Morgunblaðið - 17.03.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 17.03.2021, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 ✝ Lilja Huld Sæv- ars fæddist 9. júní 1939 í Reykja- vík. Hún lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 3. mars 2021 eftir stutt veikindi. Foreldrar henn- ar voru Svava Sig- urbjörnsdóttir saumakona og Ás- grímur Þorsteins- son bóndi á Ásbrekku í Vatnsdal. Hálfsystkini eru Guðmundur Ólafs Ásgrímsson, Þorsteinn Er- lings Ásgrímsson, Sigurlaug Ingibjörg Ásgrímsdóttir, Guðrún Ása Ásgrímsdóttir, Ólöf Hulda Ásgrímsdóttir og Ólafur Sigur- björn Ásgrímsson. Hún giftist Ernst Michalik (Árna Péturssyni) og eignuðust þau tvær dætur: 1) Ína Karlotta, f. 1961. Maki Dagur Brynjólfs- son. Börn þeirra Lilja Kristín, f. 1983, maki Brynjar Laufdal Erl- ingsson. Börn Ísabella, f. 2009, og Björn, f. 2019. Árni Brynjar, f. 1993. Sambýliskona Helga Rún Heimisdóttir, barn Ronja 2019. 2) Svava Kristín Árnadóttir (Egilson), f. 1966, maki Kjartan Egil- son (skilin) Börn: Íris Ósk, f. 1988. Maki Christian Gyldmark, barn Viktor Máni, f. 2019. Magnús Freyr, f. 1992, sambýliskona Álfhildur Rögn Gunnarsdóttir. Seinni maður Lilju: Magnús Jó- hannsson, stjúpbörn Gunnlaugur, f. 1966, maki Arnheiður Þor- steinsdóttir (skilin), barn Hólm- fríður 1995. Barnsmóðir Guðný Ósk Unnarsdóttir. Börn Alexand- er Heiðar, f. 2014, og Viktor Máni, f. 2016. Jóhann, f. 1966. Hólmfríður, f. 1967. Útförin fer fram frá Áskirkju í dag, 17. mars 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/5a7a6tht/. Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/. Níunda júní árið 1939 kom lítil stúlka í heiminn og fékk nafnið Lilja Huld Sævars. Dóttir Svövu Sigurbjörnsdóttur saumakonu. Nokkrum dögum fyrir fæðingu dreymdi Svövu bát á lygnum sjó sem bar nafnið Huld. Stúlkan fékk nafnið Lilja eftir móðurömmu sinni Huld frá bátnum og Sævars frá hafinu. Þegar maður hugsar um Lilju Huld þá sigldi hún á lygnum sjó. Nærvera hennar er minnisstæð, ró og yfirvegun og ið- in við að láta öðrum líða vel. Hún ólst upp í Vonarstræti og síðar í Bergstaðastræti. Svava var saumakona og var með verkstæð- ið heima. Það hefur eflaust vakið áhuga hennar á tísku og handa- vinnu sem hefur ávallt skipað stórt hlutverk í lífi hennar. Á sumrin var hún í Vík í Mýrdal þar sem hún átti sér sumarfjöl- skyldu, þær minningar hafa alltaf staðið hjarta hennar nær. Leiðin lá svo í Kvennaskólann, þar eignaðist hún sínar bestu vin- konur þær Kristínu, Eddu, Hönnu og Sissu og hélst sá vinskapur og reglulegir saumaklúbbar allt hennar líf. Hún lærði dans hjá Rigmor Hansen og dansað var í Gúttó og sýndi hún dóttur sinni í Austurríki fyrir aðeins tveimur árum að það er munur á vínarvals og vals og hún hafði engu gleymt. Hún starfaði á skrifstofu Smjörlíkisgerðarinnar og á Teiknistofu Sveins Kjarval, þar kynntist hún Ernst Michalik. Síðar hóf hún starf hjá skrif- stofu Skeifunnar og var meðal annars framkvæmdastjóri Bæjar- bólstrunar ehf., dótturfyrirtækis Skeifunnar til nokkurra ára, og lauk starfsferlinum hjá skipadeild Sambandsins. Hún var félagi í Oddfellow- reglunni yfir 50 ár þar sem hún gegndi ýmsum störfum, meðal annars í fjáröflunarnefnd og eru ófáar stundir sem hún lagði lið sitt við jóladúkkugerð sem dætur hennar minnast vel. Seinni maður Lilju var Magnús Jóhannsson. Með Magnúsi var mikið ferðast, erlendis og innanlands. Þau byggðu upp sumarbústað við Hafravatn sem fékk nafnið Brellur. Morgnar í Laugardals- laug eða Varmárlaug voru dag- venjur þar sem góður kunningja- hópur myndaðist. Magnúsar og Lilju verður lengi minnst fyrir gestgöfgi og margar góðar veislur voru á Brellum og á Laugarásveg- inum þar sem hún töfraði fram veislur og dekraði við bragðlauka gesta sinna. Þegar kraftar Magn- úsar fóru dvínandi stóð hún sem klettur við hlið hans, en hann lést 2011. Lilja tók lífinu eins og það kom fyrir og hefur reynst