Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Beðið Kindur á vetrarbeit í nágrenni við Grindavík, grunlausar um yfirvofandi hættu á eldgosi við túnfótinn. Skepnur skynja vel jarðskjálftana eins og mannfólkið. Eggert Hagfræðingar eru líklega sú stétt sem hefur mesta unun af deilum og loðnum svörum. Í þrasgirni sinni eru þeir sammála um fátt annað en gildi fræðigreinarinnar. En um eitt eru flestir þeirra (a.m.k. þeir sem teljast sæmilega frjáls- lyndir) þó sammála: Því meira sem eitthvað er skatt- lagt því minna færðu af því. Að sama skapi: Því meira sem vel- gengni er skattlögð því minni verð- ur velgengnin. Með því að skatt- leggja minna er hægt að fá meira. Almenn velmegun og hagsæld getur aukist eftir því sem „refsingin“ fyrir velgengni er mildari. Ýmsir frjálslyndir hagfræðingar og stjórnmálamenn hafa á stundum haldið því fram að skattsvik séu nauðvörn einstaklingsins gegn skat- taáþján hins opinbera. Auðvitað taka þeir of djúpt í árinni en í stað- hæfingunni leynist örlítið sannleiks- korn. Kannski væri betra að halda því fram að nauðvörnin sé fremur fólgin í því að halda að sér höndum eða taka til fótanna – að minnsta kosti fyrir hæfileikaríkt fólk sem vegna þekkingar eða menntunar er óháð landamærum. Samkeppni milli landa hefur auk- ist á flestum sviðum ekki síst um fjármagn (fjárfestingar) og hæfi- leikaríka starfsmenn. Hreyfanleiki fjármagns og vinnuafls hefur gert það að verkum að ekkert land er eyland þegar kemur að regluverki, starfskjörum eða skattheimtu. Þegar tekin er ákvörðun um skattheimtu verður því alltaf að huga að samkeppnisstöðu landsins, jafnt þegar kemur að fyrirtækjum og launafólki. Við þurfum einnig að velta því fyrir okkur hvort skatt- kerfið takmarki fremur en hámarki skatttekjur ríkis og sveitarfélaga og dragi þar með úr möguleikum sam- félagsins til að standa undir því vel- ferðarkerfi sem við viljum að sé öfl- ugt. En fleira skiptir máli líkt og John F. Kennedy, for- seti Bandaríkjanna, benti á í ræðu 1962. Hann varaði við þeirri hættu sem fylgir skatt- heimtuvaldi stjórn- málamanna. Gangi þeir of langt leggist lamandi hönd yfir efnahagslífið; jafnvægi náist ekki í ríkis- fjármálum, hagvöxtur verði ekki nægilegur og ný störf verði ekki til. Við þurfum ekki að fara langt aftur í hagsögu okkar Ís- lendinga til að fá staðfestingu á varnaðarorðum Kennedys. Sem sagt: Við eigum að sníða skattheimtuna með þeim hætti að hún hafi ekki letjandi áhrif á ein- staklinga og fyrirtæki til efnahags- legra athafna – hvetji fremur. Hið sama á við um regluverkið allt. Ranglátt skattkerfi Ég hef lengi verið sannfærður um að tekjuskattskerfi einstaklinga sé ranglátt og vinni gegn þeim markmiðum sem stjórnmálamenn segjast vilja ná; að vera tekjujöfn- unartæki á sama tíma og tekjur rík- isins séu tryggðar, jafnvel hámark- aðar. Þrepaskipt tekjuskattskerfi með tekjutengingum og háum jaðar- sköttum er með innbyggðan galla sem vinnur gegn launafólki ekki síst því sem er með lægstu tekjurnar. Halda má því fram að eftir því sem staða fólks á vinnumarkaði er lakari því óréttlátara er tekjuskattskerfið. Gallarnir verða augljósir þegar gerðar eru breytingar á skattleys- ismörkum – persónuafslætti. Eftir því sem laun eru lægri því meira vægi hefur persónuafslátturinn. Hækkun skattleysismarka (per- sónuafsláttar) ganga upp allan tekjustigann. Þegar launafólki tekst að afla hærri launa og bæta sinn hag er líkt og það sé barið niður með sleggju; það lendir í hærra skattþrepi og tekjutengdum skerð- ingum. Háir jaðarskattar eru meira íþyngjandi fyrir þá sem hafa lægstu launin og hafa að baki litla formlega menntun. Hið sama á raunar við um þá sem eru í starfi þar sem lítil eða engin samkeppni ríkir, s.s. stóran hluta opinberra starfsmanna. Ýtir undir launamun Sterk rök eru fyrir þeirri fullyrð- ingu að jaðarskattar auki launa- muninn í þjóðfélaginu fremur en að jafna kjörin. Fyrir launamanninn skiptir mestu hversu mikið er eftir í launaumslaginu eftir að skattar hafa verið