Morgunblaðið - 16.02.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.02.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeir semfylgdustmeð fjöl- miðlum í Banda- ríkjunum eða þeim á megin- landi Evrópu og reyndar að nokkru á eyjunni norðan við, þeirri sömu sem hélt neistanum lifandi nógu lengi á seinustu öld svo að allt yrði ekki að einni klessu undir hæl Hitlers, virðast vita minna en lítið um niðurstöðuna vestra. Nokkrir, t.d. Gunnar Rögn- valdsson, eru þó með margt á hreinu: „Tilraunin til að fá Trump forseta dæmdan af þeim dómstóli þingsins sem Hæstiréttur landsins þver- tók fyrir að koma nálægt, en það átti hann að gera samkvæmt stjórnarskrá landsins, rann algjörlega út í sandinn og gott betur en það. Gerði Demókrataflokk- urinn sig þar að eins konar enn forhertari þorski á þurru landi, en nú á leið í hjallana. Tilraun þeirra manna innan Repúblikanaflokksins sem þola ekki Trump sprakk einnig í loft upp, með því að svokallað Lin- coln Project þeirra varð að ruslahrúgu undir ásökunum um valdníðslu og kynferð- islega áreitni. Þar fór sú von demókrata um vaxandi fjölda nytsamra kjána á borð við Mitt Romeny í röðum repúblikana. Næst á matseðli vikunnar var svo ríkisstjóri demó- krata í Kaliforníu. Þar náðu kjósendur nægilegum fjölda undirskrifta sem þarf til að hægt sé að krefj- ast kosninga til að fjar- lægja þann óhæfa mann úr embætti. En það segja of margir kjósendur Kali- forníu að demókratinn Ga- vin Newsom ríkisstjóri sé. Þúsundir fyrirtækja flýja nú frá ríkinu, stórfyrir- tækin líka. Síðan sprakk lygaherferð demókrata og sífalsandi fjölmiðlasamsteypu þeirra um óeirðirnar í Charlottes- ville 2017. En þar laug flokkurinn og fjölmiðlar hans því að Trump hefði sagt að óeirðaseggir og ný- nasistar væru „fine people“, þ.e. „gott fólk“. En öll sú lygi þeirra var jöfnuð við jörðu á Bandaríkjaþingi í síðustu viku, því þar voru ummæli Trumps ekki klippt í búta og gerð óþekkjanleg í meðförum lyga- pressu landsins (ber þar að nefna CNN sér- staklega og hæst). Síðan er það ríkisstjóri New York-ríkis, demókratinn Andrew Cuomo. En í vikunni brast þöggunarstíflan sem hann og stjórn hans höfðu reynt að byggja utan um Wuhan- veirudauða 15 þúsund eldri borgara ríkisins í þeim til- gangi að leyna mistökum sem gera hann ábyrgan fyrir dauða 11 þúsund þeirra. En allan tímann sem ríkisstjórn demókrata þar vissi betur, hafði stjórn þeirra reynt að klína því máli á Trump forseta. Virð- ist nú sem samstaða sé að myndast í báðum flokkum ríkisins um að Andrew Cuomo beri ábyrgð á því máli. En hæg eru heima- tökin hjá honum, því bróðir hans, Chris Cuomo, er einn helsti ofstækismaðurinn og skjátröllið á falsfréttastöð- inni CNN. Þetta voru fimm virkir dagar í lífi vísinda- hflokksins mikla, og ekki voru þeir neitt betri í elítu- samsæri Evrópusambands- ins gegn fólkinu hinum megin Atlantsála, enda áttu Sovétríkin ofgnótt vísinda- manna og dóu úr menntun.“ Stjórnskipunarreglur Bandaríkjanna slá því föstu, svo þar er ekkert val, að samþykki fulltrúadeild þingsins tillögu til embætt- ismissis forseta skuli öld- ungadeildin setjast í dóm- arasæti um þá ályktun og forseti Hæstaréttar stýra allri þeirri málsmeðferð. John Roberts, forseti Hæstaréttar Bandaríkj- anna, sem raunar hefur iðulega valdið repúblikön- um vonbrigðum við dóms- úrlausnir, vildi hvergi koma nærri „impeachment“- skrípaleiknum. Þar með var málið í rauninni úr sögunni. Repúblikanar geta svo sem hlakkað yfir því hversu óhönduglega andstæðing- arnir héldu á leiknum. Trump væri enn laskaðri ef andstæðingarnir hefðu ekki farið yfir