dætrum og stjúpbörnum sínum Gunnlaugi, Jóhanni og Hólmfríði Magnús- börnum ávallt vel, sem þau eru af- ar þakklát fyrir. Bæði í blíðu og í stríðu. Hún var virk í félagstarfi aldr- aðra á Aflagranda og Sléttuvegi. Barnaspítali Hringsins naut margra bútasaumsteppa sem voru gerð í samstarfsverkefni við Bútasaumsfélag Íslands. Ófá verk liggja eftir Lilju og sú handa- vinnugleði færðist yfir til dætra hennar sem báðar finna ró í sköp- un af ýmsu tagi. Síðustu árin naut hún þess að dveljast í Austurríki hjá Svövu, og að heimsækja barnabörnin og barnabarnabörn í Danmörku. Síð- ustu vikurnar voru dýrmætar fyr- ir hana þar sem hún var í góðu yf- irlæti hjá Ínu og stórfjölskyldu hennar. Vegna aðstæðna sl. árs hafa netsamtöl bjargað miklu og stundum var skálað í rauðvíni milli Íslands og Austurríkis. Hún var þess vitandi að tíminn hér væri á enda og hún sagði oft ég er sátt við mitt líf, ég er þakk- lát, ég hef átt gott líf. Og báturinn Huld sigldi með Liljuna á lygnum sæ yfir á annað svið. Með ljós í hjarta kveðjum við þig elsku mamma, Ína og Svava. Þó ég sé látin, harmið mig ei með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látin mig þið haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höfundur óþekktur) Þessar línur koma upp í hugann þegar mér verður hugsað til minn- ar ástfólgnu stjúpmóður Lilju Huldar Sævars sem lést af veik- indum sínum á líknardeildinni í Kópavogi þann 3. mars sl. Margs er að minnast og margs að sakna þegar ég hugsa til baka. Þú hefur verið í mínu lífi frá því ég fyrst man eftir mér. Byrjaðir sem starfsmaður hjá föður mínum í Skeifunni húsgagnaverslun/Bæj- arbólstrun og varðst síðar eigin- kona hans mörgum mörgum árum síðar. Ef ég ætti að að nefna þinn helsta eiginleika þá var það hin stóíska ró og góðsemi sem þú hafðir í hrönnum. Þú varst meist- arakokkur og aldrei var maður fyrr sestur heima hjá þér en kræs- ingarnar hreinlega drupu af borð- um. Ég gantaðist alltaf við þig um að þú gætir búið til veislumat úr vatni og tekexi svei mér þá! Þú varst minn allra besti vinur og trúnaðarmaður, og þá sérstaklega eftir andlát pabba 2011. Það sem við gátum spjallað mikið saman og fórum oft út að borða og enduðum við nú oftast á Laugarás sem okk- ur fannst nú bera af í matargerð. Ferðin okkar til Austurríkis sam- an að heimsækja Svövu dóttur þína var bara yndisleg í alla staði. Við tvær vorum svona „haltur leiðir blindan“, ég nýkomin úr skurðaðgerð og þú að drepast í fótunum og okkur rúllað í hjóla- stólum á Keflavíkurflugvelli og í München fram fyrir alla og fíluð- um okkur alveg eins og drottning- ar og það sem okkur fannst fyndið að vera hífðar í sérstakri lyftu upp í flugvél. Ógleymanlegt! Það sem situr líka svo mikið eftir hjá mér voru morgnarnir í Hall þegar við vorum að fá okkur morgunverð saman og spjalla um allt og ekk- ert. Fannst það alltaf svo yndis- legar stundir og minnti mig bara á löngu liðna tíma. Það eru svona litlu hlutirnir í lífinu sem skilja alltaf mest eftir. Á endalaust af yndislegum minningum um samveru okkar í gegnum árin Lilja mín. Mér finnst alveg hræðileg sú staðreynd að þú sért farin frá mér. Engin sím- hringing framar þar sem mynd af þér birtist alltaf á skjánum. Þú varst sú allra þolinmóðasta og elskulegasta manneskja að tala við og eiga að. Bara toppeintak að öllu leyti elskuleg. Að hafa haft þig í lífi mínu í öll þessi ár þegar litið er til baka, hafa bara verið forréttindi mín elsku- lega stjúpa og ég mun sakna þín langt fram yfir dauðann og eins og þú lofaðir mér á dánarbeði þá ætl- ar þú að taka mér fagnandi þegar minn tími hér á jörðu er liðinn. Ég hreinlega hlakka til að hitta ykkur öll þarna uppi. Mun elska þig ávallt og sakna. Hafðu þakkir fyrir allt og allt mín elskulega yndislega stjúpa. Hólmfríður Díana Magnúsdóttir (Systa). Við vorum svo heppin að eiga hana elskulegu Lilju okkar sem ömmu og langömmu. Strax við