Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 18.03.2021, Blaðsíða 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 KSÍ hefur boðað til blaða- mannafundar í dag þar sem stendur til að tilkynna lokahóp íslenska U21-árs landsliðsins sem er á leið í lokakeppni EM 2021 í Ungverjalandi og Slóveníu. U21-árs landsliðið fór síðast í lokakeppni EM árið 2011 en mót- ið fór þá fram í Danmörku. Það var jafnframt fyrsta lokamótið sem íslenskt karlalandslið tók þátt í. Spennan fyrir lokahópnum árið 2011 var því eðlilega mikil en leikmannakjarninn í þeim hóp hefur verið í aðalhlutverki með íslenska A-landsliðinu undan- farin ár. Spennan fyrir blaðamanna- fundinum síðar í dag er hins veg- ar lítil sem engin enda birtist lokahópurinn á vef UEFA, evr- ópska knattspyrnusambandsins, á þriðjudagsmorgun. Talað var um „leka“ hjá UEFA og að hóp- urinn gæti breyst. Þá kom það einnig til tals að hópurinn sem birtist á vef UEFA væri ekki endilega endanlegur lokahópur landsliðsins. Eftir því sem undirritaður kemst næst þá þurfti KSÍ að skila inn lokahóp liðsins tíu dögum fyrir fyrsta leik sem er 25. mars. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Íslendingar og fjölmiðla- menn þurfa að heyra af og lesa um mannabreytingar á lands- liðum Íslands í erlendum fjöl- miðlum. Síðast þegar þetta gerð- ist fékk ég góðar útskýringar á því við hvaða verkferla væri stuðst þegar lokahópar og leik- mannabreytingar væru kynntar. Það er allt hið besta mál en það hlýtur að vera kominn tími á breytta verkferla hjá KSÍ enda ekki boðlegt að Íslendingar þurfi að lesa um mannabreytingar hjá landsliðum Íslands á erlendum fréttaveitum. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is HM 2022 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Arnar Þór Viðarsson heldur sig við sama kjarna og hefur skipað karla- landslið Íslands í fótbolta undan- farin ár en hann tilkynnti í gær 25 manna hóp fyrir leikina gegn Þýska- landi, Armeníu og Liechtenstein í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fram fara 25., 28. og 31. mars í Duisburg, Jerevan og Vaduz. Liðsvalið kemur að fæstu leyti á óvart. Alfreð Finnbogason er fjar- verandi vegna meiðsla og Jón Guðni Fjóluson vegna kórónuveirusmits í sínum leikmannahópi, en annars höfðu Arnar og Eiður Smári Guð- johnsen, aðstoðarmaður hans, að- gengi að öllum þeim sem skipað hafa landsliðið á síðustu misserum. Stór skörð í báðum liðum? Með fyrirvara þó. Fram kom á fréttamannafundinum í gær að mál- efni leikmanna sem koma frá Bret- landseyjum til Þýskalands séu enn óleyst en Arnar kvaðst vonast eftir lausn á því á allra næstu sólar- hringum. Það er ansi stór fyrirvari því ís- lenska liðið gæti mögulega verið án Gylfa Þórs Sigurðssonar, Jóhanns Bergs Guðmundssonar, Jóns Daða Böðvarssonar og Rúnars Alex Rún- arssonar í fyrsta leiknum í Duis- burg. Á móti kemur að Þjóðverjar gætu þá ekki heldur teflt fram leik- mönnum enskra liða í þeim leik og m.a. þeir Ilkay Gündogan, Antonio Rüdiger, Timo Werner, Bernd Leno og Kaj Havertz mættu ekki koma til heimalandsins og spila. Ekki kemur til greina að færa leikinn á hlutlausan völl en kóvíd- reglur UEFA kveða skýrt á um að þar gildi annað með landslið með fé- lagslið. Arnar staðfesti að ef fjórmenning- arnir kæmust ekki til Duisburg yrðu leikmenn kallaðir upp úr 21-árs landsliðinu til að fylla í skörðin, en viðkomandi leikmenn myndu þá um leið missa af fyrsta leik þess í úr- slitakeppni Evrópumótsins í Ung- verjalandi sem fer fram sama dag. Alfons hægri bakvörður? Alfons Sampsted og Arnór Sig- urðsson eru í A-landsliðshópnum og verða þar af leiðandi ekki með 21-árs liðinu á EM. Þetta gefur sterkar vís- bendingar um að þeir muni koma talsvert við sögu, enda væru þeir tæplega teknir af 21-árs liðinu til þess eins að sitja á bekknum hjá A- liðinu. Þar með má búast við því að Alf- ons spili tvo leikjanna eða jafnvel alla þrjá í stöðu hægri bakvarðar. Arnar hefur áður sagt og ítrekaði á fundinum að hann vildi helst að leik- menn spiluðu með landsliði þær stöður