Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 58

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 58
58 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Lengjubikar kvenna A-deild, riðill 1: Keflavík – KR ........................................... 6:0 _ Valur 9, Keflavík 9, Þróttur R. 7, Selfoss 3, ÍBV 1, KR 0. Meistaradeild karla 16-liða úrslit, seinni leikir: Bayern München – Lazio...................... (1:0) Chelsea – Atlético Madrid .................... (1:0) _ Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/fotbolti. England West Ham – Birmingham ....................... 2:2 - Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með West Ham. B-deild: QPR – Millwall ......................................... 3:2 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 77. mínútu. Ítalía C-deild: Padova – FeralpiSalo.............................. 4:0 - Emil Hallfreðsson kom inn á hjá Padova á 82. mínútu en liðið er efst í B-riðli deild- arinnar. Rússland CSKA Moskva – Zenit Pétursborg........ 2.3 - Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA en Arnór Sigurðsson var varamaður og kom ekki við sögu. _ Efstu lið: Zenit Pétursborg 48, Spartak Moskva 41, CSKA Moskva 40, Lokomotiv Moskva 37, Sotsjí 37, Rostov 37, Rubin Kazan 37, Dinamo Moskva 36. 50$99(/:+0$ Olísdeild karla Valur – ÍBV........................................... 28:29 Þór – ÍR................................................. 28:25 Selfoss – Afturelding............................ 23:26 Staðan: Haukar 14 11 1 2 394:334 23 FH 14 8 3 3 413:378 19 Valur 14 8 1 5 409:378 17 Afturelding 14 8 1 5 362:362 17 Selfoss 14 7 2 5 359:347 16 KA 13 5 5 3 336:319 15 ÍBV 14 7 1 6 400:386 15 Stjarnan 14 6 2 6 381:375 14 Fram 13 6 2 5 328:326 14 Grótta 14 3 4 7 342:354 10 Þór Ak. 14 3 0 11 316:377 6 ÍR 14 0 0 14 326:430 0 Grill 66 deild kvenna Grótta – HK U ...................................... 26:23 Þýskaland Nordhorn – Melsungen....................... 21:29 - Arnar Freyr Arnarsson lék ekki með Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari liðsins. Stuttgart – Balingen ........................... 27:23 - Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Stuttgart. - Oddur Gretarsson skoraði 2 mörk fyrir Balingen. Wetzlar – Göppingen .......................... 31:32 - Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr- ir Göppingen en Janus Daði Smárason er frá keppni vegna meiðsla. _ Flensburg 32, Kiel 29, Magdeburg 28, RN Löwen 26, Füchse Berlín 25, Bergisc- her 24, Göppingen x23, Wetzlar x21, Leip- zig 21, Melsungen 21, Stuttgart 21, Erlang- en 20, Lemgo 18, Hannover-Burgdorf 18, Minden 14, Balingen 11, Ludwigshafen 9, Nordhorn 9, Essen 7, Coburg 7. Spánn Barcelona – Guadalajara.................... 38:27 - Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir Barcelona sem hefur unnið alla 22 leikina. Danmörk Aalborg – Skjern ................................. 32:29 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. - Elvar Örn Jónsson skoraði ekki fyrir Skjern. Kolding – Ringsted.............................. 25:30 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 skot í marki Kolding og var með 32% markvörslu. Ribe-Esbjerg – Aarhus ....................... 27:24 - Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Daníel Þór Ingason 2. Lemvig – Tvis Holstebro .................... 29:35 - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir Tvis Holstebro. SönderjyskE – GOG ............................ 