Morgunblaðið - 06.02.2021, Side 48
Ný sýning, Halló geimur, hefst um helgina í Listasafni
Íslands. Vegna fjöldatakmarkana sem miðast við 20
manns verður ekki boðið til formlegrar opnunar en
þess í stað opið hús um helgina, 6. og 7. febrúar. Sýn-
ingunni er ætlað að höfða sérstaklega til yngstu gesta
safnsins og forráðamanna þeirra. „Fjarlægar víðáttur í
óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið mann-
inum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað
og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað
þeim með fjölbreyttum hætti,“ segir um sýninguna í til-
kynningu og að á henni sé skyggnst inn í undraveröld
himingeimsins með hjálp listaverka í safneigninni.
Fjarlægar víðáttur á sýningu
fyrir börn í Listasafni Íslands
Leikstjórnendurnir Patrick Mahomes og Tom Brady
mætast í úrslitaleik NFL-deildarinnar annað kvöld en
þá fer úrslitaleikur Kansas City Chiefs og Tampa Bay
Buccaneers fram í Tampa í Flórída. Gunnar Valgeirsson
fjallar um stórleikinn og einvígi þessara ólíku lykil-
manna liðanna tveggja. »41
Ólíkir leikstjórnendur eigast við
í úrslitaleiknum í Tampa
hún hafi ekki sungið síðan á jóla-
tónleikum Friðriks Ómars í Hofi á
Akureyri fyrir jólin 2019.
Helena segist hafa verið efins í
fyrstu þar sem hún hafði ekki kom-
ið fram og sungið lengi. „En þegar
ég hugsaði betur um málið komst
ég að þeirri niðurstöðu að það yrði
bara gaman að fá að vera með,
sem það var virkilega. Ég mætti á
æfingu á föstudeginum, fékk frá-
bærar móttökur og æfingin gekk
mjög vel.“
Útsendingin gekk eins og í sögu.
„Þetta eru allt flottir og flinkir tón-
listarmenn og það var gaman að
syngja með þeim,“ áréttar Helena.
Hún segir sönginn í grunninn alltaf
vera eins, en mikill munur sé að
syngja á tónleikum eða á balli.
„Þegar maður er ungur er maður
fullur af bjartsýni og öruggur með
sig, en mér hefur alltaf þótt erfitt
að syngja á tónleikum. Á böllum
veitir fólk manni mátulega mikla
athygli en á tónleikum er hljótt í
salnum og fólk situr og starir á
mann.“
Helena segir taugatrekkjandi að
vera í beinni útsendingu sjónvarps
en þeim mun skemmtilegra þegar
vel tekst til og undirbúningurinn
hafi ekki verið langur að þessu
sinni. „Ég syng aldrei heima hjá
mér en nú brá ég út af reglunni til
að athuga hvort röddin væri í lagi.“
Dægurlagasöngkonan er óbókuð
á næstunni og segir að það trufli
sig ekki. „Þetta var mjög gaman
en ég ætla ekki að fara að ota mér
fram. Ef einhver hringir og spyr
hugsa ég samt málið.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söngkonan Helena Eyjólfsdóttir
fór á kostum í sjónvarpsþættinum
„Það er komin Helgi“ með Helga
Björns og Reiðmönnum vindanna í
Sjónvarpi Símans sl. laugardags-
kvöld, breytist ekkert og hefur
engu gleymt. „Þetta tókst rosalega
vel og skemmtilegast er að söng-
röddin er þarna ennþá, þó skrítið
sé,“ segir dívan, sem verður áttræð
eftir tæpt ár.
Heilsan hefur alla tíð verið góð
og Helena þakkar það góðu mat-
aræði og nægri hreyfingu. „Ég er
hraust og það er ekkert að mér, ég
tek engin lyf og er dugleg að
hreyfa mig, borða rétt og fer
snemma að sofa á kvöldin,“ leggur
hún áherslu á. „Ég fer eftir þeirri
uppskrift að fara vel með mig, eitt-
hvað sem allir þekkja og eiga að
fylgja til þess að lifa betra lífi á
efri árum.“
Gott atlæti
Stórholtið í Reykjavík var leik-
völlur Helenu í æsku. Hún ólst þar
upp með krökkum, sem sumir
hverjir áttu eftir að gera það gott
á söngsviðinu. „Þarna voru til
dæmis Raggi Bjarna, Ómar Ragn-
ars og Kristín Ólafs,“ rifjar hún
upp. „Við bjuggum við mjög gott
atlæti og þess vegna er ég enn
heilsugóð,“ heldur hún áfram.
„Pabbi lagði áherslu á hollan mat
og sá til þess að við systurnar
borðuðum alltaf rúgbrauðssneið
með síld fyrir kvöldmatinn. Hún
var beint upp úr tunnunni með
miklu lýsisbragði, en hann sagði
okkur bara að hafa meiri hráan
lauk með sem og við gerðum. Síðan
var hellt upp í okkur lýsi í skól-
anum og þetta stuðlaði að góðri
heilsu og gerir enn.“
Þegar Helena var 15 ára söng
hún opinberlega í fyrsta sinn.
Rokktónleikarnir í Austurbæjarbíói
vöktu athygli og tónninn var sleg-
inn, dægurlagasöngkona var
sprungin út og blómið brosir enn
nær 65 árum síðar. Helgi Björns
bað hana um að koma í beina út-
sendingu með Reiðmönnum vind-
anna, lagði fyrir hana lagalista,
sem hún segist hafa verið sátt með,
og þá var ekkert til fyrirstöðu, þó
Síld og lýsi er málið
Dægurlagasöngkonan Helena Eyjólfsdóttir á sviðinu í 65 ár
Ljósmynd/Mummi Lú
Síung Helena Eyjólfsdóttir stígur enn á „stokk“, síðast hjá Helga Björns.
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
ÍÞRÓTTIR MENNING