Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 43

Morgunblaðið - 18.03.2021, Side 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 ✝ Ævar Guð- mundsson fæddist á Akureyri 5. mars 1941. Hann lést á Droplaug- arstöðum 9. mars 2021. Foreldrar hans voru Guðmundur Emil Valgrímsson, f. 1911, d. 2002, vélstjóri og vél- virkjameistari frá Harastöðum á Fellsströnd, og Ragnheiður Stefánsdóttir, f. 1919, d. 2012 á Akureyri. Þau slitu samvistum. Systur Ævars eru Auður, f. 1959, og samfeðra Guðrún Sigríður, f. 1938. Ævar kvæntist 26. desember 1965 eftirlifandi eiginkonu sinni, Laufeyju Barðadóttur. Hún er dóttir hjónanna Barða Friðrikssonar, f. 1922, d. 2014, hæstaréttarlögmanns og Þur- íðar Þorsteinsdóttur, f. 1925, d. 2019. Börn Ævars og Laufeyjar eru: 1) Þuríður, f. 1965, eig- inmaður hennar var Eiríkur Ei- ríksson, þau skildu. Sonur þeirra er Eiríkur, f. 1996. 2) Ragnheiður Margrét, f. 1967, eiginmaður hennar er Gísli Baldvinsson. Dætur þeirra eru Birta María, f. 1993, og Laufey einnig netaverkstæði, fisk- verkun og útgerð. Ævar gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og sat m.a. í stjórnum TVG, Félags stórkaupmanna, Vinnuveit- endasambandsins, Verslunar- ráðs Íslands, Rótarýklúbbs Sel- tjarnarness, Golfklúbbs Seltjarnarness o.fl. Ævar ferðaðist víða vinnu sinna vegna, m.a. til Austur- landa fjær, sem var frekar óvenjulegt á þeim tíma. Hann ferðaðist einnig mikið með fjöl- skyldu sinni, bæði innanlands og erlendis, og átti um tíma húsbíl og ferðaðist í honum um landið. Upp úr aldamótum hóf Ævar nám við Háskóla Íslands í hagfræði uns hann varð að hætta vegna heilsubrests. Ævar var mikill áhugamaður um veiðar, bæði í ám og sjó. Hann spilaði golf af kappi inn- anlands og erlendis. Hann keypti hús á Hjalteyri, en það- an átti hann góðar minningar frá því að hann var ungur drengur, og dvaldist þar löngum stundum í seinni tíð. Þar átti hann lítinn bát og sjó- hús og undi hag sínum vel við fiskveiðar. Ævar verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju í dag, 18. mars 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://www.skjaskot.is/aevar/. Virkan hlekk er einnig hægt að nálgast á: https://www.mbl.is/andlat/. Helena, f. 1996. 3) Þórdís Lilja, f. 1974, eiginmaður hennar er Bjarki Stefánsson. Synir þeirra eru Snorri, f. 2003, og Dagur og Óðinn, f. 2006. 4) Ævar Gunnar, f. 1985. Sambýlis- kona hans er Helga Guðrún Óskars- dóttir. Dætur þeirra eru Laufey Ósk, f. 2015, og Gunnhildur Ellý, f. 2019. Ævar ólst upp á Seltjarnar- nesi og bar þar út blöð frá unga aldri. 12 ára gamall réð Ævar sig á síldarskipið Strau- mey sem messagutti og árið eftir fór hann á síld sem kokk- ur. Sem ungur maður fór hann til sjós öll sumur og vann svo sem sjómaður í fullu starfi. Hann útskrifaðist með far- mannspróf úr Sjómannaskóla Íslands 1964. Eftir að Ævar hætti á sjó starfaði hann hjá Málningu hf. sem sölumaður. Árið 1969 stofnaði hann ásamt fleirum fyrirtækið Seif hf. sem hann rak til ársins 2000. Í fyrstu verslaði hann með bygg- ingarvörur, en síðar með