Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Hvernig við öðlumst von og vellíðan er nokk- uð sem flestir velta fyrir sér. Sjálf hef ég fundið leið með svokölluðu NEWSTART Program (newstart.com). Það er byggt á meira en 100 ára kenningum E.G. White. Fólk sem lifir eftir þessum kenningum lifir hvað lengst í heim- inum í dag. Í Sjúkraþjálfun Mosfellsbæjar kenni ég þessar aðferðir samhliða sjúkraþjálfun. Lífsstílsbreytingar skila sér og eru vel rannsakaðar af mörgum fræðimönnum um allan heim. Neal D. Barnard læknir skrifaði í bók sinni Foods That Fight Pain að maturinn sem við borðum geti vald- ið verkjum. Hann útskýrir að með því að sleppa ýmsum fæðuteg- undum getum við minnkað bólgu, fundið sökudólgana og náð vellíðan í líkama okkar (Barnard, 1998). Shus- hana Castle og Amy-Lee Goodman gáfu út bókina Rethink Food: 100+ Doctors Can’t Be Wrong. Þessir hundrað læknar skrifa sögur um fólk, sjúkdóma og lífsstíl og hvernig matur tengist vellíðan (Castle og Goodman, 2014). Eddie Ramirez skrifaði um sykursýki 2, Diabetes Can Be Defeated, og hvernig hægt er að losna við eða minnka sykursýki með hundrað prósent breyttum lífsstíl (Ramirez, 2014). Neal Nedley læknir kynnir hvernig mögulegt er að losna við eða minnka þunglyndi í bók sinni Depression the Way Out (Nedley 2001). Á þessum tímamótum vona ég að sem flestir nái betri heilsu. Því má ekki gleyma að góð heilsa er ekki síst undir því komin að lifað sé í sátt. Samanber hina svonefndu æðru- leysisbæn: „Guð, gefi mér æðruleysi, til þess að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ (Reinhold Niebuhr). Ég þakka gott samstarf. Von og vellíðan Eftir Sonju Riedmann Sonja Riedmann » Sjúkraþjálfun Mos- fellsbæjar á 25 ára afmæli 19. mars næst- komandi. Höfundur er sjúkraþjálfari í Sjúkraþjálfun Mosfellsbæjar. Úrskurðarnefnd um- hverfis- og auðlindamála hefur úrskurðað inn- heimtu Hafnarfjarð- arbæjar á gjöldum vegna útgáfu stöðuleyfa fyrir gáma, svokölluð stöðuleyfisgjöld, ólög- mæta. Af úrskurðunum má ráða að Hafnarfjarð- arbær, ásamt öðrum sveitarfélögum, hefur ranglega staðið að álagningu stöðu- leyfisgjalda enda hefur gjaldið ekki einungis verið lagt á án lagaheimildar heldur hefur einnig verið gengið of langt í álagningu gjaldsins. Rétt er að benda á grandsemi Hafn- arfjarðarbæjar um ólögmæta álagn- ingu stöðuleyfisgjalda en Samtök iðn- aðarins hafa frá árinu 2016 óskað eftir því að Hafnarfjarðarbær leiðrétti verklag sitt við innleiðingu gjaldsins án árangurs. Enn hefur bærinn, að því er virðist og þrátt fyrir umrædda úr- skurði, ekki leiðrétt gjaldskrána. Af úrskurðunum má ráða að ákvörðun og álagning stöðuleyfisgjalda hjá Hafn- arfjarðarbæ er meingölluð og andstæð bæði lögum og ríkjandi sjónarmiðum í íslenskum stjórnsýslurétti. Telja sam- tökin að gjaldendur eigi rétt til endur- greiðslu á stöðuleyfisgjöldum greidd- um til Hafnarfjarðabæjar, sem hafa byggst á gjaldskrá sveitarfélagsins. Ljóst er að þau sjónarmið sem á reyndi í máli Hafnarfjarðarbæjar eiga einnig við um önnur sveitarfélög. Sam- tök iðnaðarins hafa því sent áskorun á sveitarfélög um að lagfæra gjaldskrár sínar til samræmis við niðurstöðu úr- skurðanna. Samtökin hafa talað fyrir því að ríki og sveitarfélög létti álögum af fyrirtækjum auk þess að tryggt sé að gjaldtaka sé í samræmi við lög og reglur. Telja samtökin óforsvaranlegt að álagning gjalda byggi ekki á rétt- mætum forsendum, líkt og úrskurð- arnefndin