Morgunblaðið - 17.03.2021, Side 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
sýnd með íslensKu og ensKu talı
FRÁBÆR MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI.
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SEARCHLIGHT PICTURES PRESENTS A HIGHWAYMAN HEAR/SAY COR CORDIUM PRODUCTION "NOMADLAND" DAVID STRATHAIRN LINDA MAY SWANKIEFRANCES MCDORMAND TAYLOR AVA SHUNG EMILY JADE FOLEY GEOFF LINVILLECO-PRODUCERS
JOSHUA JAMES RICHARDSDIRECTOR OFPHOTOGRAPHY FRANCES MCDORMAND PETER SPEARS MOLLYE ASHER DAN JANVEY CHLOÉ ZHAOPRODUCEDBY JESSICA BRUDERBASED ON THEBOOK BY CHLOÉ ZHAOWRITTEN FOR THE SCREEN,DIRECTED, AND EDITED BY
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
95%
72%
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ef ég hefði hugsað til enda það sem ég lagði af stað
með, þá hefði ég sennilega aldrei byrjað að skrifa
þessa bók. Þetta er svo stórt og persónulegt,“ segir
Björn Halldórsson, höfundar bókarinnar Stol, en
þar segir frá Badda, ráðvilltum, ungum manni sem
kemur heim til Íslands til að annast dauðvona föður
sinn. Saman fara þeir í tjaldferðalag og þar gengur á
ýmsu, sumt er átakanlegt en annað skondið, stund-
um hvort tveggja.
„Flestir upplifa það á einhverjum tímapunkti að
fara í gegnum þetta ferðalag, að missa foreldri. Þá
verða ákveðin kaflaskil í lífinu, foreldrar eru jú fest-
an í lífinu og þeireru hluti af persónu hverrar mann-
eskju. Það var mikil vinna hjá mér að fjarlægja sjálf-
an mig frá sögunni og mína fjölskyldu og það sem ég
hafði gengið í gegnum. Ég hefði miklu frekar viljað
skrifa bók sem var ekki svona erfið fyrir mig, því
þetta var mikil tilfinningabylgja, en ég gat ekki
skrifað um neitt annað. Það komst ekkert annað að,
enda er það stór viðburður að missa foreldri,“ segir
Björn sem missti föður sinn úr heilaæxli árið 2013.
„Að skrifa þessa bók var mjög langt ferli, fyrstu
drög handritsins lágu óhreyfð lengi. Um þessar
mundir eru ævisögulegar skáldsögur mikið við lýði
og því finnst mér ég alltaf þurfa að taka það skýrt
fram að bókin sé skáldsaga; uppspunnin frá rótum.
Baddi er ekki ég og pabbi hans í bókinni er ekki
pabbi minn. Auðvitað er eitthvað af mér í Badda og
ég tengi við tilfinningaferðalagið sem hann gengur í
gegnum, en það er líka eitthvað af mér í öllum öðr-
um persónum bókarinnar.“
Allt hið ósagða á kveðjustundinni
Björn segir að bók hans fjalli að miklu leyti um
tímann. Baddi þurfi til dæmis að sætta sig við að
vegna tímaskorts muni ekki verða neitt lokauppgjör
hjá þeim feðgum.
„Hann mun ekkert geta gengið frá öllu því sem
hann langar í feðgasambandinu, það er hvorki tíma-
rúm né skilningur til þess. Sáttin felst frekar í því að
hann átti sig á að sleppa takinu, að hann leyfi fortíð-
inni að fara og geti fyrir vikið hvílt í augnablikinu.
Sagan snýst um þessa baráttu Badda um að vera til
staðar með pabba sínum, sem er ekki auðvelt þegar
einhver er að kveðja hinsta sinni og tíminn orðinn
eins sérstakur og hann verður við slíkar aðstæður.
Þá finnst fólki það alltaf vera að missa augnablikið
úr höndunum og þá er auðvelt að flýja ofan í síma-
skjáinn, í fortíðina eða í áhyggjur og stress, hverfa
inn í pælingar um hvernig aðrir upplifi hlutina í
kringum þig,“ segir Björn og bætir við að fólk haldi
gjarnan að það muni verða tími til að segja allt hið
ósagða seinna.
„Fólk ýtir þessu á undan sér í vissu um að einn
daginn finni það út úr þessu, að einn daginn fái það
loksins næði til að tala saman, en svo getur það allt
í einu orðið of seint. Þess vegna tók ég þessa
ákvörðun, að láta Badda tala við pabba sinn í ann-
arri persónu, ávarpa hann beint. Fyrir vikið er svo-
lítið á reiki hvar Baddi stendur í samhengi við tím-
ann í sögunni. Hún er skrifuð í nútíð en Baddi er að
læra að tala við pabba sinn í huganum, líka eftir að
hann er farinn. Þetta form kom seint inn hjá mér,
en það var púslið sem small, því með því að spjalla
við manneskju sem er ekki til staðar, þá er hægt að
halda samtalinu gangandi við hinn látna. Það er
heilandi að segja það sem þarf að segja og halda
fólki lifandi með því að halda áfram að tala við það
eftir að það kveður.“
Ungt fólk áttar sig oft ekki á gildi fjölskyldu
Björn segir að ferðalag feðganna sé líka sjálfs-
skoðun hjá Badda.