veiða- færi og var í útflutningi á sjáv- arafurðum. Um tíma rak hann Elsku besti afi okkar, þín verð- ur sárt saknað. Það er ótrúlegt að hugsa að þú sért farinn frá okkur. Á svona stundu verður okkur hugsað til allra þeirra minninga sem við eigum, hvort sem það var heima hjá ykkur ömmu á Kirkjubraut- inni eða fyrir norðan í húsinu ykkar á Hjalteyri. Allar þær skemmtilegu minn- ingar sem við eigum af okkur öll- um saman á Hjalteyri hvort sem var að veiða af bryggjunni, fara út á bátnum þínum honum Ara eða bara eyða tímanum saman í húsinu að spjalla og spila. Það er líka minnisstætt þegar við fengum að gista heima hjá ykkur ömmu og þú fórst með okkur á Kaffivagninn í morgun- kaffi saman. Við vorum líka mikið saman um hátíðar og eru jólin þeirra minnisstæðust þar sem þið amma hafið eytt flestum jólunum sem við systurnar munum eftir með okkur. Þú varst alltaf skemmti- legur, fyndinn og tilbúinn að spjalla við okkur þegar við vild- um eyða tímanum með þér og tala um allt og ekkert. Takk fyrir að vera svona frá- bær og yndislegur við okkur systurnar. Þín verður sárt sakn- að og er það með ást og hlýju sem við kveðjum þig. Birta María og Laufey Helena. Í dag kveð ég ástkæran afa minn með hlýju og söknuði. Skemmtilegur, góðhjartaður, al- mennilegur og áhugaverður eru orð sem lýsa honum svo sannar- lega vel. Hann var einstakur maður sem hafði endalaust af skemmtilegum sögum að segja. Eftirminnilegasta minningin mín af honum er þegar við vorum staddir í stofunni á Hjalteyri og hann að segja eina af sögunum sínum. Hann hafði þá verið nýbú- inn að kaupa sér Jagúar og ætl- aði að láta reyna á hann með því að keyra til Akureyrar. Á leiðinni hitti hann einhvern sem var tilbúinn að „kitla aðeins pinnann“ eins og afi orðaði það. Þeir skipt- ust á að taka hvor fram úr öðrum sem endaði með því að löggan stöðvaði hinn gæjann eins og afi orðaði það. Þá hafði það verið afi sem var búinn að vera að espa „gæjann“ upp og reyna fá hann til að fara í smá kappakstur. Á meðan afi sagði söguna hló hann hæst allra. Ég kveð þig með þakklæti fyrir alla samveruna, elsku afi minn. Megi guð blessa þig og varðveita. Þinn Snorri. Afi minn var mjög góður mað- ur sem öllum þótti vænt um. Það var alltaf svo gaman að vera með honum á Hjalteyri, að tala við hann um veiði og hann að segja okkur svo skemmtilegar veiði- sögur um sig á sjónum. Þegar ég hitti hann var hann alltaf með bros á vör og spenntur að heyra um seinustu veiðiferð. Ég elska þig elsku afi. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans allstaðar fyllir þarfir manns. Vissi ég áður voruð þér, vallarstjörnur um breiða grund, fegurstu leiðarljósin mér. Lék ég að yður marga stund. Nú hef ég sjóinn séð um hríð og sílalætin smá og tíð. - Munurinn raunar enginn er, því allt um lífið vitni ber. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! (Jónas Hallgrímsson) Þinn Dagur. Elsku afi var skemmtilegur og yndislegur maður. Það eru marg- ar skemmtilegar minningar af okkur saman. Skemmtilegast fannst mér þegar ég fór að heilsa upp á hann með knúsi og hann heilsaði mér með því að kalla mig jólasveininn sinn. Þegar árin liðu byrjaði ég að heilsa honum með því að kalla hann jólasvein. Ég mun alltaf muna hversu mikið hann hló og brosti þegar ég kall- aði hann jólasvein. Alltaf var gaman að heyra sögurnar hans um veiðiferðir eða ferðirnar á Jagúarbílnum hans norður, einn- ig fannst mér gaman að segja honum sögur um veiðiferðirnar mínar á sjó og á landi. Ég mun alltaf muna eftir því hversu mikið hann hló og brosti. Hvíldu í friði elsku afi. Þinn Óðinn. Við kynntumst Ævari í gegn- um sameiginlegt áhugamál okkar á golfi fyrir um 40 árum. Í um það bil 15 ár vorum við saman í stjórn Nesklúbbsins, en með okkur var líka Sigurður Þ. Guð- mundsson, en hann féll frá á árinu 2007. Það var okkur öllum mikil ánægja að starfa fyrir klúbbinn og bar aldrei skugga á samheldn- ina í þessum hópi. Ævar var sér- lega úrræðagóður og áhugasam- ur um velferð klúbbsins. Hann hafði mikil sambönd í gegnum fyrirtæki sitt Seif hf. og naut klúbburinn oft góðs af því. Eftir að við hættum í stjórn Nesklúbbsins árið 1993, þar sem við hittumst að lágmarki einu sinni í mánuði á stjórnarfundum, tók við nýtt tímabil hjá hópnum. Við tókum upp á því að spila sam- an snóker einu sinni í viku yfir vetrartímann og þar naut Ævar sín vel en hann hafði leikið snó- ker á yngri árum og virtist engu hafa gleymt. Þá var Ævar upp- hafsmaður þess að við hittumst einu sinni á vetri ásamt mökum okkar í hátíðarkvöldverði heima hjá hvor öðrum. Þar sáu karlarn- ir um matseldina og konurnar nutu með okkur. Ævar fór fyrir okkur á þessum kvöldum enda annálaður kokkur og kölluðum við hann gjarnan okkar á milli „Mr. Gourmet“. Árið 1994 hafði Ævar, ásamt frænda sínum, eignast hús afa síns á Hjalteyri, Sigurðarhús, og var byrjaður að gera það upp. Þá strax buðu þau hjónin okkur í langa helgarferð til Hjalteyrar, sem varð síðan fastur liður á dag- skrá á sumrin í mörg ár. Í þess- um ferðum var leikið mikið golf, aðallega í Svarfaðardalnum, á Akureyri og stundum á Húsavík. Á kvöldin var oft farið út á Eyja- fjörðinn á trillu sem hann átti og dorgað, en þar vorum við í góðum höndum þar sem Ævar hafði stundað sjóinn á yngri árum. Þessar hátíðarstundir og Hjalt- eyrarferðir voru tilhlökkunar- og umræðuefni allt árið enda vin- skapur og sönn gleði ávallt í fyr- irrúmi. Við félagarnir söknum vinar okkar mikið og sendum Laufeyju og fjölskyldunni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Jónatan Ólafsson, Ólafur Björgúlfsson, Pétur Orri Þórðarson. Ævar Guðmundsson ✝ Lilja fæddist á Búðum í Eyr- arsveit undir norð- anverðu Kirkjufelli 3. maí 1929. Hún lést á Landspítala 5. mars 2021. Foreldrar Lilju voru Margrét Guð- rún Gísladóttir yf- irsetukona, f. 6. mars 1891, d. 6. október 1995, og Þorkell Daníel Runólfsson bóndi og sjómaður, f. 16. desem- ber 1894, d. 4. desember 1965. Lilja var næstyngst sex systkina sem nú eru öll látin. Þau voru Runólfur, Guðbjörg Fjóla, Gísli, Páll og Sigurbjörg Hulda. Lilja giftist 31. desember 1954 Leó Kristleifssyni sjó- manni, f. 25. september 1909, d. 14. febrúar 1987. Hann var son- ur Soffíu Guðrúnar Árnadóttur, f. 10. febrúar 1886, d. 13. sept- ember 1981, og Kristleifs Jón- atanssonar, f. 2. janúar 1873, d. 7. febrúar 1946. Lilja nam við Húsmæðraskól- ann á Varmalandi í Borgarfirði veturinn 1947-48. Sinnti hún Líf, f. 2. janúar 1994, og Aníta Sól, f. 5. maí 1998. 