Morgunblaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
VA R I E T Y C H I C AG O S U N
T I M E S
I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Eva Jóhannsdóttir býr ogstarfar í Svíþjóð en hefurverið að byggja upp feril
sinn í danstónlistarkreðsum hægt og
bítandi. Tólftommur, stuttskífur og
„white label“-útgáfur hafa litið dags-
ins ljós þar sem oft fer drungalegt,
bassadrifið „dubstep“/græm. Banda-
ríska útgáfan Innamind Recordings
gaf t.d. út tólftommuna „Prrr“ fyrir
réttum þremur árum og smekkleið-
arar eins og Hudson Mohawk og
Nina Kraviz gáfu
tvo þumla upp.
EVA808 spilaði
síðan á Sónar
Reykjavík 2018
hvar landar henn-
ar gátu loks barið
hana augum. Eins
og ég hef skrifað um í þessum pistl-
um er íslensk danstónlistarsena
sterk og þræltengd um allar koppa-
grundir og það munaði um minna
þegar lag Evu, „Pink Uzi Gang“ (af
tólftommu frá 2018 á Innamind Re-
cordings), rataði inn á Mint-
lagaspotta þeirra Boys Noize, Ty
Dolla $ign og Skrillex árið 2019.
Blaðamaður ræddi stuttlega við Evu
í undirbúningi greinarinnar og tjáði
hún honum að hún hefði enga hug-
mynd um hvernig þessar risar kom-
ust yfir lagið. Á lagaspottanum áttu
þeir að setja inn lög sem þeir voru að
hlusta á í kringum útgáfu lagsins
„Midnight Hour“.
Þannig að útgáfa hefur verið
Svamlað í dökkum sjó
Bassadrottning Listakonan Eva Jóhannsdóttir er EVA808.
stöðug allt frá árinu 2014. Sultry Ve-
nom er hins vegar fyrsta breiðskífan
og alveg ofboðslegt verk, nítján laga
hlunkur sem kemur út í glæsilegum,
þriggja platna vínylplakka frá
nefndu Innamind Recordings. Því
miður hef ég ekki náð að handfjatla
gripinn en ljósmyndirnar einar fá
mig til að glenna upp augun. Eva
tjáði mér í nefndu spjalli að mikil
vinna væri á bak við gripinn, í tónlist
jafnt sem útliti. Elsta lagið var gert
2015 en þau nýjustu týndust inn á
síðasta ári. Mesta vinnan fór hins
vegar fram á síðustu tveimur og
hálfu ári.
Hið virta DJ Mag (sem fagnar
30 ára afmæli í ár) gerði plötuna óðar
að plötu janúarmánaðar. Í heilsíðu-
dómi er fögrum orðum farið um
verkið og segir m.a. að Evu sé tamt
að smala inn hljóði, setja það í lykkju
og umverpa því svo í takt um leið og
hún settur bassahljóð undir sem
„getur hrist jarðmöndulinn í sund-
ur“. Gagnrýnandinn lokar með því að
lýsa því yfir að hér sé á ferðinni ein-
stakur listamaður, hún þekki greini-
lega söguna og nýti hana til fulls á
þessu „hljóðsmölunar-meistara-
stykki“ („sampling masterclass“).
Sultry Venom stendur þannig
vel sem plata/verk. Gagnrýnandi DJ
Mag, Sam Davies, bendir á að þannig
sé hún skipulögð og það er rétt.
Þetta er ferðalag, við erum að tala
um rúman klukkutíma af efni og
„Intro“ setur tóninn. Tilraunakennt,
djúpt og dökkt. Hljóð aftur á bak,
toga mann inn, dálítið falleg en líka
skekkt og skæld. Og við tekur glæsi-
lega hannað raftónlistarverk sem
byggir allt í senn á græmi, „dubstep“
og bassatónlist. Hljóðrænt séð er
dumbungslegt um að litast, djúpur
bassi, flæðið þokukennt og í sumum
lögum er eins og þú sért farinn að
svamla meðfram hafsbotni. Ef ekki
innan í sjálfu leginu, svo ég vísi í pæl-
ingar sumra þeirra sem bjuggu til
ámóta tónlist á sokkabandsárum
dans/raftónlistarinnar í Bretlandi
snemma á tíunda áratugnum.