fyrstu kynni mynduðust náin bönd okkar á milli sem héldust fram á síðasta dag. Amma Lilja var einstaklega falleg, hjartahlý og einlæg mann- eskja. Nærvera hennar og útgeisl- un fór ekki fram hjá þeim sem hana hittu. Lúmskur húmoristi sem kitlaði oft hláturtaugarnar og verður ávallt minnst með breiðum brosum. Þrátt fyrir að vera búsett í Dan- mörku erum við þakklát fyrir það tækifæri sem okkur gafst, að hitta hana og knúsa áður en hún hélt á vit nýrra ævintýra. Okkur þykir leitt að ekki hafa gefist meiri tími en verðum æv- inlega þakklát fyrir liljuna okkar og fögnum þeim fallegu minning- um sem við barnabörn og barna- barnabörn eigum. Beint og óbeint hefur Lilja amma átt sterkan þátt í að móta okkur á okkar lífsleið og verið ein af okkar sterkustu fyrirmyndum. Við munum halda áfram að lifa eftir þeim lífsgildum sem hún kenndi okkur, og sjá til þess að ystu greinar ættartrésins tileinki sér þau - því með þeirri jákvæðni og góðmennsku sem í henni bjó munu allir vegir vera bleyjuboss- unum færir. Þakklæti og ljúfar minningar lifa. Árni Brynjar Dagsson, Lilja Kristín Dagsdóttir og fjölskyldur. Sofðu, hvíldu sætt og rótt, sumarblóm og vor þig dreymi! Gefi þér nú góða nótt guð, sem meiri’ er öllu’ í heimi. (G. Guðm.) Í dag er lögð til hinstu hvílu eft- ir nokkurra mánaða veikindi Lilja Huld Sævars, móðursystir mín. Lilja var einstaklega ljúf, glaðlynd og jarðbundin. Það var alltaf gott að hitta hana og hún var mikill höfðingi heim að sækja og bjó sínu fólki alltaf sérstaklega fallegt heimili. Lilja var listræn og mikil handavinnukona. Fyrir nokkrum árum gaf hún mér klukkustreng og púða sem hún hafði hannað með sérstaklega fallegum bláum litum og gyllingum sem minna á kirkjulegan refil. Alltaf þegar ég horfði á klukkustrenginn sé ég bláa tóna Íslands og ég hugsa til hennar með þakklæti í hjarta. Eftir að Lilja varð ekkja var hún dugleg í félagslífinu og var í handavinnuhópum víða um bæ al- veg fram á síðasta ár þegar heim- urinn stóð allt í einu kyrr vegna kófsins. Nú syrgir mamma systur sína, en í síðasta samtali þeirra sagði Lilja henni að hún væri sátt við allt og þakklát fyrir sitt góða líf. Þetta æðruleysi lýsir Lilju ein- staklega vel og ég er glöð að mamma geti huggað sig við þessi orð. Elsku Ína og Dalli og Svava Kristín og afkomendur, ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðar- kveðjur, en veit að Lilja mun lifa í minningunni. Dóra Ósk Halldórsdóttir. Í september 1977 kom undirrit- uð í skóla til Reykjavíkur. Þar leigði ég herbergi í raðhúsi í Sæ- viðarsundi og við hliðina bjó Lilja frænka, Árni (Mikki) maður henn- ar sem var danskættaður og dæt- ur þeirra. Hjá þeim fékk ég kost og leiðbeiningar um hvernig ég ætti að verða Reykjavíkurmær. Lilja var búin að tala við stúlk- ur sem urðu mér samferða í skól- ann og læra á Strætó. Hún var bú- in að gefa mér verkefni við þrif á heimili hennar og aldrei minnist ég annars en að okkur hafi gengið samvinnan vel. Lilja var mjög skipulögð og hamhleypa til verka, hvort sem var bókhald fyrirtækja, allur rekstur þeirra og heimilis svo ég tali nú ekki um alla þá handa- vinnu, saumaskap, prjóna og fönd- ur, sem hún lagði til heimilis og fé- lagasamtaka. Allt gerði hún þetta án þess að maður yrði þess var. Lilja var snillingur að töfra fram veitingar á tíu mínútum. Ég gleymi aldrei „smörrebrödid“ sem hún bar fram gjarnan á kvöldin, eitthvað annað en súrt slátur og hræringur sem ég átti að venjast úr sveitinni. Eins og gerist og gengur varð ekki mikill samgangur um tíma, frekar við dætur hennar Ínu og Svövu en síðustu ár höfum við hist af og til eftir að hún missti seinni mann sinn. Eitt sinn kemur ömmustrákur- inn minn til mín og biður mig um að sauma á sig mörgæsabúning. Úps, skyldi ég geta gert það? Þá hugsaði ég til Lilju frænku sem var tilbúin að hjálpa mér. Dreng- urinn var í fallegasta búningnum þegar upp var staðið og hann þakkar enn hvað honum fannst gaman að hitta Lilju og sjá alla hlutina sem voru á hennar heimili. Einn hlutur sem drengurinn undraðist var reykjarpípa. Það var ekki fyrr en við komum út í bíl sem hann spurði mig í forundran: „Reykir hún? Nei, þetta var minn- ing um mann.