„Hann er að skoða samband sitt við kærastann í
útlöndum, líf sitt og hvernig manneskja hann hefur
verið. Þarna er einhvers konar uppgjör innra með
honum og allt þetta samviskubit, af því að allir
vaxa frá foreldrum sínum á einhverju tímabili.
Fólk flýgur úr hreiðri og jafnvel úr landi og fer
ekkert að hugsa um samband sitt við foreldrana
fyrr en kemur óvænt að kveðjustund, í hinsta sinn.
Baddi fer að velta fyrir sér forgangsröðinni hjá sér,
en hann er þessi típa sem hóf sín unglingsár seinna
en margir jafnaldrar hans og teygist fyrir vikið
lengra á þeim. Margir átta sig ekki á gildi fjöl-
skyldu á unglingsaldri, en í íslensku samfélagi er
það sem betur fer þannig hjá flestum að sama hvað
gengur á, þá geturðu treyst á að fólkið þitt sé til
staðar fyrir þig. Þú munt þekkja það vel alla þína
ævidaga, en þannig er það ekki alls staðar.“
Að vera með dauðanum er mjög sérstakt
Í lokahluta bókarinnar eru feðgarnir á líknar-
deildinni og Björn segir að sér þyki vænt um þá
deild og að fólkið sem vinnur þar sé dásamlegt.
„Það var mjög sérstök upplifun að vera þar, al-
veg einstök og falleg stund. Á líknardeildinni færðu
næði til að vera með manneskjunni sem er deyj-
andi, af því að fólkið sem vinnur þar sér um allt
amstrið. Að vera með dauðanum og taka þátt í ferl-
inu er mjög sérstakt, en líka gefandi og nauðsyn-
legt. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er fyrir
fólk þegar foreldrar þeirra eða þeirra nánustu
verða bráðkvaddir, ég held það hljóti að vera skelfi-
legt. Með lengri aðdraganda fær fólk þó að minnsta
kosti tíma með viðkomandi, en það gerir tímann um
leið rosalega brenglaðan, hann skekkist allur og
skælist. Maður missir allt tímaskyn þegar maður
gengur í gegnum svona upplifun.“
Tíminn skekkist allur og skælist
- „Flestir upplifa það á einhverjum tímapunkti að fara í gegnum þetta ferðalag,
að missa foreldri,“ segir Björn Halldórsson sem skrifaði söguna Stol um feðga
Morgunblaðið/Eggert
Björn „Sagan snýst um baráttu Badda um að vera til staðar með pabba sínum, sem er ekki auðvelt.“
Leikarinn Yaph-
et Kotto, sem
margir minnast í
hlutverki ill-
menna, tvífara, í
James Bond-
myndinni Live
and Let Die
(1973), er látinn
81 árs að aldri.
Kotto gat sér orð fyrir að leika
einkum harðar persónur, glæpa-
menn, lögregluþjóna og fangaverði,
en hann fór til að mynda með hlut-
verk í kvikmyndunum Alien (1979),
Bruebaker (1980) og Midnight Run
(1988). Hann lék einræðisherrann
Idi Amin í sjónvarpskvikmyndinni
Raid on Entebbe og einnig til dæm-
is lögregluforingja í þáttunum
Homicide: Life on the Street.
Kotto sem lék oft
hörkutól er látinn
Yaphet Kotto
Í nýrri heimildarmynd fjallar rokk-
drottningin Tina Turner, sem er
orðin 81 árs gömul, um alvarleg
veikindi sem hún hefur glímt við.
Hún segist nú vilja stíga inn í þriðja
og síðasta skeið ævi sinnar í ró og
fjarri kastljósum frægðarinnar.
Turner hefur fengið heilablæð-
ingu og glímt við krabbamein. Þá
gáfu nýru hennar sig og áður en
hún fékk nýtt nýra fyrir fjórum ár-
um hafði hún undirbúið að fá að-
stoð við sjálfsvíg en það er löglegt í
Sviss þar sem hún býr. Seinni eigin-
maður Turner, þýski upptökustjór-
inn Erwin Bach sem er 16 árum
yngri, gaf henni nýra úr sér.
Turner segist enn glíma við
áfallastreituröskun vegna mikils of-
beldis sem fyrri eiginmaður, Ike
Turner, beitti hana.
Turner glímdi við
alvarleg veikindi
AFP
Ofurvinsæl Tina vill fá að vera í friði.