„Drowning“ dettur í Aphex-gír en „I
Saw the Devil“ er grimmt, líkt og tit-
illinn. „Snakes“ er tilraunakennt,
með „industrial“-blæ. Svart, kalt,
stáli bundið og engin grið gefin.
Þessi gotneski heimur sem umlykur
margt hérna fékk Davies til að hugsa
um Burial sem er skiljanlegt. En bíð-
ið samt við, verkið er fjölbreytilegt
um leið. Þetta er ekki bara dóma-
dagsdrungi. Sérstaklega undir end-
ann fer melankólískari blær að gera
vart við sig, meiri melódía og blíða og
sú stemning skýtur og upp kolli í lög-
um eins og „Demantar“ og „Broken
Neon“.
Ég ætla nú ekki að fara í gegn-
um hvert og eitt lag og heildarmynd-
in er eins og ég hef lýst. Stöndug og
tilkomumikil. Svo ég grípi í vísun í
hipphopp-söguna: „Bassi! Hversu
lágt kemstu?“
»Hljóðrænt séð erdumbungslegt um að
litast, djúpur bassi,
flæðið þokukennt og í
sumum lögum er eins og
þú sért farinn að svamla
meðfram hafsbotni.
Seint á síðasta ári kom
platan Sultry Venom út
sem listakonan EVA-
808 stendur að. Um er
að ræða helsvalt „dub-
step“ en það er Eva Jó-
hannsdóttir sem stend-
ur á bak við verkefnið.
Ráðstefna Listaháskóla Íslands,
Hugarflug, fer fram rafrænt 8.-14.
febrúar og er þemað að þessu sinni
vendipunktur. Ráðstefnan er sögð
vettvangur fyrir opna, faglega og
gagnrýna um-
ræðu um listir,
hönnun, og arki-
tektúr; um þekk-
ingarsköpun á
hinu víða sviði
lista og skörun
þeirra við önnur
fræðasvið, með
áherslu á fjöl-
breytileikann
sem einkennir
nálganir, aðferð-
ir, efnistök, miðlun og rannsóknir
sem þar er beitt.
„Við stöndum á vendipunkti í
sögunni sem krefst þess af okkur að
við ígrundum hlutverk og vægi list-
anna í endursköpun samfélaga í
kjölfar meiri háttar heimsatburða
eins og þeirra sem við lifum nú.
Fram undan eru ögrandi áskoranir
í loftslags- og umhverfismálum,
hringrásarhagkerfinu, lýðræðisefl-
ingu og samfélagsgerðinni. Hvern-
ig getum við svarað þessum áskor-
unum og ögrunum á vettvangi
lista? Hvernig hefjumst við handa
við að skilja og svara þeim djúp-
stæðu breytingum á umhverfi okk-
ar sem við stöndum frammi fyrir?
Hvernig nýtum við þá hugmynda-
fræðilegu endurnýjun sem er snar
þáttur í listsköpun, umhverfi okkar
og samfélagi til heilla? Hvernig
hafa listirnar svarað slíkum áskor-
unum í sögunni?“ segir á vef skól-
ans og að helsta markmið ráðstefn-
unnar sé að bjóða upp á öruggt
rými jafningja þar sem óhætt sé að
spyrja opinna spurninga, fram-
kvæma tilraunir og kynna verkefni
í vinnslu.
Þar sem ráðstefnan verður raf-
ræn eru þátttakendur hvattir til að
nýta sér fjölbreyttar aðferðir, miðla
og nálganir til að finna framlagi
sínu viðeigandi umgjörð og form á
stafrænan hátt og má finna frekari
upplýsingar og dagskrá Hugar-
flugs á vef LHÍ, lhi.is/hugarflug.
Hanna Styrmisdóttir er formað-
ur ráðstefnunefndar Hugarflugs og
Karolína Stefánsdóttir er verkefna-
stjóri.
Vendipunkt-
ur er þemað
Hanna
Styrmisdóttir