“ Lilja hafði sérstaklega góða nærveru, góðan húmor, talaði allt- af vel um alla og var góður hlust- andi. Fyrir allt sem hún gaf mér bæði andlegt og veraldlegt þakka ég af heilum hug. Fallega teppið frá henni mun halda áfram að ylja mér á vetrarkvöldum. Engin manneskja sem ég hef kynnst var eins þakklát fyrir lífið og Lilja þegar við kvöddumst í hinsta sinn. Fyrir utan spítalann opnuðust flóðgáttir. Ég votta Svövu, Ínu og Dalla, barnabörnum og langömmubörn- um dýpstu samúð. Þín frænka, Ólöf Þorsteinsdóttir. Lilja Huld Sævars HINSTA KVEÐJA Elsku Lilja. Vinátta okk- ar hefur staðið í tæp sjötíu ár, síðan við hittumst í Kvennó 1952. Margs er að minnast. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Ég sakna þín. Kristín Eiríka Gísladóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÆVAR GUÐMUNDSSON, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 18. mars klukkan 13. Vinir og ættingjar velkomnir meðan húsrúm leyfir en í ljósi aðstæðna eru gestir beðnir að hafa með sér á blaði nafn, símanúmer og kennitölu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Droplaugarstaða fyrir góða og hlýja umönnun. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni www.skjaskot.is/aevar Laufey Barðadóttir Þuríður Ævarsdóttir Ragnheiður M. Ævarsdóttir Gísli Baldvinsson Þórdís L. Ævarsdóttir Bjarki Stefánsson Ævar Gunnar Ævarsson Helga G. Óskarsdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRHALLA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kópavogsbarði 9, er látin. Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 19. mars klukkan 15. Kirkjugestir eru beðnir að skrá sig við innganginn. Athöfninni verður streymt á slóðinni www.sonik.is/thorhalla Inga Harðardóttir Jón Rafns Runólfsson Hörður Harðarson Árný Sigríður Daníelsdóttir Anna Harðardóttir Christian Bigum Árni Harðarson Karitas Ívarsdóttir Björn Harðarson Guðrún Erla Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN GUÐBJÖRG VALDIMARSDÓTTIR ljósmóðir, Boðaþingi 3, Kópavogi, varð bráðkvödd á heimili sínu fimmtudaginn 11. mars. Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 22. mars klukkan 15. Aðstandendur og vinir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir (hámark 200 manns). Vinsamlega mætið með nafn, kennitölu og símanúmer á miða. Steingrímur Dagbjartsson Þórhallur Steingrímsson Rosa Maria Steingrímsson Kristín Steingrímsdóttir Elvar Daði Eiríksson Hallgrímur Jón, Steingrímur Karl og Kristinn Þór Auðunn Orri, Steinunn Silja og Andri Hrannar Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ÞORGEIRSDÓTTIR frá Seyðisfirði, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 8. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. mars klukkan 15. Útförinni verður streymt en það verður auglýst síðar. Margrét Jónsdóttir Árni K. Magnússon Jónas P. Jónsson Anna M. Sveinbjörnsdóttir Kristján Jónsson Birna Guðmundsdóttir Unnur Jónsdóttir Þórður Þórisson barnabörn og barnabarnabörn Heittelskuð og yndisleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF GUÐMUNDSDÓTTIR, Norðurgötu 40, Akureyri, lést á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð mánudaginn 15. mars. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 26. mars klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu eru fjöldatakmarkanir. Munum skráningu hjá aðstandendum. Streymt verður frá athöfninni á vef Akureyrarkirkju. Friðrik Sigurjónsson Kristján Viktor Kristjánsson Laufey Ingadóttir Jóhanna María Friðriksdóttir Gunnar Vigfússon Heiðbjört Ída Friðriksdóttir Jón Sigtryggsson barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.