4) Jenna Lára, f. 16. janúar 1973. Sonur hennar og Bjarna Þórs Lúðvíks- sonar er Snæþór Helgi, f. 26. janúar 1994. Dóttir hennar og Snorra Arnar Þórissonar er Katrín Tinna, f. 20. febrúar 2006. Börn Lilju og Leós eru: 1) Kristbjörg, f. 31. janúar 1956, gift Tryggva Friðjónssyni, f. 12. júlí 1955. Dætur þeirra eru: a) Soffía Theódóra, f. 30. janúar 1983. Unnusti hennar er Thom- as Már Gregers, f. 16. janúar 1977. b) Fanney Björk, f. 1. febrúar 1987, gift Karli Raymond Birg- issyni, f. 9. mars 1985. Börn þeirra eru: Katrín Lilja, f. 29. ágúst 2011, Bjarki Már, f. 30. apríl 2014, og Hildur María, f. 1. mars 2017. 2) Kristleifur, f. 29. september 1970, d. 3. mars 2016. Hann kvæntist Vilmu Kristínu Baldvins Svövudóttur, f. 26. júlí 1971. Þau slitu sam- vistir. Börn þeirra eru: a) Ses- selía Dögg, f. 25. mars 1991, gift Birgi Smára Ársælssyni, f. 27. júlí 1985. Börn þeirra eru: Gunnlaugur Leó, f. 17. desem- ber 2014, og Svava Kristín Baldvins, f. 5. október 2018. b) Leó, f. 16. desember 1999. Lilja verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 18. mars 2021, klukkan 13. margvíslegum störfum um ævina en lengst af starf- aði hún við sauma- skap, m.a. á Elli- heimilinu Grund og Hrafnistu. Tvíburadætur Lilju: Danilía Guð- rún Kristjánsdóttir, f. 21. október 1945, og stúlka d. sama dag. Guðrún giftist Jóni Þorbergs- syni, f. 8. nóvember 1945. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru: 1) Þorkell Daníel, f. 24. júní 1966, kvæntur Guðrúnu Jónínu Haraldsdóttur, f. 1. júní 1967. Dætur þeirra eru: Harpa Val- dís, f. 2. febrúar 1993, og Ingi- björg Lilja, f. 19. maí 2001. 2) Hulda Björg, f. 27. desember 1969, gift Magnúsi Kristni Jóns- syni, f. 18. september 1971. Syn- ir þeirra eru: Patrekur Maron, f. 23. september 1993, og Þor- mar Leví, f. 14. desember 1996. 3) Margrét Guðrún, f. 29. nóv- ember 1970, gift Valdimari Birgissyni, f. 18. nóvember 1970. Dætur þeirra eru: Karítas Tengdamóðir mín, hún Lilja, er látin eftir stuttan en snarpan slag. Hún hélt heimili allt til loka, næstum 92 ára gömul, og var ánægð með það. Hún gat í raun ekki hugsað sér að flytja á elliheimili og er ég feginn að ekki kom til þess. Lilja var klettur og stóð alla storma af sér sem á henni dundu. Eitt stærsta lífsverkefni hennar var að annast um veikan son sinn hann Kristleif um 15 ára skeið. Þegar yfir lauk árið 2016 var Lilja að verða 87 ára gömul. Hún gaf ekkert eftir og sinnti syni sínum af miklum kærleik. Kærleik hennar og um- hyggjusemi ræða dætur okkar Kristbjargar um nú. Þær nutu þess ætíð hjá ömmu sinni. Fyrr á árum áttu þær skjól hjá henni, hún fór með þeim til berja og á grasafjall, kenndi þeim á náttúr- una. Það lék allt í höndunum á