Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 56

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Veitingamenn athugið! Við sérhæfum okkur í þjónustu fyrir veitingahús 60 ára Heimir er Reykvíkingur, ólst upp í Smáíbúðahverfinu, en býr í Hafnarfirði. Hann stundaði nám í við- skiptafræði og stjórn- málafræði við HÍ. Heimir er útvarps- maður á Bylgjunni. Hann varð Íslands- meistari í fótbolta og handbolta sama ár með Víkingi og spilaði landsleiki í báðum greinum. Maki: Rúna Guðmundsdóttir, f. 1958, fornleifafræðingur og listasagnfræð- ingur. Börn: Brynjar Árni, f. 1986, Thelma Rún, f. 1992, og Alexandra Aldís, f. 1994. Stjúpsonur er G. Magni Ágústs- son. Foreldrar: Ragnhildur Jónsdóttir, f. 1930, d. 2015, húsmóðir, og Karl Finn- bogason, f. 1928, járnsmiður, búsettur í Hafnarfirði. Karl Heimir Karlsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt óvænt atvik knýi þig til að breyta áætl- unum þínum. Sá/sú sem biður þig um að breyta reglunum gerir það eflaust aftur. 20. apríl - 20. maí + Naut Það verður enginn hlutur að veruleika bara vegna þess að þú óskar eftir því. Komdu til dyranna eins og þú ert klæddur. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú þarft að vera viðbúinn því að þurfa að taka þátt í umræðum til þess að koma skoðunum þínum á framfæri. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ekki kaupa neitt af fljótfærni í dag. Forðastu umfram allt að berja höfðinu við steininn þegar um viðurkenndar stað- reyndir er að ræða. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú mátt eiga von á því að meiri áhersla verði á heimili og fjölskyldu næstu vikur. Reyndu að leiða hjá þér furðulegan tjáningamátann og einbeittu þér að hjálp- legu atriðunum. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Hvert augnablik dagsins þarf ekki að vera skipulagt. Svona tækifæri gefast ekki oft og nýttu því daginn til hins ýtrasta. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú siglir nokkuð lygnan sjó í sam- skiptum við vini og vandamenn og ættir að nota tækifærið til að auka þau. Aðeins þannig getur þú um frjálst höfuð strokið. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þótt þér þyki eitthvað gott er ekki þar með sagt að nágranni þinn sé sama sinnis. Treystu innsæi þínu í sam- bandi við hvað er raunverulega á seyði. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það getur komið sér vel að vera gæddur hæfilegum skammti af þrjósku þegar allir vilja kasta sinni ábyrgð yfir á þig. Vertu góð(ur) við sjálfa(n) þig og slakaðu á. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Gefðu kost á þér á framabraut- inni, sama hversu illa þér hefur gengið til þessa. Vertu samt var um þig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Vinnufélagar þínir sýna þér óvenjumikinn stuðning og samstarfsvilja á næstu vikum. Basl og þjáning eru val- kostur, hvað kýst þú? En eins og þú veist er stundum ekkert að njóta. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Taktu mark á ráðleggingum þeirra sem þykir vænt um þig og settu þær ofar öllu öðru. Vendu þig af því að keyra skoð- anir þínar ofan í aðra. sinni, Ingu Eyfjörð Sigurðardóttur, á gamlársdag 1973. Frank var settur kennari við barnaskóla Reykjavíkur 1963 og kenndi við Breiðagerðisskóla. Þá var hann skólastjóri við Tónlistar- skóla Kópavogs frá 1965 til 1967 og kenndi auk þess við fleiri skóla. Ár- ið 1971 fluttist Frank út á land og gerðist kennari við Tónlistarskóla Sauðárkróks og kenndi þar við bæði andi eiginkonu sinni, Bryndísi Frið- riksdóttur frá Raufarhöfn. Þau byrjuðu bæði að vinna á Ísafirði og héldu til í Félagsbakaríinu. Í árslok 1959 fluttust þau til Hafnarfjarðar og hófu búskap að Hverfisgötu 22. Lá leiðin síðan á Hólabraut 9 í Hafnarfirði. Þar bjuggu þau til 1971 er leiðir þeirra skildi og börnin fjögur urðu eftir hjá Bryndísi. Frank kvæntist síðari eiginkonu F rank Kristinn Herluf- sen fæddist í Alþýðu- húsinu á Ísafirði þann 18. mars 1941. Æsku- heimili hans var Hafn- arstræti 11 á Ísafirði, þar sem hann ólst upp ásamt systkinum og for- eldrum til 18 ára aldurs. „Leikvöllurinn á æskuslóðum var að mestu fjaran og bryggjurnar á Ísafirði,“ segir Frank. Hann keppti fyrir Vestra og vann til verðlauna í sundi og skíðagöngu. Einnig vann hann til verðlauna í skák og tvívegis fyrir framúrskarandi árangur í pí- anónámi. Hann spilaði í Lúðrasveit Ísafjarðar á bassa og fleira undir stjórn föður síns. „Pabbi var góður stjórnandi, útsetjari og dreif sveit- ina áfram með hrífandi trommu- leik.