Morgunblaðið - 17.03.2021, Side 2

Morgunblaðið - 17.03.2021, Side 2
Auður djúpúðga, Bombardiervél Icelandair, fór í gærmorgun í sitt fyrsta flug til Akureyrar eftir að leiðakerfi Air Iceland Connect og Icelandair var samþætt. Jafnframt hefur allt sölu- og markaðsstarf í innanlandsfluginu verið sameinað undir vörumerki Icelandair. Áfangastaðir Icelandair í innan- landsflugi verða áfram Akureyri, Egilsstaðir, Ísafjörður og Vest- mannaeyjar. Verða þeir sýnilegir á heimasíðu Icelandair í gegnum eina leit, einn farmiða og tengingu við leiðakerfið í Evrópu og N-Ameríku. Eftir samþættinguna breytist samstarf Norlandair við félagið þannig að flug á áfangastaði Nor- landair verður einungis fáanlegt á heimasíðu þeirra en ekki í gegnum bókunarsíðu Icelandair. Á myndinni til hliðar stíga far- þegar um borð í vél til Akureyrar snemma í gærmorgun. Fyrsta innanlandsflug til Akureyrar í gær undir merkjum Icelandair en ekki Air Iceland Connect Samþætta leiðakerfi félagsins Morgunblaðið/Árni Sæberg 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Jóhann Ólafsson Skúli Halldórsson Kvikugangurinn sem liggur suðvest- ur af Keili og undir Fagradalsfjalli gæti hafa lent á hafti undir Nátthaga við suðurenda fjallsins. Stöðug þensla mælist á svæðinu og kvika heldur áfram að streyma upp og inn í ganginn. Frá þessu greinir Benedikt Gunn- ar Ófeigsson, sérfræðingur á Veður- stofunni á sviði jarðskorpuhreyf- inga, um nýja gervihnattamynd af skjálftasvæðinu sem tekin var í fyrradag. Stóri skjálftinn sem reið yfir á sunnu- dag, 5,4 að stærð, setur mark sitt á landslag Reykja- nesskagans. „Við sjáum mjög skýr merki frá skjálftanum. Það sést ákveðin færsla til norðurs annars vegar og suðurs hins vegar, sitthvorumegin við sprunguna þar sem hann átti upptök sín.“ Freysteinn Sigmundsson, jarðeðl- isfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, segir stöðuna svip- aða og áður; enn eru líkur á því að kvika geti brotist upp á yfirborð jarðar. Mögulegt gossvæði stækkað Mesta skjálftavirknin núna sé í kvikuganginum við norðaustanvert Fagradalsfjall. Mögulegt gossvæði hefur, að hans mati, stækkað og er nú bundið við Fagradalsfjall og ná- grenni en ekki suðurhluta fjallsins eða sunnan við það. Hann segir tímalengdina á þróun kvikugangsins, frá 24. febrúar, at- hyglisverða. Á hverjum degi streymi ný kvika inn í ganginn en á sama tíma er hluti af kvikuganginum að storkna og breytast í berggang; kviku sem mun ekki geta gosið. Freysteinn segir enn fremur eng- in merki um að það sé að draga úr jarðhræringunum og engin merki um að kvikugangurinn sé að færast nær yfirborði jarðar en hann er á um eins kílómetra dýpi þar sem grynnst er á hann. Stöðug þensla á skjálftasvæðinu - Kvikugangurinn gæti hafa lent á hafti undir Nátthaga - Skýr merki um stóra skjálftann á sunnudag á gervihnattamynd - Mesta skjálftavirknin núna í kvikuganginum við norðaustanvert Fagradalsfjall Freysteinn Sigmundsson Morgunblaðið/Eggert Fagradalsfjall Enn eru líkur á að kvika geti brotist upp á yfirborðið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Reykjalundur hefur stöðvað tíma- bundið innlagnir nýrra sjúklinga í endurhæfingu vegna eftirkasta Covid-19, að sögn Stefáns Yngva- sonar, framkvæmdastjóra lækninga á Reykjalundi. Viðræður standa yfir við Sjúkratryggingar Íslands um framhald endurhæfingarinnar. Stef- án gerir ráð fyrir að niðurstaða fáist á næstu dögum og vonar að hægt verði hægt að taka inn nýja sjúk- linga fljótlega eftir páska. „Svigrúmið sem við höfðum í haust er ekki lengur fyrir hendi því við erum aftur komin með fulla starfsemi á Reykjalundi,“ sagði Stefán. Flestir sem hófu endurhæf- ingu vegna Covid-19 hafa lokið henni en um 50 manns eru á biðlista. Þær beiðnir hafa borist á undanförnum vikum. „Við viljum ekki að þessi endur- hæfing komi niður á öðrum sjúk- lingahópum á Reykjalundi heldur að við getum sinnt þessu samhliða og um það snúast viðræðurnar við Sjúkratryggingar. Þær eru á já- kvæðum nótum en það er ekki kom- in niðurstaða,“ sagði Stefán. Hann sagði þetta þýða að fjölga yrði starfsfólki að ein- hverju leyti. „Við breyttum starfseminni í haust þannig að sjúklingarnir voru hálfan dag- inn. Helming- urinn mætti fyrir hádegi og helm- ingurinn eftir hádegi. Það skapaði svigrúm varðandi húspláss og mann- skap til að sinna fleirum. Við höfum þetta svigrúm ekki lengur og þess vegna þurfum við að gera þetta öðru vísi nú,“ sagði Stefán. Flestir eru undir sextugu Um 70 manns hafa þegar útskrif- ast úr endurhæfingu á Reykjalundi vegna eftirkasta kórónuveirusmits- ins. Þeir sem bíða endurhæfingar nú eru fyrst og fremst fólk sem veiktist í þriðju bylgju faraldursins í haust. Flestir á biðlistanum eru undir sex- tugu, eru á vinnufærum aldri og hafa margir verið í vinnu en eru ekki starfhæfir núna. „Verkefnið er stórt og við viljum leysa það,“ sagði Stefán. Tímabundið hlé á endurhæfingunni Stefán Yngvason - Eftirköst kórónuveirufaraldursins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.