32:28 - Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark fyrir SönderjyskE. - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 8 skot í marki GOG og var með 25% markvörslu. _ Aalborg 37, GOG 37, Holstebro 36, Sön- derjyskE 29, Bjerringbro/Silkeborg 29, Skanderborg 26, Skjern 25, Kolding 23, Fredericia 20, Ribe-Esbjerg 20, Mors 17, Aarhus 16, Ringsted 9, Lemvig 8. Svíþjóð 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Malmö – Kristianstad.......................... 22:32 - Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 6 mörk fyrir Kristianstad en Teitur Örn Ein- arsson lék ekki með liðinu. .$0-!)49, HANDBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hákon Daði Styrmisson reyndist hetja ÍBV þegar liðið heimsótti Val í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í Origo-höllina á Hlíð- arenda í fjórtándu umferð deild- arinnar í gær. Hákon, sem skoraði tíu mörk í leiknum og var markahæsti leik- maður vallarins, skoraði sigurmark Eyjamanna úr vítakasti eftir að leik- tíminn var runninn út, en leiknum lauk með eins marks sigri ÍBV, 29:28. Valsmenn náðu mest sex marka forskoti í fyrri hálfleik, 13:7, en ÍBV tókst að minnka forskot Valsmanna og var staðan 14:12 í hálfleik, Val í vil. Valsmenn leiddu með þremur mörkum, 26:23, þegar rúmar tólf mínútur voru til leiksloka en þá hrukku Eyjamenn í gang. „Eyjamenn voru þó ekkert á því að gefast upp og náðu að jafna metin að nýju, 27:27, og náðu svo foryst- unni, 27:28 þegar skammt lifði leiks. Valsmenn töpuðu svo boltanum á ögurstundu en Eyjamenn gerðu slíkt hið sama og jöfnuðu Valsmenn þegar örfáar sekúndur voru eftir. Eyjamenn ruku hins vegar í sókn, komu boltanum í hægra hornið þar sem vítakast var dæmt á lokasek- úndunni. Hákon Daði Styrmisson skoraði úr því og Eyjamenn fóru því með 29:28-sigur af hólmi, ótrúlegar lokasekúndur!“ skrifaði Gunnar Eg- ill Daníelsson meðal annars í um- fjöllun sinni um leikinn á mbl.is. _ Þá átti Gísli Jörgen Gíslason stórleik fyrir Þór frá Akureyri þegar liðið tók á móti ÍR í botnslag deild- arinnar í Höllinni á Akureyri. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan jöfn í hálfleik, 14:14. Þegar tíu mínútur voru til leiks- loka komust Þórsarar þremur mörk- um yfir, 25:22, og þeir fögnuðu þriggja marka sigri í leikslok, 28:25. Ihor Kopyshynskyi skoraði sjö mörk fyrir Þórsara, þar af sex úr vítaköstum, og þá var Jovan Kuko- bat með 45% markvörslu eða 19 skot varin. Hjá Breiðhyltingum var Gunnar Valdimar Johnsen markahæstur með átta mörk og Ólafur Haukur Matthíasson skoruði fimm. _ Afturelding stöðvaði sigur- göngu Selfyssinga í Hleðsluhöllinni á Selfossi en Selfoss var án taps í síðustu þremur leikjum sínum í deildinni fyrir leik gærdagsins. Leiknum lauk með 25:23-sigri Aft- ureldingar en Mosfellingar leiddu með einu marki í hálfleik, 14:13. Þorsteinn Gauti Ragnarsson var markahæstur í liði Aftureldingar með sjö mörk og Bergvin Þór Gísla- son skoraði sex mörk. Hjá Selfyssingum var Hergeir Grímsson markahæstur með sex mörk og Vilius Rasimas átti stórleik í markinu og varði 22 skot. Mögnuð endur- koma hjá ÍBV - Afturelding sótti tvö stig á Selfoss Morgunblaðið/Eggert Seigla Sigtryggur Daði Rúnarsson reynir skot að marki Valsmanna í gær. KÖRFUBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óvæntustu úrslit tímabilsins í úr- valsdeild kvenna í körfuknattleik, Dominos-deildinni, urðu í Keflavík í gærkvöld þegar heimakonur töp- uðu fyrir botnliði KR, 75:81. KR hafði aðeins unnið einn af þrettán leikjum sínum á tímabilinu en Keflavík kom til leiks með ellefu sigra í þrettán leikjum. KR náði Snæfelli að stigum á botninum en Keflavík tapaði dýrmætum stigum í slagnum um efsta sætið. KR var yfir í hálfleik, 44:40, og Keflavík varð fyrir því áfalli að Daniela Wallen gat ekki leikið síð- ari hálfleikinn. KR náði sautján stiga forystu snemma í þriðja leik- hluta en Keflavík minnkaði muninn og leikurinn