greiddir – ráðstöfunar- tekjur og kaupmáttur þeirra. Starfsmaður sem er eftirsóttur, er hreyfanlegur, með góða mennt- un, nýtur þess í formi hærri launa og betri starfskjara en aðrir. Slíkur starfsmaður er líklegur til að fá bættan „skaðann“ sem hann verður fyrir vegna tekjutenginga, hárra jaðarskatta og/eða hækkunar tekju- skatts. Atvinnurekandinn verður að koma til móts við skertar ráðstöf- unartekjur. Að öðrum kosti leitar starfsmaðurinn annað. Ég hef oft áður bent á að slíkur starfsmaður á a.m.k. tvo möguleika; fá „skaðann“ bættan í formi hærri launa hjá öðr- um vinnuveitanda (oft í öðru landi) eða þiggja lægra launað starf, þar sem álagið er minna, ábyrgðin minni og vinnutíminn styttri. Á síðustu árum hefur tekist að lækka tekjuskatt einstaklinga tölu- vert. Skattbyrði hefur lækkað, ekki síst þeirra sem hafa lægstu launin. Þversögn skattkerfisbreytinganna, sem sá er hér skrifar tók þátt í að gera, er sú að innbyggðir gallar hafa ekki verið sniðnir af heldur þvert á móti, en með nýju lægra skattþrepi tókst að tryggja léttari skattbyrði. Ranglæti skattkerfisins hefur því ekki verið leiðrétt og verður illa gert með þrepaskiptingu og tekju- tengingum. Ef allir gallar og refs- ingar tekjuskattskerfisins eru hafð- ir í huga er illa hægt að komast að annarri niðurstöðu en að stokka verði allt kerfið upp. Markmiðið er einfalt kerfi, þar sem dregið er úr jaðarsköttum, byggt er undir hvata og umfram allt hætt að refsa fólki þegar því tekst að bæta eigin hag. Flatur og einfaldur skattur Ég hef sem sagt aldrei verið hrif- inn af þrepaskiptu skattkerfi en barist fyrir flötum tekjuskatti. Í janúar 2018 setti ég fram tillögu, hér á síðum Morgunblaðsins, um flatan tekjuskatt – eina skattpró- sentu óháð tekjum – en um leið taka upp nýjan persónuafslátt sem lækki eftir því sem tekjur hækka. Í slíku kerfi er réttlætanlegt að ónýttur persónuafsláttur sé greidd- ur út – þ.e. tekjuskattur þeirra sem lakast standa verður neikvæður. Meðfylgjandi skýringarmynd sýnir með einföldum hætti hvernig skattbyrðin verður misþung eftir tekjum. Launamaður með laun und- ir skattleysismörkum greiðir ekkert og fær hugsanlega greiddan út ónýttan persónuafslátt séu tekjur undir ákveðnu viðmiði. Raun- skattprósentan (skattbyrðin í hlut- falli af launum) verður því hærri sem tekjur eru hærri enda lækkar persónuafslátturinn með hækkandi tekjum. Þegar þeim launum er náð, þar sem persónuafslátturinn er núll, verður skattprósentan flöt – sú sama. Ég hef ekki talið skynsamlegt að leggja til ákveðna tölu um flata skattprósentu eða skattleysismörk (persónuafslátt). Það er hins vegar augljóst að kerfisbreytingin krefst þess að skattleysismörkin verði hækkuð verulega. Skattprósentan verður töluvert lægri en hæsta þrep gildandi tekjuskatts. Stígandinn í skattbyrðinni er pólitísk ákvörðun (og einnig efnahagsleg) á hverjum tíma. Hér skal það fullyrt að upp- stokkun af þessu tagi styrkir stöðu langflestra launamanna, fyrst og síðast þeirra sem eru með lægstu launin og meðaltekjur. Innbyggðar refsingar og letjandi hvatar eru sniðnir að mestu af. Að minnsta kosti verður sleggjan sem ber launafólk í hausinn þegar því tekst að bæta kjörin, fjarlægð og eyði- lögð. Í aðdraganda kosninga er það a.m.k. einnar messu virði fyrir launafólk að krefja þá, sem leita eft- ir stuðningi til að setjast á Alþingi, svara við því hvort þeir eru tilbúnir til að taka þátt í að eyðileggja sleggjuna. Eftir Óla Björn Kárason » Í slíku kerfi er réttlætanlegt að ónýttur persónuaf- sláttur sé greiddur út – þ.e. tekjuskattur þeirra sem lakast standa verður neikvæður. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Stiglækkandi persónuafsláttur og réttlátara skattkerfi Skattbyrði sem hlutfall af launum Flatur tekjuskattur og stighækkandi persónuafsláttur Flöt skattprósenta Skattgreiðsla Ónýttur persónuafsláttur – neikvæður tekjuskattur Persónuafsláttur verður 0 krónur TEKJUR S K A T T B Y R Ð I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.