Morgunblaðið - 18.03.2021, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
Átta nýir veitingastaðir, meðal ann-
ars Flatey pizza og Smiðjan brugg-
hús, verða í nýrri mathöll sem verður
opnuð í sumar í endurreistu Mjólk-
urbúi Flóamanna í miðbæ Selfoss.
Einnig verða þarna ný vörumerki,
eins og tacostaðurinn El Gordito og
Pasta Romana.
Í Mjólkurbúinu verður sömuleiðis
bjórgarður, vínbar og stærðarinnar
matar- og upplifunarsýning sem
fengið hefur nafn-
ið Skyrland.
Vignir Guð-
jónsson, fram-
kvæmdastjóri
Sigtúns Þróun-
arfélags, sem er í
forsvari fyrir
verkefnið, segir
að Mjólkurbúið
nýja hafi frá upp-
hafi verið hugsað
sem samkomustaður fyrir heimafólk
á Selfossi og gesti, erlenda sem inn-
lenda. „Mjólkurbúið er hjartað í
þessum fyrsta áfanga nýs miðbæjar.
Húsið er afar tignarlegt og blasir við
þegar komið er yfir Ölfusárbrúna.
Við höfum fulla trú á að Mjólkurbúið
verði eitt helsta kennileiti og aðdrátt-
arafl Suðurlands,“ segir Vignir.
Húsið var hannað af Guðjóni Sam-
úelssyni og upphaflega byggt á Sel-
fossi árið 1929 en rifið aðeins 25 árum
síðar. Endurbyggt húsið er hið
stærsta í nýjum miðbæ Selfoss, um
1.500 fermetrar á þremur hæðum,
sem tengjast saman í miðrými með
háum bogadregnum gluggum. Ein-
ungis eitt veitingarými af átta er
óráðstafað, en áætlað er að dyrnar í
Mjólkurbúinu opni í byrjun júní.
Innblástur í söguna
Vignir segir mikið lagt í hönnun og
alla umgjörð í Mjólkurbúinu. Innan-
hússhönnun er í höndum Hálfdánar
Pedersen, sem hannað hefur nokkra
af vinsælustu veitingastöðum lands-
ins, svo sem Snaps, Kex og Sumac.
Þórður Orri Pétursson sér um lýs-
ingu, en hann og Hálfdán hafa unnið
mikið saman að undanförnu, t.d. við
endurhönnun Þjóðleikhússins. Þá er
leikmyndahönnuðurinn Snorri Hilm-
arsson aðalhönnuður Skyrlands.
„Það má segja að hver hæð og hvert
rými hafi sinn blæ. Hráar verk-
smiðjur fyrri tíma eru ákveðin fyr-
irmynd, en innblástur er einnig sótt-
ur í verk Guðjóns Samúelssonar. Til
dæmis eru hvítar flísar áberandi og
lögnin á þeim sambærileg því sem við
þekkjum úr Sundhöll Reykjavíkur, “
segir Vignir ennfermur.
Auk Mathallarinnar verða fleiri
veitingastaðir í nýja miðbænum og
nöfn þeirra verða gerð opinber á
næstunni, að sögn Vignis.
Tölvumyndir/Sigtún Þróunarfélag
Selfoss Svona kemur torgið í nýja miðbænum á Selfossi til með að líta út. Mjólkurbúið verður stærsta byggingin, um 1.500 fermetrar að flatarmáli á þremur hæðum, með átta matsölustöðum.
Átta staðir í
Mjólkurbúinu
Skyrland Matar- og upplifunarsýning verður í nýju Mathöllinni á Selfossi.
- Mathöll opnuð í sumar í miðbænum
á Selfossi - Mjólkurbúið endurreist
Vignir Guðjónsson
Endurreisn Gamla Mjólkurbú Flóamanna er að rísa á ný við nýja miðbæinn á Selfossi. Þar verður Mathöllin til húsa.