“ Frank spilaði einnig fyrir dansi með hljómsveitinni BG. Frank var í barna- og gagnfræða- skólanum á Ísafirði og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Hann stundaði pí- anónám við Tónlistarskóla Ísafjarð- ar frá 1952 í þrjú og hálft ár hjá Ragnari H. Ragnars. Árin 1961- 1964 var Frank nemandi við Tón- listarskólann í Reykjavík. Lauk hann tónlistarkennaraprófi 1963 og stundaði svo áframhaldandi píanó- nám undir handleiðslu Ásgeirs Beinteinssonar. Frank byrjaði sjómennsku 13 ára á Kvikk. „Þetta var níu tonna bátur sem Binni einfætti gerði út á smá- síldarveiðar. Frekari sjómennska tók við m.a. handfæraveiðar á Ver IS með Agnari Guðmunds. Ekki voru komnar rúllur við veiðarnar heldur var girnið dregið á höndum um borð og allur fiskur hand- merktur. Síðan á Víking IS með Hermanni Sig á síldar- og smokk- fiskveiðum, á Gulltopp GK með Braga Björnssyni á reknetaveiðum og á Fram GK með Leifi úr Garði á smokkfiskveiðum.“ Árið 1958 fluttu foreldrar Franks frá Ísafirði til Danmerkur. Á þess- um tíma hafði Frank kynnst þáver- barna- og framhaldsskólann. Var hann að auki organisti við kirkjuna á staðnum. Árið 1972 færði hann sig til Ólafsfjarðar og stýrði þar tónlistar- skólanum, kenndi við barna- og framhaldsskólann og sinnti störfum organista við Ólafsfjarðar- og Kvía- bekkjarkirkjur. Árið 1982 fluttist Frank í Voga á Vatnsleysuströnd og tók þar við starfi organista við Kálfatjarnarkirkju og kenndi við Stóru-Vogaskóla og tónlistarskól- ann í Vogum. Síðar komu störf við Hvalsneskirkju og tónlistarskólann í Sandgerði og tónlistarskólann í Grindavík til 73 ára aldurs er starfsferli lauk. „Ég sinnti helst píanókennslu en kenndi einnig á klarínett, ýmis blásturshljóðfæri, harmonikku og fleiri hljóðfæri auk meðleiks. Ég stjórnaði einnig nokkrum karla- og barnakórum auk kirkjukóra.“ Á árunum 1962-1967 starfaði Frank á sumrin sem lögreglumaður í Reykjavík. Síðar voru sumar- störfin tengd sjónum. Árið 1974 keyptu Frank og Úlfar Guðmunds- son prestur á Ólafsfirði, þriggja tonna trillu, sem hlaut nafnið Gull- toppur. Reru þeir bátnum til hand- færaveiða. Síðar var Frank að mestu einn á trillunni og gerðist út- gerðarmaður árið 1981. „Keypti ég þá hjallaefni, reisti þrjú hjallabil, fór að fiska, spyrða, hengja upp, þurrka, taka niður, pakka og selja skreið til Nígeríu. Hafði ég lið af eiginkonu minni Ingu og Gunnari Sigvalda útgerðarmanni við þann gjörning.“ Frank hefur frá unga aldri haft yndi af skák og tefldi um árabil kappskák á vegum Taflfélags Reykjavíkur bæði á skákþingum og haustmótum félagsins. Á árunum sem hann bjó út á landi sneri hann sér að bréfskák og tefldi á inn- lendum og erlendum vettvangi á al- þjóðlegum mótum og landsliðs- keppnum fyrir Íslands hönd. Var Frank Herlufsen, fyrrverandi tónlistarkennari og organisti – 80 ára Með börnunum Guðrún Ásta, Sandra, Grétar, Sara Helga og Frank. Hefur gaman af því að leysa skákþrautir og spila snóker Organistinn Frank við orgelið í Kálfatjarnarkirkju. 50 ára Ave er frá bænum Karksi í Eist- landi. Hún kláraði meistaranám í harm- onikuleik og tónlist- arkennslu við Lithá- ísku tónlistar- og leiklistarakademíuna í Vilníus og er í kantorsnámi við Tón- skóla þjóðkirkjunnar. Ave fluttist til Ís- lands 2002 til að verða tónlistarkenn- ari á Þórshöfn, og fluttist 2004 til Ólafsfjarðar. Hún kennir við Tónlistar- skólann á Tröllaskaga, er organisti í Ólafsfjarðarkirkju og kórstjóri Kirkju- kórs Ólafsfjarðar og Karlakórs Dalvík- ur. Maki: Þormóður Sigurðsson, f. 1959, vinnur hjá Vélfagi og er kirkjuvörður. Foreldrar: Dalvi Juhkamsoo, f. 1949, d. 2001, verkakona og harmonikkuleik- ari, og Hans Sillaots, f. 1945, d. 2021, vörubílstjóri. Ave Kara Sillaots Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.