Morgunblaðið - 18.03.2021, Síða 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18,
mánudaga - föstudaga 11-18:30
20-25%
Sparadu-
af öllum ljósum
Lýkur á mánudag
20%
af perum
& kertum
Sparadu-
Nýtt
VIVA
RÚM
120x200 cm.149.900 kr.NÚ 104.900 kr.
160x200 cm. 179.900 kr.NÚ 125.900 kr.
180x200 cm.199.900 kr.NÚ 139.900 kr.
HÖFUÐGAFL
132 cm. 44.900 kr.NÚ 31.400 kr.
172 cm. 49.900 kr.NÚ 34.900 kr.
192 cm. 54.900 kr.NÚ 38.400 kr.
30%
kynningarafsláttur
Lýkur á mánudag
COHEN LOFTLJÓS Hvítt eða svart matt
loftljós. Ø 25 cm. 14.995 kr.NÚ 19.996 kr.
ABILD BORÐLAMPI. Ø25 x H 52 cm.
14.995 kr.NÚ 11.996 kr.
SPAraðu 3.499
Nú 10.496
SPAraðu 3.249
Nú 9.746
CHILI VEGGLAMPI Svartur. H 41 cm.
13.995 kr.NÚ 10.496 kr.
Íslensku tónlistarverðlaunin 2021 verða afhent 14. apríl
og voru öll met slegin í innsendingum en um 1.200 inn-
sendingar bárust í formi platna, tónverka, viðburða,
einstaklingsverðlauna, myndbanda og hönnunar, að því
er fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum. Hátt í
40 manns koma að dómnefndarstarfi hjá Íslensku tón-
listarverðlaununum og verða tilnefningar tilkynntar 24.
mars. Veislustjóri verður Saga Garðarsdóttir leikkona
sem sést á myndinni með forseta Íslands, Guðna Th.
Jóhannessyni, að afhenda björtustu voninni í flokki
djass- og blústónlistar, Daníel Helgasyni, Íslensku tón-
listarverðlaunin árið 2019.
Öll met slegin í innsendingum
FIMMTUDAGUR 18. MARS 77. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Enn er ekki ljóst hvort Gylfi Þór Sigurðsson, Jóhann
Berg Guðmundsson, Jón Daði Böðvarsson og Rúnar
Alex Rúnarsson fá að fara frá Englandi til Þýskalands til
að spila með íslenska landsliðinu gegn því þýska í und-
ankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta 25. mars.
Að sama skapi gætu margir þýskir leikmenn sem spila
með enskum liðum ekki heldur mætt til leiks. »59
Enn óvissa með Þýskalandsleikinn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íslenskir knattspyrnumenn hlaupa að
meðaltali fleiri kílómetra í leik en
leikmenn í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta kemur fram í meistararitgerð,
sem Bolvíkingurinn Harald Pét-
ursson er að leggja lokahönd á í
íþróttavísindum í Háskólanum í
Reykjavík. „Leikmenn hérlendis taka
færri spretti á yfir 25 kílómetra hraða
á klukkustund og hámarkshraði
þeirra er lægri,“ segir hann. Vísbend-
ingar séu um að það geti verið merki
um skort á leikskilningi hlaupi leik-
menn meira en 13 kílómetra í leik.
Pep Guardiola, stjóri Manchester
City, hafi til dæmis tekið undir það,
en í Pepsi Max-deild karla hlaupa
margir leikmenn yfir 13 kílómetra í
leik.
Ástralska fyrirtækið Catapult hóf
framleiðslu á sérhönnuðum vestum
með GPS-tækjum árið 1999 og er
leiðandi í þessari tækni, en um 3.000
íþróttafélög í 39 greinum í 135 lönd-
um nota GPS-vesti frá því. Alþjóða-
knattspyrnusambandið, FIFA, hefur
tekið búnaðinn út og samþykkir hann.
Mörg af fremstu knattspyrnulands-
liðum heims nota hann og yfir 1.200
félagslið að auki. Í þeim hópi eru 19
íslensk knattspyrnulið karla og
kvenna.
Harald er umboðsmaður Catapult
á Íslandi. Hann stofnaði fyrirtækið
SmartSport 2018, Guðmundur Bene-
diktsson gekk svo til liðs við hann eft-
ir að hafa fallið fyrir kynningu á bún-
aðinum. Leikmenn sjö liða í efstu
deild karla tóku þátt í rannsókninni
og var stuðst við gögn sem fengust úr
fyrrnefndum búnaði.
Mikilvægur samanburður
„GPS-kubburinn er á baki vest-
isins og hann greinir allt sem gerist
hjá viðkomandi leikmanni,“ útskýrir
Harald. Þannig sé til dæmis hægt að
fylgjast með heildarhlaupavega-
lengd, öllum sprettum, hvar þeir
eru, hvenær, hvað langir og á hvaða
hraða. „Með þessu móti má greina
líkamlegt ástand leikmannsins,
álag, meiðslahættu og fleira. Menn
nota vestin bæði á æfingum og í
leikjum og hjá öflugustu atvinnu-
mannaliðunum vinnur hópur vís-
indamanna og annarra við það að
greina upplýsingarnar, en hjá okkur
er greiningin í höndum viðkomandi
þjálfarateymis.“
Fyrrnefnd meistararitgerð fjallar
um hlaupatölur íslenskra knatt-
spyrnumanna. „Með þessari rann-
sókn verða í fyrsta sinn til gögn um
líkamlegt ástand íslenskra knatt-
spyrnumanna sem bera má saman
við leikmenn í öðrum löndum og er-
lendar rannsóknir,“ segir Harald um
verkefnið. Hann greinir leikmenn
eftir stöðum sem þeir gegna á leik-
vellinum „Bakverðir og vængmenn
hlaupa mest og eru til dæmis með
mun fleiri spretti en hér áður fyrr.“
Nýjasta GPS-vestið frá Catapult
heitir PLAYR og er hugsað fyrir ein-
staklinga og minni lið. Sprenging hef-
ur orðið í sölu PLAYR-vestanna og
segir Harald að yfir 1.000 manns not-
færi sér þau nú hérlendis. „Í beinum
útsendingum má gjarnan sjá þessa
tölfræði og mörgum finnst gaman og
gagnlegt að bera eigin árangur sam-
an við þá bestu,“ segir Harald. „Það
virkar líka hvetjandi fyrir unglinga að
sjá hvar þeir standa, að ég tali ekki
um bætingu.“
Ómarkviss hlaup
Hjá Þrótti Guðmundur Benediktsson og Harald Pétursson kynna vestin.
- Of mikil hlaup geta verið merki um skort á leikskilningi
- Tímamótarannsókn um hlaupatölur íslenskra leikmanna
Efnileg Búnaðurinn gagnast vel Sveindísi Jane Jónsdóttur landsliðskonu.