Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 49

Morgunblaðið - 18.03.2021, Page 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2021 ✝ Sturla Valdi- mar Högnason fæddist á Ísafirði 27. ágúst 1949. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 4. mars 2021. Foreldrar hans voru Högni Sturluson frá Látr- um í Aðalvík, f. 15. apríl 1919, d. 27. maí 2008, og Júl- íana Guðrún Júlíusdóttir hús- móðir frá Atlastöðum í Fljóta- vík, f. 24. júlí 1921, d. 1. september 1960. Systkini Sturlu eru: Sturlína Ingibjörg, f. 1941, Jónína Ólöf, f. 1942, Júlíus Rúnar, f. 1944, d. 13. febrúar 2021, Drengur, f. 1948, d. 1948, Guðleifur, f. 1951, d. Björk Hjörleifsdóttir, d. 31. desember 2013. Barn þeirra er Hjörleifur Svavar. Eiginkona Hjörleifs er Lilja Ósk Trausta- dóttir. Dætur þeirra eru Eva Dögg og Aría Lind. Fyrir átti Arna soninn Magnús Inga Gunnlaugsson. Núverandi eig- inkona Högna er Svanhvít Gunnarsdóttir. Dóttir þeirra er Sigrún Helga. Fyrir átti Svan- hvít börnin Sólveigu Rut Guð- mundsdóttur og Gunnar Loga Guðmundsson. 2) Svanberg Ingi, f. 3. desember 1975. Sonur Svanbergs er Sigbjörn Helgi, maki er Freyja Maeve Dóra Turner. Barnsmóðir Svanbergs er Ingibjörg Sigbjörnsdóttir. Fyrrv. eiginkona Svanbergs er Erla Bjarnadóttir. Barn þeirra er Guðrún. Að auki á Erla Írisi Ósk og Arnar Má. Núverandi maki Svanbergs er Sigríður Rós Þórisdóttir. Barn þeirra er Anna Róberta. Fyrir átti Sig- ríður börnin Ólaf Karl Karls- son, maki er María Silvía Gunn- arsdóttir, Guðnýju Þóru Karlsdóttur, maki er Daði Mar Jónsson, og Snorra Hörgdal Þórsson. Stulli starfaði sem ungur maður við almenn sveitastörf heima í Lokinhömrum en hann leitaði á mölina. Fyrsta starfið suður með sjó var hjá Varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli. Fljótlega eftir að Stulli og Sig- rún hófu búskap fluttu þau vestur í Hnífsdal og starfaði hann í Mjölvinnslunni um margra ára skeið. Síðar fluttu þau aftur suður og hann hóf vinnu við vélstjórn. Fyrst hjá Sjöstjörnunni og síðar sem sjálfstætt starfandi vélamaður í fiskvinnslu. Síðustu áratugina starfaði hann sem þúsundþjala- smiður hjá Nesfisk í Garði og lauk þar sinni starfsævi. Útförin fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 18. mars 2021, klukkan 11. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/u6ckxa2m Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat/ 20. október 1972, Guðrún Elísa, f. 1954. Seinni kona Högna var Jó- hanna Friðriks- dóttir, f. 10. febr- úar 1914, d. 1. september 2008. Eignkona Sturlu var Sigrún Reim- arsdóttir, f. 8. júlí 1950, d. 15. ágúst 2010. Þau gengu í hjónaband 13. nóvember 1971. Foreldrar Sigrúnar voru hjónin Reimar Marteinsson, f. 7. ágúst 1916, d. 15. september 1999, og Jóhanna Gísladóttir, f. 9. júlí 1918, d. 16. júní 1972. Synir Sturlu og Sigrúnar eru: 1) Högni, f. 21. september 1971. Fyrri eiginkona Högna er Arna Elsku afi. Þetta er erfiður tími fyrir okkur öll að missa svona góðan fyrirmyndarmann eins og þig, en við vitum að þú ert á betri stað núna með ömmu Sigrúnu að segja henni frá ævintýrunum sem þú hefur átt með okkur síðan við komum í líf þitt, við vorum ekki eins heppin að hafa fengið þann heiður að kynnast henni eins og þér. Við munum sakna þín endalaust, þú elskaðir okkur sama hvað og alltaf til staðar fyr- ir öll barnabörnin þín, sama hvað og gerðir ekki upp á milli, ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér og átt þann heiður að hafa kallað þig minn afa. Við hefðum viljað meiri tíma með þér en við höfum í huga okkar allar góðu minningarnar með þér og sögur sem þú sagðir okkur. Eins og hún Anna Róberta seg- ir að við elskum þig, þótt þú sért á himni þá ertu samt alls staðar hjá okkur öllum að passa okkur. Þú verður alltaf í okkar hjarta og aldrei gleymdur. Okkar elsku góði afi! Þú