér margbreytilegt og áhugavert líf en einnig voru ákveðin líkindi á milli þeirra og smám saman rann upp fyrir mér að eftir 1600 eru þær nær allar náfrænkur. Því má segja að biskupsembættið erfist í kven- legg, ekki frá móður til dóttur, heldur frá móðursystur eða ömmusystur og hélst þannig í ákveðnum ættboga með þeirri þekkingu, völdum og fé sem fylgdi. Ættarleggurinn leiðir til Björns og Ara sem voru háls- höggnir í Skálholti. Það er Helga Jónsdóttir, sem kemur að norðan 1591, sem setur ættarveldi Jóns Arasonar langafa síns á biskups- stól fyrir sunnan, og það helst gegnum konurnar. Helga þótti höfðingskvinna og var þekkt af röggsemd og sagt að aldrei myndi hennar líki koma í Skálholt. Hún hafði búsforráð þar í nær hálfa öld.“ Að skandalísera var ekki til Hildur segir að konurnar hafi, sökum frændsemi sinnar þekkt vel til starfsins og sögu embættisins, og þeim verið það sameiginlegt að skipta sér ekki af embættis- gerðum né heldur sýndu þær áberandi trúrækni. „Þó fann ég dæmi um biskups- frú sem fékk biskup til að breyta hegðun sinni. Það var út af skóla- pilti, en hún vissi að biskup hafði sýnt honum ósanngirni. Áhrifum frúnna í samfélaginu gætir líklega helst í því að þær sýna fag- mennsku og jafnaðargeð. Þær misstu sig aldrei eða sóttust eftir sviðsljósinu heldur. Að skand- alísera var ekki til hjá þeim, og mér finnst þær hafi verið fremur góðlyndar og mennskar. Til eru sögur um að þær hafi sýnt aðhald þegar kom að búrekstrinum sem var á þeirra könnu, en hart var sótt að biskupsstólunum af bein- ingafólki því örbirgð í landinu var skelfileg og skipulögð fátækra- hjálp engin. Mér finnst skipta máli að við þekkjum þessar konur og það má spyrja sig hvort þær, með fagmennsku sinni, hafi sett verðugt fordæmi fyrir nútímakon- ur sem nú eru að taka við emb- ættum og orðnar ráðandi í sam- félaginu.“ Drjúgum drukkið í Skálholti Þegar Hildur er spurð að því hvort hún hafi komist að ein- hverjum leyndarmálum segir hún það helst að Margrét Halldórs- dóttir, kona Brynjólfs Sveinssonar biskups, hafi mögulega átt við áfengisvanda að stríða. „Margir drukku drjúgum í Skál- holti, enda var þar bruggað öl á öldum áður og sagt að Þorlákur helgi drykki helst ekki vatn með- an hann átti vín. Ég fann kjafta- sögu um áfengisvanda Margrétar sem kom frá Jóni Grunnvíkingi í Kaupmannahöfn. Þessi saga, djúpt falin í skrifum hans, útskýrir margt í sögu Margrétar. Ég skildi líf hennar betur eftir það. Einnig kemur fram hjá Jóni að þegar Brynjólfur verður sem æfastur út í Ragnheiði dóttur sína og gengur hvað harðast fram, þá er Margrét sú eina sem þorir að standa á móti honum. Við þurfum að horfa á heildarmyndina, Margrét hefur verið buguð af sorg, hún missir fimm börn í fæðingu, og þau tvö sem komast upp, Ragnheiður og Halldór, látast bæði snemma. Þær áttu allar sitt líf og eru mjög mannlegar biskupsfrúrnar mínar, en það var langt frá því að ævi þeirra væri slétt og felld.