Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 17.03.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Guðni Einarsson Atli Vigfússon Það er vor í lofti og fyrstu farfugl- arnir þegar komnir. Einnig flæktist hingað fjöldi svartþrasta nýlega og flækingsfuglar af nokkrum teg- undum þegar kröpp lægð kom að landinu í lið- inni viku. „Álftir byrjuðu að koma í febr- úar, sem og tjald- ar og fyrstu síla- máfarnir,“ sagði Yann Kolbeins- son, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands á Húsavík. Hann taldi líklegt að far- fuglum fjölgaði nú þegar bregður til sunnanáttar. „Nú ættu að fara að koma meira af álftum, gæsum, sílamáfum og tjöldum. Svo held ég að það sé von á fyrstu skógarþröstunum og heið- lóunum innan viku ef veðurspárnar rætast,“ sagði Yann. Nokkrar heiðlóur þreyðu veturinn á Seltjarn- arnesi og ef til vill líka suður með sjó. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræð- ingur var austur í Meðallandi í síð- ustu viku og sá þar grágæsir sem voru örugglega nýkomnar til lands- ins því grágæsir hafa ekki vetursetu þar. Hann var einnig í Meðallandi viku fyrr og hafði álftum fjölgað töluvert í millitíðinni. „Þetta hlýtur að fara að bresta á,“ sagði Jóhann um farflugið. Hann sagði að sílamáfi sé að fjölga smátt og smátt en hann komi ekki að ráði fyrr en upp úr næstu mánaðamótum. „Þetta fer mikið í gang um mán- aðamót mars og apríl. Þá fara að koma gæsir, endur, lóur og fleira,“ sagði Jóhann Óli. Bylgja af svartþröstum „Í kjölfar lægðagangs um miðja síðustu viku má segja að svart- þröstum hafi bókstaflega kyngt nið- ur á norðan- og austanverðu landinu. Þegar hefur verið tilkynnt um nærri 1.450 fugla. Tilkynningar um nýleg- ar komur svartþrasta ná frá Miðfirði við Hrútafjörð alla leið austur á Seyðisfjörð. Meginþorri fuglanna hefur fundist á svæðinu frá Grímsey og Skjálfanda í vestri, austur á Langanes.“ Þetta segir Yann Kol- beinsson. Hann segir að hér sé um einstakan atburð að ræða og ekki vitað til þess að þvílíkur fjöldi svart- þrasta hafi áður hrakist hingað til lands. Yann nefnir um 230 svartþresti á Kópaskeri, 165 á Þórshöfn, minnst 135 á Húsavík, 100 í Grímsey og 92 á Raufarhöfn. Þessir fuglar voru væntanlega á ferð frá Vestur- Evrópu og á leið norður með Bret- landseyjum eða til sunnanverðrar Skandinavíu þegar þeir villtust af leið í mildum loftmassa sem kom inn á norðausturhornið um miðja síð- ustu viku. Hlýindin stöldruðu reynd- ar stutt við og í kjölfarið kom vetur á ný. Það hefur gert ansi mörgum fuglum erfitt fyrir og hafa þeir því sótt hart heim að bæjum, sér í lagi þar sem æti hefur verið hent út auk þess sem þeir halda sig við fjörur þar sem eitthvað bitastætt er að finna. Yann segir að það hafi sést ýmsir flækingsfuglar samhliða þessari svartþrastagöngu. Þar ber helst að nefna þrjár hagaskvettur. Þær voru á árum áður reglulegir flækingar um þetta leyti en hafa verið mjög sjald- séðar síðustu þrjá áratugi. Óvenju- margir sönglævirkjar hafa fundist eða fimm talsins, en oftast flækjast þeir hingað á haustin. Einnig hefur verið tilkynnt um fjórtán skógar- snípur, níu vepjur, fimm söngþresti og tvo mistilþresti svo fátt eitt annað sé nefnt. Svartþrestirnir eru þreyttir og sumir aðframkomnir eftir að hafa