strikið. En það er aukaatriði. Fjölmiðlar hafa víða fall- ið djúpt á flestum prófum seinustu misseri. Líka þeim sem þeir nenntu ekki að taka. Þegar forseti Hæstaréttar neitaði að spila með hefðu stilltari menn heyrt öskrin í aðvör- unarbjöllunum} Sjálfsmark á silfurfati S taðan á Covid-19-faraldrinum er góð hérlendis í alþjóðlegum sam- anburði. Ísland er í grænum flokki samkvæmt litakóðunarkerfi á korti Sóttvarnastofnunar Evrópu en land fær grænan lit ef nýgengi smita síðustu fjórtán daga á hverja 100 þúsund íbúa er undir 25 og hlutfall jákvæðra sýna undir 4%. Í gær, 15. febrúar, var sú tala raunar bara 2,2 hérlendis. Alls hafa átta smit greinst frá 1. febrúar innan- lands og einungis eitt þeirra utan sóttkvíar en það var 1. febrúar. Það smit er jafnframt það eina utan sóttkvíar sem greinst hefur innan- lands frá 20. janúar sl. Álag á Landspítala vegna Covid-19 hefur minnkað verulega und- anfarið. Við stöndum því vel og af þeim sökum gátum við slakað aðeins á samkomutakmörkunum þann 8. febrúar síðastliðinn. Bólusetning gegn Covid-19 er hafin hérlendis og gengur vel. Í könnun á viðhorfi almenn- ings til bólusetningar við Covid-19 sem embætti land- læknis lét gera í lok janúar 2021 kom fram að Íslendingar eru almennt jákvæðir gagnvart bólusetningum. Rétt tæp- lega 90% svarenda í könnuninni töldu alveg öruggt að þau myndu láta bólusetja sig, og að 92,5% teldu bóluefnin vera mjög eða frekar örugg. Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn Covid-19, bóluefni þriggja þeirra, Pfizer, AstraZeneca og Moderna, eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Gera má ráð fyrir að hægt verði að bólusetja tæplega 190.000 einstaklinga hér á landi fyrir lok júní næstkomandi með bóluefnum Pfizer, AstraZeneca og Moderna. Þetta er mun meira en áður var vænst. Mestu munar annars vegar um nýjan samning Evrópusambandsins við Pfizer sem tryggir Íslandi bóluefni fyrir 25.000 til 30.000 manns strax á öðrum ársfjórðungi, til viðbótar fyrri samningum og hins vegar aukna framleiðslugetu AstraZeneca sem leiðir til mun hraðari afhendingar bóluefna en áður. Alls verður rúmlega 280.000 einstaklingum boðin bólusetning hér á landi, þ.e. öllum sem eru 16 ára og eldri. Gert er ráð fyrir að Ísland undirriti samning um aukinn fjölda bóluefna frá Pfizer á grundvelli nýs samnings Evrópu- sambandsins fyrir lok þessarar viku. Einnig má nefna að gert er ráð fyrir að Evr- ópska lyfjastofnunin leggi mat á bóluefni Janssen og Curevac innan skamms en mat hennar er forsenda mark- aðsleyfis. Áætlað er að afhending þessara bóluefna geti hafist á öðrum fjórðungi þessa árs en ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar frá framleiðendunum um magn. Í ljósi stöðu faraldursins hérlendis og nýjustu frétta af bóluefnum tel ég að við getum leyft okkur að horfa björt- um augum fram á veginn. Daginn tekur að lengja og með hverjum deginum birtir líka til í glímunni við faraldurinn. Við skulum njóta þess með hækkandi sól. Svandís Svavarsdóttir Pistill Hraðari afhending bóluefna Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Andrés Magnússon andres@mbl.is Demókratinn AndrewCuomo, ríkisstjóri NewYork-ríkis, hefur til þessaátt furðugóða plágu. Fór New York þó verr út úr henni en nokkurt annað ríki Bandaríkjanna. Fjölmiðlar lofuðu framgöngu hans, fyrir að tala skýrt og skorinort um kór- ónuveiruna, og báru hann gjarnan saman við Donald Trump, sem miðl- unum þótti flestum ferlegur. Ekki síst hrifust margir af þátt- um hans með Chris Cuomo bróður sín- um á CNN, þar sem umfjöllunarefnið var tvíþætt: faraldurinn