Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 11

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Allt um sjávarútveg Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, gagnrýnir harðlega áform um útboð á ljósleiðaraþræði sem Vodafone hefur rekið allt frá árinu 2010. Því fylgi hætta á að stórkostleg rösk- un verði á sam- keppni á fjar- skiptamarkaðin- um með ófyrir- séðum afleiðing- um. Þetta kemur fram í ítarlegri umsögn Heiðars, fyrir hönd Sýnar, um skýrslu starfshóps um ljósleiðaramál og út- boð ljósleiðaraþráða á eignaskrá Mannvirkjasjóðs NATO, sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórn- valda. Heiðar gagnrýnir einnig skýrsl- una sem kynnt var á blaðamanna- fundi í utanríkisráðuneytinu 24. febrúar sl. Starfshópurinn leggur til að hafinn verði formlegur undirbún- ingur útboðs á tveimur af þremur ljósleiðaraþráðum NATO, „í þágu samkeppni á fjarskiptamarkaði, þjóðaröryggis og varnarhagsmuna,“ eins og segir í kynningu. Heiðar bendir hins vegar á að Vodafone hafi rekið annan þráðinn sem bjóða á út og því sé ranglega haldið fram að ekki megi framlengja leigusamning- inn, sem gerður var við Vodafone á sínum tíma, oftar en í eitt ár í kjölfar tíu ára gildistíma. Hann gagnrýnir staðreyndavillur í skýrslunni og gerir alvarlegar at- hugasemdir við að starfshópurinn hafði ekkert samráð við Vodafone. Bendir hann á að á kerfum Vodafone séu allir sendar Ríkisútvarpsins fyr- ir hljóðvarp og sjónvarp, sendar Bylgjunnar og tengdra rása, Stöðvar 2 og um 60% TETRA-senda frá Neyðarlínunni og senda fyrir Vakt- stöð siglinga o.fl. Vodafone hafi lagt í mjög umfangsmiklar fjárfestingar í búnaði sem tengist ljósleiðara- hringnum sem allar yrðu fyrir bí ef félagið yrði ekki hlutskarpast í fyr- irhuguðu útboði. Fyrirtækið yrði þá mögulega að semja við Mílu og/eða Farice um þjónustu á landsvísu eða draga saman seglin að öðrum kosti, a.m.k. svæðisbundið. Samkeppnin sem hafi leitt af leigu þráðarins myndi hverfa. Þessi ráðstöfun myndi að mati hans ekki eingöngu veikja stöðu Vodafone heldur geti haft neikvæðar afleiðingar fyrir alla sem tengdir eru ljósleiðaraþræðinum, mögulega hægt á útbreiðslu 5G-þjónustunnar og gert fyrirtækinu óhægt um vik í samkeppni við Símann. omfr@mbl.is Segir hættu á stórkost- legri röskun á markaði Heiðar Guðjónsson - Gagnrýnir harðlega áform um útboð á ljósleiðaraþræði Guðjón Brjáns- son, oddviti Sam- fylkingarinnar í Norðvestur- kjördæmi, mun ekki gefa kost á sér í flokksvali Samfylkingar- innar í kjördæm- inu sem fram fer síðar í mán- uðinum. Í yfirlýsingu frá Guðjóni, sem hefur verið fyrsti varaforseti Alþingis á kjörtímabilinu, segir að stjórnmál hafi átt hug hans sein- ustu ár eða frá því hann settist á þing fyrir flokkinn árið 2016. Hann hafi stefnt á að bjóða sig aftur fram en síðar fundið að hugur fylgdi ekki hjarta. „Mig langar að eyða meiri tíma með minni fjölskyldu og fylgj- ast með barnabörnunum dafna og þroskast sem ég hef ekki haft nægi- legan tíma til að gera,“ segir hann. Guðjón Brjánsson hverfur af þingi Guðjón Brjánsson ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS HVAR ER NÆSTA VERKSTÆÐI? Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Klassískt frá Gerry Weber og Taifun TRAUST Í 80 ÁR Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Nýjar vorvörur Kjóll kr. 11.900 Fleiri litir Kr. 9.900.- Str. S-XXL Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga og 11-15 laugardaga www.spennandi-fashion.is VOR 2021 ÞÆGINDI OG HÖNNUN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.