“ Í fangelsi í 22 ár í Bláturni Hildur rekur líka í bók sinni sögu þriggja kvenna, sem ekki eru biskupsfrúr. „Fyrst er það Guðrún Gott- skálksdóttir sem verður barnshaf- andi eftir kirkjuprestinn en hún var þá heitbundin Gissuri, fyrsta lúterska biskupnum okkar. Það slitnar upp úr trúlofuninni en þrí- burarnir fæðast andvana í Bræðratungu. Önnur er Helga í Bræðratungu, náfrænka allra hinna en hún giftist sýslumanni. Mér fannst þurfa að hafa frú úr hinum veraldlega heimi til saman- burðar. Helga var í æsku kát, uppreisnargjörn og frjálsleg í fasi enda þurfti hún ekki að beygja sig undir óskrifaðan aga kirkjunnar. Hún talaði fyrir réttlæti, fyrirleit galdraofsóknir og allt ofstæki. Þó finnast í eftirmælum hennar dæmi um meiri trúrækni en við vitum af meðal hinna. Sú þriðja er Leonóra Kristín Ulfeldt, dóttir Kristjáns IV. Danakonungs. Hún var lokuð inni í Bláturni í 22 ár, á æsku- heimili sínu konungshöllinni, því eiginmaður hennar var ákærður fyrir föðurlandssvik. Hún var mjög vel menntuð og skrifaði nið- ur hvað hún gerði til að fylla tím- ann í fangavistinni. Þannig veitir hún okkur innsýn í hvernig hátt- settar konur hugsuðu, hvað þær gerðu og hvernig þær unnu með sína menntun. Nær allar biskups- konurnar eru vel menntaðar yfir- stéttarkonur, en með hjálp þess- ara þriggja fannst mér sögusviðið opnast og tengjast út fyrir land- steinana. Skyldu þær hafa borið sig saman við kónga- og aðalsfólk síns tíma? Eftir ævintýrið með Guðrúnu biður Gissur um hönd Katrínar Hannesdóttur fyrrum hirðstjóra og þau eru gefin saman um haustið þegar Hinrik VIII. tekur sér fyrir eiginkonu þriðju Katrínuna og hann er þá þegar búinn að hálshöggva tvær og þar af eina Katrínu. Mig langaði að fá bergmál utanlands frá til að stækka myndina.“ Valgerður hefði verið kölluð ofurkona nú á tímum Í bókunum kemur Hildur tölu- vert inn á klæðnað kvennanna og höfuðbúnað. „Við erum að fjalla um tíma Loðvíks XIV, sem setur tískulín- una fyrir alla Evrópu. Ég leitaði að einhverjum merkjum um að frúrnar mínar hafi vitað um og komið fram með nýungar en finn fátt fyrr en kemur að Valgerði. Hún verður fyrst hefðarkvenn- anna til að leggja niður faldbún- inginn og taka upp frjálslegri klæðnað. Þær tvær sem eru sterk- astar, hún og Helga, eru báðar uppi á tímum þegar eitthvað er að gerast í samfélaginu. Prentverkið breytir miklu, hannyrðum kvenn- anna líka, meðan Helga verður þessi mikla ættmóðir í Skálholti. Valgerður reisir staðinn við og gerir aftur að stórbýli því hún lærir að nýta sér hina nýju tækni sem póstsamgöngurnar eru og skrifar rúmlega fjögur hundruð bréf, meðal annars til kóngsins í Kaupmannahöfn. Hún kaupir jarð- ir og hefði verið kölluð ofurkona á okkar tímum,“ segir Hildur og bætir við að henni finnist þær all- ar skemmtilegar, biskupsfrúrnar. „Þær sóttu að mér á undarlegan máta og það var verulega gaman að spjalla við þær.“ Ævi þeirra var ekki slétt og felld  „Þær sóttu að mér á undarlegan máta og það var verulega gaman að spjalla við þær,“ segir Hildur Hákonardóttir  Skoðar sögu biskupsmatróna  Segir skipta máli að við þekkjum þessar konur Morgunblaðið/Árni Sæberg Hildur „Þegar Brynjólfur verður sem æfastur út í Ragnheiði dóttur sína og gengur hvað harðast fram, þá er Mar- grét sú eina sem þorir að standa á móti honum,“ segir Hildur um Margréti Halldórdóttur biskupsfrú.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.