Morgunblaðið - 16.02.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.02.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666      Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta eru náttúrlega mikil gleði- tíðindi fyrir okkur í Hafnarfirði. Að auki er þetta mikilvægt fyrir þjóð- félagið allt að þessir samningar ná- ist. Þeir tryggja og efla starfsemi þessa góða fyrirtækis,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði, um raforkusamninginn sem Landsvirkjun og Rio Tinto á Íslandi gerðu í gær vegna álversins í Straumsvík. Rósa segir mikilvægt að náðst hafi að eyða óvissu um framtíð ál- versins í bili. „Það eru miklir fjár- hagslegir hagsmunir þarna enda eru um 500 bein og óbein störf tengd álverinu. Þessi fjárhagslegu áhrif skipta bæinn því miklu máli,“ sagði Rósa ennfremur. Að því er fram kom í sameigin- legri tilkynningu frá fyrirtækj- unum er um mikil gleðitíðindi að ræða sem styrki rekstrargrundvöll álversins til framtíðar. Að auki tryggi samkomulagið fyrirsjáan- leika í tekjustreymi Landsvirkj- unar og aukinn sveigjanleika í við- skiptum fyrir báða aðila. Kvörtun dregin til baka Eins og áður hefur komið fram hafa Landvirkjun og álframleið- andinn elt grátt silfur um nokkurt skeið. Rio Tinto kærði Lands- virkjun til Samkeppniseftirlitsins en félagið hafði hótað að segja upp orkusamningi sínum og virkja áætlun um lokun. Þá var Lands- virkjun sökuð um „skaðlega hátt- semi“ í garð Rio Tinto. Kvörtunin snerist að mestu um ásakanir Rio Tinto á hendur Landsvirkjun þar sem síðarnefnda fyrirtækið var sakað um að hafa misnotað mark- aðsráðandi stöðu sína á raforku- markaði. Með samkomulaginu hef- ur Rio Tinto nú ákveðið að draga til baka kvörtun sína til Samkeppn- iseftirlitsins. Til hagsbóta fyrir báða aðila Algjör trúnaður ríkir um inni- hald samningsins en í tilkynningu segir að hann verði ekki upplýstur að svo stöddu. „Breyting samn- ingsins er til hagsbóta fyrir báða aðila. Grunnur raforkuverðsins hef- ur tekið breytingum, en er áfram bundinn bandaríkjadal og tengdur bandarískri vísitölu neysluverðs (CPI). Að litlum hluta er samning- urinn einnig tengdur álverði, sem þýðir aðlögun verðs að alþjóðlegum mörkuðum að einhverju leyti. Sam- hliða samkomulaginu hefur Rio Tinto ákveðið að draga til baka kvörtun sína til Samkeppniseft- irlitsins frá því í júlí 2020 varðandi orkusölu til álversins í Straums- vík,“ segir í tilkynningunni. Vilja styðja viðskiptavini Að sögn Harðar Arnarsonar, for- stjóra Landsvirkjunar, er mjög ánægjulegt að samningar hafi náðst. „Við fögnum því að náðst hafi samkomulag um breytingar á orkusölusamningnum, eftir beiðni Rio Tinto þar um. Niðurstaðan er báðum aðilum í hag og um leið eykur hún skilvirkni raforkukerf- isins á Íslandi. Markmið Lands- virkjunar er, líkt og áður, að tryggja fyrirsjáanlegar tekjur um leið og við tökum tillit til breytinga á alþjóðlegum mörkuðum og á þörfum viðskiptavina okkar,“ segir Hörður og bætir við að með þessu sé verið að styðja við starfsemi Rio Tinto. Það gagnist báðum aðilum. „Við hjá Landsvirkjun höfum lagt áherslu á að styðja viðskiptavini okkar á þessum krefjandi tímum. Við erum staðráðin í að halda áfram að bjóða samkeppnishæft orkuverð um leið og við sinnum því hlutverki okkar að hámarka verð- mæti þeirra endurnýjanlegu orku- auðlinda sem okkur hefur verið treyst fyrir, til hagsbóta fyrir þjóð- ina alla.