Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 44

Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 2021 Aprílsólarkuldi. Apríl sólarkuldi. Þetta samsetta orð,titill bókarinnar sem hérum ræðir, nær að fanga efni hennar á einstakan hátt. Per- sónulega og hispurslausa frásögn af einum sterkustu tilfinningum sem mannskepnan býr yfir, ást og sorg. Þannig er einmitt kuldinn í sólinni sem sést hérlendis í aprílmánuði. Kuldinn bítur í kinnarnar og nær inn að beini á sama tíma og sólin kastar geislum sínum á húðina og sálina. Þannig er sólin tákn um ástina en kuldinn um sorgina. Aprílsólarkuldi stendur því fyrir hæðir og lægðir mannlegra til- finninga en þannig sveiflur eru einmitt eitt aðalviðfangsefni bókarinnar. Aprílsólar- kuldi greinir frá því sem gerist í lífi aðalpersón- unnar Védísar þegar bæði sorgin og ástin verða of sterkar og brengla sýn hennar á veruleikann, án þess að hún geri sér grein fyrir því sjálf. Sagan er í raun sjálfsævisöguleg en hún er byggð á reynslu Elísabet- ar Kristínar Jökulsdóttur, höfundar bókarinnar, sjálfrar. Elísabetu tekst að segja söguna á einlægan hátt og nánast leyfa lesandanum að fljúga yfir liðna atburði með henni án þess að orðum sé eytt í of mikil smáatriði, það sem kannski skiptir ekki máli. Elísabet verður þannig Védís, ung stúlka, en þó einstæð móðir, sem missir föður sinn án þess að hafa fengið frá honum þá viðurkenningu og leiðsögn sem hún þráði. Í miðju sorgarferli verður hún ástfangin, ástfangin er jafnvel of vægt til orða tekið. Ástin yfirtekur líf hennar gjörsamlega, gleypir Védísi nánast með húði og hári. Stundum elskaði hann hana svo heitt að hún var alveg að kafna og skildi ekki hvað hún hafði gert tilað verð- skulda alla þessa ást. Og þótt hún tryði því og tryði því ekki í sömu andrá að hann elskaði hana var hún stöðugt hrædd um að ást hans myndi hverfa. Inn í ástina blandast vímuefna- notkun og þegar ástin hverfur fer að bera á geðrænum vandræðum og ranghugmyndum hjá Védísi sem hefur engan áhuga á þeirri hjálp sem henni býðst. Sagan skiptist nokkuð skýrt í þrjá hluta og má afmarka þá með þrenns konar þrá Védísar eftir viðurkenn- ingu. Fyrst kallaði hún eftir viður- kenningu frá föður sínum, þá frá elskhuganum og loks viðurkenningu samfélagsins eða jafnvel heilags anda. Sagan er ljóðræn og stundum eins og handan raunveruleikans þrátt fyrir að hún segi frá atburðum sem eiga að hafa átt sér stað. Stíllinn er einstakur en á sama tíma einfaldur og flæðir fallega áfram. Hvert orð skiptir máli á sama tíma og engu orði er ofaukið. Elísabet hlaut ís- lensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina og verða þau að teljast verð- skulduð. Morgunblaðið/Eggert Höfundurinn „Hvert orð skiptir máli á sama tíma og engu orði er ofaukið. Elísabet hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina og verða þau að teljast verðskulduð,“ skrifar rýnir um sögu Elísabetar K. Jökulsdóttur. Sterkar tilfinningar í verðlaunabók Skáldsaga Aprílsólarkuldi bbbbm Eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur. JPV, 2020. Innbundin, 143 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Eftir margra mánaða lokun vegna kórónuveirufarald- ursins var í vikunni aftur tekið að hleypa gestum í ein- stakt listasafn Vatíkansins. Fáum er hleypt inn í einu og vandlega hugað að sóttvörnum enda hefur Ítalía, þar sem Vatíkanið er í Rómaborg, verið hart leikin af veirunni. Innst í safninu er hin einstaka Sixtínska kapella með óviðjafnanlegum freskum Michelangelos frá árunum 1508 til 1512 í loftinu og verki hans Dómsdegi frá 1534 til 1541 á altarisveggnum. Þá eru eldri verk eftir aðra endurreisnarmálara á hliðarveggjum. Alla jafna er mikil þröng gesta í kapellunni að dást að dýrðinni en nú er mun rýmra um þá sem hleypt er inn og því eflaust þægilegra að skoða verkin. AFP Einn með dýrðinni í Sixtínsku kapellunni Sýning á ósamþykktum skissum Gerðar Helgadóttur að altaristöflu í Kópavogskirkju er meðal fjöl- margra og ólíkra viðburða sem boð- ið er upp á á Vetrarhátíð nú um helgina. Tillögurnar vann Gerður árið 1962 en samkomulag náðist ekki um innihald þeirra og urðu þær því ekki að