Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g undi mér alltaf betur
utanbæjar en í borginni
og ég var sífellt að suða í
foreldrum mínum þegar
ég var krakki að ég vildi flytja út í
sveit. Ég hvatti pabba oft til að ger-
ast bóndi, enda var ég með hesta-
dellu og fór í sveit í Hjaltadal í
Skagafirði þegar ég var tíu ára þar
sem ég passaði börn í skiptum fyrir
að fara á hestbak,“ segir Erla Jó-
hannsdóttir borgarstelpa sem þráði
að búa úti á landi. Sá draumur rætt-
ist fyrir nokkrum árum þegar hún
flutti til Siglufjarðar, en forsaga
málsins liggur um nokkur lönd, fjöll
og firnindi, jökla og ísbjarnaslóðir.
„Ég fór að vinna í Skaftafelli
fyrir tíu árum, en þá var ég búin að
ferðast mikið og ég hafði búið í Aust-
urríki þar sem ég var að renna mér á
snjóbretti þrjá vetur í röð. Þegar ég
kom heim eftir það vantaði mig
vinnu og ég leitaði til vina minna
sem ráku fyrirtæki í ferðaþjónust-
unni, m.a. í Skaftafelli. Þar vann ég
við að selja jöklaferðir hjá fyrirtæki
sem heitir Glacier Guides, eða Jökla-
menn. Þá hafði ég enga sérstaka
þekkingu á jöklum, nema það sem
ég hafði lært í jarðfræði í háskól-
anum og í eigin fjallabrölti. Ég fór
því á jöklaleiðsögunámskeið og tók
meirapróf til að geta keyrt rút-
urnar.“
Þarf að kunna að nota riffil
Erla, sem er landfræðingur að
mennt, var öll sumur í Skaftafelli frá
2011 til 2016, sem var örlagaríkt, því
þar kynntist hún núverandi manni
sínum, Steve Lewis.
„Hann er Breti og var þá að
vinna sem jöklaleiðsögumaður.
Hann hafði búið á Svalbarða í sex ár
og ég flutti með honum þangað og
þar bjuggum við í þrjú ár. Þetta var
ögrandi verkefni, þar er rosalega
mikið myrkur yfir veturinn en stór-
kostleg birta yfir sumartímann.
Þetta eru miklar öfgar og ég var góð
með mig, verandi Íslendingur, og
sagði að þetta yrði ekkert mál fyrir
mig, en þetta er allt annar tebolli,“
segir Erla og bætir við að ísbjarnar-
ótti sé fyrirbæri á þeim slóðum sem
flestir þar kannist við.
„Það fer reyndar eftir því hvar
maður býr hversu miklar líkur eru á
að rekast á ísbjörn sem maður þarf
að eiga við sjálfur. Við gerðum þó
nokkuð mikið af því að fara út í
óbyggðir á Svalbarða og þá þarf
maður að vera var um sig. Við þurf-
um að umgangast ísbirni af virðingu
á þessu svæði, því þetta er þeirra
heimasvæði. Við reyndum að forðast
að komast í návígi við ísbirni, því þá
þarf maður hugsanlega að verja sig
og mögulega á endanum gera þeim
mein. Enginn vill lenda í því, þetta
eru stórar og hættulegar skepnur og
þar fyrir utan í útrýmingarhættu.
Þarna ferðast maður alltaf með riffil
og neyðarblys sem getur hrætt
birnina í burtu, en það virkar ekki
alltaf. Með blysunum gerir maður
líka vart við sig og einhver getur þá
mögulega komið til hjálpar. Maður
þarf að kunna að nota riffilinn, ef
maður lendir í þeim aðstæðum að
þurfa að fella ísbjörn,“ segir Erla
sem hefur lært að skjóta af riffli en
segist fegin að hafa ekki þurft að
nota hann á ísbjörn.
Steve hafði ekki aðeins búið á
Svalbarða áður en leiðir þeirra lágu
saman heldur líka í Noregi og Sví-
þjóð. Hann er því augljóslega mikið
fyrir norðurslóðir.