var spennandi á loka- kaflanum. Annika Holopainen skoraði 23 stig fyrir KR og tók 12 fráköst og Taryn McCutcheon var með 17 stig og 14 fráköst. Hjá Keflavík var Anna Ingunn Svansdóttir með 19 stig en Salbjörg Ragna Sævars- dóttir skoraði 17 stig og tók 12 frá- köst. _ Haukar styrktu stöðu sína í þriðja sæti með því að sigra Skallagrím í hörkuleik á Ásvöllum, 73:69. Staðan var 34:34 í hálfleik og liðin skiptust á um forystuna fram- an af seinni hálfleik. Haukar voru yfir í fjórða leikhluta en Skalla- grímur minnkaði muninn í 71:69 þegar 20 sekúndur voru eftir. Alyesha Lowett tryggði sigurinn með tveimur vítaskotum fyrir Hauka. Lovett skoraði 22 stig og tók 11 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 13 stig og Sara Rún Hin- riksdóttir 12. Hjá Skallagrími var Keira Robinson með 30 stig og 10 fráköst og Sigrún Sjöfn Ámunda- dóttir skoraði 12 stig og tók 11 fráköst. _ Fjölnir lagði Snæfell nokkuð örugglega í Grafarvogi, 79:71. Staðan var 45:28 í hálfleik og Fjölniskonur héldu öruggu forskoti lengst af í seinni hálfleiknum. Snæfell átti þó góðan sprett, minnkaði muninn úr 75:53 í 75:69 og hleypti spennu í leikinn um stund, en nær komust Hólmarar ekki. Ariel Hearn skoraði 19 stig fyrir Fjölni og tók 17 fráköst og Lina Pikciuté var með 18 stig og 14 frá- köst. Hjá Snæfelli var Haiden Pal- mer með tröllatvennu, 29 stig og 22 fráköst, og Anna Soffía Lár- usdóttir skoraði 19 stig. Morgunblaðið/Eggert Ásvellir Keira Robinson hjá Skallagrími í baráttu við Rósu Björk Péturs- dóttur hjá Haukum í viðureign liðanna í Hafnarfirði í gærkvöld. Óvæntustu úrslitin á tímabilinu - Botnlið KR sótti tvö stig til Keflavíkur _ Joachim Löw, þjálfari þýska karla- landsliðsins í knattspyrnu, hefur sent Alfreð Gíslasyni, þjálfara þýska karla- landsliðsins í handknattleik, stuðn- ingskveðju. Alfreð fékk hótunarbréf á dögunum þar sem bréfritari krafðist þess að hann segði starfi sínu lausu, annars yrði hann heimsóttur. „Þú ert frábær landsliðsþjálfari og við erum stolt af þér og liðinu. Ég vona að send- andinn finnist og verði látinn sæta ábyrgð,“ sagði Löw m.a. í kveðju sinni til Alfreðs. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sendi Alfreð einnig kveðju vegna máls- ins á Twitter í gær. _ Hildigunnur Einarsdóttir, landsliðskona í handknattleik, sem hefur leikið í níu ár sem atvinnumaður erlendis, hef- ur samið við Val til þriggja ára, frá og með komandi sumri. Hildigunnur, sem er 33 ára gömul og spilar á línunni, lék með Valsliðinu í sex ár en frá 2012 hef- ur hún spilað með Tertnes í Noregi, Heid í Svíþjóð, Niederösterreich í Aust- urríki og þýsku liðunum Koblenz, Leip- zig, Dortmund og Leverkusen. _ Keflvíkingar hafa sagt bandaríska körfuboltamanninum Max Montana upp störfum vegna agabrots eftir að- eins sex leiki með liðinu. Montana, sem er með þýskt ríkisfang, kom til Keflavíkur í byrjun febrúar en náði sér ekki á strik með liðinu og var aðeins með níu stig og tvö fráköst að með- altali í leik. _ Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur fengið bandaríska leikmanninn Del- aney Baie Pridham í sínar raðir en hún kemur beint til Eyja frá Santa Clara- háskólanum. Pridham er 23 ára gömul og spilar ýmist frammi eða á miðjunni. _ Danski varnarmaðurinn Rasmus Christiansen hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Vals í knatt- spyrnu og leikur því með liðinu út tímabilið 2022 hið minnsta. Rasmus er 32 ára og starfar jafnframt sem kennari í Hagaskóla, en hann hefur leikið á Íslandi frá 2010, að und- anskildum tveimur árum í Noregi. Hann lék með ÍBV og KR en kom til Vals 2016 og var í láni hjá Fjölni 2019 þegar hann var að jafna sig eftir alvar- Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.