og stjórnsnilld ríkisstjórans. Sumum þóttu bræðurnir reyndar fullhressir um svo alvarleg efni, en það kom þó ekki í veg fyrir að Andrew Cuomo fékk sérstök Emmy- verðlaun fyrir sjónvarpsframkomu sína fyrir 3 mánuðum. Lík í lestinni Þetta breyttist allt á fimmtudag, þegar New York Post birti „skúbb“ um að Melissa DeRosa, nánasti ráð- gjafi ríkisstjórans, hefði játað á 2 tíma lokuðum fjarfundi með þingmönnum demókrata á ríkisþinginu að Cuomo hefði vísvitandi og kerfisbundið komið í veg fyrir að réttar tölur kæmu fram um hve margir hefðu látist af völdum kórónuveirunnar á elliheimilum í rík- inu. Að sögn DeRosa kom það á ríkis- stjórann þegar óskað var eftir þeim tölum síðastliðið sumar og því gripið til alls kyns bragða til að fela þær. Af því að þau vissu ekki hvort þær yrðu „not- aðar gegn okkur“. Hér er ekki um neinar smátölur að ræða, þó þær séu enn nokkuð á reiki. Hátt í 15.000 manns eru nú talin hafa látist af völdum Covid-19 á elli- heimilum í ríkinu, en ríkisstjórinn van- taldi á bilinu 40-55% og hafði sagt þar í mesta lagi 8.500 látna. Vitað var að aldraðir væru við- kvæmastir í faraldrinum, en Cuomo hafði sérstaka ástæðu til þess að reyna að dylja almenning þess hve margir hefðu dáið á elliheimilum. Ábyrgð Cuomos Ástæðan er sú að í mars á liðnu ári, eftir að faraldurinn var kominn á skrið og eftir að ljóst var að öldruðum var sérstök hætta búin, undirritaði Cuomo ríkisstjóri tilskipun um að elli- heimilum væri skylt að taka við öldr- uðum (oft af sjúkrahúsum) þó að þeir væru smitaðir af veirunni eða grunur léki á um smit. Ástæðan að baki tilskipuninni var eflaust sú að rýma sjúkrahús skjótt, svo taka mætti við Covid-19- sjúklingum. Mögulega í góðri trú á sín- um tíma. En þessi feluleikur með töl- fræðina bendir til yfirhylmingar, sem gerir illt hálfu verra. Samanburðurinn við Flórída-ríki, þar sem þveröfug leið var farin (og Cuomo hæddist að þá), er New York mjög óhagstæður og búa þó fleiri aldr- aðir í sólinni þar syðra. Vandinn er kannski sá að Cuomo hefur algera yfirburði í stjórnmálum ríkisins. Hann hefur til þessa getað hafnað allri gagnrýni í krafti rótgróins styrks Demókrataflokksins í New York, sem lætur nærri að vera eins- flokksríki og stjórnarandstaðan afar veikburða. Þannig komu fram vísbendingar um þessa hluti í skýrslu dóms- málaráðherra ríkisins í liðnum mánuði, en Cuomo vísaði því öllu á bug og hefði mögulega komist upp með það ef ráðgjafinn hefði ekki talað af sér og einhverjum þingmanninum blöskrað svo að hann lak samtal- inu. Afsagnarkröfur verða nú æ háværari, líka meðal demó- krata. Cuomo ríkisstjóri grunaður um græsku Andrew Mark Cuomo hefur ver- ið ríkisstjóri New York-ríkis síð- an 2011, en þriðja kjörtímabili hans lýkur í lok þessa árs. Cuomo er demókrati líkt og Mario Cuomo faðir hans, sem var ríkisstjóri New York frá 1983-94. Andrew var kvæntur Kerry Kennedy, dóttur Roberts F. Kennedy, og eiga þau þrjár dætur en skildu 2005. Andrew Cuomo hefur verið í stjórnmálum nær alla sína tíð, hóf ferilinn raunar sem kosn- ingastjóri föður síns og þjónaði síðar sem húsnæðisráðherra í ríkisstjórn Bills Clintons. Hann hefur ekki verið óumdeildur ríkisstjóri, í kringum hann hafa komist upp ýmis spillingarmál og vinsældir hans verið sveiflukenndar. Hann nýtur nú stuðnings innan við þriðjungs kjósenda. Erfði pólitíska aðalstign CUOMO RÍKISSTJÓRI Andrew M. Cuomo AFP Ríkisstjóri Andrew Cuomo í New York-ríki tekur ofan grímuna, en hann er sakaður um stórkostleg mistök í upphafi faraldursins og yfirhylmingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.