sem þeir eru vanir að spila með félagsliði. Guðlaugur Victor Pálsson væri því fyrst og fremst val- inn sem miðjumaður þótt hann hefði leyst stöðu hægri bakvarðar upp á síðkastið og skilað henni með mikl- um sóma. Eins ætti þá að vera nokkuð ljóst að Arnór muni spila talsvert og því kæmi ekki á óvart að hann yrði í byrjunarliðinu í allavega einum af þessum þremur leikjum. Fagnaðarefni fyrir landsliðið Kolbeinn Sigþórsson er í hópnum og er byrjaður að spila með Gauta- borg. Eiður Smári sagði að hann væri heill heilsu, sem væri fagnaðar- efni fyrir landsliðið. Lars Lagerbäck hefur fylgst vel með Kolbeini í Sví- þjóð og sagði hann enn vanta snerpu en hefði sýnt margt af því sem hann hefði áður gert með íslenska lands- liðinu og gæti því reynst því vel í þessu verkefni. Björn Bergmann Sigurðarson kemur inn í liðið eftir nokkra fjar- veru en hann hefur spilað með Molde í 32- og 16-liða úrslitum Evr- ópudeildarinnar á síðustu vikum. Hvað með Emil og Viðar? Af þeim sem ekki eru valdir í þennan 25 manna hóp er athyglis- verðasta fjarveran hjá þeim Viðari Erni Kjartanssyni, Emil Hallfreðs- syni og Samúel Kára Friðjónssyni. Viðar hefur verið einn drýgsti markaskorari Íslendinga erlendis um árabil, Emil er vissulega 37 ára en hefur spilað mikið á Ítalíu í vetur og Samúel hefur verið í og við hóp- inn undanfarin misseri. Viðar og Emil myndu allavega koma inn í hópinn með talsverða reynslu ef „Englendingarnir“ fengju ekki að fara til Duisburg en Arnar svaraði því aðspurður að leikmenn 21-árs liðsins hentuðu betur til að fylla í þau skörð ef til kæmi. Enn er talsverð óvissa fyrir leikinn í Duisburg - Margir leikmanna Íslands og Þýskalands gætu enn misst af leiknum Morgunblaðið/Eggert Tilbúnir Hannes Þór Halldórsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson, Rúnar Már Sigurjónsson og Arnór Ingvi Traustason eru allir í íslenska landsliðinu sem leikur við Þýskaland, Armeníu og Liechtenstein. MARKVERÐIR: Hannes Þór Halldórsson, Val ................................................................... 74 0 Ögmundur Kristinsson, Olympiacos, Grikklandi .................................. 17 0 Rúnar Alex Rúnarsson, Arsenal, Englandi............................................. 7 0 VARNARMENN: Ragnar Sigurðsson, Rukh Lviv, Úkraínu................................................ 97 5 Birkir Már Sævarsson, Val ....................................................................... 95 2 Kári Árnason, Víkingi R............................................................................ 87 6 Ari Freyr Skúlason, Oostende, Belgíu .................................................... 77 0 Sverrir Ingi Ingason, PAOK, Grikklandi................................................ 36 3 Hörður Björgvin Magnússon, CSKA Moskva, Rússlandi...................... 34 2 Hólmar Örn Eyjólfsson, Rosenborg, Noregi .......................................... 19 2 Hjörtur Hermannsson, Bröndby, Danmörku ......................................... 18 1 Alfons Sampsted, Bodö/Glimt, Noregi.................................................... 2 0 MIÐJUMENN: Birkir Bjarnason, Brescia, Ítalíu ............................................................. 92 13 Aron Einar Gunnarsson, Al-Arabi, Katar............................................... 91 2 Gylfi Þór Sigurðsson, Everton, Englandi ............................................... 78 25 Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley, Englandi.................................... 77 8 Arnór Ingvi Traustason, New England Revolution, Bandaríkj........... 37 5 Rúnar Már Sigurjónsson, CFR Cluj, Rúmeníu ....................................... 30 1 Guðlaugur Victor Pálsson, Darmstadt, Þýskalandi .............................. 23 0 Arnór Sigurðsson, CSKA Moskva, Rússlandi......................................... 11 1 SÓKNARMENN: Kolbeinn Sigþórsson, Gautaborg, Svíþjóð.............................................. 60 26 Jón Daði Böðvarsson, Millwall, Englandi ............................................... 