Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 39
Ljósmynd/FÍ myndabanki
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Almannaréttur er einn af lykil-
þáttum náttúruverndarlaga.
Á árum áður var hlutverk al-
mannaréttar öðru fremur að
tryggja möguleika fólks á að kom-
ast milli staða. Nú á dögum er
hlutverk almannaréttar ekki síður
að tryggja öllum almenningi
möguleika á að njóta og upplifa
náttúru landsins. Með vaxandi úti-
vist og með fjölgun ferðamanna
hefur umferð um landið vaxið gíf-
urlega.
Náttúruupplifun og útivist er
nátengd náttúruvernd og því er
almannaréttur órjúfanlegur þátt-
ur í lögum um náttúruvernd. Al-
menningur á Íslandi hefur sterk
tengsl við landið og náttúruna og
viðhorf fólks til náttúruverndar
eru grundvölluð á þessum
tengslum. Því er mikilvægt að lög
um aðgengi fólks að náttúrunni
séu sanngjörn. Þannig er til
dæmis hlutverk þjóðgarða einkum
tvíþætt, annars vegar að vernda
náttúruna og hins vegar að
tryggja rétt almennings til að
ferðast um landið.
Mikilvægt er að almenningur
eigi rétt á frjálsri för um óræktað
land enda styðst það við rétt og
hefðir á Íslandi frá örófi alda.
Stærstur hluti óræktaðs lands er
móar, melar, heiðalönd og útjörð
sem er lítið eða ekki nýtt nema þá
helst til beitar. Engin verndunar-
eða nytjaþörf er því á að tak-
marka eða banna umferð gangandi
fólks um slík svæði. Sömuleiðis er
mikilvægt að tryggja umferð hjól-
andi og ríðandi sem og aðra um-
ferð ferðamanna um landið enda
gildi sömu sjónarmið fyrir alla
hópa útivistar varðandi vernd
náttúrunnar og almannaréttar að
teknu tilliti til aðstæðna á hverju
svæði fyrir sig.
Um leið og mikilvægt er að
tryggja almannarétt fólks þá er
eðlilegt að við sem ferðumst um
landið skiljum að hann getur ekki
verið án takmarka enda komi slík
ákvæði fram í náttúruverndar-
lögum. Eðlilegt er að Umhverf-
isstofnun hafi til þess heimild að
grípa til takmörkunar á umferð í
þágu verndar viðkvæmrar nátt-
úru enda liggi fyrir skýrar ástæð-
ur fyrir takmörkun á umferð.
Tillitssemi, samstarf, samvinna
og virðing eru lykilþættir þegar
kemur að ferðum okkar um landið.
Í því felst meðal annars að fá leyfi
landeigenda, upplýsa um för okkar,
fylgja lögum og reglum, sýna ólík-
um ferðamáta tillitssemi og síðast
en ekki síst að sýna náttúrunni
virðingu í för okkar um landið.
Á árum áður var hlutverk almannaréttar öðru fremur að tryggja möguleika fólks á
að komast milli staða. Nú á dögum er hlutverk almannaréttar ekki síður að tryggja
öllum almenningi möguleika á að njóta og upplifa náttúru landsins. Með vaxandi
útivist og með fjölgun ferðamanna hefur umferð um landið vaxið gífurlega.
Almannaréttur
Umgengni Mikilvægt er að
ganga vel um náttúruna og
leyfa henni að njóta vafans í
samskiptum við manninn.
Innviðir Uppbygging innviða er
mikilvæg til að stuðla að nátt-
úruvernd, stýra umferð og
styrkja almannarétt.
Ferðalög á
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Ilmur er ný litalína Slippfélagsins
hönnuð í samstarfi við Sæju
innanhúshönnuð. Línan er innblásin
af jarðlitum, dempaðir tónar með
gulum og rauðum undirtónum.
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
slippfelagid.is
slippfelagid.is/ilmur
Hör Leir Truffla Börkur
Myrra Krydd Lyng
Kandís
Lakkrís
Innblástur
og nýir litir á
slippfelagid.is