Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 17.03.2021, Qupperneq 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 2021 Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is Hanskar á lager! Stærðir: • S • M • L • XL Verð kr. 3.254 100 stk í pakka. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HVAÐ MEINARÐU MEÐ „ÓLÖGLEGT VERKFALL?“ Í GÆR SAGÐIRÐU OKKUR AÐ NOTA BARA HEILANN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá annað tækifæri. ÉG ER AÐ HUGSA TIL FRAMTÍÐAR ÞÚ VEIST… KVÖLDMAT FORELDRAR MÍNIR UPPGÖTVUÐU SNEMMA AÐ ÉGÆTTI EKKI ERINDI Í LANGSKÓLANÁM! … SVO ÞAÐ VAR EKKI SAFNAÐ Í MENNTA- SJÓÐ FYRIR ÞIG? ÞAU SÖFNUÐU Í SJÓÐ TIL AÐ STANDA STRAUM AF MÁLSÓKNUM! NEI, EN ÞAU SÝNDU SAMT FYRIRHYGGJU. „SORRÍ HVAÐ ÉG ER SEIN. ÉG RAKST Á GAMLA VINKONU OG TÍMINN FLAUG BARA FRÁ MÉR.“ hins almenna nemanda gagnvart þeim sem eiga á brattann að sækja verið framsæknara og fordómalausara en algengt er í okkar ágæta þjóðfélagi.“ Áhugamál Bryndísar eru ferðalög, bóklestur, leikhús og golf, alls konar líkamsrækt og útivist, en Bryndís hef- ur m.a. hlaupið þrjú hálfmaraþon.“ Fjölskylda Bryndís giftist 20.7. 1968 skóla- bróður sínum úr MR, Guðmundi Þor- geirssyni, f. 14.3. 1946, fyrrverandi yf- irlækni og prófessor. Hann er sonur hjónanna Þorgeirs Gestssonar, f. 3.11. 1914, d. 19.6. 2005, læknis í Reykjavík, og Ásu Guðmundsdóttur, f. 25.6. 1918, d. 29.1. 2012, húsfreyju og hús- stjórnarkennara í Reykjavík. Börn Bryndísar og Guðmundar eru 1) Þorgeir, f. 29.12. 1968, kvikmynda- gerðarmaður frá Columbia-háskóla, maki: Sigrún Hrólfsdóttir, myndlist- arkona og deildarforseti í LHÍ. Þau eiga tvö börn; 2) Sigurjón Árni, f. 11.3. 1974, rafmagnsverkfræðingur, maki: María Rán Guðjónsdóttir bókaútgef- andi. Þau eiga 3 börn; 3) Hjalti, f. 18.6. 1976, læknir, maki: Katrín Har- aldsdóttir hjúkrunarfræðingur. Þau eiga þrjár dætur; 4) Bogi, f. 10.7. 1981, lögmaður, maki: Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir, stjórnmála- og stjórn- sýslufræðingur. Þau eiga þrjár dæt- ur; 5) Ása Bryndís, f. 22.7. 1986, lyfja- fræðingur, maki: Sævar Ingþórsson, dósent við HÍ. Þau eiga þrjú börn. Bræður Bryndísar eru Kjartan, f. 27.2. 1940, fyrrverandi skólastjóri og organisti í Reykjavík; Sigurður, f. 17.10. 1943, d. 16.6. 2012, og Sigurjón Bolli, f. 20.12. 1944, báðir trésmiðir í Reykjavík og stofnuðu fyrirtækið Kjörsmíði með áherslu á sérsmíði. Foreldrar Bryndísar voru hjónin Sigurjón Árni Sigurðsson, f. 1.8. 1916, d. 29.8. 1982, skrifstofustjóri í Reykjavík, og Bryndís Bogadóttir, f. 27.1. 1919, d. 15.9. 1978, húsmóðir í Reykjavík. Bryndís Sigurjónsdóttir Gunnhildur Árnadóttir húsfreyja í Firði Sigurður Jónsson bóndi í Firði í Seyðisfirði Erlín Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja á Seyðisfirði og í Reykjavík Bogi Benediktsson kennari á Seyðisfirði og skrifstofustjóri í Reykjavík Bryndís Bogadóttir húsfreyja í Reykjavík Kristín Arnbjörg Gísladóttir húsfreyja í Garði Benedikt Olgeirsson bóndi í Garði í Fnjóskadal Oddbjörg Pálsdóttir húsfreyja í Starkaðarhúsum í Flóa Árni Þórðarson bóndi í Starkaðarhúsum Eyríður Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Sigurður Guðbrandsson skipstjóri á Snorra goða, bjó í Reykjavík Katrín Einarsdóttir húsfreyja á Gafli Guðbrandur Guðbrandsson bóndi á Gafli og ferjumaður á Brúnastöðum í Flóa Úr frændgarði Bryndísar Sigurjónsdóttur Sigurjón Árni Sigurðsson framkvæmdastjóri í Reykjavík Þeir hittust um daginn, vinirnirEiríkur Finnur Greipsson, fyrrverandi oddviti og sparisjóðs- stjóri á Flateyri, og hagyrðingurinn og Skagfirðingurinn Kristján Björn Snorrason sparisjóðsstjóri og birt- ist mynd af þeim glaðbeittum af þessu tilefni á Facebook. Kristján Björn orti: Þessa góðu karla kenni, krappan hafa stigið dans. Íturvaxin eðalmenni Eirík Finn og vininn hans. Jón Atli Játvarðarson skrifar á Boðnarmjöð: „Ég spái því að ef upp kemur hraun í landi Grindavík- urhrepps, þá muni umhverf- isstofnun slá eign sinni og yfirráð- um á það“: Opnast jarðar kröftug kaun, klappstýrt lið við miðað. Brýst fram úfið apalhraun sem undireins er friðað. Rasísk sett fram sjónarmið, seld nú guði og fjára. Þar má engin urt fá grið sem ekki er þúsund ára. Bolli Gunnarsson bætti við: „Verður þjóðlenda hið snarasta.“ Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Ég brýst áfram bölvandi þó ég af bakverkjum fengið hef nóg og sífellt ég kveina sífra og veina og kallast því Eyjólfur ó. Magnús Halldórsson stendur Fréttavaktina: „Helstu tíðindi: tíð- indalítil nótt“: Áfram syðra vofir vá, svo verður fáum rótt tíðindi helstu telja má, að tíðindalaus var nótt. Friðrik Steingrímsson hefur orð á því, að fólk sé farið að þrá eldgos: Þráir gosið þessi’ og hinn þreyttir eru á töfum, ekki lætur andskotinn undan þeirra kröfum. Broddi B. Bjarnason yrkir um jarðskjálfta dagsins: Aðvörunar flagga flögg flestum mönnum skilið. Feiknaleg nú finnast högg fjandinn hljóp í spilið. Gömul vísa að lokum: Gott er að vera í góðum rann gott er að hafa völdin, gott er að eiga góðan mann, gott er að sofa á kvöldin. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Órunnið hraun og verður þjóðlenda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.