55 3 Albert Guðmundsson, AZ Alkmaar, Hollandi ........................................ 18 3 Björn Bergmann Sigurðarson, Molde, Noregi....................................... 17 1 Hólmbert Aron Friðjónsson, Brescia, Ítalíu ........................................... 4 2 Íslenski landsliðshópurinn Dominos-deild kvenna Fjölnir – Snæfell................................... 73:69 Haukar – Skallagrímur........................ 73:69 Keflavík – KR ....................................... 75:81 Breiðablik – Valur.............................. (65:51) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir leik Breiðabliks og Vals: Valur 13 11 2 974:794 22 Keflavík 14 11 3 1134:1027 22 Haukar 14 10 4 1003:925 20 Fjölnir 14 9 5 1073:1014 18 Skallagrímur 14 6 8 973:1004 12 Breiðablik 13 4 9 801:851 8 Snæfell 14 2 12 1002:1106 4 KR 14 2 12 947:1186 4 Spánn Fuenlabrada – Andorra...................... 65:75 - Haukur Helgi Pálsson skoraði 3 stig fyr- ir Andorra og tók auk þess 2 fráköst á 19 mínútum. NBA-deildin Boston – Utah ................................... 109:117 Miami – Cleveland.............................. 113:98 Philadelphia – New York..................... 99:96 Chicago – Oklahoma City ................ 123:102 Houston – Atlanta ............................ 107:119 Portland – New Orleans .................. 125:124 LA Lakers – Minnesota................... 137:121 57+36!)49, KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: IG-höllin: Þór Þ. – Stjarnan................. 18.15 MVA-höllin: Höttur – KR.................... 19.15 Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 20.15 Origo-höllin: Valur – Tindastóll .......... 20.15 1. deild kvenna: Ísafjörður: Vestri – Fjölnir b ................... 18 Í KVÖLD! leg meiðsli. Rasmus á að baki 141 úr- valsdeildarleik hér á landi. _ Hafþór Harðarson úr ÍR og Marika Katarina E. Lönnroth úr Keilufélagi Reykjavíkur urðu Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu í fyrrakvöld. Hafþór hreppti titilinn í fimmta sinn en Mar- ika, sem fékk íslenskan ríkisborgara- rétt fyrir ári, vann í fyrsta skipti. Það voru Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR og Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR sem töpuðu úrslitaleikjunum gegn þeim. _ Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu á möguleika á að leika sinn 100. A-landsleik 31. mars þegar Ísland mætir Liechtenstein í Vaduz. Ragnar er næstleikjahæsti leikmaður karlalandsliðsins frá upphafi með 97 leiki en það á þrjá leiki fyrir höndum í lok mars, gegn Þýska- landi, Armeníu og Liechtenstein. _ Handboltamað- urinn Jóhann Birgir Ingvarsson er kominn til liðs við FH á ný og hefur samið við félagið til ársins 2023. Jó- hann lék með HK í hálft annað ár en fékk sig lausan undan samningi þar í lok janúar. _ Skautafélag Reykjavíkur fékk í fyrrakvöld sín fyrstu stig á Íslands- móti karla í íshokkíi, Hertz-deildinni, með því að sigra Fjölni 3:2 eftir fram- lengingu og vítakeppni í Egilshöllinni. Sextán ára piltur, Níels Hafsteinsson, skoraði sigurmark SR í vítakeppninni. SA er með 21 stig, Fjölnir 13 og SR tvö stig. _ Paul Pogba, Marcus Rashford og David de Gea gætu allir spilað með Manchester United gegn AC Milan í kvöld þegar liðin mætast í Mílanó í seinni leiknum í 16-liða úrslitum Evr- ópudeildarinnar í fótbolta. Þeir koma allir inn í hópinn á ný og fóru með lið- inu til Ítalíu í gær. Fyrri leikurinn end- aði 1:1. Edinson Cavani hefur hins- vegar ekki náð sér af meiðslum og verður ekki með United. _ Ólafur Guð- mundsson skoraði sex mörk fyrir Kristianstad í gær- kvöld þegar liðið hóf úrslitakeppn- ina um sænska meistaratitilinn í handknattleik með látum. Kristian- stad, sem varð í sjötta sæti úrvals- deildarinnar, sótti heim Malmö, sem endaði í þriðja sæti, og vann yfirburða- sigur, 32:22. Þrjá sigra þarf til að kom- ast áfram og liðin mætast næst á laugardaginn í Kristianstad. Íslend- ingaliðin Guif, Skövde og Alingsås hefja öll keppni í átta liða úrslitunum í kvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.