hefur komist að niðurstöðu um í málum Hafnarfjarðarbæjar. Stöðuleyfisgjald er þjónustugjald Stöðuleyfisgjald er þjónustugjald sem sveitarfélögum er heimilt að inn- heimta. Þjónustugjöld eru ólík sköttum að því leyti að þeim er ætlað að standa undir kostn- aði við tiltekna þjónustu en ekki hugsuð sem al- menn tekjuöflunarleið. Samkvæmt 51. gr. mannvirkjalaga nr. 160/ 2012 er sveitarstjórnum heimilt að setja gjald- skrá fyrir veitta þjón- ustu og verkefni bygg- ingarfulltrúa, þar á meðal útgáfu stöðu- leyfa. Skýrt er tekið fram í ákvæðinu það skilyrði að upphæð gjalds skuli taka mið af kostnaði við þjónustu og einstök verkefni og að gjaldskráin skuli byggð á rekstraráætlun þar sem rökstudd eru þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á. Þá má gjald ekki vera hærra en kostnaður. Rangt staðið að álagningu Af niðurstöðu úrskurðarnefndar í máli nr. 28/2020 var ljóst að for- sendur álagningar stöðuleyfisgjalds hjá Hafnarfjarðarbæ byggðu ekki á traustum útreikningi né skynsam- legri áætlun. Í úrskurðinum kemur fram að ætla megi að Hafnarfjarð- arbær hafi litið á stöðuleyfisgjaldið sem tekjulind en ekki þóknun fyrir veitta þjónustu. Gjaldskráin var því ekki í samræmi við kröfur 51. gr. mannvirkjalaga og innheimta stöðu- leyfagjaldsins talin ólögmæt. Þrátt fyrir ákveðnar eftirlitsheim- ildir var öflugt eftirlit bæjarins með gámunum talin þjónusta umfram skyldur, var því ekki hægt að fella þann kostnað inn í stöðuleyfisgjöld. Í rekstraráætlun Hafnarfjarðarbæjar var enn fremur gert ráð fyrir að hluti gjaldsins væri áætluð vanskil hluta gámaeigenda á stöðuleyfagjaldi. Það var talið ganga gegn 51. gr. mann- virkjalaga þar sem kostnaðarliðir sem standa að baki gjaldi verða að vera í nánum tengslum við þá þjón- ustu sem veitt er. Gjaldskrá Hafnarfjarðarbæjar gerir ráð fyrir ákveðnu upphafsgjaldi og svo viðbótargjaldi við hvern gám sem bætist við. Samkvæmt úrskurð- inum er slík gjaldlagning óheimil. Af gr. 2.6.1 í byggingarreglugerð er að- eins heimild til að gefa út eitt stöðu- leyfi, óháð fjölda gáma. Er niður- staðan í samræmi við leiðbeiningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem segir að útgáfa stöðuleyfis skuli vera óháð fjölda þeirra gáma sem leyfið nær til. Af niðurstöðu úrskurðarnefndar í máli nr. 34/2020 má þá ráða að ekki þurfi að sækja um stöðuleyfi vegna geymslu gáma á skipulögðum gáma- svæðum á iðnaðarlóð. Gjaldtöku- heimild 51. gr. mannvirkjalaga verð- ur skv. úrskurðunum ekki túlkuð á þann veg að fjárhæð gjalds vegna út- gáfu stöðuleyfis og tilheyrandi eftir- lits ráðist af stærð eða fjölda lausa- fjármuna sem stöðuleyfið tekur til. Þá er ekki heimild til að innheimta stöðuleyfisgjöld af gámum sem eru á svæðum sem sérstaklega eru skipu- lögð og ætluð til geymslu gáma í skilningi mannvirkjalaga og bygging- arreglugerðar. Sveitarfélög endurskoði álagningu Fjöldi sveitarfélaga innheimtir stöðuleyfisgjöld og ljóst er að fleiri sveitarfélög en Hafnarfjarðarbær hafa innheimt stöðuleyfisgjöld með ólögmætum hætti. Talsvert ósam- ræmi er á fjárhæð gjaldsins á milli sveitarfélaga. Sveitarfélög rukka mörg hver eftir stærð gáma og all- flest sveitarfélög telja sér heimilt að innheimta stöðuleyfisgjald fyrir hvern gám en ekki hvert leyfi líkt og heimildin nær aðeins til. Að mati Samtaka iðnaðarins ber öllum sveitarfélögum á landinu að endurskoða álagningu stöðuleyf- isgjalda í kjölfar úrskurða úrskurð- arnefndar og tryggja að gjaldtakan samræmist lögum. Ólögmæt stöðuleyfisgjöld um land allt Eftir Steinunni Pálmadóttur » Að mati Samtaka iðnaðarins ber öllum sveitarfélögum á land- inu að endurskoða álagningu stöðu- leyfisgjalda. Steinunn Pálmadóttir Höfundur er lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins. Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum má lesa það að ekki sé auðvelt að rekja loftslagsáhrif byggingariðnaðarins og að stærsti hluti áhrif- anna virðist vera frá byggingartíma fast- eigna. Vegna þessara orða viljum við benda á að ef byggt er hefðbundið fjölbýlishús upp á 3.800 m2 br. sem kostar um 1,5 millj- arða í byggingu þá kostar það um 2,0 milljarða kr. að halda því við næstu 80 árin og um 100 milljónir að fjarlægja það í lokin. Sé verið að velta fyrir sér heildar- kostnaðinum þá er hann því 3,6 millj- arðar og þar af minnihlutinn í upphafi, þ.e. byggingarkostnaðurinn. Hér þarf því augljóslega að skoða tímabilið allt frá hugmynd að húsi og þar til það er horfið af yfirborði jarðar til að fá heildarmynd af kostnaði og loftslags- áhrifum þess. Til viðbótar þessari upphæð má leggja til fasteignagjöld og ef við áætl- um þann lið 0,18% sem er fast- eignaskattur íbúðarhúsnæðis, hann er 1,6% af öðru húsnæði, þá bætist við kostnaðarliður upp á 216 milljónir kr. og verður heildarkostnaðurinn þá rúmlega 3,8 milljarðar á líftíma húss- ins. Einnig má bæta við gjöldum til veitna, vaxtagjöldum o.fl. sem er ekki gert hér. Með notkun BYGG-kerfisins með Viðhaldskerfinu sem viðbót þá má lesa nákvæmlega magn og kostnað hvers þáttar í byggingunni, bæði kostnað við nýbyggingu hennar og kostnað við viðhald hennar yfir líftíma hennar. Hversu mikið hver þáttur kostar og hvaða áhrif hann hefur á losun gróðurhúsalofttegunda á líftíma hússins fer m.a. eftir endingu hans. Dæmi um þetta er t.d. Steinsteypa um 2.000 m3 kemur einu sinni fyr- ir á 80 árum = 2.000 m3 Parkett um 1.520 m2 kemur tvisvar fyrir á 80 árum = 3.040 m2 Eldhúsinnrétting um 152 lm kemur þrisvar fyrir á 80 árum = 456 lm Málun inni um 1.400 m2 kemur sex sinnum fyrir á 80 árum = 8.400 m2 Ganga má út frá að hver þáttur losi ákveðnar gróðurhúsaloftteg- undir og með því að bæta þeim upp- lýsingum við þá er komið svar við því hver losun þessa húss er á líftíma þess. BYGG-kerfið með Viðhaldskerfinu er þannig hjálpartæki sem auðvelt er að nota við að reikna magn, kostnað og losun gróðurhúsalofttegunda húss á líftíma þess og fá sundurliðun þess fyrir hvern þátt bygging- arinnar. Með þessu er ekki bara auðvelt að velja hagkvæmustu byggingarefnin heldur einnig að velja þau bygging- arefni sem losa minnsta magn gróð- urhúsalofttegunda. Þessir tveir þættir fara auðvitað ekki saman en eru góður grunnur að efnisvali eftir því hvað lögð er áhersla á. Hjálpartæki bygg- ingarstarfseminnar við að ná loftslags- markmiðunum Eftir Sigurð Ingólfsson Sigurður Ingólfsson »Með þessu er auðvelt að velja hagkvæm- ustu byggingarefnin og einnig að velja þau byggingarefni sem losa minnsta magn gróður- húsalofttegunda. Höfundur er framkvæmdastjóri Hannars ehf. Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is VANDAÐIR STÓLAR fyrir ráðstefnu-, veislu- og fundarsali Fastus býður upp á mikið úrval af húsgögnum og innréttingum fyrir hótel, mötuneyti, veitingastaði, ráðstefnur, fundi o.fl. Komdu og kynntu þér úrvalið. Við sérpöntum eftir þínum óskum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.