ert sá besti á því leikur enginn vafi. Þú átt ábyggilega eftir að lesa fyrir okkur ljóð og hjá þér munum við alltaf vera góð. Út um allt viljum við hendur þínar leiða. Einn daginn fáum við kannski að fara með þér að veiða. En hvað sem þú gerir og hvar sem þú ert að þá hefur þú okkar litlu hjörtu snert. Því þú ert svo góður og þú ert svo klár hjá þér munum við ekki fella nein tár. Því heima hjá afa er alltaf gaman að vera því þar getum við látið mikið á okkur bera. En afi okkar kæri við viljum að þú vitir nú okkar allra besti afi, það ert þú! (Katrín Ruth Þ) Bestu kveðjur, Guðný Þóra Karlsdóttir, afabarnið þitt. Sturla V. Högnason ✝ Mikael Már Pálsson fædd- ist 23. september 1980 í Gautaborg. Hann lést í Reykja- vík 2. mars 2021. Foreldrar hans eru Jódís H. Run- ólfsdóttir, f. 24. júlí 1957, og eigin- maður hennar Páll Indriði Pálsson, f. 4. febrúar 1956. Faðir Mikaels er Páll Jónsson, f. 21. júlí 1955, kona hans er Sig- urrós Svavarsdóttir, f. 19. sept- ember 1953. Dóttir Mikaels er Aðalrós Freyja, f. 1. september 2008. Mikael átti einnig fóstursoninn Styrmi til margra ára. Mikael er einn þriggja syst- kina ásamt einum hálfbróður. Pálsson, f. 26. mars 1988, og sambýliskona hans er Hrafn- hildur Agnarsdóttir, f. 10. jan- úar 1993. Mikael fæddist í Svíþjóð þar sem fjölskyldan bjó fyrstu tvö æviár hans. Fjölskyldan fluttist síðan til Reykjavíkur og bjó hann öll sín uppvaxtarár í Hlíð- unum. Hann var öll sín grunn- skólaár í Hlíðaskóla. Mikael var mikill íþróttamaður og æfði hann bæði handbolta og fót- bolta af miklu kappi með Val öll sín uppvaxtar- og unglingsár. Hann fylgdist ávallt vel með öll- um íþróttum og var dyggur stuðningsmaður Vals alla tíð ásamt því að vera stoltur Ars- enal-maður. Mikael var mikill fjöl- skyldumaður og einstaklega barngóður. Augasteinninn hans var svo dóttir hans Freyja sem hann var ákaflega stoltur af. Útför Mikaels Más Pálssonar fer fram í dag, 18. mars 2021, frá Háteigskirkju klukkan 13. Meira á: https://www.mbl.is/ andlat/. Systkini Mikaels eru Auður María Pálsdóttir, f. 29. júlí 1979, sambýlis- maður hennar er Thor Jochumsen, f. 14. nóvember 1983. Börn þeirra eru þær Emma Hall- grímsdóttir, f. 2006, Embla Joch- umsen, f. 2014, og Ellý Jochumsen, f. 2015. Bróðir Mikaels er Jón Gauti Pálsson, f. 25. apríl 1985, sambýliskona hans er Rán Reynisdóttir, f. 1. desember 1982. Börn þeirra eru Jódís Edda, f. 2017, og Eldur Gauti Mikael, f. 2018, Urður Erna Kristinsdóttir, f. 2010, og Ýmir Atli Kristinsson, f. 2013. Hálf- bróðir Mikaels er Daníel Már Elsku hjartans bróðir minn, Mikael Már, var mér ekki ein- ungis bróðir heldur föðurímynd til 12 ára aldurs, sem kenndi mér margt um lífið. Hann verður allt- af uppáhaldspersónan mín í allri veröld. Mikki var afar góðhjart- aður maður, hann var ekta, sem er sjaldgæft í þessum heimi. Hann passaði upp á mig og leyfði mér ávallt að vera ég sjálfur. Mikki var yndislegur karakt- er, kom öllum til að brosa, vildi láta fólki líða vel og grafa hatrið þar sem það ekki myndi finnast. Hann var ekki aðeins langmesti töffarinn í Hlíðunum, heldur líka einstakt ljúfmenni. Þegar hann var drengur í Mávahlíðinni átti hann það til að taka mjólkina úr ísskápnum okkar heima og gefa gömlu konunni í götunni, sem hann fór reglulega í búðina fyrir. Mikki og vinir hans voru með útvarpsþátt í félagsmiðstöðinni Tónabæ, þar sem þeir spiluðu stanslaust Nirvana, og kynnti mér þannig þessa frábæru hljóm- sveit, sem segja má að hafi breytt lífi mínu. Hann var náttúrlega bestur í íþróttunum, þannig að ég þurfti að sveigja mér í rock’n’roll- ið. Það þarf einhver að skáka það líka bróðir. Þú varst með allt hitt, „give me a break“. Mikael var mjög hæfileikarík- ur alhliða íþróttamaður; hvort sem það var fótbolti, handbolti, borðtennis eða skák stóð hann upp úr. Hann var vel liðinn og sópaði að sér verðlaunum, sem var pínu þreytandi því það tók allar hillur í herberginu. Ég leit mikið upp til hans, hann var fyrir- myndin mín og verður það um ókomna tíð. Elsku Mikki minn, ég er og verð ávallt hrikalega stoltur af því að vera bróðir þinn, ég sakna þín endalaust. Þú ert alltaf með mér, ég mun passa upp á þig elsku bróðir minn. Ég elska þig. Þinn bróðir, Jón Gauti. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Við fjölskyldan minnumst Mikka svo sannarlega með hlýju og þakklæti. Strax í fyrsta sinn sem ég hitti mág minn fór ekkert á milli mála hversu kærleiksríka sál hann hafði að geyma. Ég held ég hafi aldrei séð mann ná jafn vel og skemmtilega til barna á augabragði, ég gleymi þessum degi aldrei. Hvernig hann náði til Ýmis Atla og skemmti sér svo innilega sjálfur í fótbolta og á Stiga-sleðanum. Og að kynnast gullmolanum, henni Freyju, dótt- ur hans, í leiðinni, var nú heldur betur að detta í lukkupottinn. Það fór heldur ekki fram hjá mér sú virðing og ást sem hann bar fyrir bróður sínum. Hann tal- aði svo fallega um Jón Gauta við mig og það var augljóst að bræðraástin var sterk. Takk Mikki fyrir góðu stund- irnar, takk fyrir að passa upp á Jón og takk fyrir að við höfum fengið að kynnast þér. Minning þín mun alltaf lifa. Rán, Urður, Ýmir, Jódís og Eldur. Elsku Mikki. Ég á erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur. Það er svo sárt að hugsa til þess að þú fáir aldrei að sjá stelpuna okkar verða fullorðna og brillera í lífinu eins og ég veit að hún mun gera. Hún er metnaðargjörn eins og þú. Þegar ég hugsa til þín, þá hugsa ég um hlátur, hvað þú varst skemmtilegur og orðhepp- inn, góðhjartaður, gáfaður, hvetj- andi og hjálpsamur, en líka Bakkus. En við vorum alltaf bjartsýn, alveg sama hvað. Þetta reddast. Við gátum endalaust tal- að um framtíðina og þú varst allt- af svo áhugasamur um hvað við værum að gera, því ég veit að þú vildir bara heyra í okkur og spjalla því þú saknaðir okkar. Mikið svakalega á ég eftir að sakna þín og allra símtalanna okkar, það var best að tala við þig. Þú hefur alltaf hjálpað mér mikið og verið mér mikið, og ég veit að þú veist það. Minningin þín lifir í dóttur þinni og hjarta okkar allra. Ég passa stelpuna okkar, Aðalrós Freyju. Hina fögru og tignu gyðju ástar. Halldóra Gunnlaugsdóttir. Þegar okkur verður hugsað til æskuáranna í Hlíðunum fyllist hugurinn fljótt af sögum og uppá- tækjum þar sem Mikki var ein- hvern veginn allt í öllu. Lífsglað- ari strák var varla hægt að hugsa sér og hafði hann þann sérstaka eiginleika að fólk dróst að honum því ávallt var mikið fjör og gaman í kringum Mikka. Það var gaman að heimsækja hann, Jódísi, Auði Maríu og Jón Gauta fyrst í Stiga- hlíð en svo Mávahlíðinni sem var eins konar miðpunktur fyrir okk- ur strákana á unglingsárunum. Við strákarnir eyddum mikl- um tíma í alls kyns íþróttum og sama hvaða grein það var, þá var Mikki góður í þeim öllum. Með bros á vör lét hann allt líta auð- velt út og gerði það átakalaust. Verst þótti okkur þó að tapa fyrir honum því fátt kætti hann meira en naumur sigur og hann hafði einnig einstakt lag á að stríða andstæðingum sínum góðlátlega eftir sigurinn. Mikki var svo sannarlega uppátækjasamur. Okkur verður hugsað til heilu daganna í Kringl- unni þar sem margt var brallað, t.d. að skoða nýjustu körfuboltas- kóna í Kringlusporti, kaupa franskar og ameríska kleinu- hringi í Hagkaup sem þá voru ný- komnir til landsins eða hrekkja digra Securitas-vörðinn sem hafði, þrátt fyrir digurt vaxtar- lag, einstakan sprengikraft sem ekki bar að vanmeta. Svo var horft á NBA-úrslitakeppnina næturlangt og farið út í körfu- bolta beint eftir leiki því nóttin var ung og lítið um áhyggjur á þessum árum. Mikki var líka hugmyndarík- ur. Hann bjó í raun til sitt eigið tungumál