“ Eyðir óvissu um starfsemina Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, kveðst stolt af þeim árangri sem félagið hefur náð á undanförnum árum. Samning- urinn sé enn fremur mikilvægur áfangi í vegferð félagsins. „Þetta eru ánægjuleg tíðindi sem eyða óvissu um starfsemina í Straums- vík, um leið og samkeppnishæfni okkar batnar. Við í Straumsvík getum öll verið ákaflega stolt af þeim árangri sem starfsfólk ISAL hefur náð undanfarin ár. Þrátt fyr- ir margra ára óvissu hefur öll starfsemin einkennst af fag- mennsku og æðruleysi og missti starfsfólk ekki sjónar á því sem mestu máli skiptir. Öryggis- og umhverfismálin hafa verið í mjög góðum farvegi, framleiðslan gengið vel og gæði hennar verið mjög stöðug og mikil. Þótt þessum áfanga sé náð erum við ekki komin fyrir vind. Áfram eru krefjandi að- stæður í áliðnaði og verður ISAL áfram undir pressu að ná árangri. Með þessu samkomulagi um raf- orkumál getum við hins vegar ein- beitt okkur að því að framleiða há- gæða ál með þarfir viðskiptavina okkar í huga.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Álver Rekstur álversins í Straumsvík hefur verið tryggður með samkomulagi Landsvirkjunar og Rio Tinto. „Mikilvægt fyrir Hafn- arfjörð og þjóðfélagið“  Landsvirkjun og Rio Tinto á Íslandi náðu samkomulagi Ljósmynd/Landsvirkjun Orkusölusamningurinn Af hálfu Landsvirkjunar ritaði Hörður Arnarson forstjóri undir, en Rannveig Rist forstjóri fyrir hönd Rio Tinto á Íslandi. Að baki þeim standa Sigurður Þór Ásgeirsson og Tinna Traustadóttir. Morgunblaðið/Eggert Hafnarfjörður Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri fagnar tíðindunum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tæpur tugur loðnuskipa var að veið- um undan Skeiðarársandi í gær; ís- lensk, færeysk og grænlensk skip. Venus NS var búinn að kasta einu sinni og fá um 200 tonn þegar rætt var við Berg Einarsson skipstjóra um hádegisbilið. „Þetta er stór og falleg loðna og lyktin góð,“ sagði Bergur. Hann sagði að þarna væri loðna á stóru svæði, en nokkuð tætingsleg. Enn var talsverð kvika og sagðist Bergur gera sér vonir um að loðnan myndi þétta sig þegar veður gengi niður eftir brælu helgarinnar. Samstarf tveggja áhafna Meðal skipa á miðunum á Meðal- landsbug í gær voru Síldarvinnslu- skipin Beitir og Börkur. Haft var eft- ir Tómasi Kárasyni, skipstjóra á Beiti, að víða væri eitthvað að sjá. „Hér er heldur leiðinleg sunnanátt en það er vel hægt að kasta, þannig að veðrið háir okkur ekki,“ var haft eftir Tómasi á heimasíðunni í gær- morgun. Þar kemur fram að samkomulag hefur verið gert við áhafnir Beitis og Barkar um samstarf skipanna við loðnuveiðarnar. Samstarfið felst í því að skipin skipuleggi veiðarnar þann- ig að þau skiptist á að koma með sem ferskastan afla að landi hverju sinni til að tryggja sem mest gæði fram- leiðslunnar. Þess vegna er gert ráð fyrir að afla verði dælt á milli skip- anna á miðunum ef á þarf að halda. Áhafnirnar munu síðan skipta aflaverðmætunum á milli sín. Sam- starf sem þetta hefur ekki verið reynt við loðnuveiðar áður en það gafst vel hjá Síldarvinnsluskipunum á makrílvertíðinni sl. sumar, segir á svn.is. Norðmenn langt komnir Mörg norsk loðnuskip hafa landað undanfarið á Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Norðfirði. Stutt hefur verið að fara til þessara hafna af loðnumið- unum undan Austfjörðum, en norsku skipin mega ekki veiða fyrir sunnan línu, sem er dregin beint í austur frá punkti sunnan Álftafjarðar. Norsk loðnuskip áttu í gærmorgun aðeins eftir að veiða um 4.300 tonn af kvóta sínum, sem er tæplega 42 þúsund tonn. Á heimasíðu Norges sildesalgslag er fjallað um loðnuveiðar norskra skipa í liðinni viku og segir þar að afli hafi verið góður, mikil gæði og veður hafi ekki hamlað veiðum fyrr en um helgina. Verðhækkanir hafi verið miklar frá því síðast var leyft að veiða loðnu veturinn 2018. „Falleg loðna og lyktin góð“  Íslensku skipin á Meðallandsbug Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Á loðnu Venus NS í leiðindaveðri á Breiðafirði í lok vertíðar 2016.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.