Lilju, hún saumaði margvísleg- an fatnað bæði á brúður og bangsa sem stóðst allan sam- jöfnuð við tískufatnað tíðarand- ans. Hún saumaði einnig föt á dóttur sína, Kristbjörgu. Lýsti hún því sem hana langaði í hverju sinni og fyrr en varði hafði Lilja töfrað fram klæðin nákvæmlega eins og um var beðið. Margir nutu þessara hæfileika hennar, þar á meðal móðir mín og systir. Allt gert upp á besta máta. Við Lilja áttum samleið í nær- fellt 43 ár. Aldrei bar skugga á þessa samleið okkar. Fyrir það er ég henni þakklátur. Lilja og Leó tengdafaðir minn giftu sig árið 1954. Áttu þau far- sælt hjónaband um liðlega 30 ára skeið en hann lést árið 1987. Leó var lengst af starfsævinnar sjómaður, meðal annars í milli- landasiglingum. Leó dró björg í bú á meðan hans starfskrafta naut við. Björgin var margvís- leg. Oft lagði Lilja fyrir hann að kaupa fataefni í útlöndum sem hún gerði síðan að eigulegum og fallegum flíkum. Lilja sló ekki slöku við á vinnumarkaði, starfaði lengst af á saumastofum þar sem hennar hæfileikar nýttust vel. Einnig sinnti hún ræstingum meðfram til að drýgja heimilistekjurnar. Þannig var vinnudagurinn oft langur hjá Lilju. Aldrei kvartaði hún þó yfir hlutskipti sínu, sneri jafnaðargeðinu að sínu fólki og öðrum enda félagslynd kona sem á árum áður stóð fyrir veislum á heimili sínu þar sem fagurlega skreyttar brauðtertur hennar voru í hávegum hafðar. Þar kunni hún þá list að breyta tómötum í fegurstu blóm. Þegar upp er staðið búa í brjósti manns litlu hlutirnir, innilegt faðmlag hennar, dálæti á dóttur sinni, dætrum okkar og barnabörnum. Lilja hafði ekkert endilega mörg orð um hlutina en það mátti finna afstöðu hennar í framkomu hennar allri. Hún var af þeirri kynslóð sem bar ekki á torg hvorki sorgir né sigra. Nú þegar komið er að kveðju- stund bið ég Lilju vel að fara. Megi minningin um góða móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu lifa. Tryggvi Friðjónsson. Ingibjörg Lilja Þorkelsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,langamma og langalangamma, JÓNÍNA SALNÝ STEFÁNSDÓTTIR frá Mýrum í Skriðdal, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð mánudaginn 15. mars. Stefán Þórarinn Ingólfsson Margrét B. Einarsdóttir Páll Rúnar Ingólfsson Eydís G. Sigurðardóttir Hafdís Odda Ingólfsdóttir Ingjaldur H. Ragnarsson Ingvi Ingólfsson Stefanía L. Óladóttir Fanney Ingólfsdóttir Birgir Vignisson Sigurður K. Ragnarsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, Álftamýri 26, lést mánudaginn 15. mars á Landspítala, Fossvogi. Jarðarförin auglýst síðar. Aðalheiður Benediktsdóttir Hörður Árnason Jón Ágúst Benediktsson Jónína Sigurðardóttir Guðrún Þ. Benediktsdóttir Hjörtur Erlendsson Þórður Benediktsson Kristín Unnur Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi, SIGURÐUR PÉTURSSON, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 19. mars klukkan 11. Hólmfríður Sigurðardóttir Kristján Freyr Helgason Margrét Sigurðardóttir Pétur Gauti Hreinsson Pétur Sigurðsson og afabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.