með ýmsum frösum og átti persónuleg viðurnefni fyrir flesta sem hann umgekkst, mörg ansi góð! Einnig uppfærði hann margt úr kvikmyndum sem hann sá yfir í daglega lífið og var flott- ur sem nútíma Baddi úr Djöfla- eyjunni og sparaði ekki frasann „Wipe the windows, check the oil, dollar gas“. Þrátt fyrir að stundum hafi nú gengið á ýmsu, þá var Mikki allt- af einstaklega góður við okkur strákana. Hann vildi allt fyrir okkur gera og var örlátur og góð- ur vinur. Þó að samskiptin hafi minnkað með árunum var alltaf eins og við hefðum hist í gær þegar leiðir okkar lágu saman, og tengsl æskuvina ávallt jafn sterk. Við kveðjum Mikka með mikilli sorg en líka þakklæti fyrir þær óteljandi gleðistundir sem við áttum með þér elsku vinur. Bjarni, Brynjólfur (Billi), Gísli, Grímur, Markús, Matthías (Matti), Steindór og Tómas. Elsku hjartans engillinn minn. Ég hreinlega veit ekki hvar ég á að byrja því ef ég fengið að ráða myndi ég geta skrifað bækur í bindum um líf okkar. Ég á erfitt með að sætta mig við að þú skulir ekki vera lengur hér. Ég vildi óska þess að allir hefðu fengið að kynnast þér eins og ég fékk að kynnast þér því þú hafðir einstakan mann að geyma og mun ég aldrei gleyma þér ást- in mín, þú munt fylgja mér að ei- lífu í hjartanu. Þú varst snillingur í að búa til ný nöfn á fólk og varst líka með þitt eigið tungumál. Ég gleymi aldrei þeim degi sem þú kallaðir mig fyrst Bangsa. Ég var nú ekk- ert voðalega hrifin af þessu fyrst, þú sagðir svo að þetta nafn myndi fylgja mér að eilífu og er þetta eitt af því dýrmætasta sem þú gafst mér. Við lifðum hratt saman og höf- um við gert ótalmarga hluti og var líf okkar eins og rússíbani oft á tímum og alveg efni í bíómynd en í gegnum þetta allt stóðum við alltaf saman og elskuðum hvort annað bara meira ef eitthvað var. Við þurftum að taka á móti alls kyns hindrunum og flækjum en það virtist ekki skipta máli hvað það var, við vissum alltaf hvar við höfðum hvort annað, við vorum „partnerar“ og sálufélagar eins þú sagðir alltaf. Við gátum talað tímunum sam- an og svo var þögnin með þér líka góð, við þurfum ekki orð, við skildum hvort annað. Við vorum ótrúlega tilfinningatengd, nokk- uð sem er ekki hægt að útskýra í orðum. Zlatan litli strákurinn okkar saknar þín ekkert smá og í hvert skipti sem við komum heim er hann enn þá að leita að þér. Þið áttuð einstakt samband og það sem þú nenntir að djöflast í hon- um var ótrúlegt enda elti hann þig eins og skugginn hvert sem þú fórst, svo svaf hann ofan í and- litinu á þér ef ekki ofan á. Litli strákurinn okkar fer núna að verða þriggja ára og mun ég standa við það sem ég lofaði þér að koma með hann að heimsækja þig á sérstöku dögunum okkar sem við áttum saman. Þessi litli pjakkur sem er nú ekki mikið lít- ill lengur stendur alveg undir nafninu sínu sem þú gafst honum og gott betur en það, hann lætur alveg hafa fyrir sér og stjana við sig eins og þú áttir nú til í að láta gera fyrir þig. Elsku Mikki minn, við ætluð- um okkur svo mikið saman og áttum svo falleg framtíðarplön. Þú ætlaðir að massa þetta í eitt skipti fyrir öll en svo kom þessi þruma úr heiðskíru lofti. Ég á enn erfitt með að ná áttum yfir þessu en ég veit að þú hefur fund- ið frið í hjartanu eftir langa bar- áttu við þennan djöful. Ég er svo þakklát fyrir þessi ár með þér og það sem þú hefur kennt mér og sýnt. Það var enginn eins og þú. Ég elska þig meira en orð fá lýst og sakna þín svo mikið að mig verkjar í hartað. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið þessa fallegu kveðjustund með þér og fengið að fylgja þér alla leið til enda. „Ride or die“ eins og við sögðum. Ég hlakka til að sjá þig aftur þegar minn tími er kominn en þangað til. Þinn eilífðar Bangsi, Margrét Mjöll. Mikael Már Pálsson Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.