Morgunblaðið - 17.03.2021, Blaðsíða 28
Jelena Ciric kemur fram á hádegistónleikum í Salnum í
dag og hefjast þeir kl. 12.15. Eru þeir á dagskrá „Menn-
ingar á miðvikudögum“ í menningarhúsunum í Kópa-
vogi. Tónlist Jelenu er sögð laða gesti til sín með hlýju,
glettni og heiðarleika. Hljóðheimur hennar er undir
áhrifum frá Serbíu, þar sem hún fæddist, og Kanada,
þar sem hún óx úr grasi. Þá gætir áhrifa af jarðbundinni
þjóðlaga-, djass- og popptónlist. Gestir á tónleikunum
verða fiðlu- og víóluleikarinn Karl James Petska og
Margrét Arnardóttir harmónikuleikari.
Jelena Ciric kemur fram með gest-
um á hádegistónleikum í Salnum
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Þetta er allt að lifna við, enda hafa
reglur verið rýmkaðar og við getum
núna tekið á móti bæði börnum og
fullorðnum, innan marka þó,“ segir
Guðrún Dís Jónatansdóttir hjá
Borgarbókasafninu um batnandi tíð
og fleiri viðburði á vegum safnsins.
„Við höfum vissulega þurft að
dansa í takt við Covid-reglurnar
undanfarið ár, en við tókum strax
þann pól í hæðina að láta ekki deig-
an síga, heldur skipuleggja dagskrá
af fullum krafti. Við höfum þurft að
ýta einhverju á undan okkur, fresta
viðburðum og breyta dagsetn-
ingum, en við höfum samt verið
með margt í gangi, miðað við hvað
hefur mátt á hverjum tíma,“ segir
Guðrún Dís og bætir við að bóka-
söfnin séu í nýsköpunargírnum.
„Covid kenndi okkur meira á
tæknina og við höfum verið að
byggja upp þekkingu innanhúss í
tengslum við streymi og upptökur.
Slíkt form á viðburðum er fyrir vik-
ið komið til að vera í einhverjum
mæli. Við hugsum það líka út frá
aðgengi, því með streymi náum við
til fleiri, bæði þeirra sem eiga ekki
heimangengt og þeirra sem búa úti
á landi.“
Í gær var líf og fjör í OKinu í
Gerðubergi, þar sem börn mættu á
Fiktdaga, viðburð sem haldinn er
reglulega. Í OKinu er ýmis búnaður
sem hægt er að nota, undir leiðsögn
starfsmanna; þrívíddarprentari,
vínilskeri, barmmerkjavél, Mine-
craft, Little Bits og margt fleira.
„OKið er rými sem er frekar ný-
tilkomið, en það er sprottið upp úr
styrk sem við fengum frá barna-
menningarsjóði til að hanna upplif-
unarrými fyrir börn og unglinga. Í
OKinu er líka eitt af þremur verk-
stæðum safnsins en þetta rými býð-
ur upp á margvíslega starfsemi svo
sem smiðjur, fyrirlestra, hópvinnu
og skapandi vinnu. Í OKinu er
hægt að læra, skapa, fikta eða bara
hanga. Við hvetjum kennara, frí-
stunda- og félagsmiðstöðvastarfs-
menn til að bóka OKið til eigin
nota, bæði í kennslu og leik. Einnig
geta ungmenni á eigin vegum bók-
að rýmið og fengið aðstoð við að
láta drauma sína verða að veru-
leika.“
Ýmislegt spennandi er á döfinni í
Gerðubergi, næstkomandi laugar-
dag ætlar Rán Flygenring að leiða
teiknismiðju fyrir krakka.
„Við lögðum mikla vinnu í sýn-
ingu sem stendur nú í Gerðubergi
og Rán tók þátt í að skapa. Sýn-
ingin heitir Heimsókn til Vigdísar,
en Rán málaði beint á veggina
myndir af persónum úr bók sinni
Vigdís – Bókin um fyrsta konu-
forsetann. Það er stórkostleg upp-
lifun fyrir fólk á öllum aldri að
ganga inn í söguheim bókarinnar á
þessari sýningu sem lýkur í lok
mars. Krakkarnir í teiknismiðjunni
fá að vinna myndir sjálf inn í sýn-
inguna, skrifa og teikna á veggina,
búa til hluti og svo framvegis. Þau
hafa frjálsar hendur, þó undir leið-
sögn Ránar, svo þetta er tilvalið
tækifæri fyrir krakka til að upp-
götva listamanninn í sjálfum sér.“
Bókasöfnin lifna við
með birtu og vori
Morgunblaðið/Eggert
Fiktdagar Það var líf og fjör í Gerðubergi í gær. Þau Rúnar, Ella, Lena og Kalli skemmtu sér við barmmerkjagerð.
- Í OKinu er hægt að læra, skapa, fikta eða bara hanga
Ármúla 10
) 568 9950
duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður
Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið
gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn.
FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926
Klæðskerasniðin
þægindi
MIÐVIKUDAGUR 17. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Haukar náðu fjögurra stiga forskoti á toppi Olísdeildar
karla í handbolta með 26:25-sigri á Stjörnunni á heima-
velli í gærkvöldi. Á sama tíma gerði FH jafntefli við
Gróttu á útivelli, 30:30.
Haukar eru nú með 23 stig og FH í öðru sæti með 19
stig. Grótta hefur komið liða mest á óvart í deildinni í
vetur því flestir áttu von á að liðið myndi falla niður um
deild. Eftir úrslit gærdagsins er Grótta hins vegar með
tíu stig, sex stigum frá fallsæti og því enginn fall-
draugur á Seltjarnarnesi. »23
Haukamenn náðu fjögurra
stiga forskoti á FH-inga
ÍÞRÓTTIR MENNING