„Hann féll alveg fyrir Íslandi
svo það var enginn efi í hans huga
hvar hann vildi eiga heima. Við flutt-
um til Siglufjarðar af því ég hafði í
raun alltaf verið að bíða eftir að
kynnast einhverjum sem nennti að
flytja með mér út fyrir borgina. Þeg-
ar ég fann þennan ævintýramann og
náttúruunnanda sem Steve er, þá
var það fullkomið. Við höfðum
heillast af Siglufirði á einhverri ferð
okkar um landið og þegar við flutt-
um heim frá Svalbarða seldi ég íbúð-
ina mína sem ég átti í Reykjavík og
við keyptum okkur hús hér á Siglu-
firði. Við sjáum ekki eftir því, þetta
er sjötta árið okkar og við unum hag
okkar vel,“ segir Erla, sem opnaði
jógastöðina Tadasana fyrir tveimur
árum.
„Við eignuðumst son okkar árið
2017 og ég var meira og minna í
barneignarleyfi í eitt og hálft ár í
framhaldi af því. Þegar kom að því
fyrir mig að fara aftur út á vinnu-
markaðinn langaði mig ekki í ferða-
mannabransann aftur. Ég hafði
stundað jóga annað slagið alveg frá
því ég var 16 ára og ég fór að gera
það af fullum krafti þegar við heim-
sóttum fjölskyldu Steves í San
Francisco og vorum þar í mánuð.
Við það kviknaði á öllu hjá mér og ég
ákvað að fara á fullu í þetta, ég fékk
mér jógakennararéttindi ári seinna í
San Francisco og þegar ég kom
heim stofnaði ég facebookhóp sem
hét Jóga í Fjallabyggð, til að athuga
hvort það væri einhver áhugi fyrir
þessu. Viðbrögðin voru svo góð að ég
ákvað að slá til og opna jógastúdíó
hér. Bæjarbúar hafa tekið þessu
fagnandi.“
Jóga fer vel með ferðalögum
Erla hefur eðli málsins sam-
kvæmt þurft að loka jógastúdíónu
oft vegna covid.
„Núna tek ég færri í salinn
vegna tveggja metra reglunnar, en í
sumar glæðist vonandi. Ein hug-
myndin er að taka á móti gestum, en
mig langar að ná til fólks sem vill
stunda jóga þegar það ferðast um
landið. Ég hugsa þetta líka fyrir
aðra jógakennara, því við getum
boðið þeim íbúð hér ef þeir vilja
koma og halda námskeið eða vera
með viðburði hér á Sigló í jóga-
stúdíóinu. Jógakennarar vilja
kannski fara með sinn jógahóp út á
land, en það fer vel saman, að
ferðast um Ísland og stunda jóga,“
segir Erla og bætir við að heiti stúdí-
ósins, Tadasana, sé sanskrít.
„Þetta er nafn á jógastöðu sem
þýðir fjallið. Það á vel við hér í
Fjallabyggð þar sem við erum um-
vafin fjöllum.“ Erla og Steve reka
líka annað fyrirtæki, The Empire,
þar sem þau taka á móti hópum sem
eru að taka upp auglýsingar, stutt-
myndir eða annað slíkt. „Þetta hent-
ar vel fyrir þá sem eru með fókus á
ævintýraútivistarbrölt, til dæmis þá
sem eru að taka upp skíðastutt-
myndir,“ segir Erla og bætir við að
þau hafi stofnað fyrirtækið þegar
þau bjuggu á Svalbarða.
Hestastelpa Erla ung í Skagafirði. Tadasana Útsýni er ekki amalagt úr jógastúdíói Erlu, fjallafegurðin sjálf. Svalbarði Erla með hóp í ísklifri á Svalbarða, þar sem hún bjó í þrjú ár.
Frá Svalbarða til Siglufjarðar
Borgarstelpan Erla Jó-
hannsdóttir kann best við
sig utan borgar og hefur
búið á slóðum ísbjarna.
Ljósmyndir/Aðsendar
Fjallafólk Fjölskyldan kann vel við sig úti, hér saman inni í Fljótum, Erla, Steve og sonurinn Elías Ari Lewis.
!" ,/%*"
)(.&" $"#$(/'+/-!
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | 510 1700 | WWW.VR.IS
VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofs-
íbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína.
Við leitum að húsnæði á landsbyggðinni fyrir
næsta sumar.
Áhugasöm sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. apríl 2021.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði:
– Lýsing á eign og því sem henni fylgir
– Ástand eignar og staðsetning
– Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár
– Lýsing á möguleikum til útivistar og
afþreyingar í næsta nágrenni