veruleika. Á sýningunni gefst gestum færi á að skoða skiss- urnar í því samhengi sem þær voru hugsaðar, inni í kirkjunni ásamt steindum gluggum Gerðar. Sýning- arstjórar eru Anna Karen Skúla- dóttir og Hallgerður Hallgríms- dóttir, sýning er opin kl. 12 til 16. Meðal annarrs viðburða má nefna að í Kópavogi er líka boðið upp á ljóðagöngu í Lindahverfi. Ljóð ort af nemendum í Lindaskóla birtast í litlum ljóðakössum sem komið er fyrir á ljósastaurum í nágrenni skól- ans og bókasafnsins. Á vefnum flaneri.is má svo sækja hljóðgöngur um sögu og samtíma Kópavogs í hlaðvarpsformi: Frá- sagnir, viðtöl, umhverfishljóð, stað- reyndir og skáldskapur sveipa Kópavog nýjum blæ og fara með hlustendur í ferðalag á kunnuglegar en jafnframt framandi slóðir. Lengd göngu með fyrsta hlaðvarpi er 25-30 mínútur og hentar 12 ára og eldri. Í Gerðarsafni verður Sprengju- Kata svo með krakkaleiðsögn um sýninguna Skúlptúr Skúlptúr en þar sýna Ólöf Helga Helgadóttir og Magnús Helgason verk sín á tveim- ur einkasýningum. Í Garðabæ er boðið upp á raf- ræna leiðsögn með Birtu Guðjóns- dóttur sýningarstjóra um fimm af útilistaverkum sem staðsett eru í bænum. Og kl. 15.30 í dag leiðir Einar Skúlason göngugarpur og sagnfræðingur göngu sem hefst við aðalbílastæði Vífilsstaða. Á Berkla- hælinu á Vífilsstöðum var lagt mikið upp úr útivist og fersku lofti og þeg- ar sjúklingar gátu var hvatt til gönguferða. Einar mun að einhverju leyti ganga í fótspor berklasjúklinga meðfram Vífilsstaðavatni og upp á Gunnhildi. Á leiðinni verða tekin nokkur stopp og fróðleiksmolum kastað á loft og samtal eiga sér stað um lífið á Berklahælinu. Á bókasafni Seltjarnaness hefur verið sett upp sýning á listaverkum sem safninu hafa verið gefin, „Lista- verkin okkar“ er hún kölluð. Meðal viðburða í Reykjavík má benda á Ljósaslóð Vetrarhátíðar en það er gönguleið frá Hallgríms- kirkju og Hnitbjörgum, Listasafni Einars Jónssonar, niður Skóla- vörðustíg og niður á Austurvöll sem er vörðuð með ljóslistaverkum. Þessi ljóslistaverk munu lýsa upp miðbæinn frá 19 – 22 báða dagana. Reykjavík GPS er gagnvirk tón- listarupplifun eftir bræðurna Úlf og Halldór Eldjárn, þar sem tónlistin hefur verið tengd við ákveðnar GPS-staðsetningar í miðbæ Reykja- víkur. Til að njóta verksins fer fólk í bæinn með heyrnartól og snjall- síma, fer á vefslóðina rvkgps.com, röltir svo um og heyrir tónlistina breytast. Fjölbreytilega dagskrána má kynna sér í heild á vefslóðinni vetrarhatid.is. Fjölbreytileg Vetrarhátíð  Ýmiss konar viðburðir um helgina Ljósaslóð Ólík ljósalistaverk lýsa upp miðborgina á kvöldin. Alsjáandi Sýning á skissum Gerðar Helgadóttur er í Kópavogskirkju. Tilkynnt hefur verið hvaða bygg- ingar eru tilnefndar í fyrsta vali til hinna virtu arkitektúrverðlauna sem Evrópusambandið veitir og eru kennd við stjörnuarkitektinn Mies van der Rohe. Alls eru til- nefndar 449 byggingar í 41 landi og þar á meðal eru þrjú íslensk verkefni, gistiheimilið Drangar, Guðlaug á Langasandi og þjón- ustuhús við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri. Drangar eftir Studio Granda hlaut á dögunum Hönnunarverð- laun Íslands 2020. Það er nýtt gistiheimili á gömlum grunni, á Snæfellsnesi og hannað af arki- tektastofunni Studio Granda sem var stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur og Steve Christer. Guðlaug er eftir Basalt Arki- tekta, stofu sem var stofnuð af Sig- ríði Sigþórsdóttur, Hrólfi Karl Cela og Marcos Zotes. Þetta er heit laug staðsett í grjótgarðinum á Langasandi á Akranesi. Guðlaug er á þremur hæðum. Þjónustuhús við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri er eftir Ander- sen & Sigurdsson Arkitekta, stofu sem var stofnuð af Ene Cordt And- ersen og Þórhalli Sigurðssyni. Þetta er aðstöðuhús fyrir sjómenn og starfsmenn við höfnina en einn- ig fyrir fjölda ferðamanna sem koma í hólmann til að skoða lunda. Byggingar tilnefndar Guðlaug Heit laug við Langasand á Akranesi eftir Basalt Arkitekta. Drangar Gistiheimilið á Snæfells- nesi er hannað af Studio Granda. Þjónustuhús Bygging eftir Ander- sen & Sigurdsson Arkitekta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.