hrakist svo lengi með veðrinu. Yann er búinn að sjá fugla sem eiga ekkert eftir nema að deyja. Hins vegar segja sumir að svart- þrestir séu svo duglegir að margir muni lifa af og hugsanlega verpa hér eða jafnvel snúa til baka. Á sveita- bæjum í Þingeyjarsýslu hafa þeir víða verið undanfarna daga og þegið matargjafir, það er brauð, kjöt og fleira gott. Víða eru þeir komnir inn í útihús þar sem þeir hafa leitað skjóls og matar. Líklega verða þeir sem lifa til vors eða þar til veður batnar. Fólk tilkynni um svartþresti Athugendur á norðan- og austan- verðu landinu eru hvattir til að senda tilkynningar um nýkomna svartþresti til Yanns á netfangið yann@nna.is. Einnig þykir honum áhugavert að fá tilkynningar og/eða myndir um aðra flækingsfugla sem kynnu að hafa sést síðastliðna viku. Fyrstu farfuglarnir eru komnir - Álftir, grágæsir, tjaldar og sílamáfar þegar farnir að koma - Brátt kemst aukinn kraftur í far- flugið - Kröpp lægð bar fjölda svartþrasta og flækingsfugla af nokkrum tegundum til Norðurlands Ljósmyndir/Yann Kolbeinsson Svartþröstur Svipaður gráþresti að stærð og þekkist á löngu stéli og jöfnum svörtum lit. Goggurinn er gulur. Hagaskvetta Nýlega komu þrjár hagaskvettur með krappri lægð til landsins. Tegundin hafði aðeins sést hér 21 sinni áður. Matvælastofnun (mast.is) hefur lagt til við atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytið að fyrir- skipa tímabundnar varnar- aðgerðir eftir miðjan mars vegna hættu á að fuglaflensa berist til landsins. Stofnunin hvetur alla sem halda alifugla til að skrá fuglahald sitt á mast.is. Þannig verður hægt að upplýsa fuglaeigendur fljótt ef fugla- flensusmit greinist hér. Margir farfuglar koma frá svæðum þar sem skæð fugla- flensa hefur greinst bæði í villt- um fuglum, alifuglum og öðrum fuglum í haldi. Töluverðar líkur eru taldar á því að alvarleg af- brigði fuglaflensuveiru geti bor- ist með farfuglum til landsins. Töluverðar líkur á smiti FUGLAFLENSA Í EVRÓPU Fallegar vörur fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Nýja Tokyo línan komin í sýningasal Yann Kolbeinsson Þyrla Landhelgisgæslunnar hífði tökulið bresku fréttastofunnar BBC upp úr farþegabát eftir að hann lak og varð vélarvana norður af Horn- ströndum um fjögurleytið í gær. Auk farþeganna sex var tveggja manna áhöfn um borð en engum varð meint af. Eftir að Landsbjörg var gert við- vart um aðstæður voru tveir björg- unarbátar sendir á vettvang auk TF- EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, en fiskveiðibáturinn Otur kom fyrst- ur á vettvang og tók bátinn í tog, um klukkustund eftir að tilkynnt hafði verið um óhappið. Því næst voru far- þegar hífðir upp í þyrlu Landhelgis- gæslunnar og sjódælum komið fyrir í bátnum til þess að gæta fyllsta ör- yggis en því næst dró Gísli Jóns, björgunarbátur Landsbjargar, far- þegabátinn í Ísafjarðardjúp. Þyrlan lenti með farþegana um hálfátta í gærkvöld. veronika@mbl.is Tökulið BBC í háska á Ströndum - Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti farþega Ljósmynd/Landhelgisgæslan Hornstrandir Farþegar voru hífðir upp úr bátnum áður en hann var dreginn. Báturinn lak og varð vélarvana norður af Hornströndum í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.